Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2012, Side 44

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2012, Side 44
44 Sport 21.–23. september 2012 Helgarblað n Liverpool tekur á móti United n Manchester City fær Arsenal í heimsókn Þ að verða sannkallaðir stór­ leikir á dagskrá ensku úr­ valsdeildarinnar um helg­ ina en þá fer fimmta um ferð in fram. Leikurinn sem augu flestra munu beinast að er án efa viðureign erkifjendanna Liverpool og Manchester United sem mætast á Anfield í hádeginu á sunnudag. Frá því að úrvalsdeildin var stofnuð árið 1992 hafa þessi lið mæst 20 sinnum í deildinni á An­ field; Liverpool hefur unnið sjö leiki, United níu en fjórir hafa endað með jafntefli. Þó að árangur United á þessum velli hafi verið góður undanfarna tvo áratugi hefur United ekki unnið í deildinni á Anfield frá árinu 2007 þegar Carlos Tevez skor­ aði sigurmarkið í 1–0 sigri. Misjafnt gengi Liverpool hefur byrjað tímabilið af­ leitlega og situr í 17. sæti deildarinn­ ar með tvö stig eftir fjóra leiki. Í þess­ um fjórum leikjum hefur Liverpool skorað þrjú mörk en fengið á sig átta. Liverpool hefur gengið illa að nýta færi sín það sem af er tímabili. Fabio Borini, Ítalinn sem var keypt­ ur frá Roma í sumar, hefur enn ekki skorað en hann sagðist í viðtali við Sky Sports á dögunum vera þess fullviss að mörkin fari að streyma inn. „Ég legg mikið á mig á æfingum og þetta er spurning um smá heppni fyrir framan markið. Ég tel mig hafa hæfileikana til þess að skora mörk. Þetta mun koma,“ sagði hann. Tilfinningaríkur leikur Gengi United hefur verið öllu betra en liðið situr í öðru sæti deildar­ innar með níu stig eftir fjóra leiki. United hefur unnið þrjá leiki í röð í deildinni eftir að hafa tapað fyrsta leik tímabilsins gegn Everton. Athygli flestra fyrir leikinn á sunnu­ dag mun væntanlega beinast að Luis Suarez og Patrice Evra. Suarez var úrskurðaður í átta leikja bann eftir leik liðanna á Anfield á síðasta tímabili fyrir rasisma í garð Evra. Þegar liðin mættust svo á Old Traf­ ford fyrr á þessu ári neitaði Suarez svo að taka í hönd Evra við litla hrifningu þess síðarnefnda. Fulltrúar United og Liverpool hafa unnið saman að því síðustu daga að slíðra sverðin milli félag­ anna og segjast bjartsýnir á að Evra og Suarez takist í hendur fyrir leik – svo lengi sem Evra byrjar leikinn en hann var geymdur uppi í stúku um síðustu helgi. Þá má búast við tilf­ inningaríkri stund þar sem leikurinn á sunnudag er fyrsti heimaleikur Liverpool síðan skýrslan um Hills­ borough­slysið kom út. Niðurstaða skýrslunnar var meðal annars sú að slysið – þar sem 96 stuðningsmenn Liverpool létust – hefði ekki ver­ ið stuðningsmönnum Liverpool að kenna. „Þetta verður tilfinningarík stund. Við munum styðja þá eins og við mögulega getum. Við sýnum Liver­ pool stuðning,“ sagði Sir Alex Fergu­ son, stjóri Manchester United. Arsenal í stuði Leikur Liverpool og United er þó ekki eini stórleikur helgarinnar því Manchester City tekur á móti Arsenal á sunnudag. Arsenal hef­ ur spilað glimrandi vel í deildinni að undanförnu – unnið tvo leiki í röð þar sem liðið hefur skorað átta mörk en fengið á sig eitt. Leikmenn Manchester City virðast eiga eft­ ir að stilla saman strengi sína þó liðið sé enn taplaust. Bæði City og Arsenal eru með átta stig í þriðja til fjórða sæti en Arsenal er fyrir ofan með betra markahlutfall. Búast má við að Sergio Aguero komi við sögu hjá City en hann hefur verið frá vegna meiðsla sem hann varð fyrir í fyrsta leik tímabilsins gegn South­ ampton. Samir Nasri og Micah Rich ards eru frá vegna meiðsla hjá City og sömu sögu er að segja af Wojciech Szczesny, Tomas Rosicky, Bacary Sagna og að ógleymdum Jack Wilshire sem hefur verið frá í ár vegna meiðsla. n Vissir þú… …að Manchester City hefur unnið 25 af síðustu 26 heimaleikjum sínum í ensku deildinni. …að Stoke City hefur gert jafntefli í fimm síðustu leikjum sínum í deildinni. …að Tottenham er ósigrað í 35 af síðustu 38 heimaleikjum sínum í ensku deildinni. …að Manchester United hefur skorað að minnsta kosti þrjú mörk í síðustu þremur leikjum sínum í deildinni. …að Jermaine Defoe hjá Tottenham skýtur oftast á markið af leikmönnum ensku deildarinnar, eða 6,5 sinnum að meðaltali í leik. …að Marouane Fellaini hjá Everton brýtur oftast af sér, eða 4 sinnum að meðaltali í leik. …að Yaya Touré hjá Manchester City hefur átt flestar sendingar allra leikmanna, eða 95,5 að meðaltali í leik. Leikir helgarinnar Laugardagur Swansea City – Everton Chelsea – Stoke Southampton – Aston Villa West Brom – Reading West Ham – Sunderland Wigan–Fulham Sunnudagur Liverpool – Manchester United Newcastle – Norwich Manchester City – Arsenal Tottenham – QPR Staðan 1 Chelsea 4 3 1 0 8:2 10 2 Man.Utd. 4 3 0 1 10:5 9 3 Arsenal 4 2 2 0 8:1 8 4 Man.City 4 2 2 0 9:6 8 5 Swansea 4 2 1 1 10:4 7 6 WBA 4 2 1 1 6:4 7 7 Everton 4 2 1 1 6:5 7 8 West Ham 4 2 1 1 4:3 7 9 Fulham 4 2 0 2 10:6 6 10 Tottenham 4 1 2 1 6:5 5 11 Newcastle 4 1 2 1 5:6 5 12 Stoke 4 0 4 0 4:4 4 13 Aston Villa 4 1 1 2 4:5 4 14 Wigan 4 1 1 2 4:8 4 15 Sunderland 3 0 3 0 3:3 3 16 Norwich 4 0 3 1 2:7 3 17 Liverpool 4 0 2 2 3:8 2 18 QPR 4 0 2 2 2:9 2 19 Reading 3 0 1 2 4:8 1 20 Southampton 4 0 0 4 5:14 0 Hvað segja stuðningsmennirnir? United þarf að keyra á Johnson „Þetta leggst mjög vel í mig. Ég er rosa ánægður með byrjunina hjá Liverpool,“ segir útvarpsmaðurinn Sigurður Hlöðversson, eða Siggi Hlö eins og hann er oft kallaður. Sigurður er grjótharður United-maður sem býst við sigri sinna manna á sunnudag. „Þetta verður samt ekkert auðvelt. Ég var á leiknum gegn Wigan á Old Trafford um síðustu helgi og maður fann hversu góð holningin á United-liðinu er. Þetta verður 2–1 sigur, van Persie skallar hann í netið í uppbótartíma og tryggir sigur.“ Aðspurður hver sé lykillinn að sigri United, segir Sigurður: „Liverpool er með slakasta bakvörð í Evrópu, Glen Johnson. Þeir þurfa að keyra upp kantana og á bakverðina,“ segir hann. Varðandi það hvort hann búist við því að Patrice Evra og Luis Suarez takist í hend- ur fyrir leik segir Sigurður að hann voni hreinlega að Evra verði uppi í stúku. Þeir muni því mögulega ekki fá tækifæri til að grafa stríðsöxina fyrir fullt og allt. Lykilatriði að loka á Persie „Mér líst ágætlega á þennan leik,“ segir Hallgrímur Indriða- son, fréttamaður á RÚV og ritstjóri Rauða Hersins, tímarits stuðningsmanna. Hann segir að Liverpool hljóti að rífa sig upp um helgina enda um stórleik að ræða. „Þetta hefur oft verið þannig að þó að Liverpool sé ekki að spila sérstaklega vel á móti minni liðum þá hafa þeir rifið sig upp á á móti stóru liðunum. Ég held ég gerist svo djarfur að segja að við munum að minnsta kosti ekki tapa þessum leik,“ segir Hallgrímur. Þegar blaðamaður gengur á hann og biður hann um úrslit segir hann að Liverpool vinni 2–0. „Ég segi að Suarez setji eitt og Daniel Agger setji eitt úr föstu leikatriði.“ Hallgrímur segir að lykillinn að sigri Liverpool sé að loka á van Persie og halda aftur af honum. „Hann er þannig framherji að ef hann fær færi þá skorar hann. Það er algjört lykilatriði að halda honum niðri.“ Hann segist að lokum vona að Suarez og Evra grafi stríðsöxina, ef Evra spilar á annað borð, og takist í hendur fyrir leik. „Þeir verða að gjöra svo vel að takast í hendur og grafa stríðsöxina.“ Einar Þór Sigurðsson blaðamaður skrifar einar@dv.is „Ég tel mig hafa hæfileikana til þess að skora mörk. Ofurhelgi á englandi Stríðsöxin grafin? Það er pressa á þessum tveimur leikmönnum, Luis Suarez og Patrice Evra, að grafa stríðs- öxina. Mynd ReuTeRS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.