Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2012, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2012, Page 6
Ekkert viðtal við Bjarna n Formaður Sjálfstæðisflokksins vill ekki ræða við DV B jarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hefur synj- að ítrekuðum beiðnum DV um viðtal í tilefni þingsetningar. Því verður ekkert af viðtali við full- trúa Sjálfstæðisflokksins en formenn annarra flokka þáðu allir boð blaðsins. Óskað var eftir viðtali við formenn flokkanna fimm á þingi: Sjálfstæðis- flokks, Samfylkingar, VG, Framsóknar og Hreyfingarinnar. Að auki var rætt við fulltrúa Samstöðu og Bjartrar fram- tíðar, en báðir flokkarnir eiga fulltrúa á Alþingi, kjörna í nafni annarra flokka. Þess skal getið að Hreyfingin hefur ekki formann, aðeins þingflokksfor- mann, en þingmenn Hreyfingarinnar skipta því hlutverki á milli sín. Fulltrúi Bjarna segir ástæðu synj- unarinnar þá að ekki ríki traust milli Bjarna og DV vegna umfjöllunar DV um málefni hans. Blaðið hefur frá ár- inu 2009 fjallað ítarlega um aðkomu Bjarna að Vafningsmálinu svokall- aða. Þar hefur meðal annars komið fram að Bjarni undirritaði skjöl með röngum dagsetningum. Umleitanir blaðsins um þátttöku Bjarna sem for- manns Sjálfstæðisflokksins stóðu yfir frá 20. ágúst til 13. september þegar boðið var formlega afþakkað. Rétt er að taka fram að áhugaleysi Bjarna á viðtali varð ljóst nokkru áður en form- leg neitun barst. Í viðræðunum komu fram áhyggjur af því að Bjarni yrði spurður út í Vafningsmálið. Var full- trúa Bjarna tilkynnt að DV gæti ekki samið um að spyrja ekki ákveðinna spurninga eða koma ekki að ákveðn- um málum. Tilefni formannsviðtal- anna er eins og áður segir setning Al- þingis en ekki Vafningsmálið. 6 Fréttir 21.–23. september 2012 Helgarblað F lutningafyrirtækið Samskip, sem er í eigu fjárfestisins Ólafs Ólafssonar, hagnað- ist um tæplega 714 milljónir króna í fyrra, eða 4,495 millj- ónir evra. Þetta kemur fram í nýbirt- um ársreikningi félagsins fyrir árið 2011. Ársreikningnum var skilað til ríkisskattastjóra þann 13. septem- ber síðastliðinn. Árið áður, 2010, skilaði Samskip rúmlega 6,2 millj- óna evra hagnaði. Í ársreikningi kemur enn frekar fram að enginn arður hafi ver- ið tekinn út úr Samskipum árið 2011. Samskip eru í eigu hollenska eignarhaldsfélagsins Samskip Holding B.V. Fram að fjárhagslegri endurskipulagningu, sem gengið var frá í byrjun árs 2010, var flutn- ingafyrirtækið í eigu fjárfestingarfé- lags Ólafs, Kjalars ehf. Samskip eru stærsta eignin sem Ólafur Ólafs- son heldur eftir bankahrunið 2008. Í hruninu og í kjölfar þess tapaði hann stórum eignarhlut í Kaupþingi og þriðjungs eignarhlut í útgerðar- fyrirtækinu HB Granda, stærsta kvótanotanda á Íslandi. Greiddu 700 milljónir Í byrjun árs 2010 sömdu Ólafur Ólafsson og nokkrir af lykilstjórn- endum Samskipa við lánardrottna félagsins, belgíska bankann Fortis og Arion banka, um að þeir myndu fá að halda félaginu gegn því að reiða fram um 700 milljónir ís- lenskra króna. Hluti af samkomu- laginu var að lengt yrði í lánum sam- stæðunnar. Í umfjöllun fjölmiðla á þeim tíma kom fram að ekkert yrði afskrifað af skuldum félagsins. Árs- reikningur Samskipa fyrir árin 2010 og 2011 staðfestir þetta. Skuldir Samskipa nema nú tæp- lega 42 milljónum evra, nærri 6,7 milljörðum króna, og eru eign- ir félagsins bókfærðar á tæplega 55 milljónir evra, um 8,7 milljarða króna. Félagið greiddi afborganir af skuldum sínum upp á tæplega 3,5 milljarða króna í fyrra. Miðað við ársreikning félagsins er staða þess ansi sterk eftir áðurnefnda fjárhags- lega endurskipulagningu. Endurskipuleggja fasteignir Ólafs Líkt og DV greindi frá í síðustu viku er önnur af lykileignum Ólafs Ólafsson- ar á Íslandi fasteignafélagið Festing ehf. Festing á umtalsvert magn fast- eigna á Íslandi og skilaði hagnaði upp á rúmlega milljarð króna árið 2010. Eignir félagsins eru verðmetnar á meira en 16 milljarða króna. Félag- ið á meðal annars skrifstofuhúsnæði á Suðurlandsbraut 18 og höfuðstöðv- ar bifreiðaumboðsins Öskju á Krók- hálsi. Þá heldur félagið utan um fast- eignir Samskipa. DV greindi frá því í síðustu viku að Festingu hefði verið skipt upp í tvö félög: Festingu og nýtt félag, Festi ehf. Í máli Heimis Sigurðs- sonar, stjórnarmanns Festingar og Festis, kom fram að þetta hefði ver- ið gert í hagræðingarskyni til að láta eitt og sama félagið halda utan um fasteignir sem tengjast rekstri Samskipa. Aðrar fasteignir sem eru óskyldar rekstri Samskipa urðu eft- ir í Festingu. „Það er nú ekkert á bak við þetta annað en það að við erum við rekstur sem er tvískiptur. Annars vegar er um að ræða fasteignir sem tengjast rekstri Samskipa og hins vegar aðrar fasteignir sem ekki tengjast þeim rekstri,“ sagði Heimir í samtali við DV. Bókfært virði eigna Ólafs Ólafs- sonar í Samskipum, Festingu og Festi nemur því nærri 25 milljörðum króna. n Samskip Ólafs græddu 714 milljónir árið 2011 n Samskip á eignir upp á tæpa níu milljarða n Stærsta eign Ólafs Ólafssonar„Bókfært virði eigna Ólafs Ólafssonar í Samskipum, Festingu og Festi nemur því nærri 25 milljörðum króna. Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is Á miklar eignir Ólafur Ólafsson á enn gríðarlegar eignir eftir hrunið 2008. Hann sætir ákæru í Al-Thani málinu svokallaða og sést hér með verjanda sínum, Ragnari Hall, við rekstur málsins í héraðsdómi. Skortir traust Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir ekki ríkja traust milli sín og DV. „Hópnauðg- anir ekki grjótharðar“ „Vil taka það skýrt fram að mér finnst hópnauðganir ekki grjót- harðar,“ skrifaði knattspyrnu- maðurinn Garðar Gunnlaugs- son, leikmaður ÍA, í athugasemd við frétt á DV.is þar sem greint var frá bloggi Maríu Lilju Þrast- ardóttur þar sem hún birti skjá- skot af Facebook-vegg Garðars. Skjáskotið var af mynd sem Garð- ar deildi á Facebook-vegg sínum. Það sem fór fyrir brjóstið á Maríu Lilju, og nokkrum vinum Garðars, var að myndin sýndi dvergana sjö vera að nauðga sögupersónunni Mjallhvíti. Garðar deildi myndinni undir yfirskriftinni að myndin væri „ljónhörð“. Í skjáskoti Maríu Lilju sést hvernig Garðar er gagnrýndur vegna myndarinnar, meðal annars af Mána Péturssyni útvarpsmanni sem segist ekki sjá neitt fyndið við að dvergarnir nauðgi Mjallhvíti og ráðleggur hann Garðari að fá sér betri almannatengil. Líkt og fyrr segir tekur Garðar það fram í athugasemd að honum finnist hópnauðganir ekki „grjótharðar“ og bætir við: „Þvert á móti finnst mér það viðbjóðslegur aumingja- skapur og að halda öðru fram er fásinna.“ Um 300 hafa kosið Alls eru nú 267 manns búnir að greiða atkvæði utankjörfund- ar vegna þjóðaratkvæðagreiðsl- unnar um tillögur stjórnlagaráðs sem fram fer 20. október næst- komandi. Þar af hafa 165 greitt atkvæði á höfuðborgarsvæðinu. Utankjörfundaratkvæðagreiðslan hófst hjá embætti Sýslumannsins í Reykjavík þann 25. ágúst síðast- liðinn. Búast má við að kjörsókn fari vaxandi eftir því sem nær dregur kosningum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.