Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2012, Síða 4
4 Fréttir 7.–9. desember 2012 Helgarblað
Velti bíl eftir ofbeldi
n Maður dæmdur fyrir að káfa á getnaðarlimi vinar síns og starfsmanns
M
aður var dæmdur í sex
mánaða skilorðsbundið fang
elsi í Héraðsdómi Reykjavíkur
fyrir kynferðisbrot. Honum er
einnig gert að greiða fórnarlambi sínu,
starfsmanni sínum og trúnaðarvini,
600 þúsund krónur í miskabætur.
Málsatvik voru þau að lögreglunni
á Hvolsvelli var í júní síðastliðnum
tilkynnt um bílveltu við Víkurfjall,
um klukkan hálf níu á sunnudags
morgni. Þegar lögregla mætti á vett
vang reyndist ökumaðurinn vera í
mikilli geðshræringu og undir áhrif
um áfengis. Við yfirheyrslur lögreglu
vitnaði hann um að hann hefði orðið
fyrir kynferðisofbeldi um nóttina.
Lýsti hann því að hann hefði
verið í samkvæmi í heimahúsi ásamt
nokkrum öðrum, þar á meðal hinum
dæmda, sem var trúnaðarvinur hans
og vinnuveitandi. Hafði hinn dæmdi
hjálpað honum um langt skeið, með
al annars með nám hans, og einnig
hafði hann útvegað honum vinnu. Eft
ir samkvæmið höfðu þeir farið að sofa
í sama rúmi, en þá áreitti hinn dæmdi
brotaþola kynferðislega.
Brotaþoli var klæddur í buxur og
bol. Hinn dæmdi strauk þá brota
þola um bakið innanklæða, og hvísl
aði nafn brotaþola. Hann svaraði
ekki. Brotaþoli snéri með bakið að
ákærða og lá á vinstri hlið. Þá mun
hinn dæmdi hafa teygt sig yfir brota
þola, farið undir klæðnað hans og
komið við getnaðarlim hans innan
klæða. Í framhaldi kyssti hann brota
þola á munninn.
Eftir þetta var brotaþoli í miklu
uppnámi og tók að lokum bíllykla
hins dæmda. Síðan fór hann í skó
hans þar sem hans eigin skór voru
hinum megin við rúmið, þar sem
hinn dæmdi lá. Þangað vildi hann
ekki fara. Brotaþoli keyrði síðan á
brott í bifreið hins dæmda með áður
nefndum afleiðingum. Eftir áreitn
ina upplifði brotaþoli mikinn kvíða og
þunglyndi.
V
erkefnastjóri hjá VR,
Jóhanna E. Vilhelmsdóttir,
lét af störfum hjá stéttar
félaginu í sumar eftir að
hafa lagt fram kvörtun á
hendur Stefáni Einari Stefánssyni,
formanni VR, fyrir einelti. Jóhanna
hafði starfað á vegum VR í 30 ár,
fyrst sem stjórnarmaður og síðan
sem starfsmaður frá árinu 2009. DV
hefur á síðustu dögum fengið fjöl
margar ábendingar innan úr VR
um starfslok Jóhönnu og þá ónægju
sem virðist vera ríkjandi innan
stéttarfélagsins vegna þeirra stjórn
unarhátta sem þar eru ríkjandi.
Blaðið greindi frá því á mánu
daginn að VR hefði ráðið 27 ára
lögfræðinema, Söru Lind Guð
bergsdóttur, í yfirmannsstöðu hjá
félaginu. Um 400 umsækjendur
sóttu um starfið og tvö önnur.
Sara Lind er sambýliskona Stefáns
Einars en hann ber því við samband
þeirra hafi ekki verið byrjað þegar
hún var ráðin til VR og að hann hafi
ekki þekkt hana á þeim tíma. VR er
stærsta stéttarfélag landsins og er
með árlegar tekjur upp á um tvo
milljarða króna.
Jóhanna vill aðspurð ekki ræða
um starfslok sín hjá VR eða sam
skiptin við Stefán Einar við blaðið.
Hætti vegna
samstarfsörðugleika
Heimildir DV innan úr VR herma
hins vegar að umkvörtunarefni Jó
hönnu í garð Stefáns Einars hafi
verið „andleg grimmd sem jaðraði
við einelti“. DV hefur ekki heim
ildir fyrir því hvað fólst nákvæm
lega í þessum ávirðingum á hendur
Stefáni Einari, meðal annars vegna
þess að Jóhanna neitar að ræða
málið opinberlega, en staðfest er
frá fjölmörgum aðilum innan VR
að kvörtunin á hendur honum hafi
borist frá Jóhönnu.
Einn heimildarmaður DV innan
úr VR segir: „Mér finnst skrítið að
það hafi ekkert komið fram í fjöl
miðlum varðandi eineltismálið.
Hún [Jóhanna, innsk. blm.] sakaði
hann [Stefán Einar, innsk. blm] um
einelti. Ég veit að hann er þannig að
ef honum líkar ekki við þig þá yrð
ir hann ekki á þig og „ignorar“ þig
alveg.“
Helga Árnadóttir, framkvæmda
stjóri VR, tók við umkvörtunum
Jóhönnu og kom því að kring að
ávirðingar hennar voru rannsak
aðar. Jóhanna mun ekki hafa vilj
að halda áfram að vinna hjá VR
vegna þessara samstarfsörðugleika
við formanninn. Hún hætti hjá VR í
kjölfarið, í júní síðastliðinn.
Sálfræðingur fenginn í málið
Kvörtun Jóhönnu fór inn á borð
stjórnar VR og var fenginn sál
fræðingur, Jón Björnsson, til að
meta hvort um einelti hefði verið að
ræða af hálfu Stefáns Einars. Niður
staða Jóns var að ekki hefði verið
um einelti að ræða. Nokkuð erfitt
getur verið að meta með hlutlægum
hætti hvort tiltekin háttsemi flokk
ast sem einelti eða ekki þar sem um
tilfinningalegt mál er að ræða.
DV hafði samband við Jón til að
spyrja hann út í málið og þá niður
stöðu sem hann komst að. Hann
sagði að hann gæti ekki gefið upp
lýsingar um niðurstöðuna og benti
á framkvæmdastjóra VR, Helgu
Árnadóttur. „Það er ekkert leyndar
mál að ég vann að þessu máli. Í því
efni vísa ég á þann sem ég vann fyr
ir sem var framkvæmdastjóri VR. Ég
skilaði skýrslu til hennar,“ segir Jón.
Einn heimildarmaður DV hjá VR
segir um þetta: „Hann taldi ekki að
það hefði verið um einelti að ræða
en það er alveg ljóst að það er eitt
hvað mikið að hjá félaginu. Þetta er
ekki eðlilegt ástand.“
DV hafði samband við Stefán
Einar á fimmtudaginn til að spyrja
hann út í mál Jóhönnu. Stefán vildi
hins vegar ekki tjá sig um það og
benti blaðinu á að tala við fram
kvæmdastjóra VR. n
n Kvörtun barst frá starfsmanni n Sálfræðingur var fenginn í málið
„Andleg grimmd sem
jAðrAði við einelti“
Hætti vegna sam-
starfsörðugleika
Starfsmaður VR, Jóhanna
Vilhelmsdóttir, hætti
hjá VR í sumar vegna
samstarfsörðugleika við
formann stéttarfélagsins,
Stefán Einar Stefánsson.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Hlaut alþjóð-
leg mann-
úðarverðlaun
Guðjón Sigurðsson hlaut mann
úðarverðlaun alþjóðasamtaka
MNDfélaga. Verðlaunin eru veitt
á árlegri ráðstefnu sem að þessu
sinni var haldin í Chicago í Banda
ríkjunum. „Ég tek við þessu fyrir
hönd allra MNDveikra sem ekki
láta sér standa á sama um félaga
sína. Munum öll hér inni að við
erum sérfræðingar í MNDsjúk
dómnum sem erum með hann.
Ekkert um okkur án okkar,“ sagði
Guðjón í þakkarávarpi sínu en níu
hundruð gestir voru viðstaddir við
verðlaunaafhendinguna, en flestir
þeirra eru fagfólk og vísindamenn.
Lögreglan rann-
sakar Smára-
lindaratvik
Lögreglan mun rannsaka atvik
sem átti sér stað í Smáralind þar
sem karlmaður sýndi af sér mikla
fordóma gagnvart ungmennum
sem voru stödd í verslunarmið
stöðinni. Myndband af atvikinu
fór víða á miðvikudag og í kjölfarið
kom það á borð lögreglunnar. „Við
höfum sé þetta myndband sem
um ræðir,“ sagði Björgin Björg
vinsson aðstoðaryfirlögregluþjónn
í viðtali við Reykjavík síðdegis á
Bylgjunni á miðvikudag þar sem
hann var spurður út í viðbrögð
lögreglunnar. Björgvin Björgvins
son sagði í þættinum að maður
inn verði kallaður til yfirheyrslu
vegna málsins. „Ég held að það sé
alveg ljóst að lögreglan kemur ekki
til með að sitja auðum höndum
yfir þessu enda er okkur í raun og
veru skylt að kanna þetta og hefja
rannsókn.“
Hálfs árs fangelsi Maðurinn var dæmdur
í skilorðsbundið fangelsi og til að greiða
fórnarlambi sínu 600 þúsund í miskabætur.