Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2011, Qupperneq 24
24 | Sport Umsjón: Tómas Þór Þórðarson tomas@dv.is 6. apríl 2011 Miðvikudagur
Ungstirni boðið
til æfinga
n Sir Alex Ferguson hefur boðið
brasilíska ungstirninu Adryan að
æfa með Manchester United næstu
vikur en þessi
ungi piltur sló
í gegn í Suður-
Ameríkubikar
U17 ára lands-
liða á dögunum.
United-menn
þurfa þó að
hafa hraðar
hendur því Real
Madrid er sagt hafa mikinn áhuga
á þessum sextán ára dreng. Nýlega
fékk Manchester United annan
unga Brassa, Rafael Leao, að láni en
Ferguson vill að sögn hafa þá tvo í
sama liðinu.
Nýr Ronaldo heillar
n Meira af ungstirnum því japanska
undrið Ryo Miyaichi, sem titl-
aður hefur verið hinn nýi Ronaldo,
heldur áfram að
fara á kostum í
hollensku deild-
inni. Arsenal er
nú þegar búið að
klófesta Japan-
ann en lánaði
hann strax til
Feyenoord. „Það
er frábært að
svona hæfileikaríkur piltur fái að
spila með Feyenoord. Ég hef séð
fyrstu leikina hans og það er ljóst
að þarna er leikmaður sem verður
einn sá besti í heimi,“ segir Leo
Beenhakker, yfirmaður fótboltamála
hjá félaginu.
Wenger vill Baines
n Meira af Arsenal því Arsene
Wenger er sagður ætla að losa sig
við vinstri bakvörðinn Gael Clichy
í sumar og
nota hann sem
aukagreiðslu í
kaupum á Leig-
hton Baines frá
Everton en þetta
kemur fram í
breska blaðinu
Daily Mirror.
Arsenal mun þó
fá samkeppni um Baines sem hefur
verið góður með Everton í vetur.
Liverpool hefur einnig mikinn
áhuga á að næla í kappann en þar á
bæ vantar sárlega vinstri bakvörð.
Ástin hefur vinninginn
n Þungavigtarboxararnir David Haye
og Wladimir Klitschko munu loks
mætast í hringnum í sumar eftir
margra mánaða
japl, jaml og
fuður. Þeim
líkar vægast sagt
illa hvorum við
annan og nota
hvert tækifæri
til að skiptast á
pillum. Nú síðast
lét Haye hafa
eftir sér: „Ég hef gaman af hnefa-
leikum. Ég elska hnefaleika. Þess
vegna mun ég vinna. Klitschko
hugsar um allt annað en box þessa
dagana og það mun ég nýta mér til
að rota hann,“ segir Haye.
Hamilton fer hvergi
n Slúðurdálkar Formúlukálfanna
fóru á fullt á mánudaginn þegar
greint var frá að Lewis Hamilton
myndi yfirgefa
McLaren fyrir
Red Bull árið
2012. Við nánari
athugun kom
í ljós að ekkert
var til í því. „Ef
Hamilton vildi
aka fyrir Red Bull
væri ekki hægt
að sleppa þannig tækfæri. En mér
skilst að hann sé með margra ára
samning hjá McLaren sem skilar
honum milljónum punda í tekjur.
Ég býst því fastlega við að hann sé
ekki að fara neitt,“ sagði Christian
Horner, liðstjóri Red Bull, við BBC.
Molar
„Þetta er nákvæmlega eins og þetta
á að vera og svona verður þetta líka
á fimmtudaginn,“ segir Magnús Þór
Gunnarsson, stórskytta körfuknatt-
leiksliðs Keflavíkur, um rimmuna
mögnuðu gegn KR. Keflavík lenti
2–0 undir í einvíginu en tryggði sér
oddaleik á mánudagskvöldið með
ótrúlegum sigri á heimavelli, og
annan leikinn í röð hafði Keflavík
sigur í framlengingu. Veislunni lýk-
ur á fimmtudagskvöldið með odda-
leik og þar með hreinum úrslitaleik
um sæti í úrslitarimmunni þar sem
Stjarnan bíður róleg. Serían til þessa
hefur verið hlaðborð af kræsingum
en sveiflurnar í leikjunum eru ótrú-
legar og sama hversu miklu forskoti
annar liðið nær, aldrei er sigurinn í
húsi. „Þetta sýnir bara hvað þessi lið
eru jöfn og sterk. Það er ekkert búið
þó maður lendi 15–20 stigum und-
ir. Menn sjá bara fjórða leikinn. Þar
vorum við níu stigum undir og fjór-
ar mínútur eftir. Þetta sýnir styrk-
leika okkar,“ segir Magnús Þór sem
sjálfur átti stórleik á mánudags-
kvöldið og skoraði sjö þriggja stiga
körfur.
Af hverju eru þeir ekki að hlaupa
okkur í kaf?
Það hefur seint þótt sniðugt að afskrifa
Keflavík sem gæti á fimmtudaginn
unnið sama afrek og liðið gerði árið
2008. Þá var það 2–0 undir í undanúr-
slitarimmunni gegn ÍR en kom til baka
og valtaði yfir ÍR-inga þrívegis. „Við
erum bara á þeirri skoðun að 2008 sé
að endurtaka sig. Við eigum einn leik
eftir gegn KR og þá eigum við eftir að
vinna þrjá leiki til að verða Íslands-
meistarar. Við hugsum þetta bara eins
og háskólakörfuboltann í Bandaríkj-
unum núna. Við þurftum sex leiki til
að verða meistarar og það eru tveir
komnir. Stígandinn er með okkur þar
sem við erum búnir að vinna tvo í röð,“
segir Magnús kokhraustur.
Eftir fyrstu tvo leikina var mikið
talað um að breidd KR-liðsins væri
of mikil fyrir Keflavík og að liðið gæti
ekki haldið í við Vesturbæinga í fjöru-
tíu mínútur. „Þetta var ekkert annað
en vanmat. Við pældum ekkert sér-
staklega í þessu en maður heyrði þetta
auðvitað aftur og aftur. Þetta bara
hvetur mann áfram. Maður spyr sig af
hverju þeir séu ekki að hlaupa okkur
í kaf núna. Svo er líka komin hörku-
pressa á þá. Það er erfitt að vera kom-
inn í 2–0 því þú þarft alltaf að vinna
einn leik til viðbótar. Þeir tala ekkert
um það en það er svaka pressa á KR að
vinna heimaleikinn,“ segir Magnús Þór
Gunnarsson.
Erum með betra lið
Fyrirliði KR, Fannar Ólafsson, var hinn
kátasti þegar DV náði tali af honum.
„Þessi fjórði leikur var bara líf og fjör.
Körfuboltaleikur eins og þeir gerast
bestir. Doddi gjaldkeri var náttúru-
lega búinn að „jinxa“ þetta því hann
vildi fá þrjá leiki til að koma rekstrin-
um í almennilegan plús,“ segir Fannar
og hlær. „Nú erum við að fá Keflavík á
ógnar sterkan heimavöll okkar þar sem
mér telst til að við höfum bara tapað
fimm leikjum í deildinni undanfarin
fimm ár. Það er mjög sterkt.“
Fannar gat útskýrt hvers vegna
Keflavík nær að halda í við hina svaka-
legu breidd KR-liðsins. „Þeir hægja
töluvert á leiknum með svæðisvörn-
inni. Við erum heldur ekkert að ná
að hlaupa þetta eins og við viljum og
það hjálpar þeim. Maður horfir samt
á stóru mennina þeirra blása alls-
vakalega undir lokin. Það sést alveg að
þetta tekur á hjá þeim. Þeir eru heldur
ekki að hlaupa á eins mörgum mönn-
um og það telur í svona langri seríu,“
segir Fannar sem hlakkar til fimmtu-
dagsins en áttar sig á því að Keflvíking-
ar eru komnir með blóð á tennur.
„Þetta verður hörkuviðureign. Ég
spilaði sjálfur einu sinni í Keflavík
og þekki þetta mjög vel. Það er kom-
in grimmd í þá sem gerir þetta bara
skemmtilegra. Það verður samt erf-
itt fyrir þá að reyna að vinna okkur
fyrir framan stútfulla höll. Við telj-
um okkur líka vera með mun betra
lið en Keflavík, það er að segja liðs-
heild,“ segir Fannar Ólafsson, fyrir-
liði KR.
Veislunni lýkur
í Vesturbænum
n Oddaleikur KR og Keflavíkur fer fram á fimmtudags-
kvöldið í DHL-höllinni n Árið 2008 er að endurtaka
sig, segir Magnús Þór Gunnarsson n Erum með
betra lið, segir Fannar Ólafsson n Jafnt í spánni
Sérfræðingar
spá í spilin
Benedikt Guðmundsson, þjálfari Þórs
í Þorlákshöfn.
„Fyrirfram bjóst ég við spennandi seríu
en þegar KR komst í 2–0 hélt ég að þetta
væri búið. Þetta á samt ekki að koma
manni neitt á óvart því Keflavík hefur
sýnt mikinn styrk. Það eru aðeins örfá
lið sem hafa náð að jafna í 2–2 og bara
Keflavík sem hefur unnið eftir að lenda
2–0 undir. Svæðisvörn Keflavíkur í
síðustu tveimur leikjum hefur ekki verið
að halda KR sóknarlega en Keflavík er þó
að fá fleiri fráköst og keyra upp völlinn
og ná í þessi auðveldu stig sem það þarf.
Þessi vörn hefur hentað vel á móti KR. Ég
spáði KR samt sigri í seríunni og held mig
við það. Sigrarnir hjá Keflavík voru þannig
að þeir hefðu getað dottið inn hjá báðum
liðum. Það er ekkert langt á milli þessara
liða. Ég held að KR muni springa út gegn
svæðisvörn Keflavíkur á fimmtudaginn
og klára þetta.“
KR ÁFRAM
Friðrik Ragnarsson, þjálfari Njarðvíkur.
„Þessi rimma er einfaldlega í lausu lofti
núna. Tveir síðustu leikir hafa verið
algjörlega frábærir. Ég hélt að þetta væri
alveg borðliggjandi sópun hjá KR eftir
að það komst í 2–0. En Keflavík hefur
sýnt ótrúlega þrautseigju í að koma til
baka og ég fór að trúa því eftir fjórða
leikinn að Keflavík myndi hafa þetta,
eins og ótrúlega og það hljómaði nú
fyrir nokkrum dögum. Keflavíkurliðið
hefur verið skynsamt að breyta í 2/3
svæðisvörn. Það er snjallt. Þó svo KR-
ingar setji niður nokkrar körfur hverfa
Keflvíkingar ekkert frá skipulaginu. Þeir
treysta bara á að Keflavík hitti ekki vel.
Það er líka málið. Ef KR ætlar ekki að
hitta á fimmtudaginn þá tapar það. Ég
var á því í byrjun úrslitakeppninnar að KR
yrði fyrsta liðið til að fara í gegnum hana
alla án þess að tapa leik. En nú er komið
eitthvað bakslag. Keflavík hefur nú unnið
tvo í röð, stígandinn er með þeim og leik-
menn liðsins hafa sýnt hversu ótrúlega
sterkir þeir eru í hausnum. Ég ætla því
að leyfa þeim að njóta vafans og spá
Keflavík í úrslitin.“
KEFLAVÍK ÁFRAM
Jón Björn Ólafsson, ritstjóri karfan.is
„Ef þú mætir ekki á þennan leik og ert
stuðningsmaður Keflavíkur eða KR er
eins gott að þú sért búsettur erlendis
eða pikkfastur í geimrannsóknastöðinni!
Það er algjör gósentíð í gangi hjá þessum
tveimur félögum. KR hnyklaði vöðvana
í leikjum eitt og tvö en Keflavík svaraði
því. Verði Hjörvari Hafliðasyni að góðu að
setja stuðul á oddaleikinn. KR mun halda
áfram að keyra í bakið á Keflavík enda
vopnaðir Marcus „The Bullet“ Walker.
Hver myndi ekki hlaupa með hann innan-
borðs? Keflavík glottir hins vegar við tönn
þegar KR fellur í þá gryfju að gera þetta
að þriggja stiga keppni, þú nefnilega
ybbar ekki gogg við Magga Gunn fyrir
utan línuna. Liðin hafa sýnt að þau bæði
verðskulda að vera komin í oddaleik,
sama hvernig horft er á málið. Enginn
er spámaður í eigin föðurlandi svo mér
dettur ekki til hugar að snerta þennan
leik úr fánastangarfjarlægð. Ég er samt
viss um að við fáum jafnan og spennandi
leik og er þá vægt til orða tekið.“
EnGin SpÁ
Tómas Þór Þórðarson
blaðamaður skrifar tomas@dv.is
Komu til baka Magnús
Þór Gunnarsson var
magnaður í leik fjögur.
MynD TOMASz KOLODziEJSKi