Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2012, Síða 27
Fólk 27Miðvikudagur 23. maí 2012
n Örlar á gagnrýni á Ólaf Ragnar í bréfi til stuðningsmanna
E
ins og þið hafið ef til vill
frétt eignaðist ég stóra
og heilbrigða stúlku á
föstudag. Næstu daga
ætlum við að sinna fjölskyld-
unni og safna kröftum fyrir
það sem framundan er,“ rit-
ar Þóra Arnórsdóttir forseta-
frambjóðandi í bréfi sem barst
vinum og stuðningsmönnum
hennar fyrr í vikunni. En litla
stúlkan dafnar vel. „Ég fékk
að líta til þeirra í byrjun vik-
unnar og sú stutta er mjög svo
mannaleg og einstaklega vær,“
segir Sigrún Þorgeirsdóttir,
kosningastjóri Þóru, en hún
veitir sjálf ekki viðtöl á meðan
hún safnar kröftum.
Í bréfinu vísar Þóra í já-
kvæðar niðurstöður síðustu
skoðanakönnunar sem birt-
ist á fæðingardegi stúlkunn-
ar. Um er að ræða fimmtu
tölfræðilega marktæku könn-
unina röð sem sýnir forystu
Þóru. Hún segir niðurstöð-
urnar mjög uppörvandi en
í samræmi við það sem hún
hafi fundið á ferðum sínum
um landið.
„Forsetinn þarf með fram-
komu sinni og orðræðu að
endurspegla mikilvæg sam-
félagsleg gildi, dreifa gleði,
samstöðu, jákvæðni og stolti,
bera hróður lands og þjóð-
ar sem víðast og hughreysta
þjóðina á erfiðum stundum.
Þetta einingarhlutverk getur
forseti illa rækt ef hann rekur
eigin stjórnmálastefnu. Lög-
gjafar- og framkvæmdavald-
ið eiga að rækja sínar skyldur
og forsetinn á aðeins að taka
í taumana ef brýna nauðsyn
krefur – og þá er það þjóð-
arinnar að taka lokaákvörð-
un,“ segir Þóra meðal ann-
ars í bréfinu og örlar þarna
á gagnrýni á sitjandi forseta
og einn mótframbjóðanda
hennar, Ólaf Ragnar Gríms-
son.
Þóra virðist þó ætla að hafa
gleðina og jákvæðnina að
leiðarljósi í kosningabarátt-
unni, því í bréfinu segir jafn-
framt: „Munum að það erum
við sem ráðum því hvernig
okkar kosningabarátta er og
verður: Hrein og bein, jákvæð
og mörkuð af gleði og bjartri
framtíðarsýn fyrir íslenskt
samfélag.“
Smáauglýsingar
smaar@dv.is
sími 512 7004
Opið virka daga kl. 10.00–18.00 og laugardaga kl. 11.30–15.00
BÍLALIND.is - Funahöfða 1 - 110 Reykjavík - S: 580-8900
VW TOUAREG V8
Árgerð 2004, ekinn 135 Þ.km, sjálfskipt-
ur, leður, lúga, samlitur og virkilega
fallegur! Verð 2.790.000. Raðnr.322132
- Jeppinn fagri er í salnum!
LEXUS IS200
Árgerð 2004, ekinn aðeins 59 Þ.km,
sjálfskiptur. Verð 2.350.000. Raðnr.
284345 - Bíllinn fallegi er á staðnum!
BMW 545I
06/2004, ekinn 170 Þ.km, bensín, 6
gíra. Tilboðsverð aðeins 2.390.000 stgr.
Raðnr. 321472 Bíllinn er á staðnum!
SUNLIGHT C 52 K HJÓLHÝSI
kojuhús. 06/2007, Verð 2.690.000.
Raðnr. 310028 - Húsið er á staðnum
klárt í ferðalagið!
M.BENZ ML320CDI
Árgerð 2007, ekinn 97 Þ.km, dísel,
sjálfskiptur, leður, lúga. Mjög flott
eintak! Verð 6.290.000. Raðnr. 310101
Jeppinn vinsæli er í salnum!
VW GOLF TRENDLINE
09/2006, ekinn AÐEINS 51 Þ.km, 5
gíra, sóllúga, álfelgur! Verð 1.450.000.
Raðnr. 310122 - Sá flotti er á staðnum!
JEEP GRAND CHEROKEE LIMITED
4WD 5,7 HEMI Árgerð 2005, ekinn
112 Þ.km, sjálfskiptur, leður ofl. Verð
2.390.000. Raðnr. 322160 Jeppinn
fallegi er á staðnum!
MAZDA RX-8
0/2005, ekinn 84 Þ.km, sjálfskiptur,
vindskeið, frúarbíll! Verð 2.440.000.
Gott lán ca. 1.650þkr. Raðnr. 284428 -
Töffarinn er á staðnum!
BMW 630M útlit
05/2005, ekinn 83 Þ.km, sjálfskiptur,
leður, M-felgur ofl. Verð 5.890.000.
Raðnr.284412 - Kagginn er í salnum!
Tek að mér
Hreinsa þakrennur, laga riðbletti á
þökum, gluggaþvottur, hreinsa lóðir
og tek að mér ýmiss smærri verkefni.
Upplýsingar í síma 847-8704 eða á
manninn@hotmail.com
Funahöfða 1, 110 Reykjavík
S. 567 4840 www.hofdahollin.is
Minkapels
til sölu, ný yfirfarinn
Upplýsingar í síma: 898-2993
Beinteinn.
Gerum tilboð í alla flutninga. Frysti-
vagnar, malarvagnar, flatvagnar, gröfur
,kranabílar." Silfri ehf - s: 894-9690
SUBARU IMPREZA AREO
11/2007, ekinn AÐEINS 26 Þ.km, sjálf-
skiptur, lyklalaust aðgengi og fleira
skemmtilegt. Verð 3.190.000. Mjög
jákvæður fyrir skiptum! Raðnr. 270291
- Bíllinn er í salnum, skínandi fagur!
CHEVROLET CORVETTE C5
Árgerð 2002, ekinn aðeins 27 Þ.km, sjálf-
skiptur, leður, og fleira skemmtilegt. Öllum
strákum langar í þennan! Verð 4.290.000.
Raðnr. 282184 - Kagginn er í salnum!
M.BENZ S 450 4MATIC
Árgerð 2010, ekinn 44 Þ.km, metan,
sjálfskiptur og allur aukabúnaður
m.a. 20“ AMG felgur og ný dekk. Verð
20.900.000. Raðnr. 282234 - Bíllinn er í
salnum, stórglæsilegur!
Til leigu 3ja herbergja,
90fm efri hæð í litlu húsi 105 Rvk.
Geymsla á lofti, aðgangur að
þvottahúsi í kjallara og garður.
Gæludýr velkomin. Reyklaus.
Verð kr. 120.000- á mánuði án
rafmagns og hita.
Bakaábyrgð og meðmæli.
Upplýsingar sendist á
leiga105rvk@gmail.com
„Hrein og bein“ Þóra segir
forsetann þurfa að dreifa gleði og
jákvæðni.
Baráttan verður „hrein og bein“
Heimurinn er
fallegri úr lofti
n Sigríður Elva úr Íslandi í dag er með flugdellu á háu stigi
É
g er meira og minna alin
upp í lítilli rellu. Pabbi
var áhugaflugmaður og
flestar mínar minning-
ar úr barnæsku eru úr
aftursæti flugvélar,“ segir fjöl-
miðlakonan Sigríður Elva Vil-
hjálmsdóttir úr Íslandi í dag
en Sigríður er með mikla flug-
dellu.
Sigríður Elva er búin með
bóklega hlutann af flug-
náminu og er byrjuð á verk-
lega þættinum. Aðspurð seg-
ist hún ekki ætla að skipta um
starfsvettvang, allavega ekki
enn sem komið er.
„Sjónin í pabba hef-
ur versnað mikið svo ég var
hætt að geta flogið með hon-
um. Þess vegna ákvað ég að
drífa mig í námið – til að geta
endurgoldið greiðann. Hann
er búinn að fljúga svo mikið
með mig. Ætli þetta verði ekki
hobbí í bili en auðvitað væri
voðalega gaman að enda sem
„bush pilot“ einhvers staðar í
Fjarkanistan í framtíðinni. Ég
lærði hjá Geirfugli en þeirra
aðstaða er núna félagsmið-
stöðin mín. Það er svo ynd-
islegt að sitja þar með þess-
um gömlu kempum, hlusta
á hetjusögur og drekka kaffi.
Þeir hafa ekki gert mikið grín
að mér en ég viðurkenni að
ég stakk ef til vill dálítið í stúf
þegar ég var að mæta þangað
á kvöldin beint úr vinnunni og
því stífmáluð.“
Sigríður Elva er tiltölu-
lega nýkomin heim úr flugi
til Frakklands. „Ég flaug með
flugkennaranum mínum á
einshreyfilsvél. Því má, með
pínu stílfærslu, ljúga því að ég
hafi tekið minn fyrsta „cross
country“-tímann minn yfir
Ermarsundinu. Draumurinn
er að fljúga í kringum hnött-
inn á lítilli flugvél. Ég skil ekki
af hverju flestir eru hræddari
við litlar vélar. Það er mikið
betra að vera í rellu, það eru
nefnilega eru helmingi minni
líkur á að missa mótor ef mað-
ur er með einn en tvo.“
Þótt að Sigríður sé ekki
flughrædd skilur hún óttann.
„Í dag finnst mér ég hvergi
öruggari en í flugvél. Svo er
líka allt fallegra séð úr loftinu.
Heimurinn er fallegri það-
an. Það er voðalega erfitt að
útskýra þessa ástríðu – mér
finnst bara allt svo yndislegt
í flugvél. Ég skil samt alveg
þá sem eru flughræddir því
sjálf lenti ég í slysi á báti árið
2004. Þá varð ég undir sódí-
ak á ferð og fékk bátskrúfuna
í öxlina. Lengi á eftir var ég
sjúklega farartækjahrædd og
sérstaklega í farþegaþotum.
Mér fannst svo óþægilegt að
sjá ekki hver væri að stýra.
En eftir martraðarflugferð
til Asíu þar sem við lentum í
veseni á hverjum legg komst
ég yfir hræðsluna. Í þessari
ferð þurftum við til dæmis að
fljúga í gegnum stríðssvæði,
vera með risa stóra rottu um
borð og hætta við lendingu.
Fyrst þeir náðu að rífa risa-
vaxna breiðþotu upp aftur á
örskammri stundu þarf mað-
ur ekkert að óttast. Það þarf
svo rosalega margt að fara úr-
skeiðis til að eitthvað gerist.“
indiana@dv.is
Flottur hópur
Sigríður flaug
ásamt flug-
kennara sínum á
einshreyfilsvél til
Frakklands um
daginn.
Með flugdellu Sigríður Elva var alin upp í aftursæti flugvélar. Pabbi
hennar er hættur að fljúga. Hún ákvað að læra að fljúga til að geta boðið
honum í flugferð.
Með ástríðu fyrir flugi Sigríður Elva er búin með bóklega hlutann í
flugprófinu og er byrjuð á þeim verklega.