Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2012, Síða 11
Komdu í áskrift!
Skuldbinding Mánaðarverð
Engin binding 3.091 kr.
3 mánuðir 2.944 kr.
6 mánuðir 2.688 kr.
12 mánuðir 2.473 kr.
DV sent heim þrisvar í viku, á mánudögum, miðviku dögum
og föstudögum. Netáskrift fylgir frítt með!
Það er ódýrara en þig grunar!
Hefur ekki efni
á lögfræðingi
Fréttir 11Miðvikudagur 23. maí 2012
n Ragna segist ekki geta borgað lögfræðikostnað n Sér ekki eftir að hafa farið út
L
ögfræðingurinn minn hérna
úti er bara horfinn og hefur
ekki svarað símtölum eða
tölvupósti frá mér í átta daga,“
segir Ragna Erlendsdóttir,
móðir Ellu Dísar Laurens. Eins og DV
sagði frá í síðustu viku bíður Ragna
þess nú að fá úr því skorið hvort hún
fái aftur fullt forræði yfir Ellu Dís og
geti farið með hana aftur heim til Ís-
lands sem fyrst. Hún missti hluta af
forræðinu eftir að hún fór með Ellu
Dís til Bretlands í trássi við ráðlegg-
ingar lækna hér heima.
Henni var úthlutað lögfræðingi
frá breska ríkinu til þess að sjá um
mál hennar en hún segir hann ekki
vera að standa sig. „Ég hitti nýjan
lögfræðing í gær, konu sem var stór-
hneyksluð á þessum vinnubrögðum
en hún getur ekki hjálpað mér nema
ég borgi henni 2.000 pund sem eru
400 þúsund íslenskar og þann pen-
ing á ég ekki til,“ segir Ragna.
Málið dautt ef hún ætti pening
Síðan Ragna kom út til Bretlands
hefur hún fengið að hitta Ellu Dís
nokkrum sinnum en hún dvelur
á stofnun fyrir fatlaða. „Ég hrein-
lega kvíði því að hitta hana því hún
heldur að ég sé að koma að ná í
hana og svo þegar ég fer þá græt-
ur hún svo sárt. Þetta er ekki spít-
ali heldur stofnun, þarna eru engir
læknar og það eru mjög fötluð börn
sem dvelja þarna. Hún vill koma
heim til mín og systra sinna sem
hún hefur ekki séð síðan í janúar.
Það er svo sorglegt að þau vilji ekki
leyfa okkur að sameinast fyrr en
kannski í fyrsta lagi í byrjun ágúst,“
segir Ragna sem að hennar mati er
of seint enda hver dagur með Ellu
mikilvægur. „Ég er í sjálfheldu og
það er svo rosalega brotið á manni,“
segir hún. Ragna segir peningaleysi
vera ástæðu þess að mál henn-
ar gangi svo hægt fyrir dómstól-
um. „Ef væri milljónamæringur
og hefði góðan lögfræðing þá væri
málið dautt og við komnar heim til
Íslands.“
Sér ekki eftir að hafa farið út
Þrátt fyrir að standa í stappi við bresk
yfirvöld þá segist hún alls ekki sjá eft-
ir því að hafa farið út, þrátt fyrir að ís-
lenskir læknar hefðu ekki viljað að
hún færi nema með læknisfylgd sem
Ragna átti að borga fyrir, en Ragna
taldi sig vera meira en fullfæra um
að fljúga með hana sjálf og var flug-
ið farsælt að hennar sögn. „Ég varð
að fara út. Það bjargaði henni. Hún
var að kafna því það var að lokast fyr-
ir kokið á henni. Læknir hér úti gerði
aðgerð á henni og sögðu læknar hér
að læknarnir á Íslandi hefðu gert
þetta kolvitlaust árið 2008.“
Allt önnur telpa
Eftir vel heppnaða aðgerð núna í
janúar í Bretlandi líður Ellu miklu
betur að sögn Rögnu. „Þannig ég
gerði það sem var rétt í stöðunni.
Hún er núna komin með þessa
greiningu sem hún hefði aldrei
fengið ef ég hefði ekki farið með
hana út,“ segir Ragna en Ella Dís
var einnig greind í Bretlandi núna
nýverið með genagalla sem er talin
vera orsök veikinda hennar.
Málaferlin ytra byrjuðu þeg-
ar að barnsfaðir Rögnu fór heim
til Íslands með hinar tvær dætur
þeirra. „Það er löng saga en hann
fór með þær heim án míns sam-
þykkis. Eftir á að hyggja var það
það besta í stöðunni en ég sá það
ekki þá. Við fengum ekki húsnæði
sem við áttum að fá þannig að þær
hefðu verið heimilislausar. En síð-
an þá hefur þessi bolti rúllað og er
núna orðinn risastór.“
Fær hvergi hjálp
Hún segist vera ráðalaus og hvergi
fá hjálp. „Innanríkisráðuneytið get-
ur ekki hjálpað mér, borgaraþjón-
ustan í London getur ekki hjálpað
mér og ekki sendiráðið. Ég er búin að
leita úti um allt og það getur enginn
hjálpað mér. Eins og alltaf, í gegn-
um öll þessi veikindi Ellu, þá fæ ég
aldrei hjálp nema frá almenningi.
Ef það væri ekki fyrir almenning þá
væri Ella ekki á lífi því ég fæ ekkert frá
ríkinu. Engan ferðakostnað, dagpen-
inga, ekki neitt, og það er einnig búið
að taka af mér umönnunarbætur fyr-
ir Ellu,“ segir hún og heldur áfram:
„Ég er gjaldþrota, ég get ekki fengið
lán í bankanum. Ég er hjálparvana
og ekki með neina lögfræðiþjónustu.
Þessi lögfræðingur sem ég fékk út-
hlutað gerði bara það allra nauðsyn-
legasta, fyllti út pappíra og svoleiðis
og núna næ ég ekki í hann. Þannig að
það lítur út fyrir að ég þurfi að verja
mig sjálf í Hæstarétti í London og
ég kann ekki einu sinni réttarensku.
Þetta eru mannréttindabrot, það eiga
allir rétt á almennilegum réttarhöld-
um. Ég biðla bara til þeirra sem geta
hjálpað mér, hvort sem það er for-
seti Íslands eða bara hver sem er, að
hjálpa mér að fá Ellu Dís heim sem
fyrst og setja endapunkt á þessa mar-
tröð.“
Ella Dís Ragna segir Ellu Dís gráta þegar hún fer frá henni.
Með dætrum sínum Tvær af dætrum Rögnu eru á Íslandi en Ella Dís í Bretlandi. Systurnar hafa ekki hist í fimm mánuði. „Ég hreinlega kvíði
að hitta hana því
hún heldur að ég sé að
koma að ná í hana og svo
þegar ég fer þá grætur
hún svo sárt.
Viktoría Hermannsdóttir
blaðamaður skrifar viktoria@dv.is