Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2012, Blaðsíða 64
TOP GEAR BÓKIN
LOKSINS Á ÍSLANDI!
100 geggjuðustu bílarnir að mati Top Gear-gengisins.
Ótrúlegt samsafn bifreiða, allt frá sannkölluðum furðufyrir-
bærum til hraðskreiðustu sportbíla. Magnaðar staðreyndir í
bland við hinn óborganlega húmor sem einkennir Top Gear!
Hvaða bíll ereins og stökkmúsá sterum?
D
Y
N
A
M
O
R
EY
K
JA
V
ÍK
Ómissandi fyrir
alla bílaáhugamenn,
unga jafnt sem
aldna!Þeir sletta
skyrinu …!
Sigur eftir Sjonna
n Leiklistarhjónin hæfileikaríku,
Gísli Örn Garðarsson og Nína Dögg
Filippusdóttir, létu skíra son sinn
á dögunum. Drengurinn heitir
eftir föður Gísla, Garðari Gíslasyni,
og bróður Nínu, söngvaranum
Sigurjóni Brink heitnum, Sjonna
Brink eins og hann
var jafnan kallaður.
Séð og heyrt
greindi frá því að
drengurinn hefði
hlotið nafnið Garðar
Sigur en seinna
nafnið er vís-
un í nafn
Sjonna
sem lést
langt fyr-
ir aldur
fram í
janúar
2011.
Talar við Tinna
n Jón Kristinn Snæhólm skrifar við-
tal við teiknimyndapersónuna
Tinna í nýjasta tölublaði Mann-
lífs. Þar talar hann meðal annars
um sögusagnir þess efnis að
Tinni sé samkynhneigður. Þær
sögusagnir hafa verið langlíf-
ar þó það hafi ekki verið stað-
fest. Í viðtalinu þvertekur Tinni
fyrir að vera samkynhneigður og
segist hafa verið vinsæll meðal
kvenna í menntaskóla. „Ég var
með stelpu sem að vísu síðar
yfir gaf mig,“ hefur Jón Kristinn
eftir Tinna.
Ó
lympíufararnir Bjarni Fritzson
og Sturla Ásgeirsson senda í
dag, föstudag, frá sér kennslu-
mynddisk um handbolta.
Diskurinn er fyrsti handbolta-
kennsludiskurinn sem gefinn er út
á Íslandi. „Ég er búinn að vera með
handboltanámskeið síðastliðin
fjögur sumur og tók eftir því að sum-
ir krakkarnir voru að bæta sig meira
á milli ára en aðrir, þó að allir ættu
að hafa sömu möguleika á því,“ segir
Bjarni en hann telur að þetta hafi
sýnt honum hvað það skipti miklu
máli að vera með góðan þjálfara.
„Þá hugsaði ég að það væru ekki til
nein tól eða tæki fyrir þessi börn til
að læra sjálf.“
Bjarni fékk nokkra vini sína í lið
með sér, meðal annars Sturlu, til að
gera diskinn. Hann fékk kvikmynda-
fyrirtæki í lið með sér og hóf undir-
búningsvinnuna. Diskurinn heitir
Frá byrjanda til landsliðsmanns og á
honum er meðal annars að finna við-
töl og ráð frá helstu handboltastjörn-
um landsins. Þar á meðal eru viðtöl
við þá Ólaf Stefánsson og Guðjón Val
Sigurðsson sem segja frá því hvern-
ig þeir urðu einir af bestu handbolta-
mönnum heims.
„Ég og Sturla erum mest að sýna
og útskýra en við vildum einmitt
reyna að lágmarka okkar sýn á
disknum svo við værum ekki bara
á egóflippi allan tímann svo við
fáum fjölda góðra gesta. Við vorum
rosaheppnir með hvað handbolta-
fólk á Íslandi tók vel í að hjálpa okkur
í þessu verkefni,“ segir Bjarni. Hann
segir að gestirnir sýni bæði hand-
boltaæfingar og gefi ungum iðkend-
um ráð. „Við erum búnir að leggja
mikla vinnu í þetta og erum mjög
ánægðir með afraksturinn.“ n
Kempur kenna handbolta
n Ólympíufarar gefa ungum iðkendum góð ráð
Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HELGARBLAÐ 7.–9. DESEMBER 2012 142. TBL. 102. ÁRG. LEIÐB. VERÐ 659 KR.
Gefa ráð Rætt er við marga Ólympíufara úr
íslenska handknattleikslandsliðinu á disknum.
Gefur syni
sínum skyr
n „Ég gef syni mínum skyr. Mér er
sagt að skyr sé hollt,“ sagði Ragn-
heiður Elín Árnadóttir, þingmað-
ur Sjálfstæðisflokksins, í um-
ræðu um fjárlögin á Alþingi á
fimmtudag. Stjórnarandstaðan
hefur verið gagnrýnd nokkuð
undanfarna daga vegna málþófs
í þinginu og geta ummæli Ragn-
heiðar eflaust flokkast undir það.
Ragnheiður sagðist hafa kvartað
við aðila innan Mjólkursam-
sölunnar vegna þess að mjólk-
urvörur séu upp til hópa of sæt-
ar. Lýsti hún áhyggjum sínum
af svokölluðum sykurskatti og
sagðist hún óttast að hann myndi
leiða til mikillar verðhækkunar á
skyri. „Þar með hækkar matar-
reikningur fjölskyldnanna í
landinu og, ég
leyfi mér að
fullyrða,
barnafjöl-
skyldnanna
í landinu,
vegna þess
að skyr er vin-
sælt meðal
barna.“