Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2012, Side 15
Spurningin
Opið bréf til velferðarráðherra
„Já, ég ætla að horfa
og held með Íslandi.“
Guðný Erla Guðnadóttir
25 ára, starfsmaður Arctic Adventures
„Nei, ég ætla ekki að horfa,
mér finnst Eurovision rosalega
leiðinlegt.“
Sigríður Dögg Arnardóttir
29 ára, sjálfstætt starfandi kyn-
fræðingur
„Já, ég ætla að horfa.
Ég held með Íslandi.“
Tinna Björg Jónsdóttir
21 árs
„Ég get það eiginlega ekki, ég er
að fara á starfsmannafund.“
Thelma Geirsdóttir
21 árs, starfsmaður 66°Norður
„Nei, ég efast um það.“
Dóra Hrund Gísladóttir
23 ára listamaður
Handtökum teiknarann
V
ið Íslendingar þurfum nú mest
á því að halda að hefta þá sem
annast skopmyndateikningar.
Það er gjörsamlega óþolandi
að máttarstólpar samfélagsins séu
teiknaðir upp með svívirðilegum
hætti og settir í afkáralegt samhengi til
að koma á þá höggi pólitískt.
Eitt svívirðilegasta dæmið af þess-
um toga kom fram um helgina þegar
sá ESB-sinnaði ritstjóri Ólafur Steph-
ensen lét þý sitt teikna herra Ólaf
Ragnar Grímsson nakinn og í þokka-
bót með pínulítið typpi. Svarthöfði
var að fá sér ristað brauð með osti og
sultu á laugardagsmorguninn þegar
við honum blasti hryllingsmyndin.
„Fokking fríblaðið,“ æpti hann upp
yfir sig og frussaði ristaða brauðinu
yfir kaffivélina og örbylgjuofninn.
En það er stundum eins og þjóðin
sé lokuð gagnvart hneykslismálum.
Enginn sagði neitt um þessa aðför sem
átti að sýna forsetann í hlutverki nakta
keisarans sem hélt að hann væri í föt-
um. Réttsýnin braust ekki fram fyrr en
á þriðjudagsmorgni í Bítinu á Bylgj-
unni þegar Ólafur Ísleifsson, hagfræð-
ingur og boðberi réttlætis og sann-
leika, benti á glæp teiknarans sem
væri slíkur að öllu fólki hlyti að vera
misbjóðið. „Er þetta ekki lögreglu-
mál?“ spurði Ólafur brostinni röddu.
Auðvitað á að kæra þetta lið til lög-
reglunnar og sekta það og fangelsa.
Nokkur fordæmi eru fyrir því í lýð-
veldissögunni að tekið sé á guðlasti
og öðru óeðli. Þannig var tímaritið
Spegillinn afgreitt á sínum tíma. Og
þið munið Spaugstofuna sem guð-
lastaði í aðdraganda páskanna. Þeir
kónar voru að vísu ekki dæmdir en
þeir fengu ákæru.
Það jaðrar við guðlast að sýna
okkar ástkæra Ólaf Ragnar Grímsson
nakinn og með pínulítið typpi. Allir
vita að þessu er öfugt farið. Nú verður
að láta til skarar skríða. Sérstakur
saksóknari þarf að hefja rannsókn í
einum hvelli. Hann getur byrjað á því
að gera húsleit hjá teiknara fríblaðsins
og hneppa hann í varðhald. Nauð-
synlegt er að fjölmiðlar fái að mynda
handtökuna. Vonandi tekst Ólafi að
fá manninn dæmdan. Það má ekki
í öllum fíflaganginum gleyma þeim
alvarlegu áhrifum sem skopmynda-
teikningar geta haft. Teikningarnar
af Múhameð spámanni settu heims-
byggðina á annan endann. Teikningin
af okkar eigin Múhameð spámanni á
Bessastöðum hefur sett Ísland á ann-
an endann. Ef ekkert verður gert mun
siðleysið verða varanlegt.
Svarthöfði
Þ
etta bréf er birt hér þar sem svo
erfitt er að fá viðtal eða svör
frá ráðherra, og þar sem ráðu-
neytið virðist ekki taka neitt
alvarlega á málum eða kvörtunum.
Það væri óskandi að ráðuneytið tæki
upp eitthvað númerakerfi þannig að
menn fengju að vita hvar þeir væru
í röðinni með að fá viðtal hjá ráð-
herra, í stað þess að fá dag eftir dag
nákvæmlega engar upplýsingar í því
sambandi.
Það mál sem ég vildi vekja til máls
við ráðherra, er varðandi ósannindi
og rangar upplýsingar er embætti
Landlæknis heldur uppi yfir Synflo-
rix-bóluefnið gegn pneumokokkum,
þar sem því er logið að almenningi:
„Alvarlegar aukaverkanir eru ekki
þekktar,“ og hvað eina, þegar að 14
börn af 15.000 börnum létust af því í
klínísku rannsóknunum er fóru fram
í Argentínu 2007–2008, eða næstum
því 1 barn af 1.000 börnum.
Ofan á allt þegar vitað er til þess að
dæmt var í þessu máli gegn bóluefna-
fyrirtækinu GlaxoSmithKline algjör-
lega í óhag og aðstandendum fórn-
arlamba í vil. Það er samt greinilegt
á öllu, að fjölskyldur með ungbörn
3–9 mánaða eiga ekkert að fá að vita,
og það er eins og menn hjá embætti
Landlæknis séu á því, að fjölskyldur
eigi bara að taka þessa áhættu svona
algjörlega óafvitandi.
Það væri óskandi að ráðherra
reyndi að beita sér í þessu máli, þar
sem að ábyrgðaraðilinn með fræðslu
til almennings í þessu sambandi hefur
ekki verið að sinna henni neitt að viti.
Það væri óskandi að farið væri ofan
í þessi mál, þar sem hér hefur ekki
heldur verið gefinn út einn einasti
bæklingur yfir eitt einasta bóluefni
hvað varðar innihaldsefni, áhættur,
alvarlegar aukaverkanir o.s.frv. Þær
upplýsingar sem fólk fær hins vegar
þarna eru mjög takmarkaðar og lé-
legar yfir öll bóluefni. Hvaða vit er í
að hafa þetta allt svona, eru menn að
bíða eftir því að upp kemst, svona rétt
eins og gert var í PIP- brjóstapúðamál-
inu allt og frá 2010 og til dagsins í dag
(eða þegar að upp kemst)?
Það má segja að víða sé pott-
ur brotinn hjá þessu embætti hvað
varðar tilkynningaskyldu og eftirlit. Í
því sambandi spyrja menn af hverju
þekkist það ekki hjá ráðherra að skipa
sjálfstæða óháða rannsóknarnefnd
til að fara ofan í öll þessi eftirlits- og
tilkynningarmál hjá embætti Land-
læknis er upp hafa komið eins og t.d.
ritalin- og concerta- málið, og PIP-
brjóstapúðamálið? Í stað þess að ráð-
herra láti, liggur við segja, embættið
um að rannsaka sjálft sig, þannig að
almenningur reikni ekki lengur með
neinum breytingum, svörum eða
neinu.
Hvaða vit var annars í því að skipa
nýja nefnd við aðra er Álfheiður Inga-
dóttur hafði áður skipað í varðandi
ritalin- og concerta-lyfin, eða þá
hlaupa allt í einu til Persónuvernd-
ar þegar embætti Landlæknis hafði
allar heimildir og engar takmarkanir
í grunninum? Af hverju var ekki hægt
að skipa sjálfstæða og óháða nefnd til
fara ofan í ritalin/concerta-málið, eða
núna þetta PIP-brjóstapúðamál?
Eins og staðan er í dag þá reiknar
almenningur ekki með að einhver
verði látinn sæta ábyrgð vegna allra
þessara mála sem upp eru komin
hjá embætti Landlæknis, hvað þá að
ráðherra skipi einhvern tímann sjálf-
stæða, óháða rannsóknarnefnd til að
fara ofan í öll þessi mál eða neitt. Það
væri samt óskandi að ráðherra sæi
sér nú einu sinni fært til að beita sér
fyrir því að embætti Landlæknis fjar-
lægði burt þessi ósannindi og að fólk
fengi í staðinn upplýsingar um að
Synflorix-bóluefnið gegn pneumo-
kokkum hafi valdið 14 dauðsföllum
í klínískum rannsóknum á 15.000
börnum (2007–2008). Einnig er ósk-
að eftir því að gefnir verði út bækl-
ingar yfir öll bóluefni sem í notkun
eru hér hvað varðar innihaldsefni,
áhættur, alvarlegar áhættur o.s.frv.
í stað þess að við sitjum uppi með
þetta ómögulega drasl allt saman
sem við búum við í dag.
Hvernig er það er hægt að fá ráð-
herra og þá sem standa að þessari
bólusetningu til að taka á sig pers-
ónulega fjárhagslega ábyrgð fyrir
því að Synflorix-bóluefnið sé öruggt
með undirskrift, þar sem hér þekk-
ist ekki að greiða fólki skaðabætur
vegna bóluefna sem fullyrt er að séu
örugg?
Blómabreiða í blíðunni Það væsti ekki um þennan í fíflabreiðunni í Nauthólsvík þegar veðrið lék við höfuðborgarbúa fyrr í vikunni. Mynd Eyþór ÁrnasonMyndin
Umræða 15Miðvikudagur 23. maí 2012
1 Skopmynd af forseta „ósmekkleg og niðrandi,
smánandi og lítilsvirðandi“
Ólafur Ísleifsson, lektor er ekki sáttur
við skopmynd er birtist af forseta
Íslands í Fréttablaðinu þann 19. maí
síðastliðinn.
2 „Fyrr skal ég dauð liggja en að láta þau komast upp með
þetta“
Viðtal við konu sem varð fyrir
hrottalegri árás fjögurra aðila sem
tengjast Hells Angels.
3 Þriðji Bandaríkjamaðurinn með holdétandi bakteríu á
skömmum tíma
Bobby Vaughn bólgnaði allur upp og
þurfti að leggjast inn á sjúkrahús. Hann
hefur farið í fimm aðgerðir og hafa
læknar fjarlægt um hálft kíló af holdi.
4 Auglýsti svarta en löglega vinnu í Dagskránni
„Hentar stúlkum og strákum laun ca
2,5 milljón Aðeins duglegt fólk kemur
til greina“
5 Hlífar gaf saksóknara puttann
Atvikið átti sér stað þegar saksóknari
sagðist ekki sjá ástæðu til að hafa
lokað þinghald við þingfestingu á máli
gegn Hlífari. Hann er ákærður vegna
morðs á fyrrverandi kærustu sinni.
6 „Ég vil meina að hann hafi sloppið ótrúlega vel“
Framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins
Gunnvarar slasaðist illa er hann féll við
eggjatínslu.
Mest lesið á DV.is
„Jú, það
passar“
„Það er ekkert sér-
stakt markmið“
„Svo spila
ég“
Þóra Helgadóttir hagfræðingur dansar á ólympíuleikunum. – DVRakel Þorbergsdóttir vill ekki festast í hlutverki fréttalesara. – DVLea Gunnarsdóttir er yngsti tískubloggari landsins. – DV
Ætlar þú að
fylgjast með
Eurovision í kvöld?
Kjallari
Þorsteinn Sch.
Thorsteinsson