Dagblaðið Vísir - DV - 29.02.2012, Side 2
2 Fréttir 29. febrúar 2012 Miðvikudagur
Sextíu daga skilorð:
Ók undir áhrifum
og stal fartölvu
Karlmaður á þrítugsaldri var á
þriðjudag dæmdur til 60 daga skil-
orðsbundinnar fangelsisvistar fyrir
ítrekuð umferðarlagabrot, fíkni-
efnabrot og þjófnað. Maðurinn
var einnig sviptur ökuréttindum í
tvö ár og var honum gert að greiða
434 þúsund krónur í sakarkostnað.
Maðurinn var dæmdur fyrir að hafa
í þrígang á nokkurra mánaða tíma-
bili keyrt undir áhrifum fíkniefna
og fyrir að hafa í þrígang verið með
amfetamín á sér.
Maðurinn var líka dæmdur fyrir
innbrot þar sem hann stal Dell In-
spiraon 1545-fartölvu, Marantz
DVD-spilara, Denon-heimabíó-
magnara, Air Free-loftsíu og lykla-
kippu með húslyklum og bíllykli.
Maðurinn játað skýlaust brot sín
og þótti sannað með játningunni og
öðrum gögnum málsins að hann
væri sekur. Sérstaklega var litið til
þess að brotaferill mannsins hafi
hafist árið 2001, þegar hann var 18
ára. Síðan þá hafi hann sex sinnum
verið dæmdur fyrir þjófnað og brot
á lögum um ávana- og fíkniefni.
Síðast var hann dæmdur árið 2010
og árið 2011 gert sátt við lögreglu-
stjórann á höfuðborgarsvæðinu
fyrir að hafa gerst brotlegur við lög
um ávana- og fíkniefni.
Dómurinn lét einnig gera upp-
tæk 3,74 grömm af maríjúana, 3,66
grömm af amfetamíni, 120 óþekktar
töflur, 14 millilítra af stungulyfinu
trebolon og 29 belgi af óþekktu efni.
Allt voru þetta efni sem lögregl-
an lagði hald á við rannsókn mála
hans.
Í lífshættu eftir
líkamsárás
Karlmaður liggur þungt haldinn
á gjörgæsludeild eftir að hann
varð fyri árás í samkvæmi í fjöl-
býlishúsi við Laugaveg aðfara-
nótt mánudags. Maðurinn er
meðvitundarlaus og talinn vera
í lífshættu. Til átaka kom í sam-
kvæminu sem enduðu með því
að manninum var ýtt niður stiga
þar sem hann hrasaði. Mað-
urinn fannst fyrir utan húsið
út ataður í blóði. Í ljós kom að
hann var höfuðkúpubrotinn og
gekkst hann undir aðgerð. Einn
maður hefur verið úrskurðaður
í gæsluvarðhald fram til föstu-
dags vegna málsins. Fleiri eru
taldir tengjast málinu en ekki
hefur verið talin ástæða til að
fara fram á gæsluvarðhald yfir
þeim. Málið telst upplýst.
220 plöntur
haldlagðar
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
stöðvaði kannabisræktun í húsi
í Kópavogi á mánudag. Við hús-
leit þar fundust um 220 kannabis-
plöntur á ýmsum stigum ræktunar.
Húsið er komið nokkuð til ára sinna
og virtist yfirgefið en lögreglan hafði
hins vegar haft með því auga vegna
grunsemda um kannabisræktun
innandyra. Karl á þrítugsaldri var
handtekinn þegar hann var að
koma út úr húsinu en viðkomandi
angaði af kannabislykt og viður-
kenndi hann aðild sína að málinu.
É
g fékk nett sjokk þarna úti, bjóst
aldrei við að þetta yrði meira en
þessi eini kassi, en svo urðu þeir
þrír,“ sagði Sævar Sverrisson,
einn sakborninga í Straums-
víkurmálinu svokallaða, í skýrslu-
töku fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur
á þriðjudag. Þannig lýsti hann við-
brögðum sínum þegar hann fékk
pakka í hendurnar í Hollandi sem
innihéldu bæði stera og fíkniefni.
Hann hafði búist við því að þetta
yrði „ekki neitt, neitt“ og fullyrti að
hafa aðeins talið að um stera væri að
ræða. Aðspurður sagði hann það ekki
hafa hvarflað að sér að pakkarnir inn-
héldu eitthvað annað. Hann sagðist
ekki hafa treyst sér til að opna kassana
til að kíkja á innihaldið því honum
hafði verið tjáð að það hefði kostað
4.000 evrur, eða 660 þúsund krónur,
að pakka því inn. Þá sagðist hann lítið
þekkja til stera en honum hefði verið
sagt að þeir væru á mörkunum að
vera ólöglegir.
Alls eru sex einstaklingar ákærðir í
umræddu fíkniefnamáli, sem er veru-
lega umfangsmikið. Lögregla notað-
ist meðal annars við símahleranir og
hleranir á heimilum sakborninga við
rannsókn málsins.
Í gæsluvarðhaldi í
fjóra og hálfan mánuð
Sævar sætir þyngstum ákærum í mál-
inu ásamt Geir Hlöðveri Ericssyni
sem talinn er höfuðpaurinn. Þeir eru
ákærðir fyrir stórfellt fíkniefna-, tolla-,
lyfja- og lyfjasölulagabrot með því
að hafa staðið að innflutningi á tæp-
um 10 kílóum af amfetamíni, 8.100
E-töflum, rúmum 200 grömmum af
kókaíni, mörg þúsund steratöflum
og steralyfjum í vökvaformi. Þáttur
annarra sakborninga er mismikill og
tengjast þau málinu með beinum eða
óbeinum hætti.
Fíkniefnin fundust í gámi sem
kom hingað til lands með gámaflutn-
ingaskipi frá Rotterdam í Hollandi
og lagðist að bryggju við höfnina í
Straumsvík þann 10. október síðast-
liðinn, en lögregla lagði hald á efnin
samdægurs. Gámurinn var merktur
innflutningsfyrirtækinu Nokk ehf.
sem Sævar starfaði hjá.
Hann var handtekinn á heim-
ili sínu sama dag og fíkniefnin voru
haldlögð og hefur sætt gæsluvarð-
haldi á Litla-Hrauni síðan, eða í um
fjóra og hálfan mánuð.
Sendu prufusendingu
Töluvert bar á milli í framburði sak-
borninga fyrir dómi, en Geir neit-
ar aðild að innflutningi á sterum og
fíkniefnum. Sævar sagði þá þó lengi
hafa rætt um innflutning á sterum og
viðurkenndi að þeir hefðu flutt inn
prufusendingu áður en stóra send-
ingin kom í október. Hann kvaðst
þó ekki muna hvenær prufusend-
ingin kom til landsins. Sagðist verða
að viðurkenna að hann væri „nett
stressaður“, enda ekki vanur því að
gefa skýrslu fyrir dómi. Hann virtist
þó svara spurningum saksóknara og
lögmanna eftir bestu getu og virkaði
samvinnuþýður.
Sævar sagðist hafa haft mikil sam-
skipti við Geir í gegnum síma, sem sá
síðarnefndi notaði eingöngu vegna
málsins. Sævar sagðist margoft hafa
hringt til að rukka Geir um sinn hlut
fyrir prufusendinguna.
„Vældi“ um peninga og fíkniefni
Geir hafði þó aðrar skýringar á sím-
tölum hans og Sævars. Hann hélt því
fram að Sævar hefði boðið honum
hálft kíló af amfetamíni til sölu á tvær
og hálfa milljón króna og komið með
það í poka á heimili hans. Þar sem
Geir stóð illa fjárhagslega á þeim tíma
dróst að greiða Sævari fyrir fíkniefnin.
Að sögn Geirs var Sævar því sífellt að
hringja í hann og „væla“ um peninga
eða fíkniefni.
Geir var töluvert uppstökkur við
skýrslutökuna og svaraði mörgum
spurningum Huldu Elsu Björgvins-
dóttur saksóknara með þjósti. Hún
lét það þó ekki slá sig út af laginu og
þjarmaði að honum. Hann kvaðst þó
oft ekki muna málavexti þegar hann
var inntur eftir skýringum á atburðum.
„Hef átt það til
að fá mér í nefið“
Sævar fullyrti fyrir dómi að ósatt væri
að hann hefði boðið Geir fíkniefni til
sölu, enda vissi hann ekki hvar hann
hefði átt að fá þau efni. Hann sagði
Geir hafa greitt sér um 1,3 milljónir
króna fyrir prufusendinguna á ster-
unum, ásamt nokkrum grömmum af
kókaíni. Þegar lögmaður Geirs, Vil-
hjálmur Vilhjálmsson, spurði hvort
hann liti á sig sem fíkil svaraði hann
því neitandi. „Ég hef átt það til að fá
mér í nefið,“ viðurkenndi hann þó.
Ætlaði að „versla
föt á drenginn“
Sævar viðurkenndi að hafa komið á
heimili Geirs með fimm til tíu kíló af
laktósa sem hann bað hann um að
útvega sér. Sævar sagðist í fyrstu ekki
hafa vitað með vissu hvað Geir ætlaði
að gera við laktósann. Þegar Hulda
Elsa Björgvinsdóttir saksóknari gekk á
hann svaraði hann: „Það vita það allir
að þetta er notað sem íblöndunarefni
fíkniefna.“ Í kjölfarið spurði hún Sævar
út í það hvers vegna hann hefði tekið
að sér að flytja inn pakka fyrir Geir vit-
andi af fíkniefnatengslum hans. Hann
sagðist hafa talið að annar aðili sæi um
innflutning á fíkniefnum fyrir hann.
Sævar sagðist sjálfur hafa skipu-
lagt ferðina til Hollands til að taka við
pökkunum og koma þeim fyrir í gám-
inum. Um var að ræða fjölskylduferð
þar sem megintilgangurinn var „að
versla föt á drenginn fyrir skólann og
koma þessum kössum í gám,“ eins og
Sævar orðaði það. Hann sagðist þó
hafa fengið heimilisfangið hjá mann-
inum sem lét hann hafa pakkana, hjá
Geir. Maðurinn lét Sævar í fyrstu hafa
einn pakka en kom svo með tvo til við-
bótar á hótelið til hans skömmu síðar.
Sævar kom pökkunum svo til kunn-
ingja sinna sem komu þeim fyrir í
gámnum.
Geir fyrst einn til rannsóknar
Nafnlaus ábending til lögreglu vorið
2011 varð til þess að rannsókn máls-
ins hófst á sínum tíma. Hún beindist
í upphafi eingöngu að Geir en Sævar
fléttaðist inn í málið eftir að hlerun
hófst á síma Geirs í kjölfar húsleitar á
heimili hans.
Vilhjálmur, lögmaður Geirs, krafð-
ist þess oftar en einu sinni að fá aðgang
að öllum upptökum í málinu. Hann
hélt því fram að eingöngu valdar upp-
tökur hefðu verið spilaðar. Dómarinn
gaf að lokum eftir og fyrirskipaði að að-
staða til hlustunar yrði sett upp á lög-
reglustöð.
Aðalmeðferðin mun því taka lengri
tíma en gert var ráð fyrir í fyrstu. Ekki
bara vegna upptakanna, heldur þarf
einnig að kalla til vitni frá Hollandi.
Þegar ljóst varð að málið drægist
á langinn brást Sævar ókvæða við, en
gæsluvarðhaldsúrskurður yfir honum
hefur verið framlengdur um fjórar vik-
ur.
Keypti föt
á barnið og
sótti fíKniefni
n Sævar Sverrisson vissi ekki að sterarnir væru ólöglegir
„Ég
hef átt
það til að fá
mér í nefið
Þekktur
tónlistarmaður
Sævar var þekktur
bæði sem tónlistar- og
umboðsmaður frá átt-
unda og fram á tíunda
áratuginn en lítið
hefur farið fyrir honum
síðastliðin ár. Hann er
einna þekktastur fyrir
að hafa sungið lagið Andartak með
Rafni Jónssyni, sem gefið var út á sam-
nefndri plötu árið 1991. Þá söng Sævar
einnig með Bubba Morthens og starfaði
sem umboðsmaður hans á svipuðum
tíma og platan Fingraför kom út.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
blaðamaður skrifar solrun@dv.is
Var í fjölskylduferð
Sævar Sverrisson sótti stera
og fíkniefni í Hollandi og lét
koma þeim fyrir í gámi sem
sendur var til Íslands, þegar
hann var í með fjölskyldu sinni
á ferðalagi.