Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2012, Blaðsíða 60
60 Fólk 7.–9. desember 2012 Helgarblað
Hvað er að
gerast?
7.–9. desember
Föstudagur7
DES
Laugardagur8
DES
Sunnudagur9
DES
Stórtónleikar GRM
Á tónleikunum taka þeir félagar ógleym-
anlega smelli á borð við Minningu um
mann, Drottninguna vondu og Spáðu í
mig. Fleiri lög af báðum metsöluplötum
þeirra félaga verða flutt og má búast
góðri GRM-stemningu á aðventunni.
Hljómsveitina skipa auk GRM þeir Ásgeir
Óskarsson á trommur og Sigurður Árna-
son á bassa
Salurinn 20.30
Útgáfutónleikar Pascal Pinon
Dúettinn Pascal Pinon, skipaður
tvíburasystrunum Jófríði og Ásthildi
Ákadætrum, gaf nýverið út sína aðra
breiðskífu, Twosomeness, hjá þýska
útgáfufélaginu Morr Music. Í tilefni af því
munu þær halda útgáfutónleika á laugar-
dag. Arnljótur Sigurðsson og Klarinettkór
Tónlistarskóla Reykjavíkur munu sjá um
upphitun.
Fríkirkjan í Reykjavík 21.00
Hangið á Hlemmi
Alla laugardaga fram að jólum verða
tónleikar á Hlemmi í boði jólaborgarinnar
Reykjavíkur. Þennan laugardaginn mun
Agent Fresco spila fyrir strætófarþega,
gesti og gangandi. Hlemmur hefur svo
sannarlega verið klæddur í jólabúning en
innblástur skreytinganna er jólamyndin
Christmas Vacation og hugtakið „magn
umfram gæði“.
Hlemmur 15.00
Laufabrauðsútskurður og
notalegheit í Viðeyjarstofu
Laufabrauðsútskurður er ómissandi
þáttur í jólaundirbúningi fjölmargra
Íslendinga. Á sunnudaginn getur
fjölskyldufólk komið saman í Viðey í
notalegri jólastemningu og lært réttu
handtökin í laufabrauðsskurði. Mælst
er til þess að þáttakendur skrái sig til
leiks með því að bóka far með ferjunni.
Bókanir berist í síma 555 3565 eða með
tölvupósti á videy@elding.is
Viðeyjarstofa 13.30– 16.00
Sættist alltaf betur við sjálfan sig
n Egill Ólafsson blæs til afmælis- og útgáfutónleika í febrúar
É
g verð sextugur þennan dag svo
þetta eru bæði afmælis- og út-
gáfutónleikar, segir tónlistar-
maðurinn Egill Ólafsson sem í
nóvember sendi frá sér plötuna Vetur.
Útgáfutónleikarnir verða haldnir í Frí-
kirkjunni þann 9. febrúar næstkom-
andi, á sextugsafmæli söngvarans.
Miðasala hefst á midi.is 7. desember
og búast má við því að færri komist að
en vilja. Það er því um að gera að næla
sér í miða sem fyrst.
Finnsk-íslenska vetrarbandalagið
spilar með Agli á tónleikunum, en
það skipa Matti Kallio, Lassi Logrén,
Matti Laitinen og Jónas Þórir. Þá
munu ýmsir góðir gestir stíga á svið á
tónleikunum.
„Þetta verður þannig að ætla ör-
lítið að spila lög frá ferlinum en uppi-
staðan verður efni af plötunni. Þeir
koma hingað til landsins til að vera
með mér, Finnarnir. Það verður farið
aftur í tímann og jafnvel farið aftur til
Spilverksins að einhverju leyti.“
Aðspurður hvers vegna hann hafi
ekki valið stærri tónleikastað fyrir
tvöfalt tilefni og svo merkan áfanga
sem sextugsafmælið er, segir hann
kirkjuna einfaldlega henta tónlist
plötunnar vel. „Mér finnst þessi um-
gjörð Fríkirkjunnar passa betur við
þetta efni, því þetta er svona frekar
lágstemmt. Mér finnst þetta hús halda
vel utan um þetta, fyrir utan að ég er
fríþenkjari sjálfur. Þetta verður svona
vetrarstemning og ég mun leika mér
með lýsinguna,“ segir Egill sem kann
að meta það návígi við tónleikagesti
sem Fríkirkjan býður upp á.
Aldurinn leggst annars mjög vel í
Egil sem segist verða þolanlegri með
hverju árinu. „Maður er alltaf að sætt-
ast betur við þennan mann sem mað-
ur hefur búið með núna í 60 ár. Hann
er að verða þolanlegri og þolanlegri.
Það er það góða við aldurinn. Svo
er ég náttúrulega heppinn að vera
hraustur og er að fást við það sem
ég elska út af lífinu. Það er ekki vinn-
an sem er að íþyngja mér, mér leiðist
ekki að fara í vinnuna,“ segir stór-
söngvarinn að lokum.
solrun@dv.is
Unnið að plötunni Egill Ólafsson ásamt finnska tón-
skáldinu og tónlistarmanninum Matta Kallio við upptökur
á plötunni Vetri nú í haust.
Kættust í kokteil-
boði í Kaliforníu
n Kynningarherferð á Djúpinu er í fullum gangi n Fengið ótrúlega góðar viðtökur
D
júpið, kvikmynd Baltasars
Kormáks, var nýverið sýnd
útvöldum hópi fólks í kvik-
myndabransanum vestan-
hafs. Á næstunni verður
væntanlega tekin ákvörðun um
hvort hún verði tekin til sýninga
í völdum kvikmyndahúsum í
Bandaríkjunum. Eftir sýninguna
var svo blásið til kokteilboðs á
Thompson Hotel í Beverly Hills,
þar sem mátti sjá þekkt fólk á
borð við Mark Wahlberg. Hann og
Baltasar eru hinir mestu mátar eftir
að hafa unnið saman að mynd-
unum Contraband og Two Guns.
Guðmundur Árni Stefánsson,
sendiherra Íslands í Bandaríkj-
unum, og eiginkona hans, Jóna Dóra
Karlsdóttir, létu sig ekki vanta. Að
sjálfsögðu var eiginkona Baltasars,
Lilja Pálmadóttir, á svæðinu en vel
fór á með þeim hjónum og Wahlberg.
Gleðin skein úr andlitum boðs-
gestanna og má því ætla að Djúpið,
eða The Deep eins og hún nefnist á
ensku, hafi fengið jákvæð viðbrögð.
„Það er herferð að fara í gang og
þetta er bara einn liður í því, að sýna
myndina ákveðnu fólki,“ segir Jón
Gunnar Geirdal, eigandi markaðs-
setningarfyrirtækisins Ysland sem
sér um kynningarmál fyrir Baltasar
Kormák. „Viðbrögð við myndinni
hafa verið rosalega góð. Hún var til
að mynda heimsfrumsýnd í Toronto
í haust áður en hún var frumsýnd
hér heima. Viðbrögðin úti hafa
verið ótrúlega góð og það sést bara
á því hvaða dreifingaraðila er búið
að semja við, hvort sem það er í
Bandaríkjunum eða annars staðar.“
Jón Gunnar bendir á að nú þegar sé
búið að selja myndina til tugi landa.
„Þessi ofboðslega íslenska saga virð-
ist snerta fólk um víða veröld.“
Hann segir mikinn áhuga vera
í Hollywood á Baltasar og því sem
hann er að gera, bæði hvað varðar ís-
lenskt efni og erlent. n
Mestu mátar Vel fór á með
þeim hjónum, Baltasar og
Lilju Pálmadóttur, og Mark
Wahlberg eftir sýninguna.
Sendiherra stillti sér upp Guðmundur Árni Stefánsson, sendiherra Íslands í Bandaríkj-
unum, mætti í kokteilboðið ásamt eiginkonu sinni.
Herferð í gangi Baltasar ásamt framleiðand-anum David Linde og leikkonunni Collen Camp.