Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2012, Side 26

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2012, Side 26
26 Erlent 7.–9. desember 2012 Helgarblað Á tjándu loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna lauk í vikunni en hún var haldin í Doha, höfuðborg Katar. Stað- setning ráðstefnunnar hefur vakið athygli, enda losar ekkert ríki í heiminum jafn mikið magn gróður- húsalofttegunda út í andrúmsloftið og Katar sé miðað við höfðatölu. Á ráð- stefnunni ræddu þúsundir fulltrúa frá tæplega 200 ríkjum um markmið og leiðir til að stemma stigu við loftslags- breytingunum. Á meðal þeirra sem ávörpuðu fundargesti var Íslands- vinurinn Hamad bin Khalifa Al Thani, katarski furstinn sem keypti fimm prósenta hlut í Kaupþingi með lána- fyrirgreiðslu frá bankanum sjálfum skömmu áður en hann hrundi. Sem embættismaður í Katar tók Al Thani þátt í skipulagningu ráðstefnunnar. Ólíklegt að markmiðin náist Markmið Sameinuðu þjóðanna er enn sem fyrr að hlýnun jarðar verði undir 2°C árið 2020 en æ ólíklegra þykir að því markmiði veri náð. Sam- kvæmt skýrslu sem fundarmönnum var kynnt er árleg losun langt um- fram þau viðmið sem sett hafa verið. Á loftslagsráðstefnunni í Kaupmanna- höfn árið 2009 gáfu ríkin misjafnlega fögur fyrirheit um að draga úr út- blæstri gróðurhúsalofttegunda en samkvæmt umhverfisstofnun Sam- einuðu þjóðanna eru jafnvel róttæk- ustu loforðin sem gefin voru ekki full- nægjandi til að hlýnun haldist innan við 2°C árið 2020. Róttækra breytinga krafist Ef ekki verður gripið til róttækra að- gerða stefnir í að hlýnunin nemi allt að 4–6°C árið 2020. Samkvæmt skýr- slu sem loftslagsrannsóknastofnun í Þýskalandi vann fyrir Alþjóðabank- ann yrðu afleiðingar slíkrar hlýnun- ar geigvænlegar. Ætla má að sjávar- mál hækki um heilan metra áður en öldin er á enda og fjölmargar hafnar- borgir lendi undir sjó, sérstaklega í Suður- og Austur-Asíu. Jafnframt er spáð gríðarlegri eyðingu skóga, upp- skerubresti og alvarlegum þurrkum. „Til að afstýra hörmulegum atburðum verður að grípa til róttækra breytinga á hinni alþjóðlegu skipan efnahags- mála,“ segir í annarri skýrslu sem PricewaterhouseCoopers vann fyrir Alþjóðabankann. Þar er hvatt til þess að dregið verði stórlega úr brennslu jarðefnaeldsneytis og í staðinn verði endurnýjanlegir orkugjafar nýttir í auknum mæli. Tvískinnungur Bandaríkjanna „Við viljum að börnin okkar búi í Ameríku sem ekki stafar hætta af ógnaröflum hlýnandi plánetu,“ hrópaði Barack Obama í sigur- ræðu sinni þann 7. nóvember síð- astliðinn þegar hann var endur- kjörinn forseti Bandaríkjanna. Þá var aðeins vika liðin frá því að felli- bylurinn Sandy reið yfir New York og New Jersey og varð meira en 100 manns að bana. Bandaríkin eru enn í hópi mestu umhverfissóða heims en heildarlosun þeirra hefur þó minnk- að nokkuð, aðallega að frumkvæði einstakra ríkja. Athygli vakti að nær ekkert var rætt um loftslagsmál í kosningaslagnum vestanhafs og hef- ur Obama verið gagnrýndur fyrir ákveðinn tvískinnung þegar kemur að umhverfismálum; þótt hann vari við loftslagsvánni hefur til að mynda olíuborun aukist til muna í stjórnar- tíð hans. Fulltrúi Bandaríkjanna, Jonathan Pershing, lofaði við upphaf ráðstefn- unnar í síðustu viku að nú yrðu stig- in stór skref til að stemma stigu við loftslagsbreytingum. Í ræðum sínum hefur hann þó ekki gefið nein stór loforð önnur en þau að Bandaríkin haldi sig við það markmið sem þau hafa áður sett sér, að árið 2020 verði útblástur gróðurhúsalofttegunda farinn niður fyrir það sem hann var árið 2005. Stórveldin þræta Kínverjar eru aðilar að Kyoto-bók- uninni en gildistími hennar rennur út um áramótin. Kína er skilgreint sem þróunarríki í bókuninni en fyrir þróunarríkin eru kröfurnar um sam- drátt á útblæstri gróðurhúsaloft- tegunda ekki bindandi. Hafa Kín- verjar krafist þess að þróuðu ríkin, og ekki síst Bandaríkin, taki á sig aukn- ar skuldbindingar, en Bandaríkin eru ekki aðili að bókuninni. Á meðan svo er er ekki er auðvelt fyrir önnur ríki að fría sig skyldunni til að berjast gegn loftslagsbreytingum af manna völdum. Eins og kunnugt er hafa loftslags- ráðstefnur síðustu ára einkennst af hörðum deilum, bæði á milli Banda- ríkjanna og Kína en ekki síður á milli fyrsta heimsins og þriðja heims- ins. Sú ráðstefna sem nú er lokið var engin undantekning hvað þetta varðar en ekki sauð þó jafn rækilega upp úr og árið 2009 þegar fulltrúar þróunarríkjanna gengu út af fundum vinnuhópanna og sökuðu vestur- veldin um að beita blekkingum. „Enn langt í land“ Í erindi sínu lagði Al Thani áherslu á að loftslagsvandinn væri án landamæra og allar þjóðir heims- ins sætu í sömu súpunni. „Baráttan gegn loftslagsbreytingunum krefst pólitísks vilja og alþjóðasamvinnu,“ sagði hann og bætti við: „Við eigum enn langt í land, þrátt fyrir allar þær aðgerðir sem gripið hefur verið til, og brýnt er að leita allra ráða til að ná þeim markmiðum sem samræm- ast vonum og væntingum fólks um framtíð sem einkennist af alþjóðlegri samstöðu, réttlæti og farsæld.“ Al Thani lét einnig í ljós þá skoðun sína að samdráttur á útblæstri gróð- urhúsalofttegunda mætti ekki koma of harkalega niður á orkunýtingu þriðjaheimsríkja. Í orðum hans krist- allast að einhverju leyti sá vandi sem heimsbyggðin stendur frammi fyrir. Vesturlönd efnuðust í krafti iðnvæð- ingar og tilheyrandi umhverfisspjalla og ef þriðji heimurinn fetar í fótspor okkar má ætla að vistkerfi jarðar beri verulegan skaða. Til að fyrirbyggja þetta veita iðnríkin þróunarlöndun- um fjárhagsaðstoð til að efla nýtingu umhverfisvænna orkugjafa. Sam- kvæmt því sem fram kom í skýrslun- um sem fundarmenn byggðu vinnu sína á þarf að auka þessa aðstoð til muna eigi hún að skila tilætluðum ár- angri. Olíuborun? Ljóst er að loftslagsbreytingar af manna völdum stafa einna helst af brennslu jarðefnaeldsneytis. Komið hefur skýrt fram í máli loftslagssér- fræðinga Sameinuðu þjóðanna að ein helsta forsenda þess að menn geti snúið vörn í sókn í baráttunni gegn loftslagsvánni sé endurskoðun á orkugjöfum. Samkvæmt þessu er það hagsmunamál heimsbyggðarinnar allrar að horfið verði frá jarðefnaelds- neyti. Fróðlegt er að skoða umræðuna um olíuborun á Drekasvæðinu í þessu ljósi. Fjölmiðlamaðurinn Egill Helga- son vakti máls á þessari klemmu í á bloggsíðu sinni fyrir skemmstu og spurði: „Ef upplýst og vel megandi þjóð eins og Íslendingar – sem hefur gnægð orku – getur ekki haldið aftur af sér hvað varðar vinnslu jarðefna- eldsneytis, hvað þá með aðrar þjóðir? Þá er kannski ekki hægt að stemma stigu við þessu?“ Þetta er spurning sem varðar okkur öll. n n Al Thani hélt erindi á loftslagsráðstefnu SÞ n Plánetan á hverfanda hveli Valdabarátta í skugga loftslagsbreytinganna Jóhann Páll Jóhannsson blaðamaður skrifar johannp@dv.is „Til að afstýra hörmu- legum atburðum verður að grípa til róttækra breytinga á hinni alþjóð- legu skipan efnahagsmála Þungur á brún Al Thani var þungur á brún þegar hann ræddi um loftslags- vána, en hann tók þátt í skipulagningu loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóð- anna sem katarskur embættismaður. Ástandið svart Samkvæmt skýrslum sem kynntar voru á ráðstefnunni eru horfur í loftslagsmálum verri en áður var talið. Á R N A S Y N IR util if. is SKÍÐAPAKKAR 20% AFSLÁTTUR ÞEGAR KEYPT ERU SKÍÐI, BINDINGAR OG SKÍÐASKÓR.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.