Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2011, Síða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2011, Síða 29
Fólk | 29Miðvikudagur 6. apríl 2011 Reese Witherspoon var ekki lengi að koma sér til vinnu eftir brúðkaup­ ið sitt. Óskarsverðlaunaleik­ konan giftist Jim Toth 26. mars síðastliðinn á búgarði sínum í Ojai í Kaliforníuríki og er strax mætt aftur til vinnu. Hún er nú á kynningarferðalagi vegna kvikmyndarinnar Water for Elephants, sem frumsýnd verður vestanhafs 22. apríl. Witherspoon mætti ásamt mótleikurum sínum Robert Pattinson, sem er best þekktur fyrir hlutverk sitt í vampírudramanu Twilight, Christophe Waltz, einn leik­ ara myndarinnar Inglour­ ious Basterds, auk leik­ stjóra myndarinnar, Francis Lawrence, á blaðamanna­ fund í Santa Monica í Kali­ forníu. Witherspoon brosti út að eyrum meðan á fundinum stóð og sló á létta strengi með Pattinson. Meðal þess sem Pattinson og Witherspoon göntuðust með var breytt útlit hennar í kvikmyndinni. „Þetta breytti mér alveg,“ sagði hún um búningana, hárgreiðslurnar og farðann sem hún þurfti að bera í myndinni. „Ég þekkti ekki einu sinni sjálfa mig.“ Í myndinni segir frá manni sem gengur til liðs við sirkus í kreppunni miklu, snemma á síð­ ustu öld. Reese Witherspoon mætt í vinnuna. Witherspoon og Pattinson gantast Strax í vinnuna Witherspoon mætti í vinnuna viku eftir brúðkaupið. Mynd ReuteRS Gantaðist með Witherspoon Pattinson leikur í myndinni á móti Witherspoon en vel fór á með þeim á blaðamannafundi vegna myndarinnar Water for Elephants. Fræga fólkið fékk grænu gusurnar yfir sig á Nickelodeon Kids' Choice Awards: Slímugar V erðlaunahátíðin Nickel­ odeon Kids' Choice Aw­ ards fór fram um helgina en þar velja krakkar og unglingar í Bandaríkj­ unum þær stjörnur sem þeim þykir skara fram úr. Mikið fjör er ávallt á hátíðinni, ekki síst vegna þess að stjörnurnar geta átt von á slímgusu hvar og hvenær sem er. Þær geta komið úr loftinu, upp úr gólfinu eða úr glasi næsta manns. Það vakti því gríðarlega lukku meðal áhorfenda þegar stjörnur á borð við Heidi Klum, Jack Black, Johnny Depp og Snoop Dogg fengu gusurnar grænu yfir sig. stjörnur Heidi Klum og nick Cannon Ofurfyrirsætan fékk væna gusu yfir sig við verðlaunaafhendinguna. Snoop dogg Er meira að segja svalur þegar hann er útataður í slími. Johnny depp Dælir slími yfir áhorfendur. Hafðu þetta! Jane Lynch úr Glee skvettir slími framan í Jason Segal úr How I Met Your Mother. Jim Carrey Það eru fáir sem hafa fengið slímið jafn- oft og hann í gegnum árin. Jack Black Var líka kynnir í fyrra enda gríðarlega vinsæll hjá yngri kynslóðinni. www.birkiaska.is Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum, dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox). Birkilaufstöflur www.birkiaska.is Minnistöflur Bætir skammtímaminnið. Nýtist fólki sem er undir álagi og fæst við flókin verkefni. Hentar vel fyrir eldri borgara, lesblinda og nemendur í prófum. Dregur úr streitu, eykur ró og bætir skap.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.