Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2012, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2012, Blaðsíða 33
 33Helgarblað 21.–23. september 2012 ára Á Valentínusardaginn árið 2010 var Shawn Armstrong við skotæfingar í skógi í Tennesseefylki þegar eiginmaður hennar kom að henni. Þau höfðu átt í hjónabandserfiðleikum og höfðu skilið að borði og sæng stuttu áður. Það kom til rifrildis á milli þeirra sem endaði með að Shawn skaut Maury, 42 ára, þremur skotum og hringdi svo á neyðarlínuna. Maury var fluttur með þyrlu á sjúkrahús þar sem hann lést af sárum sínum. Shawn var handtekin og kærð fyrir manndráp af annarri gráðu. 38 M ark Goudeau fæddist árið 1964 í Phoenix í Arizona í Bandaríkjunum. Hann var yngstur þrettán systk- ina og Willie, faðir hans, vann á bílasölu og móðir hans, Al- berta, var þjónustukona. Þau skildu síðar. Tvennum sögum fer af heimil- ishaldi fjölskyldunnar. Eitt systk- ina Marks sagði að þrátt fyrir að það hefði einkennst af reglum og hömlum hefði heimilislífið verið friðsamlegt. Önnur systkini Marks sögðu að Willie hefði gjarna viðhaft niðurlægjandi orðbragð og að áfengissýki hefði verið vel þekkt fyr- irbæri í sögu fjölskyldunnar. Alberta lést þegar Mark var tólf ára, árið 1976. Mark var góð- ur í íþróttum og var í knattspyrnu- liði Corona del Sol High-skólans í Arizona, en náði ekki að útskrifast þaðan. Árið 1982 voru Mark og einn bróðir hans handteknir vegna nauðgunar en málinu var ekki fylgt eftir. Árin 1987 og 1988 var Mark ákærður fyrir ýmis brot, meðal annars að aka undir áhrifum áfeng- is. En brot hans áttu eftir að verða alvarlegri. Langur fangelsisdómur Í ágúst 1988 var Mark ákærður fyr- ir brottnám konu, fyrir að nauðga henni hrottalega og ganga í skrokk á henni. Mark fullyrti að hún hefði samþykkt samræði og að nauðgunin og líkamsárásin væru verka tveggja annarra karlmanna. Ekki var lagður trúnaður á frá sögn Marks og hann var dæmdur, árið 1990, til fimmtán ára fangelsis- vistar. Hann losnaði út vegna góðr- ar hegðunar eftir að hafa afplánað þrettán ár og settist að skammt frá Baseline-vegi í Phoenix og stofnaði þar heimili ásamt eiginkonu sinni, Wendy Carr. Þrátt fyrir að nágrann- ar þekktu til forsögu Marks var hann ágætlega vel liðinn. Mark fékk vinnu hjá byggingafyrirtæki og allt virtist vera í sóma, en um ári eftir að Mark losnaði úr fangelsi hófst Baseline- morðinginn handa. Stuttur en blóðugur ferill Fyrsti glæpurinn sem eignaður var Baseline-morðingjanum átti sér stað 6. ágúst 2005. Þá voru þrjár tánings- stúlkur neyddar aftur fyrir kirkju nokkra og tvær þeirra misnotaðar. Talið er að Baseline-morðinginn hafi framið sitt fyrsta morð mánuði síðar. Næstu ellefu mánuði skildi hann eftir sig slóð innbrota, kynferðis- árása og átta morða. Eitt umræddra morða, morðið á Sophiu Nunez þann 10. apríl 2006, var ekki eignað honum fyrr en síðar þegar staðfest var að kúlan sem hafði banað henni kom úr sömu byssu og notuð hafði verið við hin morðin. En í septemberbyrjun árið 2006 tilkynnti lögreglan í Phoenix að hún hefði haft hendur í hári manns, Marks Goudeau, sem grunaður væri um nauðgun á tveimur systrum, sem hafði átt sér stað 20. september 2005, og eignuð var Baseline-morðingjan- um. Önnur systranna var barnshaf- andi þegar Mark nauðgaði henni. 438 ára fangelsi DNA-sýni urðu Mark að falli í því máli. Réttað var yfir honum vegna alls 19 ákæruatriða og var hann dæmdur til 438 ára fangelsisvistar. Síðar sann- aðist, fyrir tilstill DNA-sýna, skot- færarannsókna og fleiri vísbendinga, sök Marks í fleiri málum sem tengd voru Baseline-morðingjanum og 31. október 2011 var hann sakfelldur í öllum þeim málum sem eignuð voru Baseline-morðingjanum fyrir utan þrjú rán og eitt mannrán. Í nóvember 2011 var mark Gou- deau dæmdur til dauða og bíður nú fullnustu þess dóms á dauðadeild ríkisfangelsis Arizona. Fjölskylda hans og vinir hafa haldið uppi vörnum fyrir Mark og fullyrða að lögreglan hafi handtek- ið rangan mann og hafa sumir geng- ið svo langt að fullyrða að lögreglan hafi vísvitandi haft Mark fyrir rangri sök. n Baseline- morðinginn n Mark Goudeau var vel liðinn af nágrönnum sínum n Ekki var allt sem sýndist „Næstu ell- efu mánuði skildi hann eftir sig slóð innbrota, kyn- ferðislegra árása og átta morða Fórnarlömb Marks n Georgia Thompson, 19 ára, skotin til bana fyrir utan heimili sitt 9. september 2005. n Tina Washington, 39 ára, numin á brott á strætó- stoppistöð, dregin á bak við verslun og skotin til bana 12. desember 2005. n Romelia Vargas, 38 ára, og Mirna Palma Roman, 24 ára, skotnar til bana í veitingavagni sem þær ráku, 20. febrúar 2006. n Chao „George“ Chou, 23 ára, og Liliana Sanchez Cabrera, 20 ára, numin á brott á bílastæði við veitinga- stað sem þau unnu á 14. mars 2006. n Kristina Nicole Gibbons, 26 ára, drepin 29. mars 2006. Lík hennar fannst tæpri viku síðar. n Sophia Nunez, 37 ára, fannst skotin til bana í baðkari á heimili sínu 10. apríl 2006 og var það átta ára sonur hennar sem fann hana. n Carmen Miranda, 37 ára, numin á brott frá bílaþvottastöð nokkrum húsalengjum frá heimili Marks Goudeau og síðan skotin í bifreið sinni 29. júní 2006. „Önnur systranna var barnshafandi þegar Mark nauðgaði henni. Mark Goudeau Öll nema eitt fórnarlamba hans voru konur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.