Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2012, Blaðsíða 50
50 Lífsstíll 7.–9. desember 2012 Helgarblað
Mórall bætir bragð
H
efur þú einhvern tímann
verið í átaki og fundið að
súkkulaðið sem þú stalst
í smakkast enn betur en
vanalega? Líklega vegna þess að
það er satt ef marka má niðurstöður
rannsóknar þar sem fram kemur að
sektarkennd gefur mat betra bragð.
Vísindamenn létu þátttakendur
gefa súkkulaði einkunn. Næst
voru sömu þátttakendur látnir
upplifa sektarkennd áður en þeir
gáfu súkkulaðinu aftur einkunn. Í
seinna skiptið fékk sama nammið
mun hærri einkunn.
Það sama var uppi á teningnum
þegar rannsóknin tengdist ekki
mat.
Vísindamenn segja niðurstöð
urnar slæmar fyrir fyrir þá sem
reykja og drekka. En menn njóti
fíknigjafans enn betur þegar hann
sé á bannista og hljóti það að auka
líkur á að fólk falli í freistni.
Krabbamein
greint með
öndunarprófi
Vísindamenn telja sig hafa
þróað öndunarpróf sem greinir
nokkuð nákvæmlega krabba
mein í þörmum.
Prófið greinir eiturefni sem
berast frá krabbameinsæxlinu
og er sagt vera um 76%
nákvæmt, kemur fram í The
British Journal of Surgery. Sér
fræðingar telja jafnvel að tækið
geti komið í stað annarra tækja
sem hingað til hafa verið notuð
til að greina krabbamein.
Efnaskipti í krabbameins
vefjum eru öðruvísi en í heil
brigðum vefjum og gefa frá sér
ákveðin efnasambönd sem virð
ast vera greinanleg í andardrætti
sjúklinga.
Donato Altomare prófessor,
sem fór fyrir rannsókninni,
segir þessa tækni við að greina
krabbamein mjög einfalda í
notkun en hún sé þó enn ný og
í þróun. Hann segir niðurstöður
rannsóknanna þó sýna fram á
að hægt verði að nota öndunar
próf í meira mæli í framtíðinni
til að greina sjúkdóma.
Ofurfæði í desember
n Ofurfæðið getur spornað gegn krabbameini og hjartasjúkdómum
N
ú eru jólin á næsta leiti með
tilheyrandi smákökuáti,
eggjapúnsdrykkju og söltu
kjöti sem gerir engum gott.
Til mótvægis við óhollustuna sem
gjarnan fylgir desembermánuði er
gott að skella sér líka á smá ofur
fæði. Líkaminn mun taka því fagn
andi. Aðaluppskerutími ýmissa
tegunda af grænmeti er í desember
og því um að gera að ná sér í holl
metið á meðan það fæst. Þér mun
líða svo miklu betur eftir að hafa
borðað smá ofurfæði og getur leyft
þér að njóta jólaóhollustunnar með
góðri samvisku.
Sveppir
Sveppir eru bragð
miklir og kaloríu
snauðir. Margar
tegundir af sveppum
hafa þá eiginleika að
efla ónæmiskerfi fólks.
Sveppir geta jafnframt
lækkað kólesteról líkamans sem og
dregið úr líkum á krabbameini. Þeir
eru uppfullir af andoxunarefnum
sem hafa góð áhrif á hjarta og æða
kerfið og geta þannig einnig dreg
ið úr líkum á hjartasjúkdómum.
Sveppir eru því frábær valkostur
þegar kemur að grænmeti.
Sveppina er hægt að setja hráa
og ferska beint í salat. Til að bragð
bæta þá enn frekar, en halda samt
næringarefnunum, má leyfa þeim
að liggja í ólífuolíu og hvítlauk í smá
tíma. Þá er hægt að léttsteikja þá á
pönnu og nota sem álegg á brauð í
anda bruchettu.
Kínakál
Kínakál er ríkt af Kvítamíni sem
styrkir beinin. Þá hafa rannsóknir
sýnt fram á að Kvítamín hefur góð
áhrif í baráttunni við Alz heimers og
geti jafnvel dregið úr eða haldið
niðri einkennum að einhverju
leyti.
Best er að gufusjóða eða
snöggsteikja kínakálið. Varast
skal að ofelda kálið því þá tap
ar það miklu af næringarefnum
sínum, sem eru ríkust í grænu
blöðunum.
Brokkolí
Brokkolí er eitt það hollasta sem
þú færð og það ættu allir að vita.
Það er hlaðið trefjum og
Cvítamíni, einstaklega
hitaeininga snautt
og magn and
oxunarefna í mat
vælum gerist varla
hærra.
Brokkolí er
einnig ríkt af
kalsíum, járni, B,
E, og Kvítamín
um sem talin eru
sporna gegn krabba
meini, hjartasjúk
dómum, heilablóð
falli, augnsjúkdómum
og beinþynningu, svo fátt
eitt sé nefnt.
Brokkolí er vissu
lega best að borða
hrátt, en einnig er
gott að snöggsteikja
það. Jafnvel útbúa úr
því súpu eða skera nið
ur í örþunnar sneiðar og
gera brokkolíhrásalat.
Sellerírót
Rótin er meðal annars rík
af trefjum og B6vítamíni.
Þá hafa verið uppi getgátur
um að sellerírót geti
nýst í baráttunni
við krabbamein,
þá sérstaklega
ristilkrabba
mein. Aðalupp
skerutími sell
erírótarinnar er
í desember og því
er um að gera að njóta
hennar sem ofurfæðis á meðan þú
getur.
Gott er að steikja sellerírótina
með öðru vetrargrænmæti. Blanda
smávegis af ólífuolíu og krydd
jurtum út í grænmetis
blönduna til að kalla fram
rétta bragðið. Hægt er að
borða grænmetið sem
hluta af stærri og þyngri
máltíð eða setja út í sal
atið.
Hvítlaukur
Talið er að þetta bragðmikla
grænmæti geti verndað þig gegn
ákveðnum tegundum krabba
meins. Þá er hvítlaukurinn einnig
góður í baráttunni við hinar ýmsu
bakteríur og vírusa, enda oft
mælt með honum við kvefi
eða flensu.
Hvítlaukurinn gefur öll
um mat þetta extra bragð
sem hann þarfnast. Hvít
laukurinn nýtist því vel sem
krydd út á mat. Hann gagnast
þér hins vegar best þegar þú bítur
beint í hvítlauksrifin, hrá og fersk. n
solrun@dv.is
Hollt í desember
Brokkolí er eitt það
hollasta sem þú færð og
það ættu allir að vita.
Það er hlaðið trefjum og
C-vítamíni, einstaklega
hitaeiningasnautt og
magn andoxunarefna í
matvælum gerist varla
hærra.