Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2011, Side 22
22 | Fókus 6. apríl 2011 Miðvikudagur
Stefán Hilmarsson og Eyjólfur Kristjánsson með afmælistónleika í Salnum:
NíNa tvítug og á FacEbooK
Þann 4. maí verða tuttugu ár liðin
frá því að þeir Eyjólfur Kristjánsson
og Stefán Hilmarsson fluttu Euro-
vision-smellinn Nínu á sviðinu í
CineCitta-kvikmyndaverinu í Róm-
arborg. Það var Eyjólfur sem samdi
lagið sem er ein vinsælasta dægur-
lagaperla landsins frá upphafi. Í til-
efni af tuttugu ára afmæli Nínu ætla
þeir félagar að halda afmælistón-
leika í Salnum í Kópavogi þann 30.
apríl.
„Okkur datt í hug að halda upp
á þennan merka áfanga,“ segir Eyj-
ólfur Kristjánsson „faðir“ Nínu.
„Þetta lag hefur verið stór partur
af ferli okkar beggja þó svo að það
hafi bara lent í 15. sæti í keppninni.“
Til þess að vekja athygli á tónleik-
unum hefur Nína fengið sína eigin
Facebook-síðu undir nafninu Nína
Eyjólfsdóttir. „Hún vildi bara láta
vita af afmælinu sínu,“ segir Eyjólf-
ur léttur.
Miðasala á tónleikana er þegar
hafin á midi.is og í Salnum í Kópa-
vogi en Eyjólfur segir að Euro-
vision-bragur verði á tónleikunum.
„Við munum taka okkar uppáhalds
Eurovision-lög auk þess sem við
munum taka það sem við köllum
„Usual Suspects“ eða okkar vin-
sælustu lög.“ Ásamt þeim Eyfa og
Stebba koma fram Þórir Úlfars-
son sem leikur á píanó og Friðrik
Sturluson sem leikur á bassa.
Eyjólfur útilokar ekki að tón-
leikarnir verði fleiri. „Ef það selst
upp og færri komast að en vilja þá
er ekkert því til fyrirstöðu að kýla á
aðra tónleika.“
asgeir@dv.is
Áhorfendur
vissir um
sigurinn
Rafpopptríóið Samaris bar sigur
úr býtum á Músíktilraunum um
helgina á sannfærandi máta.
Áhorfendur úti í sal voru margir
handvissir um sigur sveitarinnar
eftir að hafa hlustað á hana. Bæði
vakti vandaður hljóðfæraleikur og
fögur raddbeiting aðdáun. Samar-
is var stofnuð í janúar 2011. Hana
skipa þau Áslaug Rún Magnús-
dóttir, Jófríður Ákadóttir og Þórður
Kári Steinþórsson. Bæði Áslaug og
Jófríður eru klassískt menntaðar á
klarinett en Þórður stundar nám
í tölvutónlist við Tónlistarskólann
í Kópavogi. Saman spila þau raf-
popp í rólegri kantinum við texta
úr gömlum íslenskum sönglögum.
Gestir á RFF fögnuðu sýningu Munda
ákaft. Mikil eftirvænting var eftir haust-
línu hans og sýningar hans síðustu árin
hafa þótt afar vel heppnaðar. Á sviðinu
ríkti drungalegur vetur. Mundi notaði
viftur og gervisnjó
til þess að búa til
snjókomu á svið-
inu og stemningin
þótti vel heppn-
uð. Fyrirsæturnar
komu svo fram ein
af annarri íklædd-
ar stórum prjóna-
flíkum, í skíða-
skóm og með skíðastafi. Förðunin var
drungaleg, fyrirsæturnar voru málaðar
hvítar í framan og með bláar varir.
Hæðinn gestur sagði tvo hönnuði
á RFF hafa sýnt kænsku þegar kom
að því að láta óvanar íslenskar fyrir-
sætur ganga eftir pöllunum. Kalda,
með því að láta
fyrirsæturnar
ganga löturhægt
á flatbotna skóm,
og Munda, með
því að láta fyrir-
sætur í klossaða
skíðaskó. Þannig
var reynsluleysi
fyrirsætnanna
ekki greinanlegt.
Mynstraðar flíkur Munda slógu í
gegn og litanotkunin þótti framúrskar-
andi en hann notaði bleika, bláa og
appelsínugula liti
með gráum, svört-
um og hvítum.
Erlendir fjölmiðlar
lofa Munda en nú
þegar hefur The
Sartorialist, eitt
frægasta tísku-
blogg heims, sagt
sýningu Munda
hafa markað hápunkt Reykjavik
Fashion Festival.
Sýning Munda hápunktur RFF:
í skíðaskóm
fyrirsætur
d
avíð Örn Arnarsson er einn
þeirra sem lögðu grunninn
að sigri liðs Kvennaskólans
í Gettu betur. Davíð Örn
vann sem stuðningsfulltrúi
og að félagsmálum í Foldaskóla og
þjálfaði tvo liðsmenn sigurliðsins,
þá Bjarna Lúðvíksson og Bjarka
Frey Magnús son, fyrir spurninga-
keppni grunnskólanna, Nema
hvað? Hann sá í þeim mikla hæfi-
leika og hefur síðan þá stutt þá með
ráðum og dáð.
Davíð Örn gladdist innilega þegar
liðið stöðvaði sigurgöngu MR í Gettu
betur um síðastliðna helgi og var
fyrstur allra til að hringja og árna liði
Kvennaskólans heilla þegar kom í
ljós að liðið hafði sigrað í Gettu betur.
Horfði á keppnina í sumar-
bústað
Þegar þeir Bjarki og Bjarni voru í tí-
unda bekk sigruðu þeir lið Hagaskóla
og vöktu mikla athygli fyrir skelegga
framgöngu. Reyndar svo mikla að
menntaskólar eins og MR sóttust eft-
ir að veita þeim inngöngu. „Það er
engin furða, því það sást strax hvað
þeir voru mikil efni,“ segir Davíð Örn.
„Þetta eru náttúrulega frábærir
strákar, með mikinn áhuga á því sem
þeir eru að gera. Þeir eiga þetta svo
innilega skilið, ég tala nú ekki um að
þeir fengu stelpu með sér í lið. Það er
frábært að loks skuli stelpa standa á
meðal sigurvegara.“
Davíð Örn berst við krabbamein
og komst ekki á úrslitakvöldið vegna
verkja. Hann horfði á keppnina í
sumarbústað með kærustu sinni
en segir það merkilegt að meðan á
keppninni stóð hafi hann ekki fund-
ið fyrir verkjum. „Það er magnað
hvernig líkaminn virkar því þegar
ég horfði á keppnina var spennan
og gleðin svo mikil að ég fann ekk-
ert til.“
Þakklátir gamla þjálfaranum
Þeir Bjarki og Bjarni hafa átt sam-
leið síðan í æsku og eru bestu vinir.
Þeir verja nærri öllum sínum tíma í
að safna fróðleik. Þeir hafa þegar sett
sér það markmið að vinna keppnina
öðru sinni. „Davíð Örn vakti áhuga
okkar á þessari keppni og þjálfaði
okkur. Hann hafði strax mikla trú á
okkur. Við erum honum afar þakklát-
ir og stefnum að öðrum sigri á næsta
ári og höldum áfram að æfa,“ segir
Bjarki.
Davíð Örn spáði þeim á sínum
tíma sigri í Gettu betur. „Ég sagði við
þá fyrir nokkrum árum að þeir ættu
eftir að vinna Gettu betur tvisvar. Nú
hafa þeir náð sínum fyrri áfanga og
þá er bara sá seinni eftir. Ég var al-
veg viss um að þeir gætu þetta,“ segir
Davíð Örn.
vildi fá Hljóðnemann aftur í
blokkina
Steinþór Helgi Arnsteinsson er einn
þriggja þjálfara liðsins í dag en hann
sigraði einmitt í Gettu betur með liði
Borgarholtsskóla árið 2005. Stein-
þór segir Davíð Örn hafa komið að
máli við sig í veislu síðasta sumar og
sagt sér frá þessum efnilegu strákum.
„Hann bað mig um að þjálfa þá og ég
var hálfefins í fyrstu. Hann sannfærði
mig hins vegar og rakti velgengni-
sögu þeirra í Grafarvoginum. Sjálfur
er ég uppalinn í Foldahverfinu og átti
meira að segja heima í sömu blokk
og Bjarki í dag. Hann Bjarki náði
mér svo alveg inn sem þjálfara þeg-
ar hann sagði mér að hann vildi fá
Hljóðnemann aftur í blokkina. Hann
hitti á viðkvæma taug hjá mér. Svo
bættist það við að Laufey á heima
í næsta húsi við mig þar sem ég á
heima í dag, á Bárugötunni. Þannig
að þetta er aldeilis heimilislegt.“
kristjana@dv.is
Sá hæfileikana
strax í grunnskóla
n Davíð Örn arnarsson þjálfaði tvo meðlimi gettu betur liðs Kvennaskólans í
grunnskóla n berst nú við krabbamein n Strákarnir þakklátir gamla þjálfaranum
Styður strákana með
ráðum og dáð
Davíð Örn arnarsson vann sem stuðn-
ingsfulltrúi og að í félagsmálum í Folda-
skóla og kom að þjálfun þeirra Bjarna og
Bjarka fyrir spurningakeppni framhalds-
skólanna, Hér er hann mættur þegar
liðið sigraði FG á dögunum. Frá vinstri:
Bjarki, Bjarni og Laufey, Bjarki og Bjarni,
liðsmenn Kvennaskólans, Davíð Örn og
Steinþór Helgi, einn þjálfara liðsins.
Sigurliðið Laufey Haralds-
dóttir, Bjarni Lúðvíksson og
Bjarki Freyr Magnússon.
Stebbi og Eyfi
Á sviðinu í undankeppni RÚV
fyrir Eurovision árið 1991.