Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2012, Side 13
Erlent 13Miðvikudagur 23. maí 2012
Sjálfumgleði af
lífrænum mat
n Fólk sem borðar lífrænan mat telur sig mega haga sér illa
L
ífrænt ræktaður matur hefur
þau áhrif að fólk verður sjálf-
umglatt og dómharðara, sam-
kvæmt nýlegri rannsókn. Nið-
urstöður rannsóknarinnar
sýna með nokkuð afgerandi hætti
að þeir sem koma nálægt lífrænt
ræktuðum mat frekar en öðrum mat
eru ólíklegri til að sýna skilning eða
hjálpsemi. Niðurstöðurnar eru birt-
ar í læknaritinu Social Psychological
and Personality Science.
Leyfum okkur að verða
sjálfumglöð
„Það eru rannsóknir sem sýna að
þegar fólk getur gefið sér klapp á
bakið fyrir eitthvað siðferðilega gott
getur það orðið sjálfumglatt,“ segir
Kendall Eskine, höfundur rannsókn-
arinnar og aðstoðarprófessor við sál-
fræðideild Loyola-háskólans í New
Orleans, í samtali við bandarísku
sjónvarpsstöðina MSNBC. „Ég tók
eftir því að mikið af lífrænum mat-
vælum er markaðssett með ákveðnu
siðferðislegu orðfæri, eins og „heið-
arlegt te“, og velti því fyrir mér ef þú
tengdir fólk við lífrænt ræktaðan mat
hvort það myndi klappa sér á bak-
ið fyrir siðferðislega jákvætt og um-
hverfisvænt val. Ég velti fyrir mér
hvort það yrði óeigingjarnara eða
ekki.“
Til að kanna hvort þetta væri rétt
fékk Eskine 60 manns til að taka
þátt í tilraun og skipti þeim svo nið-
ur í þrjá mismunandi hópa. Ein-
um hópnum voru sýndar myndir
af matvælum sem voru augljóslega
merkt sem lífrænt ræktuð, eins og
eplum og spínati. Annar hópur-
inn fékk svo að sjá myndir af þæg-
indamat (e. comfort food), eins og
kökum og kexi. Þriðji hópurinn fékk
svo að sjá myndir af matvælum sem
ekki voru lífrænt ræktuð og féllu
ekki í flokkinn þægindamat, eins og
hrísgrjón, sinnep og haframjöl.
Verða dómharðari en aðrir
Eftir að hafa séð myndirnar voru
hóparnir svo spurðir ákveðinna
spurninga er tengdust góðu eða
slæmu siðferði. Hóparnir voru beðn-
ir að gefa ákveðnum aðstæðum eða
gjörðum einkunnir eftir því hversu
slæmt siðferði fólkið teldi dæmin
sýna. „Eitt dæmið var um þremenn-
inga sem stunda kynlíf,“ segir Eskine.
„Annað dæmi var um lögmann sem
er á slysadeild á spítala að reyna að
sannfæra fólk um að fara í mál vegna
meiðsla þeirra. Síðan voru hóparnir
beðnir um að dæma um siðferði
hvers dæmis fyrir sig á skalanum ein-
um til sjö.“
Niðurstöðurnar leiddu í ljós að sá
hópur sem fékk að sjá myndir af líf-
rænt ræktuðum mat var dómharðari
en hinir hóparnir tveir. „Á skalanum
einum til sjö var lífræni hópurinn
að meðaltali í kringum 5,5 á með-
an hlutlausi hópurinn var í kringum
5 og þægindahópurinn í kringum
4,89,“ segir Eskine sem segir mik-
inn mun vera á niðurstöðunum eftir
hópum.
Vilja eyða minni tíma
í sjálfboðavinnu
Í öðrum hluta rannsóknarinnar
voru þátttakendurnir beðnir um að
vera sjálfboðaliðar í annarri tilraun,
sem var ekki raunveruleg, og voru
þeir spurðir hversu miklum tíma
þeir væru tilbúnir að verja í sjálf-
boðavinnu á skalanum 0 til 30 mín-
útna. Líkt og með fyrri hluta rann-
sóknarinnar skáru þeir sem voru í
lífræna hópnum sig talsvert frá hin-
um tveimur. Að meðaltali var lífræni
hópurinn aðeins til í að verja 13 mín-
útum sem sjálfboðaliðar á meðan
hlutlausi hópurinn var tilbúinn að
verja 19 mínútum og þægindahóp-
urinn 24 mínútum.
„Það er eitthvað við að vera í ná-
munda við lífrænt ræktaðan mat sem
lætur fólki líða betur með sjálft sig og
gerir það að hálfgerðum skíthælum,
býst ég við,“ segir Eskine. Hann seg-
ir líklegustu skýringuna á þessu vera
að fólk horfi á matvæli út frá einhvers
konar siðferðilegum gildum. „Fólki
getur fundist það hafa gert gott, að
það hafi leyfi, eða rétt, til að gera eitt-
hvað siðferðilega rangt seinna. Þetta
er eins og að fara í ræktina, hlaupa
nokkra kílómetra og líða vel með
sjálfan sig og leyfa sér þess vegna að
borða súkkulaðistykki.“
„Fólki getur fundist
það hafa gert gott,
að það hafi leyfi, eða rétt,
til að gera eitthvað sið-
ferðilega rangt seinna.
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
Dómharðari Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að sá hópur sem fékk að sjá myndir af lífrænt ræktuðum mat var dómharðari en
hinir hóparnir tveir.
Dópkóngur
tekinn fyrir
hrottaleg morð
Mexíkóskir hermenn hafa hand-
tekið glæpahöfuðpaurinn Daniel
Elizondo, sem einnig er þekktur
sem „The Madman“ en hann er
talinn bera ábyrgð á 49 sundur-
limuðum líkum sem fundust við
vegkant nærri Monterrey 13. maí
síðastliðinn. Á líkin vantaði höfuð,
hendur og fætur og aðeins hægt
að bera kennsl á fórnarlömbin
með DNA-rannsókn. Niðurstöður
hennar liggja ekki fyrir.
Elizondo er einn leiðtoga
Zetas-fíkniefnahringsins og hefur
stýrt umfangsmiklu fíkniefna-
smygli þess glæpahóps á völdum
svæðum í Mexíkó. Hópmorðin
í síðustu viku eru ein þau allra
verstu sem framin hafa verið í
dópstríðinu mexíkóska að því er
Reuters-fréttastofan greinir frá.
Lögreglan segir að þar sem engar
tilkynningar hafi borist um fjölda-
hvarf einstaklinga á svæðinu þá sé
talið líklegt að fórnarlömbin séu
innflytjendur frá Mið- eða Suður-
Ameríku á leið sinni til Banda-
ríkjanna. Glæpasamtökin ræna
oft flökkufólki og krefjast lausnar-
gjalds. Þeir sem ekkert fæst fyrir
hljóta hrottafenginn dauðdaga.
Skotárás eftir
körfuboltaleik
Rétt eftir að Oklahoma City Thun-
der sló Los Angeles Lakers úr leik
í úrslitakeppni bandarísku körfu-
knattleiksdeildarinnar NBA að-
faranótt miðvikudags voru átta
manns skotnir í í fagnaðarlátum
í Oklahoma-borg. Tveir þeirra
sem skotnir voru eru í lífshættu
en aðrir særðust ekki lífshættu-
lega. Sparkað var í ólétta konu eftir
að hún varð fyrir skoti í árásinni
að sögn lögreglu en enginn hefur
verið handtekinn og veit lögregl-
an ekki hvort skotárásin tengd-
ist úrslitum leiksins. Thunder er
komið í úrslit vesturstrandarinnar
þar sem það mætir San Antonio
Spurs.