Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2012, Side 4
Fóru til útlanda að skoða
n Kostnaður við dómnefndina allt að 30 milljónir
S
amkeppni um hönnun nýs
fangelsis kostaði íslenska rík
ið á bilinu 25 til 30 milljónir
króna. Sérstök dómnefnd var
skipuð til að fara yfir tillögurnar sem
bárust í samkeppnina síðla árs í fyrra
og lauk hún störfum í maí síðastliðn
um. Stærstur hluti kostnaðarins við
samkeppnina féll til vegna greiðslna
til sérfræðinga og arkitekta sem störf
uðu í dómnefndinni. Steinunn Valdís
Óskarsdóttir, fyrrverandi borgarstjóri,
gegndi formennsku í nefndinni.
Farið var í eina kynnisferð vegna
starfa dómnefndarinnar. Allir fimm
fulltrúarnir í nefndinni fóru í ferðina
auk starfsmanns nefndarinnar. Kostn
aðurinn við þá ferð nam í heild sinni
1.260 þúsund krónum. Auk Steinunn
ar Valdísar eru nefndarmenn Páll
Winkel fangelsismálastjóri, Pétur Örn
Björnsson, Gylfi Guðjónsson og Hild
ur Gunnarsdóttir arkitektar.
Þetta kemur fram í svari innan
ríkisráðuneytisins við fyrirspurn DV
um kostnað við nefndina. Þar kem
ur einnig fram að auk greiðslna til
nefndarmanna var greidd þóknun til
Arkitektafélags Íslands vegna sam
starfs um samkeppnina, kostnaður
við sýningu og kynningu og tíu millj
óna króna verðlaunafé fyrir vinnings
hafa samkeppninnar.
Áætlað er að kostnaður vegna
hönnunar fangelsisins nemi 200
milljónum króna. Gert er ráð fyrir
þeim kostnaði í fjárlögum ársins 2012.
Inni í þeirri tölu er kostnaðurinn við
dómnefndina. Áætlað er að hafist
verði handa við frekari undirbúning
fyrir framkvæmdina á næsta ári. n
adalsteinn@dv.is
4 Fréttir 21.–23. september 2012 Helgarblað
Leiðir nefndina Steinunn Valdís leiðir
dómnefndina. Mynd KarL Petersson
Íslendingar
sýna samhug
Luis E. Arreaga, sendiherra Banda
ríkjanna á Íslandi, þakkar á blogg
síðu sinni fyrir auðsýndan hlýhug
Íslendinga eftir árásir á sendiráð
Bandaríkjanna í Líbýu. Segir hann
að fjölmargir hafi sett sig í sam
band við sendiráðið og vottað sam
úð sína. „Margir hafa einnig sagt
okkur frá áhyggjum sínum af of
beldinu sem sendiráð okkar verða
fyrir víðsvegar um heiminn,“ skrif
ar hann. Fjórir starfsmenn sendi
ráðsins í Líbýu létust í árásinni, þar
á meðal sendiherra Bandaríkjanna.
Fimm starfsmenn sendiráðsins
særðust einnig auk tíu líbýskra ör
yggisvarða. Sendiherrann segir að
árásin hafi verið gerð á sendiráðið
í kjölfar myndbands sem sett var
á netið og þótti ögra töluvert, sér
staklega íslam. Luis segist hafna
því sem fram kom í myndbandinu
enda samræmist það ekki hug
myndafræði bandarískrar utan
ríkistefnu. Hins vegar sé rangt að
taka reiði sína út á starfsmönnum
sendiráða enda sé stefna þeirra að
byggja brýr milli samfélaga.
„Eins og þruma
úr heiðskýru
lofti“
Aðstoðarmaður Steingríms J. Sig
fússonar atvinnuvegaráðherra,
Huginn Freyr Þorsteinsson, seg
ir ummæli kínverska fjárfestisins
Huang Nubo koma eins og þruma
úr heiðskýru lofti. Þetta sagði
Huginn við fréttavef Vísis í gær en
Nubo sagði í samtali við kínverska
miðilinn China Daily að hann
myndi skrifa undir samning vegna
leigu á Grímsstöðum á Fjöllum við
íslensk stjórnvöld í næsta mánuði.
Í samtali við Vísi benti Huginn
Freyr á að málið væri ekki á því
stigi að samningar við Nubo yrðu
undirritaðir í næsta mánuði.
Fólskuleg árás Ásgeir Ingi réðst á sambýliskonu sína á heimili þeirra í miðbæ Reykjavíkur. Í dómnum segir að árásin haf verið fólskuleg.
Á
sgeir Ingi Ásgeirsson var á
mánudaginn dæmdur í Hér
aðsdómi Reykjavíkur í 12
mánaða fangelsi fyrir lík
amsárás á þáverandi sam
býliskonu sína. Ásgeir var árið 2001
dæmdur í 16 ára fangelsi fyrir hrotta
legt morð á ungri konu í Engihjalla í
Kópavogi. Hann slapp út á reynslu
lausn í desember 2010.
réðst á hana á heimili þeirra
Ásgeir Ingi var dæmdur fyrir að hafa
að kvöldi miðvikudagsins 21. febrú
ar 2012 ráðist á sambýliskonu sína á
heimili þeirra í miðbæ Reykjavíkur;
slegið hana í andlit og líkama, hrint
henni niður í rúm þannig að höfuð
hennar lenti utan í vegg og sest þar
ofan á hana og haldið henni. Hafi
það haft þær afleiðingar að sambýl
iskonan nefbrotnaði, hlaut mar á
enni, gagnauga og vinstri kinn, mar
á hægri framhandlegg og upphand
legg, mar og sár á hálsi, mar á hægri
kálfa og ofanverðu vinstra læri og
tognun á ökkla.
Fólskuleg árás
Ásgeir Ingi játaði brot sín fyrir dómi.
Í dómnum segir að brot ákærða hafi
beinst gegn stúlku sem hann bjó
með og árásin hafi verið fólskuleg.
Jafnframt er þess getið að ákærði hafi
verið á skilorði reynslulausnar þegar
hann braut af sér. Þykir refsing hans
að þessu athuguðu vera hæfilega
ákveðin fangelsi í 12 mánuði.
Ásgeiri er jafnfram gert að greiða
konunni 350 þúsund krónur í miska
bætur ásamt almennum vöxtum frá
21. febrúar til 18. september 2012,
en með dráttarvöxtum frá þeim degi
til greiðsludags. Auk þess er honum
gert að greiða verjanda sínum 180
þúsund krónur í málsvarnarlaun
og 12.925 krónur í ferðakostnað.
Og verjanda konunnar 150 þúsund
krónur í réttargæslulaun auk 14.400
krónur í annan sakarkostnað.
dæmdur fyrir morð í engihjalla
Ásgeir var látinn laus til reynslu þann
1. desember 2010 en þá átti hann
1.920 daga eftir af dómnum sem hann
fékk fyrir morðið á Áslaugu Perlu
Kristjónsdóttur. Fangelsismálastofn
un ákvað 22. febrúar síðastliðinn að
ákærði skyldi afplána eftirstöðvar
refsingarinnar fyrir að hafa rofið sér
stakt skilorð reynslulausnarinnar um
neyslu áfengis og fíkniefna.
Líkt og áður sagði var Ásgeir árið
2001 dæmdur í 16 ára fangelsi fyr
ir manndráp. Töluvert hefur ver
ið fjallað um það mál en þá varð
hann Áslaugu Perlu að bana í Engi
hjalla í Kópavogi með því að hrinda
henni fram af svölum á 10. hæð. Í
fyrstu neitaði Ásgeir að hafa hrint
henni fram af svölunum en hand
riðið á þeim var 119 sentímetra hátt.
Hann viðurkenndi síðar að hafa
hrint henni fram af svölunum. Móð
ir fórnarlambsins hefur lengi barist
fyrir því að fá málið endurupptekið
því hún telur að það hafi einnig átt
að ákæra Ásgeir fyrir að hafa nauðg
að Áslaugu Perlu. Í lögregluskýrslum
kemur fram að tölur á buxum fórnar
lambsins hafi verið brotnar og Ásgeir
hafi verið með nærbuxur hennar í
vasanum auk þess sem áverkar hafi
verið á ytri kynfærum hennar. Um
áverkana sagði hann að einfaldlega
hefði verið um „harkalegt kynlíf“ að
ræða. Sagði hann að þau hefðu ver
ið að stunda kynlíf en að Áslaug hefði
viljað hætta til að fara að sprauta sig
með eiturlyfjum. Hefði hann þá ekki
viljað eiga frekara samræði við hana
og ýtt henni fram af svölunum. n
Viktoría Hermannsdóttir
blaðamaður skrifar viktoria@dv.is
„Í dómnum segir að
brot ákærða hafi
beinst gegn stúlku sem
hann bjó með og árásin hafi
jafnframt verið fólskuleg
Barði kærustuna
á reynslulausn
n Var dæmdur fyrir morð 2001 n Nú dæmdur fyrir grófa líkamsárás