Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2012, Page 18
18 Neytendur 23. maí 2012 Miðvikudagur
Fáir hjóla til vinnu
n Samkvæmt könnun FÍB hjóla einungis 7,8 prósent landsmanna
R
úmlega 70 prósent Íslendinga
nota einkabílinn til að komast
til og frá vinnu. Þetta er sam-
kvæmt könnun sem var fram-
kvæmd á heimasíðu Félags íslenskra
bifreiðaeigenda sem 656 manns tóku
þátt í.
Í könnun FÍB var spurt: Hvernig
ferðast þú aðallega til og frá vinnu?
Næstalgengasti ferðamátinn hjá þeim
sem svöruðu var reiðhjólið en 9,3 pró-
sent svarenda sögðust hjóla, 7,8 pró-
sent sögðust ganga en aðeins 6,2 pró-
sent sögðust taka strætó. Fæstir, eða
4,3, prósent sögðust fá far með öðrum.
Á síðunni hjoladivinnuna.is er bent
á að í Kaupmannahöfn hjóli rúm-
lega 30 prósent íbúa í vinnu og svipað
margir í Oulu í Norður-Finnlandi. Það
sé því vel gerlegt að nota hjólið sem
samgöngutæki hér á landi.
Þar segir einnig að hjólreiðar
séu frábær leið til að ná daglegum
skammti af hreyfing sem Lýðheilsu-
stöð mælir með, eða um 30 mínút-
um á dag fyrir fullorðna og 60 mínút-
um á dag fyrir börn. Þær spyrni því við
hreyfingarleysi og offitu og lækki tíðni
vöðva- og liðamótasjúkdóma, krabba-
meins, kransæðasjúkdóma, sykursýki
og þunglyndis og lengi lífið um mörg
ár.
Þær geti líka sparað einstakling-
um, vinnustöðum og samfélaginu
verulegar fjárhæðir vegna lægri tíðni
alvarlegra sjúkdóma, slysa og fækk-
unar veikindadaga. Með hjólreiðum
sparist einnig eldsneytiskostnaður,
bílastæðagjöld og fleira. Að lokum er
bent á að auknar hjólreiðar gera sam-
félagið okkar skemmtilegra, fallegra,
rólegra og barnvænna.
E
ld
sn
ey
ti
Algengt verð 255,3 kr. 253,9 kr.
Algengt verð 255,1 kr. 253,7 kr.
Algengt verð 255,0 kr. 253,6 kr.
Algengt verð 255,3 kr. 253,9 kr
Algengt verð 257,3 kr. 253,9 kr.
Melabraut 255,1 kr. 253,7 kr.
Bættu fyrir
mistök
n Lofið fær N1 en DV fékk eftir-
farandi sent: „Ég varð bensínlaus
um daginn og fékk systur mína til
að kaupa bensín, fá brúsa og koma
með til mín. Þegar hún kom
áttaði hún sig á því að stórt
gat var á slöngunni sem ætl-
að var til þess að hella í bíl-
inn og annað á brús-
anum sjálfum þannig
að bensín gutlaði
þar upp úr og ofan
í motturnar í bíln-
um hennar. Þegar ég
reyndi að setja bensínið
á bílinn fór það út um allt, bílinn,
dekkið og að sjálfsögðu mig sjálfan.
Ég kom svo við á bensínstöðinni til
að skila brúsanum og fylla á bílinn
sem angaði af bensíni að innan og
leit ekki vel út eftir að fá slurk yfir
sig líka. Starfsmaðurinn brást vel
við, lét mig fá trekt svo ég gæti tæmt
löggina úr brúsanum í bílinn minn
og í ljósi þess að brúsinn hafði verið
með gati, var sleginn af einn lítri af
dælingunni minni. Fyrir þennan
lítra ber að þakka, en það er mjög
glæsilegt að stórt og öflugt fyrirtæki
eins og N1 gefi framlínustarfsfólki
sínu svigrúm líkt og þetta til þess að
bæta upp fyrir mistök.“
Enginn
sykurlaus ís
n Lastið fá ísframleiðendur á Íslandi
en maður sem þjáist af sykursýki
er afar ósáttur við að fá ekki sykur-
lausan ís. „Ég er sykursjúkur, langar
oft í ís en má ekki borða sykur. Ég
vil benda á að það eru þúsundir Ís-
lendinga sem eru sykursjúkir fyrir
utan allan þann fjölda
af fólki sem er of feitur
og forðast sykur. Að
lokum vil ég einnig
benda á að við hvetj-
um börn og unglinga
til að minnka sykurinn. Ég
skil því ekki af hverju það er
ekki framleiddur sykurlaus
ís hér. “
Hjá Emmessís fengust þessi svör:
„Emmessís framleiðir eina tegund
af sykurlausum ís, Sykurlaus ís-
blóm. Þessi var selst ágætlega en þó
mun minna en hefðbundin ísblóm.
Hún fæst í mörgum verslunum en
þær verslanir sem ekki bjóða upp
á mikið vöruúrval hafa ekki viljað
bjóða upp á þessa vöru þar sem
hún stenst ekki kröfur þeirra um
veltuhraða. Lítil eftirspurn eftir
sykur lausum ís er einmitt ástæð-
an fyrir því að ekki er meira úrval
af slíkri vöru á markaðinum en
raun ber vitni. Emmessís hefur
áður boðið upp á sykurlausa lurka
en salan á þeim var mjög léleg og
urðum við að hætta framleiðslu á
þeim.“
SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS
Lof&Last
Hjólreiðar Ætla má að margir muni halda áfram að hjóla í vinnu eftir að átakinu Hjólað í
vinnuna lýkur.
T
öluvert hefur verið skrifað
um skaðsemi ofneyslu salts.
en á síðu Lýðheilsustofnun-
ar segir að með minni salt-
neyslu megi lækka blóð-
þrýstinginn töluvert og að áhrifin séu
meiri en áður hafi verið talið. Aðrar
rannsóknir sýna jafnframt að það sé í
raun frekar auðvelt að venja sig af allri
þessari saltneyslu og að það taki ein-
ungis átta til tólf vikur að venja bragð-
laukana af saltinu. Á síðu Food Stand-
ards Agency má finna nokkrar mýtur
um salt sem vert er að hafa í huga.
Ég get ekki verið að borða of
mikið af salti þar sem ég salta
ekki matinn sjálf/ur!
Rangt
Þar sem 75 prósent af saltinntöku okkar
koma úr mat sem við kaupum, svo sem
morgunkorni, súpum, sósum, tilbúnum mat
og kexi, er auðvelt að innbyrða of mikið af
því án þess að bæta við salti. Það nægir í
sumum tilvikum að borða aðeins einn eða
tvo skammta af ákveðnum matvælum til
að vera búinn að fá meira en ráðlagðan dag-
skammt af salti.
Maturinn er alveg
bragðlaus án salts
Rangt
Ef þú ert vön/vanur mat sem er mjög saltur
eða að bæta við salti sjálf/ur er mögulegt að
þú munir sakna saltsins til að byrja með. Þetta
kemur til vegna þess að bragðlaukarnir eru
orðnir vanir því að fá salt, og það mikið af því.
Bragðlaukarnir geta hins vegar vanist hverju
sem er og einnig því að fá minna salt en
áður. Eftir einungis nokkrar vikur er líklegt
að þú verður farin/n að njóta þess að borða
saltminni mat eða jafn alveg saltlaus mat-
væli. Auk þess getur saltið yfirgnæft annað
bragð og þú byrjar að meta það að finna
annað bragð af mat.
Þú finnur hvort matur
inniheldur mikið salt
Rangt
Sum matvæli sem innihalda mikið salt eru
ekki sölt á bragðið. Stundum er það vegna
þess að þau eru mjög sæt, til dæmis kex og
morgunkorn. Auk þess geta bragðlaukarnir
verið orðnir það vanir salti að þeir merkja
ekki hvort maturinn sé saltur. Þegar fólk
borðar mikið salt verða bragðlaukarnir
ónæmir fyrir því. Það mun því koma á óvart
hve mörg matvæli eru sölt þegar þú hefur
vanið bragðlaukana af því.
Einungis eldra fólk þarf að hafa
áhyggjur af saltneyslu
Rangt
Þegar þú borðar mikið salt hækkar blóð-
þrýstingurinn, sama á hvaða aldri þú ert.
Það er minni hætta á að fá hjartaáfall þegar
þú ert á þrítugs- og fertugsaldri en ef þú ert
eldri. Sértu hins vegar með háan blóðþrýst-
ing á yngri árum ertu í mun meiri hættu en
þeir sem hafa eðlilegan blóðþrýsting.
Fínna salt er betra en
venjulegt borðsalt
Rangt
Annað orð yfir salt er natríum klóríð og
það er natríum í saltinu sem eykur blóð-
þrýstinginn. Það skiptir því engu máli hvort
saltið er fínna og dýrara, hvort sem það er
korn, kristallar eða flögur, það inniheldur
alltaf natríum.
Þú þarft meira salt í miklum
hita þar sem þú svitnar meira
Rangt
Við missum einungis lítið magn af salti með
svita, jafnvel þegar hitinn er sem mestur.
Það er því engin ástæða til að borða meira
salt þegar þú ert í miklum hita. Mikilvægast
er að drekka nóg af vatni til að viðhalda
nægilegum vökva í líkamanum.
Ef ég minnka saltneysluna fær
líkaminn ekki nógu mikið salt
Rangt
Það er í rauninni mjög erfitt að borða of lítið
af salti. Þetta er vegna þess að við fáum
svo mikið af því úr daglegum mat okkar.
Fólk í sumum löndum lifir á brotabroti af því
magni sem við neytum.
Ég mundi vita ef ég væri með of
háan blóðþrýsting
Rangt
Fjölmargir sem þjást af of háum blóð-
þrýstingi vita ekki af því og finna ekki fyrir
neinum einkennum. Þú getur ekki gert ráð
fyrir því að þrýstingurinn sé í lagi án þess að
hafa látið mæla hann.
n Matur getur verið mjög saltur þó það finnist ekki á bragðinu
Bragð án salts
Það er vel hægt að gefa matnum
aukið bragð án þess að nota salt
og hér eru nokkrar ráðleggingar
um hvernig farið er að því:
n Notaðu ferskar kryddjurtir með
pastanu, grænmetinu og kjötinu
n Settu kjöt og fisk í kryddlög og láttu
liggja í lengri tíma til að matvælin dragi í
sig meira bragð
n Notaðu hvítlauk, engifer, chili og
límónu í snöggsteikta rétti eins og
asíska rétti
n Settu smá rauðvín í kássuna og pott-
réttinn en hvítvín í rísottó og sósur með
kjúklingi
n Búðu til þinn eigin kjötkraft og sósu
í stað þess að nota teninga. Eins getur
þú leitað eftir tegundum sem innihalda
minna salt.
n Steiktu grænmeti, svo sem chili,
fenniku, dvergbít, nípu og grasker til að
ná fram bragðinu í þeim
n Kreistu sítrónusafa yfir fisk og annað
sjávarfang
n Prófaðu aðrar tegundir af lauk, svo
sem rauðlauk, vorlauk, hvítan lauk og
skalottlauk.
n Notaðu vel þroskaða og bragðmikla
tómata og lauk til að búa til sósur
n Notaðu svartan pipar til að krydda
pasta, egg og fleira í stað saltsins
n Lýðheilsustöð hefur sett fram
ráðleggingar þess efnis að dagleg
saltneysla kvenna fari ekki yfir sex
grömm og saltneysla karla takmarkist
við sjö grömm. Við borðum hins vegar
að minnsta kosti níu grömm á dag að
meðaltali og erum því yfir þessum
ráðlögðu viðmiðum.
Mýtur um salt
Matargerð Það er í raun
algjör óþarfi að salta mat
sem við eldum sjálf og
aðrar leiðir færar til að
gefa matnum bragð.