Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2012, Qupperneq 21

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2012, Qupperneq 21
Fréttir 21Helgarblað 7.–9. desember 2012 AuðveldAstA leiðin til Að nálgAst næstA kvenlíkAmA sagði hann og bætti því við að óþægilegt sé kannski ekki rétta orðið: „Þú værir varla að gera þetta ef þér þætti það óþægilegt.“ Klám annað en kynlíf „Svo er það þannig að maður er krakki og maður er bara graður. Á vissum aldri fer maður að pæla í stelpum og svona hlutum. Klámið er mjög auð- veld leið til þess að nálgast næsta kvenlíkama, maður þarf bara að kíkja á netið. Það þýðir samt ekki að maður sé að fara illa með kvenmenn, maður er bara graður,“ sagði einn. Andri Már segir að margir grípi í klám á hverju kvöldi. „Ég held að kynhvötin sé bara svona sterk eða einhver kynlífsspenna í þeim,“ segir hann og bætir því við að þeir séu nú: „… misvirkir runkararnir.“ Í hans huga er klám bara klám, ekkert meira og ekkert minna en það, og hefur ekkert með hugmyndir og viðhorf til kynlífs og kynhlutverka að gera. „Ég var heppinn því ég fékk strax upplýsingar um það í grunnskóla að klám væri ekki raunverulegt kyn- líf. Það ætti að hamra á því, sérstak- lega fyrir litla krakka, því ég held að það fái allir einhvern tímann áhuga á að skoða klám, það er eitthvað spennandi við það. En það er himinn og haf á milli kláms og kynlífsathafna. Klámið er grófara og gengur lengra en raun- veruleikinn. Það er ýmislegt að gerast þar sem fólk er almennt ekki að gera,“ sagði hann. Eins og bíómynd Fleiri tala á svipuðum nótum og segjast meðvitaðir um að klám sé ekki alvöru kynlíf. „Meiri parturinn af þessu er leikinn og klipptur saman. Þannig að ég held að maður sé al- mennt meðvitaður um að þetta sé ekki eðlilegt, alveg eins og maður veit að bíómynd- ir eru ekki alvöru. Þetta er bara svona bíómynd. Jú, klámstjörnur eru að ríða í alvörunni en það er ekki alvöru kynlíf. Þau stoppa á milli og klippa atriðin saman.“ Annar sagði að klám- notkun snerist um að að- skilja klám og kynlíf. „Það er ekki það sama að horfa á eitthvað og að vera manneskja, gera eitthvað í alvörunni. Þegar James Bond ger- ir eitthvað á meðan hann keyrir bíl á fleygiferð þá veit maður alveg að mað- ur getur ekki gert það. Á sama hátt er maður meðvitaður um að maður get- ur ekki verið að ríða fjórum gellum í einu. Ég held að flestir geti aðgreint klámið frá raunveruleikanum eða ég vona það.“ Einn viðmælandinn hafði horft á heimildamynd um klámiðnaðinn og sagði að klámið væri í raun bara „feik- að“ kynlíf. „Leikararnir fara í stell- ingar þar sem allt gengur út á að sýna myndavélinni allt. Það er verið að búa til kvikmyndir sem snúast um það að setja typpi inn í píku. Þetta er „mekk- anískt“, það er verið að búa til fantasí- ur. Ég held að fólk sé ekkert endilega meðvitað um að þetta sé bara iðnað- ur.“ Veikir fyrir Þar sem Andri Már segist vera mjög meðvitaður um að klám sé ekki kyn- líf og móti þar af leiðandi ekki hug- myndir hans um kynlíf er hann einnig mjög efins um að klámnotkun geti haft áhrif á kynferðisbrot. „Kannski getur það gert það ef einhverjum finnst æsandi að horfa á myndbönd þar sem verið er að misnota konur. Þá finnst honum kannski æsandi að gera eitthvað svoleiðis sjálfur. Ég veit það ekki, ég hef allavega aldrei fengið slíkar hugmyndir sjálfur og veit ekki til þess að neinn í kringum mig hafi farið að apa upp eitthvað sem þeir sjá í þessum myndböndum. Ég held að ef einhver geri það þá eigi hann frekar við eitthvað annað vandamál að stríða.“ Aðrir tóku undir það og einn sagði: „Ég held að það sé mjög persónu- bundið hvað þetta hefur mikil áhrif á mann. Alveg eins og ofbeldisfullir tölvuleikir eigi að móta manninn. Ég hef spilað ofbeldisfulla tölvuleiki síð- an ég var sex ára en ég hef ekki drep- ið mann. Ég held að það sé eins með klámið. Auðvitað getur það brenglað hugsun einhverra en ég held að þeir séu þá veikir fyrir. Flestir sjá muninn á þessu og raunveruleikanum. Það er bara verið að búa til fantasíur.“ Ofbeldisfull myndbönd Inni á þessum vinsælustu klámsíð- um eru líka ofbeldisfull myndbönd og stundum spilast þau sjálfkrafa þegar farið er inn á síðuna, óháð því hvort viðkomandi vill það eða ekki. „Ég hef auðvitað séð þetta ofbeldisfulla efni,“ sagði Andri Már. „En ég held að það séu bara örfáir sem sækjast í það. Manni líður betur með að horfa klám og stunda sjálfsfróun yfir myndbönd- um þar sem allt gengur eðlilega fyrir sig heldur en öðrum þar sem ofbeldi er beitt. En það er reyndar rétt að á internetinu er meira framboð af klámi þar sem heldur lengra er gengið en í eðlilegu kynlífi. Þegar þú ert að horfa á klám á netinu þá poppa líka upp oft einhverjir gluggar þar sem atriðin eru mikið grófari en það sem þú valdir sjálfur. Ég hunsa það bara. Þessum grófustu myndböndum er stundum dreift á netinu en ég held að það hafi enginn gaman af svona efni, þessu er bara dreift til þess að sýna hvað er til í heiminum,“ sagði hann. Strákarnir sögðust ekki tala um það ef þeir rækjust á eitthvað sem særði siðferðiskennd þeirra. „Ég sé ekki tilganginn með því að tala um eitthvað sem er ógeðslegt og dreifa boðskapnum,“ sagði einn og bætti því við að það væri auðvitað hægt að Klámmyndaleikarar berjast gegn klámi Hægt er að finna vitnisburð fyrrverandi klámmyndaleikara á vef The Pink Cross Foundation. Það eru samtök sem fyrrverandi klámmyndaleikkona stofnaði ásamt eiginmanni sínum með það að markmiði að hjálpa fólki brans- anum og berjast gegn honum. Hér á eftir birtum tilvitnanir: Roxy: „Eftir þrjátíu myndir fékk ég tvo kynsjúkdóma. Herpes, sem er ólæknandi, og kynfæravörtur sem urðu til þess að ég fékk leghálskrabbamein og það varð að fjarlægja helminginn af leghálsinum. Klám eyðilagði líf mitt.“ Ashlyn Brooke: „Í hreinskilni sagt þá líður mér þannig að ef ég þyrfti að fá annan ókunnugan mann upp að andlitinu á mér, finna hendur hans á mér á meðan hann kallar mig stúlkuna sína, og þyrfti að búa til einhvers konar þvingaða ástríðu okkar á milli fyrir áhorfendur, þá myndi ég sennilega springa. Það sem myndi lenda á veggjunum væri sennilega ekkert. Bara bútar af húð, beinum og heila vélmennis, og það sem eftir væri af því sem einu sinni var stórt og hlýtt hjarta.“ Alexa Milano: „Í fyrstu myndinni var ég meðhöndluð mjög harkalega af þremur mönnum. Þeir þrykktu mig, tróðu sér ofan í mig þar til ég kúgaðist og köstuðu mér á milli líkt og ég væri bolti. Ég var aum, sár og gat varla gengið.“ Elizabeth Rollings: „Það var mjög sárt þegar mér var sagt að frjósa í einhverri stellingu þar til tökumaðurinn var ánægður með skotin. Líkamsvessum fólks var klínt á andlitið á mér og hvar sem leikstjóranum þóknaðist og ég varð að sætta mig við það ef ég ætlaði að fá útborgað. Stundum tók ég þátt í atriðum sem leik- stjórinn hafði breytt þannig að þau urðu harkalegri en til stóð. Þá var það eins, ef þú vildir þetta ekki, því miður, annaðhvort gerðir þú þetta eða fékkst ekki útborgað.“ Trent Roe: „Ég skil ekki enn hvernig ég komst í gegnum þetta. Þessar konur voru of gamlar til að vera í klámi.“ finna „… hitt og þetta sem er ógeðs- lega subbulegt og veldur því að þú færð ógeð. Ég efast um að mörgum þyki það æsandi að blanda saman ofbeldi og kynlífi. Það er heldur ekki alveg eðlilegt ef myndböndin snúast um að karlmaðurinn sé æðri en konan í kyn- lífsathöfnum. En meirihluti þessara myndbanda snýst um að niðurlægja konuna. Stundum er henni jafn- vel borgað fyrir kynlífið og þá er gert eitthvað mjög ljótt við hana, eitthvað sem hún vill ekki. En það er líka hægt að finna eitthvað sem myndi flokkast sem erótík í samanburði við það en er samt klám. Í heildina væri auðvitað best að losna við þetta drasl.“ Aðspurður hvort honum þyki í lagi að horfa á klám svaraði hann: „Það er mjög góð spurning. Í rauninni ekki. Framleiðsla á klámi er mjög slæm því flest myndböndin ganga út á að niðurlægja konuna, því miður. Hins vegar finnst mér allt í lagi að hafa að- gang að erótísku efni. Ég þarf ekkert endilega þetta grófa, viðbjóðslega klám sem brenglar hugmyndir okkar um kynlíf og kynímyndir.“ Opnar umræðuna „Ég held að þetta sé ekkert til þess að hafa áhyggjur af,“ ítrekaði Andri Már. Fleiri tóku undir það og einn sagði: „Það er auðvitað mikill mun- ur á því að tala um þetta og horfa á klám og síðan að framkvæma það sem þú sérð þarna. Þú getur talað endalaust um klám en síðan þegar kemur að framkvæmdinni þá veistu kannski ekkert hvað þú ert að gera. Það mætti hvetja til þess að fólk talaði saman fyrir kynlíf. Það ætti að pæla í hvort öðru frekar en að reyna að leita í klámmyndum. Það sem við gerum í svefnherberginu kemur engum öðr- um við og við höfum öll mismunandi hugmyndir um það sem við viljum gera í rúminu,“ sagði einn. Eins og annar sagði þá er nauðsyn- legt að taka umræðuna: „Klámið mótar ekki hugmyndir okkar um kyn- líf. Og það jákvæða við klám er að það hefur opnað umræðuna. Alveg eins og Ku Klux Klan opnaði umræðuna um stöðu svertingja. Auð- vitað var ekki gott að þeir kæmu fram á sjónvarsviðið og dræpu svertingja en það gerði vandamálið svo greini- legt. Það sama á við um klámið. Það opnar umræðuna um stærra vanda- mál. Ég meina, þegar amma mín var ung þá gat hún ekki rætt opinskátt um kynlíf og samkynhneigð var for- dæmd. Í dag er þetta ekkert vanda- mál. Þá vil ég samt ekki meina að klám sé eins og Ku Klux Klan. En þegar maður talar um foreldra sína eða fé- laga þá eru allir sammála um að klám sé í grunninn mjög slæmt. Það er bara svo mikið úrval til af klámi að fólk finnur alltaf eitthvað við sitt hæfi, þótt því þyki það í sjálfu sér rangt að horfa á klám. Við þurfum alltaf að berjast í gegnum svona mál og það er bara gott að taka þessa umræðu.“ n n Menntaskólastrákar ræða klám og klámnotkun n Segja klámið eðlilegan hluta af lífinu n Ekkert til þess að skammast sín fyrir „Auðvitað getur það brenglað hugs- un einhverra en ég held að þeir séu þá veikir fyrir. Flestir sjá muninn á þessu og raunveruleikanum. Umfjöllun DV um klám að undanförnu
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.