Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2012, Síða 3
Fréttir 3Miðvikudagur 23. maí 2012
Styrkja tekjulágar konur
n Menntunarsjóður Mæðrastyrksnefndar auglýsir eftir umsækjendum
U
m leið og þú ert komin með
einhverja færni eða hæfni,
búin að öðlast eitthvert próf,
þá aukast möguleikar þínir á
að geta fengið betur borgaða vinnu,“
segir Elín Hirst, formaður Menntun-
arsjóðs Mæðrastyrksnefndar Reykja-
víkur. Sjóðurinn var formlega settur
á laggirnar þann 19. apríl síðastlið-
inn og hefur það að marki að styrkja
tekjulágar konur til náms. Nú er aug-
lýst eftir umsækjendum um styrki úr
sjóðnum og er um að ræða styrki til
greiðslu skólagjalda, bókakaupa eða
annars sem gerir umsækjanda kleift
að ljúka námi.
„Við beinum sjónum okkar til
að byrja með að tekjulágum kon-
um,“ segir Elín sem hefur verið virk í
starfi Mæðrastyrksnefndar um nokk-
urra ára skeið. Fyrstu styrkirnir verða
veittir fyrir nám sem hefst næsta
haust og mun megináherslan vera til
að byrja með á að styrkja tekjulágar
konur til náms sem Lánasjóður ís-
lenskra námsmanna styrkir ekki.
Stofnfé og höfuðstóll sjóðsins er
fimm milljónir króna sem byggjast
á gjöf Elínar Storr til Mæðrastyrks-
nefndar. Í skipulagsskrá sjóðsins
kemur fram að verja megi vöxtum
af höfuðstólnum, ásamt fé sem safn-
ast í sjóðinn, til að styrkja konurnar.
Ásamt Elínu sitja þær Ragnhildur G.
Guðmundsdóttir, Anna Pétursdótt-
ir og Bryndís Kristjánsdóttir í stjórn
sjóðsins.
Umsóknareyðublað er að finna
á vefsíðu Mæðrastyrksnefndar,
maedur.is, og umsóknarfrestur er til
30. júní.
viktoria@dv.is
Afskrifuðu tæpAr 650
milljónir hjá EggErti
n Eignalaust félag Eggerts n Landsbankinn bað um þrotið n Átti 5 prósent í West Ham
september 2007 kom fram að hon-
um þætti ekki mikið til Eggerts
Magnússonar koma í starfi stjórnar-
formanns West Ham. „Það er hægt
að líta á Eggert eins og Coca-Cola-
skiltið,“ sagði Björgólfur um Eggert
sem verið hafði andlit liðsins út á
við.
Þetta virðist hafa farið fyrir
brjóstið á Björgólfi sem leit ein-
ungis á Eggert sem framlengingu af
sér. Í viðtalinu lýsti hann því hvern-
ig kaupin á West Ham hefðu farið
fram með milligöngu Landsbank-
ans í London. „Þetta kom í gegn-
um Landsbankann í London og ég
velti þessu fyrir mér sem viðskipta-
tækifæri. Augljóslega þurfti ég að
átta mig á því hvernig ég ætti að
reka þetta, hver ætti að vera ábyrgur
fyrir rekstrinum. Þá mundi ég eftir
samtali mínu við Eggert og hringdi
í hann.“
Gagnrýnin á Eggert
Í ársbyrjun 2010 var birt viðtal við
Eggert Magnússon í breska götu-
blaðinu The Sun þar sem hann varði
sig vegna þeirrar gagnrýni sem fram
hafði komið á störf hans hjá West
Ham, meðal annars að hann hefði
eytt um efni fram. Gagnrýnin kom
meðal annars fram í máli Davids
Sullivan sem keypti helmingshlut í
West Ham í ársbyrjun 2010. Sullivan
sagði að slæma fjárhagsstöðu West
Ham mætti rekja til ákvarðana Egg-
erts sem stjórnarformanns.
Eggert sagði þá að honum hefði
verið sagt að meiri peningar væru til
hjá liðinu en síðar kom í ljós og að
hann hafði ekki einn tekið ákvarð-
anir um leikmannakaup. „Kannski
var mér talin trú um að meiri pen-
ingar hefðu verið til en síðan kom
á daginn. Mér var sagt að miklir
peningar væru til staðar til að gera
hluti.“ Þá sagði Eggert í viðtalinu að
hann hefði íhugað að fara í mál við
Björgólf vegna vangoldinna launa
hjá West Ham upp á um 200 millj-
ónir króna en að hann hefði hætt
við það.
Í maí í fyrra var fyrrverandi móð-
urfélag West Ham, Hansa ehf., sett
í þrot hér á landi. Skuldir félagsins
námu rúmlega 23 milljörðum króna
í árslok 2009 og var eigið félagsins
neikvætt um rúmlega 15,5 milljarða
króna.
Ekki náðist í Eggert á þriðjudag-
inn þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. n
A
ron Pálmi Ágústsson
mætti í Héraðsdóm
Reykjavíkur á mánudag
en hann var ákærður fyrir
fjársvik og vopnalagabrot.
Aron Pálmi játaði að hafa svikið út
gistingu á sjö hótelum og nýtt sér
ýmiss konar þjónustu án þess að
greiða fyrir. Fallið var frá ákærulið
er varðar vopnalagabrot en sam-
kvæmt ákæru átti Aron Pálmi að
hafa verið með vasahníf af gerð-
inni Dark Operation í anddyri Hót-
els Þingholts á þeim tíma sem hann
dvaldi þar. Við þinghaldið kom þó í
ljós að hnífurinn fannst í ferðatösku
Arons sem var inni á hótelherbergi
og því ekki á almannafæri. Fallið
var frá ákærunni gegn því að hníf-
urinn yrði gerður upptækur.
Ber við sjálfsvörn
Aron Pálmi neitaði að tjá sig um
brot sín við blaðamann annað en
að „þetta mál væri búið“.
Það virðist þó sem lagavandræði
Arons séu ekki alveg búin, en hann
er einnig ákærður fyrir líkamsárás
sem á að hafa átt sér stað í Vest-
mannaeyjum í nóvember í fyrra.
Samkvæmt stöðufærslu á Face-
book-síðu Arons Pálma frá því í
janúar ber hann við sjálfsvörn í því
máli. Samkvæmt heimildum DV
var Aron Pálmi að vinna sem dyra-
vörður á veitingastaðnum þar sem
árásin átti sér stað.
Blekkti starfsmenn vísvitandi
Samkvæmt ákæru lagði Aron Pálmi
fram VISA-kort sitt sem tryggingu
fyrir greiðslu þrátt fyrir að hann
vissi að engin innistæða væri fyr-
ir greiðslu á kortinu og blekkti þar
með vísvitandi starfsmenn hótel-
anna. Tímabilið sem hótelsvik-
in áttu sér stað var frá 17. júlí til
2. ágúst 2010 og eru flest hótelin í
miðbæ Reykjavíkur, alls sjö talsins.
Upphæðirnar nema frá 23 þúsund
krónum upp í tæpar 170 þúsund
krónur, en auk þess að gista á hót-
elunum sveik hann út aðra þjón-
ustu, svo sem mat og áfengi. Þá
hringdi hann úr herbergissíma og
þáði þjónustu á hárgreiðslustofu og
í heilsurækt. Heildarupphæð brot-
anna nemur um 550 þúsund krón-
um.
Fjögurra mánaða
skilorðsbundin refsing
Verjandi Arons Pálma mótmælti
skaðabótakröfu Keahótela en sam-
kvæmt henni og ákæru átti Aron
Pálmi að greiða hótelkeðjunni
skaðabætur vegna þriggja gisti-
nótta sem hann greiddi ekki fyrir
á Hótel Borg. Verjandi Arons benti
dómnum á að Aron hefði einungis
gist eina nótt á Hótel Borg og því
ætti tjónið einungis að nema verði
einnar nætur. Sækjandi benti á að
Aron Pálmi hefði pantað herbergi í
þrjár nætur og hefði því ekki verið
hægt að leigja herbergið út á með-
an.
Aron Pálmi er með hreint saka-
vottorð hér á landi og játaði brot
sín greiðlega. Þótti dómnum því
hæfileg refsing vera fjögurra mán-
aða fangelsisvist, skilorðsbundin
til tveggja ára. Hann þarf einnig að
greiða Keahótelum um 130 þúsund
krónur í skaðabætur.
Játar hótelsvik
„Aron Pálmi neit-
aði að tjá sig um
brot sín við blaðamann
annað en að „þetta mál
væri búið“.
Hanna Ólafsdóttir
blaðamaður skrifar hanna@dv.is
n Aron Pálmi sveik út þjónustu fyrir hálfa milljón
Í héraðsdómi Aron Pálmi Játaði sök í Héraðsdómi Reykjavíkur á mánudag. Mynd SiGtryGGur Ari
Auglýsa eftir umsóknum Menntunar
sjóður Mæðrastyrksnefndar auglýsir eftir
umsóknum um styrki úr sjóðnum en út
hlutað verður úr sjóðnum í fyrsta skipti fyrir
nám næsta haust. Elín er formaður sjóðsins.