Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2012, Side 32
32 Viðtal 7.–9. desember 2012 Helgarblað
M
ér finnst ósanngjarnt
þegar fólk segir að það
eigi bara að leyfa henni
að fara. Maður sér í aug-
unum á Ellu að hún hefur
fullan vilja til að lifa.
Þetta er bara illgirni. Ég fór gegn
vilja þeirra og þau eru reið. Þetta er
persónulegt.
Þetta var kannski ekki það sem
maður hefði viljað fá fyrir 20 milljón-
ir en það var ekkert annað í boði.
Ég veit aldrei þegar ég vakna hvort
barnið mitt sé á lífi.
Mér finnst þetta mjög ósann-
gjarnar ásakanir því að ég er góð
móðir.
„Ég er ekkert fullkomin frekar en
aðrir foreldrar en mér finnst ég hafa
staðið mig ótrúlega vel miðað við
hvað ég hef þurft að berjast fyrir. Ekki
út af vilja heldur þörf. Ég hef alltaf
þurft að berjast síðan að Ella Dís
veiktist,“ segir Ragna Erlendsdóttir.
Hún situr niðurlút í húsakynnum DV
í Tryggvagötu og segir síðustu daga
hafa verið afar erfiða. Ragna hefur
orðið landsþekkt og líka afar um-
deild í baráttu sinni fyrir dóttur sína
Ellu Dís. Nú sem endranær stendur
hún í ströngu, hún hefur kært Barna-
verndarnefnd Reykjavíkur vegna
þess að búið er að svipta hana um-
sjón yfir tveimur af þremur dætrum
sínum, 3 og 9 ára systrum Ellu Dísar.
Stúlkurnar eru vistaðar hjá ættingj-
um þar til niðurstaða fæst í málinu
en það verður tekið fyrir í héraðs-
dómi í næstu viku.
Gjaldþrota og heimilislaus
Barnaverndarnefnd telur Rögnu
vanrækja hinar dætur sínar vegna
Ellu Dísar, vera langþreytta og vilja
þess vegna að börnin séu vistuð
annars staðar en hjá móður sinni.
Þau segja rótleysi og ferðalög hafa
einkennt líf þeirra og þær þurfi stöð-
ugleika. Þessu mótmælir Ragna og
berst fyrir dætrunum fyrir dómi.
Hún segist hafa gert sitt besta til þess
að sjá um þær allar en eðlilega hafi
mestur tími farið í Ellu þar sem hún
hafi verið veik. Nú sé komin greining
og þær geti í kjölfarið haldið áfram
sínu lífi.
Í dag er Ragna gjaldþrota, býr hjá
ömmu sinni og afa og hefur ekki for-
ræði yfir tveimur dætrum sínum og
ein þeirra býr á spítala. Hún segist
þrátt fyrir það hafa öðlast von, Ella
sé komin með greiningu á veikind-
um sínum og fái hún dæturnar aft-
ur þá trúi hún því að þær geti haf-
ið nýja framtíð. En til þess segist
hún þurfa hjálp. „Ég get ekki feng-
ið íbúð. Ég er ekki með meðmæli og
ég á ekki pening fyrir tryggingu. Þær
íbúðir sem mér hafa boðist hafa ekki
hentað fyrir Ellu Dís,“ segir hún. „Ég
þarf hjálp frá yfirvöldum til þess að
geta byrjað upp á nýtt. Ella er kom-
in með greiningu og ef ég fæ íbúð
og allt kemst í lag ef við fáum að
vera saman. Ella fær að fara í skóla
og stelpurnar fá að búa hjá mér. Mig
vantar íbúð, mig vantar að fá gáminn
minn með búslóðinni okkar og hjálp
við að byrja upp á nýtt.“
„Þetta er bara illgirni“
Síðastliðið ár hefur verið erfitt að
sögn Rögnu, „það erfiðasta síðan
þetta byrjaði,“ eins og hún orðar þar.
Í byrjun árs fékk dóttir hennar, Ella
Dís 6 ára, loks langþráða greiningu
á óútskýrðum veikindum sem höfðu
hrjáð hana frá 18 mánaða aldri
og lamað líkama hennar. Grein-
ingin kom í kjölfar þess að Ragna
fór með Ellu út til Bretlands gegn
vilja íslenskra lækna. Á sama tíma
og Ragna fagnaði greiningunni þá
fór í gang mál gegn henni hjá bresk-
um barnaverndaryfirvöldum en Ella
var vistuð á breskri sjúkrastofnun
og Ragna svipt forræði yfir henni
að hluta til og fékk einungis að hitta
hana undir eftirliti. Á svipuðum tíma
fór barnsfaðir hennar með hinar
Undanfarið ár hefur verið erfitt í lífi Rögnu Erlendsdóttir. Í byrjun árs fékk
dóttir hennar, Ella Dís, loks greiningu á óútskýrðum veikindum sínum. Í kjölfarið
lenti hún í deilu við bresk barnaverndaryfirvöld um forræði yfir Ellu sem lauk
með því að hún fékk að fara aftur heim til Íslands í ágúst. Nú berst Ragna fyrir
hinum dætrum sínum tveimur en hún hefur verið svipt umsjón yfir þeim. Hún er
búin að kæra Barnaverndarnefnd og vonast til þess að fjölskyldan fái að sam-
einast á ný. Sjálf er hún heimilislaus og gjaldþrota en vill fá hjálp frá yfirvöldum
til þess að geta byrjað upp á nýtt.
„ÞETTA ER MARTRÖГ
Viktoría Hermannsdóttir
viktoria@dv.is
Viðtal