Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2012, Side 2
2 Fréttir 23. maí 2012 Miðvikudagur
K
röfuhafar eignarhaldsfélags
í eigu Eggerts Magnússonar
hafa afskrifað tæplega 650
milljóna króna skuldir hjá fé-
laginu. Félagið heitir Kex ehf.
Félagið var tekið til gjaldþrotaskipta
í janúar og lauk skiptum á búi þess
þann 4. maí síðastliðinn. Engar eign-
ir fundust í búinu upp í kröfurnar sem
námu samtals 647,7 milljónum króna.
„Engar eignir fundust í búinu,“ segir í
Lögbirtingablaðinu.
Eggert er fyrrverandi formaður
Knattspyrnusambands Íslands (KSÍ)
og fyrrverandi stjórnarformaður
knattspyrnufélagsins West Ham.
Hann var einnig forstjóri kexverk-
smiðjunnar Fróns á sínum tíma. Egg-
ert var stjórnarformaður og einn af
hluthöfum West Ham eftir að Björgólf-
ur Guðmundsson, aðaleigandi Lands-
bankans, keypti félagið árið 2006.
Landsbankinn bað um gjaldþrotið
Í Lögbirtingablaðinu í lok nóvember
í fyrra kom fram að Landsbankinn
stefndi Eggerti fyrir Héraðsdóm
Reykjavíkur vegna skulda Kex ehf.
Það var því Landsbankinn sem
keyrði félagið í þrot. Orðrétt sagði
í blaðinu: „Hér með er lagt fyrir
fyrir svarsmann gerðarþola, Eggert
Magnússon, með lögheimili í Bret-
landi, að mæta þá fyrir dómi (11.
janúar 2012) og halda uppi vörnum
ef einhverjar eru, en ella má búast
við að krafan verði tekin til greina
með úrskurði um gjaldþrotaskipti.“
Kex ehf. tengdist ekki kexfram-
leiðslu heldur var tilgangur þess skil-
greindur sem fasteignarekstur, kaup
og sala, lánastarfsemi og annað
slíkt. Félagið var stofnað árið 2005.
Á rekstrarárum sínum skilaði fé-
lagið aðeins einu sinni ársreikningi,
árið 2009. Þar kom fram að hlutafé
félagsins væri 500 þúsund krónur og
að engin starfsemi hefði verið í því
það árið. Starfsemi félagsins virðist
því hafa verið talsvert umsvifameiri
en fram kom í ársreikningnum. Hver
ástæðan er fyrir kröfunum á félagið
liggur þó ekki fyrir. Eggert fjárfesti
hins vegar meðal annars í Eimskip-
um fyrir hrunið 2008 og sat í stjórn
Burðaráss, fjárfestingarfélagsins
sem var klofið út úr Eimskipum, eftir
yfirtöku Björgólfsfeðga á fyrirtækinu.
Líklegt má telja að Landsbankinn
hafi fjármagnað þau viðskipti.
Ýtt út úr West Ham
Lítið hefur frést af Eggerti í fjölmiðl-
um eftir að Björgólfur Guðmunds-
son sá til þess að hann lét af störf-
um hjá West Ham árið 2007 eftir
nokkuð dræmt gengi og rekstur liðs-
ins. Eggert seldi þá 5 prósenta hlut
sinn í knattspyrnuliðinu til Björg-
ólfs sem tók við stjórnarformennsk-
unni í félaginu af honum. West Ham
hafði verið mjög aðsópsmikið á leik-
mannamarkaðnum í Bretlandi í tíð
Eggerts sem stjórnarformanns og
keypt stjörnur eins og Craig Bellamy,
Kieron Dyer og Freddie Ljungberg
fyrir háar fjárhæðir og gert við þá
langa og dýra samninga.
Þá greindi breska blaðið Sunday
Telegraph frá því í ársbyrjun 2010 að
Eggert hefði ætlað að kaupa brasil-
íska fótboltamanninn og vandræða-
gemsann Adriano af ítalska liðinu
Inter Milan í ágúst 2007. Adriano
kostaði 15 milljónir punda og vildi
fá 110 þúsund pund í vikulaun. Í Te-
legraph var Eggert sagður hafa viljað
kaupa leikmanninn þrátt fyrir þetta.
„Látið til skarar skríða,“ á hann að
hafa sagt í símtali við útsendara West
Ham sem fóru til Mílanó til að spyrj-
ast fyrir um Adriano. Eggert var í frétt
Telegraph sagður hafa fengið grænt
ljós á kaupin frá Björgólfi. Adriano
ákvað hins vegar á endanum að vera
áfram hjá Inter og fór því ekki til West
Ham þótt vilji Íslendinganna hefði
staðið til þess.
Gerði lítið úr Eggerti
Brottför Eggerts frá West Ham í lok
árs 2007 átti sér stað eftir að sam-
skipti hans og Björgólfs Guðmunds-
sonar höfðu verið stirð um nokk-
uð langt skeið. Í viðtali við Björgólf
í breska blaðinu The Observer í
Afskrifuðu tæpAr 650
milljónir hjá EggErti
n Eignalaust félag Eggerts n Landsbankinn bað um þrotið n Átti 5 prósent í West Ham„Það er
hægt að
líta á Eggert
eins og Coca-
Cola-skiltið
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Engin hótun, segir Margrét:
Gjörólíkar
hugmyndir
Það var engin hótun í þessu
af okkar hálfu,“ segir Margrét
Tryggvadóttir þingmaður Hreyf-
ingarinnar í samtali við DV um
það hvort það verði lögð fram van-
trauststillaga gegn ríkisstjórninni
á næstunni.
„Þetta er auðvitað ríkisstjórn með
meirihluta og ef kæmi fram van-
traust væri hún ekkert endilega
fallin,“ bendir Margrét á. Hún segir
að einfaldlega beri of mikið í milli
þegar hugmyndir um skuldavanda
Íslendinga eru ræddar, hugmyndir
ríkisstjórnarinnar og þingmanna
Hreyfingarinnar séu gjörólíkar.
„Ég held að það hefði verið ágætt
fyrir hana til að koma þessum
stóru málum í gegn,“ segir hún um
samningaviðræðurnar um stuðn-
ing Hreyfingarinnar.
„Þau voru alveg tilbúin til þess
að ræða við okkur, en hugmyndir
okkar í skuldamálum eru töluvert
aðrar og þau voru ekki tilbúin til
þess að fara alla leið fannst okkur
og þau voru kannski komin styttra
í þessum pælingum en við.“
„Það sem kom okkur mest á
óvart var að það voru margir sem
brugðust ókvæða við og spurðu
hvort við ætluðum virkilega að
styðja þessa ríkisstjórn,“ segir Mar-
grét. „En ég held að eina leiðin
til þess að leysa þessi mál sé með
samvinnu. Okkur fannst við verða
að reyna að þoka þessum málum
áfram á einhvern hátt og breyta
jafnvel þessum áhersluatriðum
hjá ríkisstjórninni.“
Aðspurð hvort hún telji ríkis-
stjórnarflokkana ekki óttast áfram-
haldið segir Margrét: „Ég hugsa
að þau haldi að þau komist áfram
þennan síðasta spöl.“
Of gott til
að vera satt
Ef tilboð hljómar of gott til að vera
satt, þá er það næstum örugg-
lega raunin, segir lögreglan á
höfuðborgarsvæðinu en í dagbók
hennar á þriðjudag segir af manni
sem sá reiðhjól auglýst til sölu á
netinu á dögunum. Margur hefur
farið flatt á því. Umræddur maður
sló til og keypti hjólið enda verðið
mjög gott. Síðar kom á daginn að
reiðhjólið var stolið en seljand-
inn sagðist hafa fundið það. Hvort
sem það var satt eða logið átti við-
komandi að sjálfsögðu ekki að slá
eign sinni á hjólið og selja það á
netinu. Reiðhjólið var haldlagt
og því síðan komið aftur í réttar
hendur. Eigandi þess hafði haldið
til haga svokölluðu stellnúmeri
hjólsins og það var lykillinn að því
að upplýsa málið.