Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2011, Qupperneq 25
Sport | 25Miðvikudagur 6. apríl 2011
Lokaumferðin í
handboltanum
n Á fimmtudagskvöldið verður
leikin lokaumferðin í N1-deild
karla í handbolta. Lítil spenna er
fyrir umferðina
þar sem ljóst
er hverjir verða
meistarar,
hverjir falla og
hvaða lið fara í
úrslitakeppnina.
Eina spurningin
er hvort HK, sem
mætir FH, nái
þriðja sætinu af Fram sem á leik
gegn Akureyringum fyrir norðan.
Ljóst er að liðið sem endar í fjórða
sæti mætir Akureyri í undanúrslit-
um N1-deildarinnar en Akureyri er
nýkrýndur deildarmeistari.
Skaginn mætir
Keflavík
n Riðlakeppni Lengjubikars karla
fer senn að ljúka en þrír áhugaverð-
ir leikir eru í boði á fimmtudaginn.
ÍA tekur á móti Keflavík í Akranes-
höllinni klukkan 18.00, ÍR og BÍ/
Bolungarvík mætast í Breiðholtinu
hálftíma síðar og þá eigast Þróttur
og Stjarnan við á gervigrasinu í
Laugardal klukkan átta. ÍA á enn
góða möguleika á að komast í
undanúrslitin en hin liðin eiga enga
möguleika á slíku.
Sverre mætir Lemgo
n Landsliðsmaðurinn í handbolta
Sverre Jakobsson og félagar hans í
þýska úrvalsdeildarliðinu Grosswall-
stadt eru komnir
í undanúrslit
Evrópukeppni
félagsliða í hand-
bolta en dregið
var í undanúr-
slitaviðureignirn-
ar í gær. Sverre
og félagar mæta
þýska liðinu
Lemgo sem Logi Geirsson lék lengi
með. Í hinum undanúrslitaleiknum
mætast þýska liðið Göppingen og
spænska liðið Naturhouse la Rioja.
Missti næstum fótinn
n Franski miðjumaðurinn Hatem
Ben Arfa, sem hefur ekki spilað með
Newcastle síðustu mánuði vegna
fótbrots sem
hann hlaut af
völdum Nigel De
Jong, greindi frá
því í gær að hann
hefði verið hárs-
breidd frá því
að missa fótinn.
Sýking komst í
fótinn eftir upp-
skurð og þurfti hann að fara rakleiðis
í aðra aðgerð til að varna því að hann
yrði einfættur. Ben Arfa fór frábær-
lega af stað með Newcastle og verður
hann mikill styrkur fyrir liðið er hann
kemur aftur.
Molar
Veislunni lýkur
í Vesturbænum
Breska blaðið Daily Mail tók forskot
á sæluna í gær og birti það sem það
heldur fram að sé áreiðanlegur listi
yfir þá sex sem koma til greina sem
leikmaður ársins í ensku úrvals-
deildinni. Aðeins einn Englending-
ur kemur til greina, Scott Parker hjá
West Ham, en annars samanstendur
listinn af leikmönnum frá Argentínu,
Serbíu, Wales, Skotlandi og Frakk-
landi.
Nemanja Vidic og Scott Parker
þykja einna líklegastir til þess að
hreppa hnossið. Það eru leikmenn-
irnir í deildinni sem kjósa sjálfir og
verður kosningin því oft smá vin-
sældarkeppni. Það er væntanlega
vegna hennar sem Portúgalinn Luis
Nani komi ekki einu sinni til greina
þrátt fyrir að hafa farið gjörsamlega
á kostum með Manchester United í
vetur. Nani hefur ekki beint unnið sér
inn mörg prik fyrir framkomu sína á
vellinum þó frammistaða hans hafi
verið mögnuð.
Fyrirtækið Actim heldur utan um
tölfræði allra leikmanna og uppfærir
eftir hverja umferð lista þar sem gefin
eru stig fyrir frammistöðu leikmanna.
Efsti leikmaðurinn þar, Dimitar
Berbatov, kemur ekki til greina sem
leikmaður ársins og heldur ekki leik-
mennirnir í 2., 5., 6. og 7. sæti.
Fjórir af þeim sex sem koma til
greina eru á topp 20 á Actim-list-
anum, Scott Parker er í 33. sæti en
Charlie Adam, Skotinn magnaði hjá
Blackpool, kemst ekki á topp100.
Tómas Þór Þórðarson
blaðamaður skrifar tomas@dv.is
Sex bestu á Englandi
Bestur en getur fallið? Charlie Adam kann að verða valinn besti leikmaður ensku
úrvalsdeildarinnar en fallið með Blackpool. MyND ReuteRS
n Breska blaðið Daily Mail á undan úrvalsdeildinni
n Nani ekki á meðal sex efstu n Aðeins einn englendingur kemur til greina
Carlos tevez
Manchester City
Leikir: 27 Mörk: 19 Stoðsendingar: 6
Actim-stig: 479 (3. sæti)
Carlos Tevez hefur verið hreint magnaður með Manchester
City í ár og er ekki ólíklegur til þess að hirða markakóngstitil-
inn af Dimitar Berbatov. Verstu leikir City hafa jafnan verið
þegar Tevez var fjarverandi en hann er liðinu afar mikilvægur.
Samir Nasri
Arsenal
Leikir: 24 Mörk: 9 Stoðsendingar: 1
Actim-stig: 380 (20. sæti)
Eins og hjá Bale hefur aðeins dofnað yfir Nasri að undan-
förnu, ekki síst vegna meiðsla. Hann hefur þó verið frábær
fyrir Arsenal og ekki að ástæðulausu að hann sé oft kallaður
hinn nýi Zidane.
Nemanja Vidic
Manchester united
Leikir: 29 Mörk: 4 Stoðsendingar: 1
Actim-stig: 471 (4. sæti)
Vörn Manchester United lítur oft kjánalega út sé Nemanja
Vidic ekki með. Hann gerir alla í kringum sig betri og hefur
án efa verið langbesti varnarmaður deildarinnar í ár.
Scott Parker
West Ham
Leikir: 29 Mörk: 5 Stoðsendingar: 2
Actim-stig: 357 (33. sæti)
Ef West Ham bjargar sér frá falli verður það ekki síst að
þakka þessum manni. Scott Parker hefur verið jafnoki
allra miðjumanna deildarinnar í ár og borið heilt lið á
herðum sér hvað eftir annað.
Gareth Bale
tottenham
Leikir: 25 Mörk: 7 Stoðsendingar: 1
Actim-stig: 401 (14. sæti)
Lítið hefur farið fyrir Gareth Bale undanfarið en fyrr á
tímabilinu fór hann hreinlega á kostum og gerði meðal
annars grín að besta hægri bakverði heims, Maicon, í
Meistaradeildinni.
Charlie Adam
Blackpool
Leikir: 28 Mörk: 9 Stoðsendingar: 6
Actim-stig: Kemst ekki á topp 100
Það er sjaldan sem leikmaður nýliða vekur jafnmikla athygli
og hefur verið raunin hjá Charlie Adam. Handan við hornið
bíða hans gull og grænir skógar hjá stærra liði en ef einhver
bjargar Blackpool frá falli verður það hann. Áhugavert er
samt að hann komist ekki á topp 100 á Actim-listanum.