Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2012, Blaðsíða 8
8 Fréttir 7.–9. desember 2012 Helgarblað
Eiga afgang eftir útgjöld
n Hagstofan rannsakaði neysluútgjöld íslenskra heimila
N
eysluútgjöld á heimilin í
landinu á árunum 2009–2011
hafa aukist um 0,4 prósent frá
tímabilinu 2008–2010. Þetta er
niðurstaða rannsóknar Hagstofunnar.
Ráðstöfunartekjur flestra hópanna
sem skilgreindir eru í rannsókninni
voru hærri en útgjöld en neysluút
gjöldin voru að meðaltali 86 prósent
af ráðstöfunartekjum.
Í rannsókninni kemur í ljós að þau
heimili sem eru í lægsta tekjufjórð
ungnum eru með hærri útgjöld en
ráðstöfunartekjur. Þar kemur einnig
fram að tekjur þess fjórðungs heimila
sem hafði hæstar tekjur voru að jafn
aði 147 prósentum hærri en þeirra
sem höfðu lægstar tekjurnar. Útgjöld
tekjuhæsta hópsins var hins vegar 63
prósentum hærri en tekjuminnsta
fjórðungsins.
Stærstu útgjaldaliðir heimilanna
eru húsnæði, hiti og rafmagn og fara
26,5 prósent af neysluútgjöldum í
þann lið. Þar fyrir utan eru stærstu
liðirnir matur og drykkjarvörur, sem
jafngilda 14,7 prósentum útgjalda.
Ráðstöfunartekjur meðalheimilis voru
samkvæmt rannsókninni 514 þúsund
krónur á mánuði en neysluútgjöldin
443 þúsund krónur. Á tímabilinu frá
2010 til 2011 drógust heimilisútgjöld
saman um 3,5 prósent að teknu tilliti til
verðbreytinga en á tímabilinu hækkaði
vísitala neysluverðs um fjögur prósent.
Samkvæmt rannsókninni búa að jafn
aði 2,4 einstaklingar á hverju heimili.
Úrtak rannsóknarinnar voru 3.471
heimili og þar af tóku 1.799 þátt í rann
sókninni, svörun var því um tæp 52
prósent.
adalsteinn@dv.is
util if. is
THE NORTH FACE
MCMURDO
DÚNÚLPA
68.990 kr.
HENTAR SÉRLEGA VEL
FYRIR ÍSLENSKT VEÐURFAR.
HYVENT ÖNDUNARFILMA
VEITIR GÓÐA VATNSVÖRN.
Á
R
N
A
S
Y
N
IR
E
ignarhaldsfélag í eigu Einars
Sveinssonar fjárfestis, Bene
dikts Jóhannessonar, for
stjóra Talnakönnunar, og
Halldórs Teitssonar skuld
aði Sparisjóðnum í Keflavík tæp
lega hálfan milljarð króna árið
2010. Þetta kemur fram í skýrslu
sem endurskoðendafyrirtækið PwC
vann fyrir Fjármálaeftirlitið um
starfsemi Sparisjóðsins í Keflavík.
Lánið var með veði í 5,1 prósenta
hlut félagsins í tölvufyrirtækinu Ný
herja.
Viðræður stóðu yfir
lánardrottna
Í árslok 2009 lá fyrir að félagið
Gildruklettar hefði tapað rúmlega
200 milljónum það árið og ríflega
240 árið á undan, 2008. Gildru
klettar hafa ekki skilað ársreikn
ingi síðan árið 2009 en í þeim árs
reikningi sagði að skuldir félagsins
væru tæplega 478 milljónir króna.
Bréf Gildrukletta í Nýherja voru
þá metin á tæplega 206 milljónir
króna. Eigin fjárstaða félagsins var
þá neikvæð um ríflega 270 milljón
ir króna.
Í skýrslu stjórnar Gildrukletta
fyrir árið 2009 kemur fram að
hrunið hafi haft neikvæð áhrif á fyr
irtækið og að hlutabréf þess í skráð
um félögum – Nýherja – hafi lækkað
árið 2009. Þá segir að forsvarsmenn
félagsins hafi átt í viðræðum við
kröfuhafa sína um framtíð þess.
„Stærstur hluti eigna fyrirtækisins
eru hlutabréf skráð í kauphöll og
lækkaði gengi þeirra verulega á ár
inu 2009 og er svo komið að eigið
fé fyrirtækisins er orðið neikvætt.
Stjórnendur fyrirtækisins eru í við
ræðum við lánastofnanir um lang
tímaskuldir fyrirtækisins en ekki er
komin niðurstaða í þau mál.“
Þrátt fyrir þessa stöðu var talið
að líklegt væri að rekstrarhæfi
félagsins myndi batna með hækk
andi hlutabréfaverði. „Af ofan
greindum ástæðum telja stjórn
endur að það sé óvissa um getu
fyrirtækisins til að halda áfram
rekstri. Þrátt fyrir það er það
skoðun stjórnenda að líkur séu á
viðsnúningi vissra rekstrarþátta,
svo sem gengi hlutabréfa ásamt
gengis og vaxtaþróun. Það gerir
það að verkum að gert er ráð fyrir
áframhaldandi rekstri og miðast
reikningsskil fyrirtækisins við það.“
Lánið fært til Landsbankans
Lán Gildrukletta færðust yfir í
Landsbankann á fyrri hluta árs
2011 þegar sá banki yfirtók eigna
safn sparisjóðsins. Eftir að þessi
yfirtaka átti sér stað unnu starfs
menn Landsbankans að því að
meta virði eignasafns Sparisjóðs
ins í Keflavík, meðal annars útlána
til ýmissa eignarhaldsfélaga og
einstaklinga.
Gildruklettar bættu við sig
DV hefur ekki heimildir fyrir því
hver staðan er á láninu til Gildru
kletta hjá Landsbankanum og ekki
hefur félagið skilað ársreikningi
síðastliðin ár.
Í september í fyrra kom hins
vegar fram að félög tengd Einari
Sveinssyni, meðal annars Gildru
klettar, hefðu aukið við hlutafé sitt
í Nýherja og ættu nú rúmlega 15
prósenta hlut í fyrirtækinu. Miðað
við þetta ætti Gildruklettar ehf. að
vera komið fyrir vind þar sem ólík
legt er að eigendur félagsins hefðu
bætt við hlutabréfum í Nýherja ef
framtíð þess væri í óvissu. n
n Landsbankinn tók við láninu n Félagið bætti við sig í Nýherja„Stjórnendur fyrir-
tækisins eru í við-
ræðum við lánastofnanir
um langtímaskuldir fyrir-
tækisins en ekki er komin
niðurstaða í þau mál.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Hálfur milljarður
Félag Einars Sveins-
sonar, Benedikts
Jóhannessonar og
Halldórs Teitssonar
skuldaði SpKef nærri
hálfan milljarð árið 2010.
skuldaði spkef
hálfan milljarð
Ellefu teknir
fyrir hraðakstur
Brot ellefu ökumanna voru
mynduð á Hallsvegi í Reykjavík
á miðvikudag. Fylgst var með
ökutækjum sem var ekið Halls
veg í vesturátt, við Þverveg. Á
einni klukkustund, fyrir hádegi,
fór 41 ökutæki þessa akstursleið
og óku allnokkrir ökumenn,
eða 27 prósent, of hratt eða
yfir afskiptahraða. Meðalhraði
hinna brotlegu var 64 kílómetr
ar á klukkustund en þarna er
50 kílómetra hámarkshraði. Sá
sem hraðast ók mældist á 70.
Vöktun lögreglunnar á Halls
vegi er liður í umferðareftirliti
hennar á höfuðborgarsvæðinu,
en ábendingar höfðu borist um
hraðakstur á þessum stað.
Segir ofbeldis-
málinu lokið
„Málið leystist með farsælum
hætti og eftir situr lærdómur
sem við höfum nýtt okkur,“
sagði Jón Reynir Sigurvinsson,
skólameistari Menntaskólans
á Ísafirði, í viðtali við ísfirska
fréttamiðilinn Bæjarins besta
um málalyktir í ofbeldis máli
sem átti sér stað innan veggja
skólans í haust. Þar varð einn
nemandi fyrir grófu ofbeldi
samnemanda síns. Jón Reynir
vildi ekki útskýra nánar hverj
ar málalyktir urðu þegar hann
var spurður út í þær af Bæjarins
besta: „Ég kýs að fjalla ekki um
það neitt í einstökum atriðum
enda varðar þetta bara persónu
leg mál þar sem ég yrði annars
að greina frá einhverju sem
varðar viðkomandi persónu,“
sagði Jón Reynir. Nemendurnir
hafa báðir hafið nám við skól
ann aftur.