Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2012, Qupperneq 10
10 Fréttir 23. maí 2012 Miðvikudagur
Slapp „ótrúlega vel“
n Einar Valur féll við eggjatínslu og slasaðist illa
É
g vil meina að hann hafi verið
mjög heppinn miðað við fall-
ið og að hann skuli ekki hafa
slasast mikið meira,“ segir eig-
inkona Einars Vals Kristjánssonar,
framkvæmdastjóra og eins af eigend-
um Hraðfrystihússins Gunnvarar
hf., en Einar Valur mjaðmagrindar-
brotnaði er hann féll frjálsu falli sex
til átta metra er hann var við eggja-
tínslu í bergganginum Stapa í fjallinu
Ritnum í Aðalvík á fjórða tímanum á
sunnudag.
Einar var fluttur með þyrlu Land-
helgisgæslunnar á Landspítalann
í Fossvogi og lagður þar inn á gjör-
gæslu. Hann hefur þurft að fara í að-
gerð sökum áverka sinna en Viðar
Konráðsson, tannlæknir á Ísafirði,
sagði í samtali við vef Morgunblaðs-
ins Einar hafa sigið niður stapann
með tvöfalda taug til að vera örugg-
ur, en hún slitnaði.
Taldi Viðar svonefnda eggja-
hvippu hafa dregið úr fallinu en í
henni var Einar með 150 egg um sig
miðjan líkt og bjarghring. „Það getur
hafa tekið eitthvað af högginu,“ sagði
Viðar við mbl.is.
Hátt í tuttugu björgunarsveitar-
menn frá björgunarsveitum Slysa-
varnarfélagsins Landsbjargar á norð-
anverðum Vestfjörðum tóku þátt í
björgunaraðgerðum við Stapann.
Slökkviliðið á Ísafirði greindi frá því
að slökkviliðsstjóri frá Sauðárkróki
hefði verið staddur í bát við Ritinn
um það leyti sem útkallið kom og var
hann ásamt björgunarsveitarmanni
kominn á staðinn talsvert áður en
aðrir sem tóku þátt í aðgerðunum.
birgir@dv.is
Farþegi fékk
heilablóðfall
Tilkynning barst til lögreglunnar á
Suðurnesjum skömmu eftir mið-
nætti aðfaranótt mánudags þess
efnis að flugvél væri að koma inn
til lendingar á Keflavíkurflugvelli
með farþega sem væri meðvitund-
arlaus eftir heilablóðfall. Búið væri
að kalla út sjúkrabifreið. Reynd-
ist um að ræða tæplega sextugan
karlmann sem var á leið með vél-
inni frá Austurríki til Ríga í Lett-
landi. Læknir og sjúkralið hlúðu
að honum og var hann fluttur á
Landspítalann í Fossvogi. Engar
upplýsingar liggja fyrir um líðan
mannsins.
Farsímum,
gjaldeyri og
lyfjum stolið
Brotist var inn í íbúðarhúsnæði í
umdæmi lögreglunnar á Suður-
nesjum um helgina og þaðan
stolið tveimur farsímum að verð-
mæti um 150 þúsund krónur,
1.000 evrum í reiðufé, skiptimynt
og lyfjum sem voru í skrifborðs-
skúffu. Á vettvangi mátti sjá að
opnanlegur stofugluggi á vestur-
hlið hússins stóð galopið. Engin
önnur ummerki voru sjáanleg um
innbrot í húsið. Þá var brotist inn
í bifreið í umdæminu og stolið úr
henni tölvu, myndavél, tösku með
snjóbretti og öllum búnaði að
verðmæti um 540 þúsund krónur.
Málin eru til rannsóknar hjá lög-
reglu.
Kornsnákur
í heimahúsi
Lögreglumenn geta átt von á ýmsu
í starfi sínu eins og glögglega kom
í ljós í austurborg Reykjavíkur um
helgina. Í ónefndu húsi þar reynd-
ist vera snákur en dýrið var tekið
í vörslu lögreglu og síðan flutt á
dýraspítala þar sem gerðar voru
viðeigandi ráðstafanir. Um var að
ræða svokallaðan kornsnák og
var hann rúmlega einn metri að
lengd. Björgunin Frá björgunaraðgerðum síðastliðinn sunnudag.
É
g játa,“ sagði Hlífar Vatnar Stef-
ánsson lágum rómi, aðspurður
um afstöðu sína til sakarefna
sem á hann voru borin í Hér-
aðsdómi Reykjaness á þriðju-
dag.
Hrottalegt morð
Með játningu Hlífars liggur fyrir að
hann banaði Þóru Eyjalín Gísla-
dóttur, fyrrverandi unnustu sinni, á
heimili sínu í Hafnarfirði einhvern
tímann á tímabilinu frá síðdegi
fimmtudaginn 2. febrúar til hádegis
föstudaginn 3. febrúar síðastliðinn.
Morðið þykir óvenju hrottafengið
en Hlífar játar að hafa stungið Þóru
ítrekað með hníf í andlit og líkama og
skorið hana á háls. Gekk ein stungan
inn í vinstra lunga hennar og leiddi
það ásamt öðrum áverkum til dauða
hennar. Þóra var 35 ára þegar hún
lést.
Engin ástæða til að hlífa
sakborningi
Hlífar Vatnar, sem er 23 ára, var
leiddur inn í Héraðsdóm Reykjaness
í handjárnum í fylgd tveggja fanga-
varða. Hann gekk niðurlútur inn í
dómsalinn, klæddur í svarta hettu-
peysu og íþróttabuxur. Hann virtist
rólegur að sjá og svaraði spurningum
dómara eilítið óöruggur og hikandi.
Dómarinn tók þá ákvörðun að
þinghaldið í máli gegn Hlífari verði
opið en réttargæslumaður fjölskyldu
fórnarlambsins hafði farið fram á að
það yrði lokað til þess að verja fjöl-
skyldu fyrir fjölmiðlaumfjöllun. Að
sögn lögmannsins veit fjölskylda
Þóru takmarkað um þá áverka sem
Þóra hlaut en þau fengu ekki að sjá
hana eftir andlátið. Fjölmiðlaum-
fjöllun um málið hafi verið þeim afar
þungbær. Verjandi Hlífars féllst á þá
kröfu en saksóknari í málinu sá ekki
ástæðu til að hlífa ákærða við fjöl-
miðlaumfjöllun. „Eins blóðugt og
óhugnanlegt þetta mál er þá sé ég
enga ástæðu til þess að hlífa sak-
borningi.“ Sýndi Hlífar saksóknara
fingurinn, eins og sagt er, þegar sak-
sóknari lét þau ummæli falla. Réttar-
gæslumaður fjölskyldu fórnarlambs-
ins hyggst kæra úrskurðinn um opið
þinghald til Hæstaréttar.
„Ógeðslega ómerkilegt“
Hlífar brást hinn versti við þegar
hann var spurður út í afstöðu til bóta-
kröfu aðstandenda og jós fúkyrðum í
átt að lögmanni bótakrefjanda. Þeir
sem krefjast bóta eru 17 ára sonur
hinnar látnu og foreldrar hennar.
„Djöfulsins viðbjóður að vera að
sækja um bótakröfu. Fokka þú þér.
Djöfull er það ógeðslega ómerkilegt,“
var afstaða Hlífars til kröfunnar en
verjandi hans sagði að Hlífar hafnaði
bótakröfunni að öllu leyti.
Einnig sýndi Hlífar einkennilega
hegðun þegar hann var leiddur úr
dómsal og spurði kvikmyndatöku-
menn fjölmiðla sem þar voru stadd-
ir hvort að þeir vildu ekki slökkva á
tímavélinni.
Óreglumaður
Hlífar fór sjálfur á lögreglustöð-
ina við Flatahraun í Hafnarfirði að
morgni 6. febrúar síðastliðinn og
greindi óljóst frá atviki sem hann
sagði að hefði átt sér stað á heimili
hans. Hann var í annarlegu ástandi
og fóru lögreglumenn strax að
heimili hans þar sem þeir fundu
konuna látna. Samkvæmt heimild-
um DV hafði hún verið látin á heim-
ilinu í einhvern tíma.
Hlífar hefur ítrekað komið við
sögu lögreglu á undanförnum
árum. Hann hefur verið í óreglu
og mun hafa fjármagnað fíkni-
efnaneyslu sína að miklu leyti með
minniháttar afbrotum en hann
hefur einnig verið dæmdur fyrir
líkamsárás þar sem hann réðst á
mann í gistiskýlinu við Þingholts-
stræti sumarið 2010.
Sakhæfur
Hlífar Vatnar er metinn sakhæf-
ur og fer ákæruvaldið fram á að
hann verði dæmdur til refsingar
og greiðslu alls sakarkostnaðar. Til
vara er krafist að honum verði gert
að sæta öryggisgæslu á viðeigandi
stofnun.
Aðalmeðferð í málinu fer fram
þann 22. júní en þar sem Hlífar hef-
ur játað brotið þarf ekki að flytja
sönnunarfærslur en vitni munu
gefa skýrslu um málsatvik.
Hanna Ólafsdóttir
blaðamaður skrifar hanna@dv.is
„Eins blóðugt og
óhugnanlegt
þetta mál er þá sé ég
enga ástæðu til þess að
hlífa sakborningi.
Morðingi
segir
kröfu
uM bætur
óMerkilega
n Hlífar játar á sig hrottafengið morð n Sýndi saksóknara fingurinn
Játaði sök Hlífar
Vatnar Stefánsson
játaði í Héraðsdómi
Reykjaness að hafa
orðið fyrrverandi unn-
ustu sinni að bana.