Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2012, Blaðsíða 62
62 Fólk 7.–9. desember 2012 Helgarblað
Á
R
N
A
S
Y
N
IR
util if. is
MEINDL
GÖNGUSKÓR
GÆÐI Í GEGN
ÚRVALIÐ ER Í ÚTILÍF.
L
eynivinavika stendur nú yfir
hjá fréttastofu Stöðvar 2, en
þar skiptast starfsmennirnir á
litlum gjöfum daglega út vik-
una. Eins og nafnið gefur til kynna
eru gjafirnar gefnar undir dulnefni
svo þiggjendur vita ekki frá hverjum
þær eru. Metnaðurinn er mismik-
ill hjá fólki en Sigrún Ósk Kristjáns-
dóttir, einn stjórnenda Ísland í dag,
datt heldur betur í lukkupottinn
með sinn leynivin.
„Hef aldrei orðið eins kjaftstopp
á ævinni! Mín beið heimasaumuð
mini me dúkka frá leynivininum
þegar ég mætti í vinnuna í morgun!“
skrifaði Sigrún á Facebook-síðu
sína á fimmtudag og birti mynd
af dúkkunni sem meira að segja
klæddist eins skyrtu og hún sjálf var
í á mynd sem fylgdi með gjöfinni.
Gjöfin á þriðjudag var ekki síðri.
Þá mætti óperusöngvari í vinnuna til
Sigrúnar og þandi raddböndin fyrir
hana. „Leynivinur minn er on fire!
Óperusöngur og rós eins og ekkert
sé eðlilegra. Ég á ekki til orð í eigu
minni,“ skrifaði hún um þá gjöf.
Þ
að er alltaf jafn mikil snilld
að koma heim til mömmu
og pabba. Hörgárbyggð er
okkar heimili þótt það sé
líka snilld að búa í Mónakó,
bara allt öðruvísi,“ segja snjóbretta-
stjörnurnar Halldór og Eiríkur
Helgasynir sem eru staddir á æsku-
heimilinu fyrir norðan til að taka
upp nýja snjóbrettamynd og verja
tíma með fjölskyldunni.
Bræðurnir eru aldir upp við ræt-
ur Hlíðarfjalls og byrjuðu snemma
að renna sér á snjóbretti við húsið.
Eldri bróðirinn, Eiríkur sem er 25
ára, var tólf ára þegar hann byrjaði
á bretti en Halldór, sem er tvítug-
ur, níu ára. „Ég byrjaði út af Eika.
Ég var alltaf að herma eftir honum,“
segir Halldór og Eiríkur bætir við að
í gamla daga hafi snjóað mun meira
en í dag. „Þegar snjóaði sem mest
gátum við tekið Strýtulyftuna upp
og rennt okkur alla leið heim í hlað.“
Snjóbrettatímabilið er að hefjast.
Þeir bræður búa í Mónakó en byrja
veturinn oftast á því að koma til
Íslands og taka upp snjóbretta-
myndir. „Hér er gott að vera og
hér þekkjum við alla staðina. Þetta
startar tímabilinu. Svo er líka frá-
bært að geta farið í mat til mömmu
og pabba eftir heilan dag á bretti,“
segir Eiríkur.
Bræðurnir þykja á meðal bestu
snjóbrettaiðkenda í heimi. Þeir gáfu
nýverið út myndbandið Pepping
ásamt vini sínum Gulla Guðmunds-
syni og hafa nú sett hvor sinn
hlutann á síðuna helgasons.com.
Þeir segjast hafa meira gaman
af því að taka upp myndir en keppa
á stórum mótum. „Það góða við
að taka upp myndir er að þá ertu á
þínu eigin plani. Þegar maður er að
keppa þarf maður að vera mættur
á réttan stað á réttum tíma og þess
háttar. Það er ekki fyrir okkur,“ segir
Eiríkur sem segist hafa keppt meira
í gamla daga. „Ég er eiginlega kom-
inn með leið á að keppa. Núna tek
ég bara þátt ef ég veit að keppnin
verður skemmtileg.“
Halldór segist ennþá hafa gam-
an af því að keppa. „Ég tek svona
fjórar, fimm stórar keppnir á ári og
svo geri ég bara það sem ég vil hina
dagana,“ segir hann og Eiríkur bætir
við: „Ég held samt að það geri sér
fáir grein fyrir hversu mikil vinna
fer í svona myndbönd. Það tekur
kannski heilan dag að ná einu skoti
sem er kannski ein til þrjár sekúnd-
ur að lengd,“ segir hann en þess má
geta að myndbönd strákanna núna
og í fyrra eru vinsælustu snjóbretta-
myndböndin á netinu.
Strákarnir eru þekktir fyrir að
renna sér án hjálms þótt þeir mæli
alls ekki með slíku fyrir unga snjó-
brettaiðkendur. Þeir segja ímyndina
stóran hluta af vinnunni og það sé
erfitt að breyta henni núna. Eftir
langan feril hafa þeir báðir fengið
sinn skerf af meiðslum. „Ætli ég fari
ekki langt í að hafa brotið öll bein,“
segir Eiríkur en bætir við að alls hafi
hann brotið 14 bein. Þar af fjögur
eða fimm bara í fyrra og eitt á þessu
ári. „Ég brotna aldrei en ég togna,
slít liðbönd og rotast. Ég tek það á
mig en Eiki sér um að brotna,“ segir
Halldór.
indiana@dv.is
n Bræðurnir Halldór og Eiríkur taka upp myndband fyrir norðan
HEFUR
BROTIÐ
14 BEIN
„Hef aldrei orðið eins
kjaftstopp á ævinni!“
n Sigrún Ósk á metnaðarfullan leynivin
„Ég tek
svona fjór-
ar, fimm stórar
keppnir á ári og
svo geri ég bara
það sem ég vil
hina dagana
Snjóbrettakappar
Halldór, Eiríkur og Gulli
eru allir snjóbretta
atvinnumenn. Bræð
urnir Halldór og Eiríkur
búa í Mónakó en eru nú
staddir á æskuheimil
inu í Hörgárbyggð.
Björgvin allur
að koma til
n Rífandi sala á Golden Wax frá Silver
S
alan á Golden Wax-inu okkar
hefur farið lygilega vel af stað
og fólk haft á orði að þetta sé
hin íslenska tegund af Dax-
vaxinu fræga. Salan hefur aukist
mikið síðustu mánuði og fólk ætl-
ar greinilega að „lúkka“ og lykta
vel um jól og áramót,“ segir lands-
liðsmarkvörðurinn Björgvin Páll
Gústavsson, sem stendur á bakvið
Silver-hárvörurnar.
En það eru ekki einu góðu frétt-
irnar af Björgvini Páli og verkum
hans því hann er nú loksins orðinn
góður af veikindum sem hann hef-
ur glímt við í tæpar tíu vikur. Hann
greindist með fylgigigt í kjölfar
salmonellusýkingar. „Ég er orðinn
100 prósent góður af veikindunum
og er búinn að vera að æfa á fullu
síðustu tvær vikur til þess að koma
vöðvunum í betra stand. Ég geri
ráð fyrir því að spila minn fyrsta
leik núna í langan tíma um næstu
helgi og verð ég kominn í toppform
þegar landsliðið hittist núna í lok
desember.“
Hann segir síðustu vikurnar
hafa verið erfiðar en hann hefur
nýtt tímann meðal annars í að þróa
Silver-vörurnar áfram, margar hug-
myndir séu í vinnslu en þær muni
líklega ekki líta dagsins ljós fyrr en
næsta sumar. „Einnig gat maður
eytt meiri tíma með konunni
þannig að þessi tími hefur alls ekk-
ert verið leiðinlegur en maður er
samt farinn að titra af spenningi og
langar að fara að spila aftur,“ segir
landsliðsmarkvörðurinn.
Að komast í toppform
Björgvin Páll er að ná sér
af erfiðum veikindum sem
hafa hrjáð hann síðustu
vikurnar.
H
ann er flottur mömmu-
klúbburinn sem saman-
stendur af þeim Maríu
Sigrúnu Hilmarsdóttur
fréttakonu, Þóru Arnórsdóttur,
fyrrverandi forsetaframbjóð-
anda, Brynhildi Einarsdóttur,
eiginkonu Illuga Gunnarsson-
ar, Láru Björg Björnsdóttur rit-
höfundi og Rún Ingvarsdóttur
fréttakonu. Konurnar eiga allar
börn á svipuðu róli og verja því
góðum tíma saman þar sem ef-
laust er rætt um samfélagsmál-
in við bleiuskiptin. Samkvæmt
heimildum DV hafa eiginmenn
kvennanna sitt hlutverk í þessum
félagsskap en það ku vera að þjón-
usta hinar nýbökuðu mæður.
Mömmuklúbbur í
flottari kantinum