Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2012, Síða 20
20 Menning 23. maí 2012 Miðvikudagur
Gömul skip
Pálmi Gestsson hefur gefið
út disk þar sem hann les 14
ljóð Þorsteins frá Hamri við
undirleik Hrólfs Vagnssonar.
Diskurinn ber titilinn
Gömul skip.
„Þorsteinn frá Hamri er
eitt þjóðskálda okkar Íslend-
inga og mér fannst skylda
mín að gera þeim hátt
undir höfði,“ sagði Pálmi
en diskurinn er veglegur og
með honum fylgja textar
ljóðanna.
Myndlist á
Listahátíð
Miðvikudaginn 23. maí kl.
17 verður sýningin Listahá-
tíð OffVen(ue)/(you) opn-
uð í sal hönnunardeildar
Listaháskóla Íslands, Þver-
holti 11.
Það er hópur nemenda
á fyrsta og öðru ári í mynd-
listardeild skólans sem sýnir
verk sín á þessari samsýn-
ingu. Verkin eru af fjölbreytt-
um toga og verður margt
þar að finna sem grípa mun
augu og anda sýningargesta.
Sýningin stendur til 27.
maí og eru sýningarstjórar
Alexander Jean Edvard le
Sage de Fontenay og Ívar
Glói Gunnarsson.
Nýr krimmi
„Leikarinn er einstak-
lega fjörug og kraftmikil
glæpasaga, atburðarásin
hröð og persónurnar
dregnar sterkum drátt-
um,“ segir í tilkynningu
um nýja glæpasögu eftir
Sólveigu Pálsdóttur, leik-
ara og framhaldsskóla-
kennara. Þetta er fyrsta
skáldsaga Sólveigar.
Í
einu orði sagt alveg stór-
kostlegt hjá þeim og fag-
mennska fram í fingur-
góma,“ sagði Páll Óskar
Hjálmtýsson um frammi-
stöðu Íslendinga í fyrri und-
ankeppni Eurovision. Ísland
komst áfram, auk níu annarra
þjóða, og munu Greta Sal-
óme Stefánsdóttir og Jón Jós-
ep Snæbjörnsson stíga á svið
á laugardaginn kemur. Fyrir-
huguðum Eurovision-teitum
Íslendinga um næstu helgi er
því borgið.
Mikil spenna ríkti í ís-
lenska hópnum áður en stig-
ið var á svið og því léttirinn
mikill þegar nafn Íslands var
dregið út.
Átján lög voru flutt í gær-
kvöldi í fyrri undankeppn-
inni. Fyrsta lagið sem flutt var
var frá Svartfjallalandi, Euro
Neuro en það flutti Svartfell-
ingurinn, Rambo Amadeus.
Eftir flutning Rambo, steig
íslenski hópurinn á svið og
flutti lag Gretu Salóme, Ne-
ver Forget. Í bakgrunni mátti
líta glæsilegt myndband sem
unnið var sérstaklega fyrir
keppnina þar sem dulúð í
eyðilegu landslagi ræður ríkj-
um.
Glæsileg á sviðinu – fiðlu-
leikurinn sterkur
Greta og Jónsi voru glæsileg
á sviðinu í klæðnaði hönn-
uðum af Rebekku A. Ingi-
mundardóttur. Jónsi keppti
í Eurovision öðru sinni og
því reynslunni ríkari. Margir
töldu áður en keppnin hófst
að fiðluleikur Gretu myndi
safna verðmætum stigum
og sáu spámenn hliðstæðu
í sviðsframkomu hennar og
hins norska Alexanders Rybak
sem spilaði til sigurs í Moskvu
árið 2009. Páll Óskar gengur
lengra og spáir Íslandi einu af
fimm efstu sætunum í loka-
keppninni á laugardagskvöld.
Heppin með riðil
Íslendingar þóttu fremur
heppnir með riðil en við þá
í forkeppninni kepptu með-
al annars Írar með dúettinn
geysivinsæla Jedward í farar-
broddi, sem flutti lagið Water-
line, ömmurnar frá Rússlandi
sem hafa vakið mikla eftirtekt
og dívan Ivi Adamou sem sló í
gegn í grísku X Factor keppn-
inni árið 2010, þá aðeins 16
ára. Öll þessi lög fara áfram í
lokakeppnina.
Undanúrslitakvöldin eru
tvö og hið seinna verður þann
24. maí og úrslitin verða þann
26. maí. Sex lönd eru þegar
komin í úrslit.
n Ísland komst áfram með glæsibrag í Eurovision í Aserbaídsjan
Það verður euro-
teiti um helgina
Sterk á sviðinu Þau
Greta og Jónsi fluttu Never
Forget og fiðluleikur Gretu
heillaði salinn.
Lag Gretu komst áfram Greta stóð sig eins og hetja ásamt félögum sínum.