Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2012, Blaðsíða 6
ÍBÚÐIN Á FLÓRÍDA Á
NAUÐUNGARUPPBOÐ
6 Fréttir 7.–9. desember 2012 Helgarblað
Kastaði þýfinu í sjóinn
n Grímuklæddur ógnaði með stóru skrúfjárni
F
ertugur maður hefur verið
ákærður fyrir rán sem honum er
gefið að sök hafa framið þann 17.
nóvember síðastliðinn vopnað-
ur stóru skrúfjárni. Manninum er gef-
ið að sök að hafa farið inn á veitinga-
staðinn Kaffivagninn við Grandagarð
í Reykjavík með grímu fyrir andlitinu
og vopnaður stóru skrúfjárni.
Samkvæmt ákæru ógnaði mað-
urinn afgreiðslustúlku Kaffivagns-
ins með skrúfjárninu, öskraði á hana
og skipaði henni að opna peninga-
kassa veitingastaðarins. Því næst
stökk hann yfir afgreiðsluborðið, hóf
að stinga skrúfjárninu í peningakass-
ann og kastaði honum síðan í gólf-
ið. Við það opnaðist peningakass-
inn og hrifsaði maðurinn því næst
30.000 krónur úr honum og hljóp út
af veitingastaðnum með þýfið.
Í fréttum af ráninu í nóvember
kom fram að fjöldi fólks hefði orðið
vitni að atburðinum. Maðurinn mun
hafa hlaupið út að bryggju og kastað
þýfinu í sjóinn, en hann er sagður
hafa verið í mjög annarlegu ástandi.
Að sögn eiganda Kaffivagnsins
mun þetta hafa verið í fyrsta skipti í 30
ár sem staðurinn hefur verið rændur.
Af hálfu ákæruvaldsins er farið
fram á að maðurinn verði dæmdur til
refsingar og greiðslu alls sakarkostn-
aðar.
Starfsmaður staðarins fer fram á
600 þúsund í miskabætur en af hálfu
Kaffivagnsins er krafist skaðabóta að
fjárhæð 119 þúsunda.
Málið var þingfest í Héraðsdómi
Reykjavíkur á miðvikudag.
hanna@dv.is
E
ignarhaldsfélagið AM Equity,
sem er í eigu Árna Magn-
ússonar, fyrrverandi félags-
málaráðherra og núverandi
forstöðumanns orkusviðs Ís-
landsbanka, var með neikvætt eigið
fé upp á rúmlega 200 milljónir króna
árið 2010 samkvæmt ársreikningi fé-
lagsins.
Fjallað er um lánveitingar til Árna
í skýrslu rannsóknarnefndar Alþing-
is. Þar kemur fram að Árni hafi verið
með sjöttu hæstu lánafyrirgreiðsluna
af íslenskum stjórnmálamönnum
fyrir hrun. Lán til hans hafi hæst náð
265 milljónum króna. Í skýrslunni
kemur einnig fram að AM Equity hafi
fengið 100 milljóna króna lán til að
kaupa hlutabréf í Glitni. Sá hlutur er
verðlaus í dag.
Auk þess að kaupa hlutabréf í
Glitni keypti félag Árna einnig íbúð
í Orlando á Flórída árið 2007. Sam-
kvæmt bandarískri vefsíðu nam
kaupverðið þá nærri 60 milljónum
króna sé miðað við núverandi gengi
íslensku krónunnar. Samkvæmt
sömu vefsíðu var umrædd íbúð Árna
seld á nauðungaruppboði í lok ágúst
á þessu ári fyrir 22 milljónir króna.
Neikvætt eigið fé
AM Equity á fasteign sem
metin var á 29 milljónir
króna í árslok 2010 en
félagið var þá með nei-
kvætt eigið fé upp á rúm-
lega 200 milljónir króna
og skuldaði nærri 240
milljónir króna.
Öfugt við marga af
fyrrverandi og núver-
andi samstarfsmönnum
Árna hjá Íslandsbanka
og áður Glitni hefur fé-
lag Árna, AM Equity,
ekki verið tekið til gjald-
þrotaskipta þrátt fyrir
verulega slæma stöðu
félagsins. Árið 2010
gaf Friðrik Sophusson,
stjórnarformaður Ís-
landsbanka, það út að
kúlulán til starfsmanna vegna hluta-
bréfakaupa í Glitni fyrir hrun yrðu
afskrifuð. Óskaði stjórn Íslands-
banka eftir því að umræddir starfs-
menn gæfu eignarhaldsfélög sín upp
til gjaldþrotaskipta. Þar með sluppu
starfsmennirnir við að borga millj-
arða króna kröfur sem bankinn átti
á hendur þeim. DV sendi fyrirspurn
til Árna vegna málsins. Hann vildi
lítið tjá sig um málið en
sagði þó: „Umrætt félag
vinnur að uppgjöri við
Íslandsbanka. Það mál
er í eðlilegu ferli innan
bankans.“
Stýrir orkusviði
Íslandsbanka
Árni Magnússon hefur
verið nokkuð í fréttum síðustu daga
vegna slæmrar stöðu Íbúðalána-
sjóðs. Talið er lagabreyting sem
gerð var árið 2004 á verðbréfaút-
gáfu Íbúðalánasjóðs þegar sjóðurinn
hætti að gefa út húsbréf og tók þess í
stað upp íbúðabréf sé ein af stærstu
orsökunum fyrir slæmri stöðu sjóðs-
ins í dag. Árni var félagsmálaráðherra
á þessum tíma og flutningsmaður á
breytingu á lögum um húsnæðismál.
Árni settist á þing árið 2003 fyr-
ir Framsóknarflokkinn og tók þá
strax við sem félagsmálaráðherra.
Þeirri stöðu gegndi hann þar til að
hann hætti óvænt á þingi í mars árið
2006. Var hann þá ráðinn til Glitnis
til að stýra orkusviði bankans. Hann
starfar í dag sem forstöðumaður
orkusviðs Íslandsbanka. n
n Félag Árna Magnússonar með 200 milljóna króna neikvætt eigið fé
Annas Sigmundsson
blaðamaður skrifar as@dv.is
Keypti hlutabréf og
íbúð á Flórída Árni Magn-
ússon, fyrrverandi ráðherra
og núverandi yfirmaður
orkusviðs Íslandsbanka,
keypti hlutabréf í Glitni fyrir
100 milljónir króna árið 2007
og íbúð á Flórída í gegnum
félagið AM Equity.
Íbúðin seld á nauðungaruppboði Samkvæmt bandarískri vefsíðu var íbúð Árna Magnússonar í Orlando á Flórída seld á nauðungaruppboði fyrir 22 milljónir króna fyrir um þremur mánuðum.
Kaffivagninn Fertugum manni er gefið
að sök að hafa rænt Kaffivagninn og ógnað
starfsmanni með stóru skrúfjárni.
Fjarlægja of
feit börn
frá foreldrum
Barnaverndarnefnd Reykjavíkur
hefur fimm sinnum þurft að
beita sér vegna ofþyngdar barna
það sem af er ári. Þetta kom
fram í kvöldfréttum Stöðvar 2
á miðvikudag þar sem greint
var frá því að dæmi séu um að
börn séu fjarlægð tímabundið
af heimilum sínum vegna
offitu. Fréttastofa Stöðvar 2
greindi frá því að árleg mæling
skólaheilsugæslunnar hefði
leitt í ljós að nærri fjórðung-
ur níu ára barna sé of feitur eða
of þungur. Halldóra Gunnars-
dóttir, framkvæmdastjóri
Barnaverndar Reykjavíkur, sagði
í viðtali við Stöð 2 að dæmi séu
um að barnaverndin fái tilkynn-
ingar vegna foreldra sem séu
búnir að missa tökin eða stjórn
á barninu og geti ekki fengið
það til að fylgja leiðbeiningum
að bættri heilsu.
Kveiktu ekki
í flugvélinni
Íslenska framleiðslufyrirtækið
Republik segir ekki rétt að
kveikt hafi verið í Douglas-
flugvélinni sem hefur verið á
Sólheimasandi í áratugi. Vísir
greindi frá því á miðvikudag að
fyrirsæta á vegum sjónvarps-
þáttarins Million Dollar Shoot-
ing Star hefði kveikt í flakinu af
Douglas-flugvélinni en forráða-
menn Republik segja það al-
rangt að kveikt hafi verið í vél-
inni. Republik þjónustaði þýska
tökuliðið á meðan það var hér
á landi í sumar en í tilkynningu
frá Republik kemur fram að
Douglas DC-3-flugvélin, sem
brotlenti á Sólheimasandi árið
1977, sé þar ennþá í nákvæm-
lega sama ástandi og þegar
komið var að henni í júní síðast-
liðnum til að taka upp atriði
fyrir þáttinn.