Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2012, Blaðsíða 52
52 Sport 7.–9. desember 2012 Helgarblað
Borgarslagur
í Manchester
n City taplaust í 37 heimaleikjum í röð n Hörkuleikir um helgina
„Þetta
er bara
samansafn
málaliða
S
tórleikur helgarinnar í enska
boltanum verður án efa
viðureign erkifjendanna í
Manchester City og Manche-
ster United á Etihad-vell-
inum á sunnudag. Um er að ræða
toppslag deildarinnar enda eru þessi
lið komin með nokkuð áberandi for-
skot á önnur lið í deildinni. United
er á toppi deildarinnar með 36 stig
en City er í öðru sæti með 33 stig.
Chelsea, Tottenham og WBA eru síð-
an í 3.–5. sæti með 26 stig.
37 heimaleikir án taps
City hafði betur í báðum viðureign-
um þessara lið á síðustu leiktíð. Liðið
vann eftirminnilegan 6–1 sigur á Old
Trafford í október í fyrra og vann síð-
an 1–0 sigur á heimavelli í lok apríl
síðastliðinn. Þrátt fyrir þetta hefur
United gengið ágætlega með City á
síðustu árum á útivelli. United vann
1–0 árið 2008, 1–0 árið 2009 en árið
2010 gerðu liðin markalaust jafntefli.
Það sem kann að valda áhyggjum hjá
Sir Alex Ferguson, stjóra Manchester
United, er sú staðreynd að City hefur
ekki tapað í síðustu 37 heimaleikjum
sínum í úrvalsdeildinni. Síðasta liðið
sem vann City á þeirra eigin heima-
velli í deildinni er Everton sem vann
2–1 sigur þann 20. desember 2010.
Ætli United að fá eitthvað út úr
leiknum gegn City er ljóst að liðið
þarf að leika betri varnarleik en það
hefur gert að undanförnu. Liðið hefur
fengið á sig 21 mark á móti 11 mörk-
um City. Ekkert lið hefur þó skorað
meira en United sem hefur komið
boltanum 37 sinnum í netið 37 í 15
leikjum. Nokkuð er um meiðsli í her-
búðum beggja liða og er óvíst hvort
David Silva, Alexander Kolarov og
James Milner verði orðnir leikfærir
fyrir City um helgina. Hjá United eru
Nemanja Vidic, Shinji Kagawa, And-
erson, Antonio Valencia og Nani frá.
Gylfi á Goodison
Fleiri hörkuleikir eru á dagskrá
um helgina en nágrannaslag-
ur City og United. Arsenal þarf á
stigum að halda en liðið tekur á
móti spútnikliði WBA á laugardag.
Eftir glimrandi góða byrjun hefur
WBA fatast flugið og tapað tveimur
leikjum í röð. Á sama tíma hefur
Arsenal aðeins unnið einn af síð-
ustu sex leikjum sínum. West Ham
sem spilað hefur vel á tímabilinu
mætir Liverpool á heimavelli. West
Ham lagði Chelsea um síðustu helgi
á meðan Liverpool vann góðan
sigur á Southampton. Þá má búast
við hörkuleik þegar Everton tekur á
móti Gylfa Sigurðssyni og félögum í
Tottenham. Tottenham hefur verið á
góðri siglingu og unnið síðustu þrjá
leiki sína á meðan Everton hefur
gert jafntefli í síðustu þremur leikj-
um sínum. Tottenham er í 3.–5. sæti
með 26 stig en Everton í 6.–7. sæti
með 23 stig. n
Vissir þú …
… að ef leikirnir í úrvals-
deildinni í vetur væru 80
mínútur væri Tottenham
á toppnum með 32 stig en
WBA í öðru sæti með 31 stig.
… að varamenn allra liða, nema
Liverpool og Wigan, hafa skorað í ensku
deildinni í vetur.
… að Luis Suarez hjá Liverpool hefur unnið
flestar aukaspyrnur allra leikmanna á
síðasta þriðjungi vallarins, eða 19 talsins.
… að seinna mark
Demba Ba gegn Wigan
á mánudag var mark
númer 19.000 í ensku
úrvalsdeildinni.
… að mark Gael Bigirimana, leikmanns
Newcastle, var fyrsta mark leikmanns
frá Búrúndí í deildinni. Leikmenn af 87
þjóðernum hafa nú skorað frá stofnun
úrvalsdeildarinnar.
… að Wigan hefur
fengið á sig flestar
vítaspyrnur frá upp-
hafi síðustu leiktíðar,
eða 13 talsins.
… að 38 sjálfsmörk hafa verið skoruð
á þessu ári í deildinni. Metið er 44
sjálfsmörk árið 2004.
… að það sem af er tímabili hafa einungis
þrjár þrennur verið skoraðar. Á sama
tímapunkti í fyrra voru þær 10.
… að Norwich er prúð-
asta lið deildarinnar.
Liðið hefur aðeins
fengið 12 gul spjöld og
ekkert rautt.
… að ekkert lið hefur fengið á sig fyrsta
markið jafn oft og Manchester United í vet-
ur. Hjá United hefur það gerst 10 sinnum.
Laugardagur
Arsenal – WBA
„Ég held að þetta fari jafntefli, 2–2. WBA
hefur verið að hiksta eftir frábæra byrjun
og Arsenal hefur ekki náð sér almennilega
í gang og er ekki alveg orðið heilsteypt lið
ennþá. Ég sé þá ekki vinna WBA.“
Southampton – Reading
„Southampton vinnur þetta. Hvorugt
þessara liða hefur verið sannfærandi en
ég held að þetta fari 1–0. Reading er í mjög
vondum málum en Southampton virðist
ætla að pluma sig.“
Aston Villa – Stoke
„Stoke náði nú að vinna WBA um síðustu
helgi og þeir eru seigir. Ef það vinnst sigur
þá verður það líklega 1–0. Mér finnst
líklegra að það verði Aston Villa.“
Sunderland – Chelsea
„Sunderland er í bölvuðum vandræðum og
Chelsea hefur nánast verið í frjálsu falli. Ég
held samt sem áður að Chelsea tapi ekki
þessum leik og held raunar að það vinni
þetta 2–1.
Swansea – Norwich
„Swansea vinnur þetta. Michael Laudrup
er búinn að stilla þetta lið saman og það er
alltaf gaman að horfa á Swansea. Ég bæði
vona og held að þeir vinni þetta. Ég spái
3–1 heimasigri.“
Wigan – QPR
„Harry Redknapp hefur oft unnið krafta-
verk með lið í vondri stöðu en ekki alltaf.
Ég held að QPR-liðið sé ekki nógu gott og
held að Wigan vinni þetta 1–0.“
Sunnudagur:
Man. City – Man. United
„Ég held að United vinni þetta 2–1. Ég
horfði á City og Dortmund í vikunni og
það var hreint ömurlegt að sjá til þessa
málaliðahers. Ég held að dýrasti einstaki
leikmaðurinn hjá City hafi kostað meira
en allt Dortmund-liðið. Það var enginn
andi í þessu hjá þeim og þetta er bara
samansafn málaliða. Þetta eru frábærir
knattspyrnumenn en þetta er ekki klúbb-
ur. Það er miklu meiri klúbbandi hjá United
og þeir taka þetta 2–1.“
Everton – Tottenham
„2–2. Adebayor er í banni, Bale er meiddur
og það vantar fjölda manna hjá Totten-
ham. Everton-liðið er seigt og hefur byrjað
leiktíðina vel og David Moyes er krafta-
verkakall. Mér finnst líklegast að þetta
endi jafntefli. Ég vona að Gylfi nái að setja
hann. Hann kann alveg að skora mörk og
þegar hann kom inn á gegn Fulham um
síðustu helgi sá maður þessa frábæru
takta sem hann sýndi hjá Swansea í fyrra.“
West Ham – Liverpool
„Hamrarnir taka þetta 2–0. Liverpool-liðið
er ekki svipur hjá sjón og hefur að mínu
mati aldrei jafnað sig á brotthvarfi Xabi
Alonso. West Ham-liðið er gott og er til
alls líklegt.“
Mánudagur
Fulham – Newcastle
„Nú er Hangeland kominn úr banni og
Fulham hefur saknað hans mikið. Þeir láta
ekki flengja sig á heimavelli tvisvar í röð og
heimamenn taka þetta, 3–1.
Spáir United sigri
DV fékk sjónvarpsmanninn Boga Ágústsson til að spá í leiki helgarinnar í enska
boltanum. Bogi er sem kunnugt er harður stuðningsmaður Tottenham en hann reiknar
ekki með að sínir menn nái að vinna sinn leik um helgina. Þá reiknar hann með að rauða
liðið í Manchester vinni nágrannaslaginn og stórleik umferðarinnar.
n Bogi Ágústsson telur að Chelsea komist aftur á sigurbraut
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
Sigurmark Vincent Kompany skoraði
eina mark leiksins þegar City lagði United
að velli í borgarslagnum í Manchester
í apríl. Markið reyndist dýrmætt enda
vann City deildina naumlega. Mynd ReuteRS