Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2011, Síða 26
26 | Fólk 6. apríl 2011 Miðvikudagur
Kristrún Ösp Barkardóttir og Sveinn Andri Sveinsson:
27 ára aldursmunur
Kristrún Ösp Barkardóttir staðfesti
í samtali við DV að hún og stjörnu-
lögfræðingurinn Sveinn Andri
Sveinsson ættu í ástarsambandi.
„Ég er mjög hamingjusöm,“ sagði
hún. Aðspurður um sambandið
sagði Sveinn Andri að þau tvö væru
ástfangin. „Ég ætla ekkert að tjá mig
um það,“ sagði hann hins vegar að-
spurður hvernig þau hefðu kynnst.
Greint var frá sambandinu á þriðju-
dag en þá hafði verið orðrómur um
samband þeirra um nokkurt skeið,
sem ekki hafði fengist staðfestur.
Greint var frá því fyrir skömmu
í slúðurblaðinu Séð og heyrt að
skötuhjúin hafi verið saman í sól-
inni á Tenerife. Sveinn Andri vildi
ekkert tjá sig um málið þegar DV
náði tali af honum meðan á Te-
nerife-ferðalaginu stóð en hann
sagði einfaldlega: „Ég er alla vega
á Tenerife.“ Staðfesting Kristrúnar
Aspar á sambandi sínu við stjörnu-
lögfræðinginn þykir þó skjóta styrk-
um stoðum undir söguna um Te-
nerife-ferðina.
Samband Kristrúnar Aspar og
Sveins Andra vekur ekki síst athygli
fyrir þá sök að talsverður aldurs-
munur er á þeim. Kristrún Ösp er
fædd árið 1990 en hún er 27 árum
yngri en Sveinn Andri, en hann er
fæddur árið 1963. Ljóst er að ástin
spyr ekki um aldur í tilfelli Kristrún-
ar og Sveins en þau fara ekki í laun-
kofa með samband sitt á Facebook,
þar sem þau eru skráð í sambandi.
Þar fljúga líka hjörtun á milli þeirra
á Facebook-veggjum hvors annars.
Kristrún Ösp er hvað þekktust
fyrir samband sitt við knattspyrnu-
kappann Dwight Yorke sem hún
hefur verið í sambandi við með
hléum um nokkurt skeið. Hún er
þó tiltölulega nýhætt með kærasta
sínum til nokkurra mánaða, Stef-
áni Lárusi Reynissyni, en hún sleit
sambandinu við hann á sjálfan Val-
entínusardaginn. Hún virðist núna
hafa fundið ástina hjá Sveini Andra
sem lengi hefur þótt einn eftirsótt-
asti piparsveinn landsins.
Hættur með
barnsmóðurinni
Útvarpsmaðurinn Heiðar Austmann
er hættur með kærustunni, Báru Björk
Elvarsdóttur. Þetta tilkynntu þau bæði á
Facebook-síðum sínum en Bára Björk sagði
einfaldlega: „Hið óumflýjanlega hefur
gerst.“ Heiðar hefur verið einn vinsælasti
útvarpsmaður landsins undanfarin ár en
rödd hans hefur ómað á útvarpsstöðinni
FM957 um nokkurra ára skeið. Hann
kynntist Báru Björk þegar hann var einn
eftirsóttasti piparsveinn landsins og með
henni eignaðist hann barn. Heiðar horfir
þrátt fyrir skilnaðinn fram á veginn. „Það
er ástæða fyrir öllu :0)“ skrifar hann á
Facebook-síðu sína.
M
ér fannst hann svolítið
ógnvekjandi fyrst þegar
ég sá hann,“ segir Daníel
Jakobsson, bæjarstjóri á
Ísafirði, um breska stórleikarann Je-
remy Irons sem var hér á landi í vik-
unni. „Ég var skíthræddur við hann.
En svo þegar ég fór að tala við hann
kom í ljós að hann er mjög indæll og
viðkunnanlegur.“
Jeremy og föruneyti voru hér
á landi við gerð heimildarmynd-
ar um rusl og mun hluti myndar-
innar fjalla um sorpbrennslustöð-
ina Funa í Skutulsfirði. Mikið hefur
verið fjallað um stöðina að undan-
förnu eftir að í ljós kom að mikið
díoxíð safnast upp í dýrum og nátt-
úru vegna mengunar frá stöðinni.
„Hann er að vinna í heimildar-
mynd um sorp almennt í heimin-
um og verður í tökum eitthvað fram
á haust,“ heldur Daníel áfram en
hann er einn þeirra sem Jeremy tók
viðtal við fyrir myndina. „Ástæð-
an fyrir því að þeir komu hingað
er vegna þess að mér skilst að það
eigi að fjölga sorpbrennslustöðv-
um í Bretlandi til muna. Því þær eigi
að vera svo æðislegar. En svo ertu
með dæmi eins og hérna og þá velta
menn því fyrir sér hvort yfirvöld segi
ekki bara að þetta sé hið besta mál
en svo sé raunin önnur. Þeir fóru
og skoðuðu Funa en voru aðallega
að taka viðtöl. Svo er bara spurning
hvernig þeir klippa þetta saman og
hversu mikið verður notað í mynd-
ina.“
Daníel segir að skondið atvik
hafi átt sér stað þegar hann var í
viðtalinu hjá Jeremy. Hann hafi þá
verið að spyrja Daníel út í heilsufar
fólks og hvaða áhrif þetta hafi haft.
Þegar Daníel gat litlu svarað sagði
hann: „Af hverju spyrðu ekki þenn-
an mann?“ en þá var Guðbjartur
Hannesson heilbrigðisráðherra ein-
mitt að ganga fram hjá. „Þannig að
hann kom þarna inn í viðtalið líka.
Svo þegar viðtalið var búið spurði
Jeremy: Hvað er hann að gera hér?
Ég útskýrði þá fyrir honum að svona
væri Ísland í hnotskurn.“
Daníel segir að Jeremy hafi
heillast af landinu. „Eins og allir sem
koma hingað vestur. Hann ætlar að
koma hingað aftur við tækifæri.“ Je-
remy Irons þarf vart að kynna en
hann hefur leikið í fjölmörgum stór-
myndum á löngum ferli. Frægastur
er hann þó sennilega fyrir hlutverk
illmennisins Simons Gruber í Die
Hard: With a Vengeance. Hann hef-
ur einnig hreppt Óskarsverðlaun en
það gerði hann fyrir leik í myndinni
Reversal of Fortune árið 1990.
asgeir@dv.is
Ógnvekjandi
jeremy irons
n „Ég var skíthræddur við hann“ n Reyndist indæll og viðkunnanlegur
n Gerir heimildarmynd um sorp n Heilbrigðisráðherra gekk inn í viðtalið
með leið
á Icesave
Fjöldi Íslendinga er kominn með leið á um-
ræðunni um Icesave-samninginn sem er í
algleymingi þessa dagana. Magnús Jónsson
listamaður er einmitt í þeim hópi en hann
skrifaði á Facebook-síðuna sína á mánudag:
„Spurning um að fara til Feneyja fram yfir
Icesave.“ Hjálmar Hjálmarsson leikari, sem
um þessar mundir birtist á sjónvarpsskjám
landsmanna í þáttunum Tími nornarinnar,
tekur undir með Magnúsi og segist ætla að
vera á „Íbúfeneyjum fram yfir helgi“.
Jeremy og Daníel Ekki skrítið að Daníel hafi þótt hann ógnvekjandi í fyrstu. Hann lék
nú einu sinni Simon Gruber í Die Hard 3.
Ræða málin Jermy Irons gerir heimildarmynd um sorp í heiminum.
Eru ástfangin „Já,“ sagði Sveinn Andri
einfaldlega þegar hann var spurður hvort
hann og Kristrún væru ástfangin.