Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2012, Page 12
12 Erlent 23. maí 2012 Miðvikudagur
Fjórir látnir eftir göngu á Everest
n Hæsta fjall heims tekur sífellt hærri toll og sumir segja hlýnun jarðar um að kenna
Í
maí 1996 létust einn og sama dag-
inn alls átta manns við klifur á tind
hæsta fjalls heims; Everest. Minnst
fjórir létust í hlíðum fjallsins um
helgina og alls átta hafa týnt þar lífi það
sem af er árinu.
Helgin var þannig ein sú versta í
þessu tilliti um langt skeið en fólk ferst
þó með reglulegu millibili í hlíðum
fjallsins. Sumir telja fjallið orðið erfið-
ara viðureignar en áður var og skrifa
það á hlýnun jarðar. Hún hafi í för með
sér að mun minni snjór sest árlega í
hlíðar Everest en áður var raunin sem
aftur þýði að efsti hluti fjallsins er mun
erfiðari yfirferðar fyrir fjallgöngufólk.
Verst þykir að þau fjögur sem létust
á fjallinu um helgina eru öll talin hafa
verið búin að ná tindinum og verið á
niðurleið þegar ósköpin dundu yfir.
Ofþreyta og súrefnisskortur í kjölfar-
ið er talin líkleg orsök enda var veður
eins skaplegt og það framast getur orð-
ið á Everest. Líklega var kappið við að
ná tindinum of mikið til að orka væri
eftir fyrir niðurleiðina sem á köflum er
síst auðveldari en að fikra sig upp á við.
Yfirvöld í Nepal hafa enn ekki orðið
við beiðni fjallgöngufólks um að tak-
marka aðgengi að Everest með ein-
hverjum hætti og minnka með því
hættuna á að á fjallið fari fólk sem ekki
á þangað erindi enda enginn barna-
leikur að klífa fjallið. Þúsundir sem
reyna árlega verða frá að hverfa löngu
áður en nálægt tindinum er komið
vegna þreytu og slæms búnaðar eða
bæði. Eftir sem áður getur hver sem
kaupir sér leyfi til göngunnar farið á
fjallið án vandkvæða. Það leyfi kost-
ar reyndar rúmar þrjár milljónir ís-
lenskra króna.
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
D
ominique Strauss-Kahn,
fyrrverandi framkvæmda-
stjóri Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins, sætir nú rannsókn
vegna hópnauðgunar sem
franskur saksóknari telur að hann
hafi átt þátt í. Rannsóknin hófst í vik-
unni en hún er hluti af stærri rann-
sókn á frönskum vændishring sem
Strauss-Kahn er talinn tengjast með
beinum hætti. Hópnauðgunin sem
um ræðir er sögð hafa átt sér stað í
Washington í Bandaríkjunum í des-
ember árið 2010 en þá var Strauss-
Kahn búsettur í borginni vegna starfa
sinna fyrir Alþjóðagjaldeyrissjóðinn.
Nauðgunin átti sér stað í kynlífssvalli
á hóteli.
Hafnar sem fyrr ásökunum
Strauss-Kahn hefur í gegnum lög-
fræðinga sína neitað sök í málinu
og segir rannsóknina vera hluta af
ófrægingarherferð á hendur sér.
Þetta er ekki fyrsta rannsóknin sem
beinist að Strauss-Kahn vegna kyn-
ferðisofbeldis en eins og frægt er
kærði bandarísk hótelþerna hann
fyrir tilraun til nauðgunar á hóteli í
New York. Málið var fellt niður þar
sem ekki var talið að nægjanlegar
sannanir lægju fyrir því að tilraun til
nauðgunar hefði átt sér stað. Strauss-
Kahn hefur nú stefnt konunni fyrir
dóm og farið fram á að hún greiði
honum eina milljón dala í skaðabæt-
ur fyrir kæruna en hann sakar hótel-
þernuna um að hafa logið þegar hún
kærði málið til lögreglunnar.
Ákærður vegna vændisstarf-
semi
Rannsóknin á hópnauðguninni er
tilkomin vegna vitnisburða sem fram
komu í rannsókn á vændishring í
Lille. Ekki hefur verið lögð fram sér-
stök kæra vegna nauðgunarinnar
en samkvæmt frönskum lögum get-
ur saksóknari heimilað rannsókn án
þess að kvörtun eða kæra liggi fyrir.
Samkvæmt franska dagblaðinu Li-
beration var það belgísk vændis-
kona sem sagði í yfirheyrslum vegna
vændisrannsóknarinnar að hún
hefði verið þvinguð til að stunda
endaþarmsmök í kynlífssvallveislu í
New York. Liberation segir að kon-
an hafi sagt Strauss-Kahn hafi kom-
ið fram vilja sínum á meðan annar
maður hélt henni nauðugri.
Ákæra liggur fyrir í vændismál-
inu en í því er Strauss-Kahn, ásamt
hópi annarra manna, gefið að sök að
hafa flutt konur til borgarinnar Lille
í Frakklandi til að veita kynlífsþjón-
ustu. Þjónustuna átti að veita auðug-
um viðskiptavinum á hótelum borg-
arinnar. Auk Strauss-Kahn hefur hátt
settur lögreglumaður verið ákærður í
málinu. Verði Strauss-Kahn fundinn
sekur á hann yfir höfði sér allt að 20
ára fangelsi.
n Dominique Strauss-Kahn sætir rannsókn vegna hópnauðgunar
Sakaður um
aðra nauðgun
Enn ein rannsóknin
Strauss-Kahn hefur verið
kærður fyrir vændis-
starfsemi og sætir nú
rannsókn vegna hóp-
nauðgunar. Hann var á
síðasta ári kærður vegna
tilraunar til nauðgunar.
Amma ákærð
fyrir morð
Bandarísk kona á áttræðisaldri
hefur verið ákærð fyrir að skjóta
barnabarnið sitt átta sinnum.
Konan sagði í yfirheyrslum vegna
málsins að hún hafi skotið piltinn,
sem var á táningsaldri, þar sem
hún hafi hræðst hann. Drengur-
inn hringdi sjálfur í neyðarlínuna
og tilkynnti um skotárásina. Sam-
kvæmt AP-fréttastofunni skaut
amman, sem heitir Sandra Layne,
drenginn minnst fjórum sinnum
eftir að hann hafði hringt í neyðar-
línuna. Layne viðurkenndi verkn-
aðinn þegar lögreglumenn komu
á vettvang morðsins.
Google Chrome
vinsælastur
Chrome-vafrinn frá Google hefur
velt Internet Explorer-vafranum
frá Microsoft úr sessi sem vin-
sælasta netvafranum. Þetta sýna
niðurstöður talningar fyrirtækis-
ins StatCounter sem fylgist reglu-
lega með heimsóknum á vefsíður,
þar með talið hvaða netvafrar eru
notaðir til að heimsækja síðurnar.
Chrome-vafrinn var samkvæmt
mælingu, sem birt var á mánu-
dag, meira notaður en Internet
Explorer miðað við vikuna þar á
undan. Seint verður þó sagt að
miklu muni á vöfrunum tveimur.
Hvor um sig eru notaðir af um 32
prósentum netverja.
Neyðarástand
á Ítalíu
Lýst hefur verið yfir neyðarástandi
á norðausturhluta Ítalíu eftir að
öflugur jarðskjálfti upp á 6 stig á
Richter reið yfir landið á sunnu-
dag. Fjöldi íbúðarhúsa skemmdist
í skjálftanum og er talið að um það
bil 5.000 manns séu heimilislausir
eftir skjálftann. Meðal borga sem
eru á svæðinu þar sem skjálftinn
reið yfir er Ferrara en hún er á
heimsminjaskrá UNESCO vegna
fornra bygginga. Ljóst er að skjálft-
inn eyðilagði fjölda merkilegra
bygginga og listaverka en enn er
ekki búið að meta hversu tjónið er
mikið fjárhagslega.
Minni snjór Talinn orsök fleiri dauðsfalla í hlíðum Everestfjalls.