Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2012, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2012, Side 18
18 Fréttir 13.–15. apríl 2012 Helgarblað Jóhanna fordæmdi kínversk stJórnvöld F orsætisráðherra Kína, Wen Jiabao, kemur til Íslands 20. apríl næstkomandi. Dag­ skrá heimsóknarinnar hefur ekki verið gerð opinber vegna öryggissjónarmiða, samkvæmt upp­ lýsingum frá forsætisráðuneytinu. Það liggur þó fyrir að fjölmennt fylgdarlið mun koma hingað til lands með Jiabao. Engar upplýsingar hafa fengist hjá kínverska sendiráðinu á Íslandi um heimsókn Jiabao. Samkvæmt heimildum DV munu hátt settir kínverskir ráðamenn koma til landsins með Jiabao og eiga fundi með íslenskum ráðherrum. Sjálfur mun Jiabao funda með Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra og Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Ís­ lands. Í tilkynningu frá forsætisráðu­ neytinu kemur einnig fram að Jiabao muni kynna sér sérstaklega jarð­ varmanýtingu Íslendinga en hann er menntaður jarðfræðingur. Jóhanna og Ögmundur mótmæltu Ekki liggur ljóst fyrir hvort Jóhanna Sigurðardóttir og Ögmundur Jónas­ son innanríkisráðherra muni ræða mannréttindabrot kínverskra stjórn­ valda á fundum með Jiabao. Bæði hafa þau opinberlega fordæmt „harðlega gróf mannréttindabrot kínversku harðstjórnarinnar heima fyrir sem og á hernámssvæðum hennar“. Þetta gerðu þau meðal ann­ ars í auglýsingu sem birt var í fjöl­ miðlum þar sem liðsmenn Falun Gong voru beðnir afsökunar á við­ brögðum íslenskra stjórnvalda við komu þeirra hingað til lands árið 2002. Auk þeirra tveggja skrifaði Össur Skarphéðinsson, nú utanrík­ isráðherra, undir sömu yfirlýsingu ásamt fleiri núverandi og þáverandi þingmönnum. Búast má við mótmælum „Allar vangaveltur um hvort stjórn­ völd muni koma í veg fyrir friðsam­ leg mótmæli í tilefni af komu Wen Jiabao eru fullkomlega óþarfar,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir á Facebook­ síðu sinni á fimmtudag. Sagði hún þar að kínverskum stjórnvöldum hefði verið gert það fullljóst að frið­ samleg mótmæli væru lýðræðislegur réttur á Íslandi og stjórnvöld myndu ekki koma í veg fyrir þau. Þetta er ákveðin stefnubreyting frá heimsókn forseta Kína árið 2002. Búast má við að komu Jiabao hingað til lands verði mótmælt með einum eða öðrum hætti líkt og áður hefur verið gert við komu kínverskra leiðtoga hingað til lands. Falun Gong­liðar vöktu mikla athygli fyrir um tíu árum þegar forseti Kína, Jian Zemin, kom hingað til lands í opin­ bera heimsókn. Þeir tóku sér stöðu víða um borgina til að mótmæla mannréttindabrotum sem framin eru í Kína í skjóli þarlendra stjórn­ valda. Liðsmenn Falun Gong fengu vægast sagt kaldar móttökur við komuna hingað til lands og voru um 75 liðsmenn hreyfingarinnar látnir sæta varðhaldi þangað til þeir skrif­ uðu undir yfirlýsingu um að þeir ætl­ uðu að hlíta lögum og reglum. Lögð hefur verið fram þingsályktunartil­ laga þess efnis að stjórnvöld biðjist afsökunar á meðferðinni. Heimsóknin lengi í undirbúningi Heimsókn Jiabao hingað til lands á sér margra ára aðdraganda en hana má rekja til heimboðs sem Hall­ dór Ásgrímsson, þáverandi for­ sætisráðherra, sendi kínverskum stjórnvöldum árið 2006. Kínverskum stjórnvöldum þótti ekki ástæða fyrr en á síðasta ári að leggja drög að heimsókn forsætisráðherrans hingað til lands en þá voru fjöru­ tíu ár liðin frá því að stjórnmála­ samband komst á meðal þjóðanna tveggja. Ekkert varð hins vegar að heimsókninni og voru leiddar að því líkur í þjóðmálaumræðunni að það hafi verið vegna tímaskorts af hálfu Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráð­ herra. Opinber skýring á því er hins vegar að forsætisráðherra Kína hafi einfaldlega ekki haft tíma til að koma hingað sumarið 2011. n Gefur ekki upp hvort hún muni ræða mannréttindi við Wen Jiabao„Allar vangaveltur um hvort stjórn- völd muni koma í veg fyrir friðsamleg mótmæli í til- efni af komu Wen Jiabao eru fullkomlega óþarfar. Umdeildur Forsætisráðherra Kína, Wen Jiabao, er rétt eins og stjórnvöld í Kína umdeildur vegna mannréttindabrota kínverskra stjórnvalda. Hann þykir þó engu að síður umbótasinnaðari en margir samflokksmenn hans í kínverska kommúnistaflokknum. Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is Funda bæði með Jiabao Jóhanna Sigurðardóttir og Ólafur Ragnar Grímsson munu funda með Wen Jiabao. Trefjar fá verðlaun Trefjar ehf. fengu á fimmtudag Út­ flutningsverðlaun forseta Íslands. Verðlaunin veitti Ólafur Ragnar Grímsson forseti við hátíðlega at­ höfn á Bessastöðum. Trefjar fékk verðlaunin fyrir að vera í forystu í þróun og smíði báta úr trefja­ plasti til fiskveiða. Í tilkynningu frá forsetaembættinu segir að Trefjar hafi sýnt lofsvert frumkvæði í markaðsfærslu og vöruþróun. Auk Útflutningsverðlaunanna var veitt sérstök heiðursviðurkenning. Að þessu sinni var það Ragnar Axels­ son ljósmyndari sem hlaut heið­ ursviðurkenninguna fyrir að hafa með störfum sínum borið hróður Íslands víða um heim og þannig stuðlað að jákvæðu umtali um land og þjóð. Naglar bannaðir frá og með sunnudegi Ólöglegt er að aka um á negldum dekkjum frá og með sunnudegi. Er því hver að verða síðastur að skipta af nagladekkjum yfir á sumardekk. Í tilefni af þessu gerði verðlagseftirlit Alþýðusam­ bands Íslands verðkönnun á skipt­ ingu, umfelgun og jafnvægisstill­ ingu hjá 22 hjólbarðaverkstæðum víðs vegar um landið síðastliðinn mánudag. Samkvæmt könnun­ inni var fyrirtækið AB­varahlutir á Akureyri með lægsta verðið á fyrrnefndri þjónustu í flestum til­ vikum. Þrettán fyrirtæki vildu ekki taka þátt í könnun verðlagseftir­ litsins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.