Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2012, Page 26

Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2012, Page 26
Hafliði litli þurfti skurðaðgerð n Vaknaði kvalinn en þakklátur og glaður H afliði Hafþórsson er ung hetja sem fangaði hjörtu þjóðarinnar á síðasta ári. Hafliði fæddist fótalaus en með aðstoð stoðtækjaframleið- andans Össurar getur hann hlaupið og hefur gefið jafn- öldrum sínum lítið eftir. Móðir Hafliða er Ebba Guðný Guðmundsdóttir sem gefur Íslendingum hollustu- uppskriftir á mbl.is. Um 11 mánaða aldur gekkst Hafliði undir aðgerð þar sem vansköpuðu fæt- urnir hans voru fjarlægð- ir svo eftir væru lögulegir stubbar fyrir neðan hné sem hentuðu vel fyrir gervifætur. Rúmum mánuði síðar fékk hann svo sína fyrstu hjálpar- fætur. Ebba Guðný sagði frá því á Facebook-síðu sinni nýverið að Hafliði hefði þurft að gangast undir aðra að- gerð á stúfunum og var hann 5 klukkustundir á skurð- arborðinu. Hún þakkaði vinum sínum ómetanlegan stuðning, það hefði verið kvíðvænlegt fyrir móður að horfa upp á barn sitt kvalið. Viðhorf Hafliða er til mik- illar eftirbreytni og frásögn Ebbu Guðnýjar af því þegar hann vaknaði sárkvalinn hefur hreyft við mörgum. „Allt í einu heyrðist lítill kútur í myrkrinu segja við mömmu sína (hann fann svo til með mér en þetta á að vera öfugt); Elsku mamma mín, þetta var allt alveg rétt hjá þér, þetta er mjög gaman, það er mjög margt skemmtilegt hérna, allir svo góðir við mig, ég er búinn að fá pakka og ís og þetta er ævintýraferð og þú ert besta mamman og ég elska þig svo mikið,“ segir Ebba Guðný á Facebook. Hafliði litli er að jafna sig eftir aðgerðina, á næstu vikum verða smíðaðir nýir fætur fyrir hann og útlitið er bjart. 26 Fólk 19. mars 2012 Mánudagur Kremin virka! Hinn eini sanni poppprins okkar Íslendinga, Páll Óskar Hjálmtýsson varð 42 ára á föstudaginn líkt og kom fram í helgarblaði DV. Af þessu til- efni birti Páll Óskar á Face- book-síðu sinni mynd af sér og skrifaði við: „Já, það er satt. Ég er 42 ára í dag. Fædd- ist 16. marz 1970. KREMIN VIRKA! Ást til allra, Palli xox,“ greinilega ánægður með unglegt útlit sitt sem hann má svo sannarlega vera stoltur af. Varð næstum fyrir bíl Anna Mjöll, söngfuglinn fagri í Los Angeles, lenti næstum því fyrir bíl á dögun- um. Hún gekk í makindum sínum yfir götu og tók ekki eftir hraðskreiðum bíl sem nálgaðist á ógnarhraða. Bíll- inn náði að snarhemla rétt við fætur Önnu Mjallar sem hugsar um atburðinn sem vakningu. Þakklát móðir Ebba Guðný þakkaði vinum sínum stuðninginn síðustu daga og lýsti reynslu Hafliða af erfiðri skurðaðgerð. H ann tók bara stóran hluta fyrirtækisins gjörsamlega af lífi. Þetta var ógeðslega fyndið. Björn var virkilega góður,“ segir gestur á árshátíð 365 sem haldin var með pompi og prakt á Hilton Hótel Nordica á laugardags- kvöldið. Sjónvarpsmaður- inn Björn Bragi Arnarsson sem stýrir Týndu kynslóð- inni á Stöð 2 var veislustjóri og fór gjörsamlega á kostum en árshátíðargestir hrósuðu honum á Facebook, Twitter og í samtali við blaðamann DV. Björn Bragi tók um sam- starfsmenn sína engum vett- lingatökum. Þvert á móti tók hann marga þeirra algjör- lega í gegn. Gekk hann svo langt að skjóta á sjálfan Ara Edwald, forstjóra 365, og hjú- skaparmál hans. Þá tók hann sjálfan stríðniskónginn Loga Bergmann Eiðsson í gegn fyr- ir gróusögu sem hefur flogið fjöllum hærra um hann. „Ég ákvað bara að fara með þetta alla leið og hafa smá „roast“-stemningu, eða eins og Ricky Gervais hefur verið að gera á Golden Globes,“ segir Björn Bragi. „Það var svo krökkt af liði í salnum til að gera grín að náttúrlega. Bæði þekkt and- lit og skrautlegir karakterar. Það var virkilega skemmtilegt verkefni að vera veislustjóri á mínum eigin vinnustað og fá að grínast aðeins á mínum heimavelli,“ segir hann. Björn segir að menn og konur hafi bara tekið gríninu vel. „Þeir sem fengu mest að finna fyrir því eru með þykk- an skráp og vissu að þeir yrðu teknir fyrir. Svo er fjölmiðla- fólk svo sjálfhverft að menn sem voru ekki teknir fyrir urðu bara móðgaðir. Maður dansaði svona á línunni en ég var ekki með nein leiðindi,“ segir Björn Bragi en hann fékk strax góð viðbrögð um kvöldið. „Það var ótrúlega mikil ánægja með þetta og margir komu til mín eftir þetta alveg hrikalega ánægðir. Bæði þeir sem fengu að finna fyrir því og aðrir. Þeir sögðust allavega vera ánægðir en maður veit ekki hvort þeir hafi svo farið heim og grátið í koddann,“ segir hann en býst hann nokkuð við að verða tekinn á teppið? „Það verður allavega spennandi að sjá hvort mín bíði uppsagnarbréf,“ segir hann og hlær dátt. Þetta var ekki í fyrsta skipti sem Björn Bragi er veislustjóri. „Ég hef ver- ið að gera slatta af þessu sem og að mæta í fyrirtæki og á skemmtanir bara með uppistand. Svo hef ég verið að skemmta með Mið-Ís- landi. Það hefur því ver- ið svolítið mikið að gera í þessu en toppurinn var að fá þessa veislu um helgina,“ segir Björn Bragi. „Ég myndi allavega þiggja það aftur með þökkum ef mér byðist þetta aftur.“ Árshátíðin var öll hin glæsilegasta og mættu allir starfsmenn 365 í sínu fín- asta pússi á Hilton. „Það var ótrúlega góð stemning og vel að þessu staðið. Þetta var frábært kvöld í alla staði og því bara gaman að gera þetta svolítið eftirminnilegt,“ segir Björn Bragi Arnarsson. tomas@dv.is björn Grillaði yfirmennina n Björn Bragi fór á kostum sem veislustjóri á árshátíð 365 Fór á kostum Björn Bragi dansaði á línunni en allir hlógu. Mynd Hörður SVeinSSon Sterkir í dyrunum Það var hvergi til sparað á árshátíð 365 sem fram fór á Hilton Hótel Nordica á laugardagskvöldið. Veislu- gestir gátu til dæmis ekki verið mikið öruggari því dyraverðir voru sterkustu menn landsins, þeir Stefán Sölvi Pétursson og Hafþór Júlíus Björnsson. Hafþór er ríkjandi sterkasti maður Ís- lands en Stefán Sölvi vann keppnina árið 2011 og hefur borið höfuð og herðar yfir aðra kraftajötna hér á landi undanfarin ár.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.