Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2012, Síða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2012, Síða 46
46 Lífsstíll 7.–9. desember 2012 Helgarblað „Stefnan er að gera enn betur“ n Arca safnar fyrir Ljósinu Þ egar við byrjuðum á þessu, árið 2010, söfnuðum við 200 þús- undum fyrir Mæðrastyrks- nefnd. Í fyrra söfnuðum við svo nærri hálfri milljón fyrir Fjölskyldu- hjálp. Þannig að við rúmlega tvö- földuðum upphæðina á milli ára og stefnan er að gera enn betur í þetta skiptið,“ segir Hafdís Heiðarsdóttir, hönnuður og eigandi hönnunarfyrir- tækisins Arca, en fyrirtækið hefur hafið styrktarátakið Pakki á pakka þriðja árið í röð. Í ár varð fyrir valinu fallegur jóla- engill sem kostar 500 krónur líkt og tvö síðustu ár og mun allur ágóði renna óskiptur til endurhæfingar- og stuðn- ingsmiðstöðvarinnar Ljóssins. Hafdís og Vilborg Aldís Ragnars- dóttir, sem reka Arca saman, segja að það hafi verið erfitt að velja góðgerða- samtök enda af nógu að taka. „Við lent- um í stórkostlegum vandræðum en þeir hjá Lógó, sem gera þetta með okk- ur, stungu upp á Ljósinu og við vorum alsáttar með þá tillögu.“ Hægt er að nálgast jólaengilinn í verslun Arca í Grímsbæ. „Það er ofsa- lega gott og gaman að geta látið gott af sér leiða. Við heyrum líka að fólk er ánægt með að heyra að allur peningur- inn renni óskiptur til þeirra sem á hon- um þurfa að halda. Þess vegna kemur mikið til sama fólkið aftur og aftur auk þess sem fyrirtæki kaupa þetta handa starfsmönnum. Það er bara gaman að því. Við erum þegar komnar upp í 100 þúsund og erum bjartsýnar á fram- haldið.“ indiana@dv.is Láta gott af sér leiða Hafdís og Vilborg Aldís segja mikið til sama fólkið kaupa styrktarpakkann ár eftir ár. Jólaengill Pakki á pakka 2012 er fallegur jólaengill. Gestablogg Auðar Alfífu Ketilsdóttur Baráttan við holdið Baráttan við óttann n Árangurinn sést strax n Liðsheildin og upplifunin skiptir máli H jónin Þórður Marelsson og Fríða Halldórsdóttir njóta þess að stunda útivist og saman hafa þau gengið með fjölskyldu sína og stýrt ferðum á ófá fjöll landsins í mörg ár. Þau hafa stofnað fyrirtækið Fjallavini.is og vilja leiða fólk á fjöll í skemmtilegum og heilsubætandi fjallgöngum. Liðsheildin skiptir máli Þórður hefur stundað fjallgöng- ur í mörg ár og er að auki nuddari og jógakennari. Fríða er íþrótta- og heilsufræðingur og saman nýta þau reynslu sína til þess að gera upp- lifun þeirra vilja bæta heilsu sína með fjallgöngum sem besta. Bæði eru þau þekkt fyrir að brydda upp á skemmtilegheitum í sambandi við fjallgöngur. Þórður hefur til að mynda stýrt konfekt- og páskaeggja- göngu og Fríða hefur leitt göngur fyrir börn niður í leikskólaaldur og heldri borgara. Fríða og Þórður bjóða upp á nokkur mismunandi námskeið í Fjallavinum, í Fjöllunum okkar eru valin skemmtileg og spennandi fjöll í nágrenni Reykjavíkur og víðar sem alltof margir hafa ekki upplifað að ganga á. Og í Flottum fjöllum eru göngurnar lengri og meira krefjandi og mikið lagt upp úr góðum félags- skap og liðsheild. Þau leggja reyndar mikla áherslu á upplifun fólks og líðan. Í þeim efn- um skiptir liðsheildin miklu máli. „Upplifun okkar skiptir svo miklu máli, ef hún er góð og gefandi þá verður hún þess valdandi að við eig- um auðvelt með að gera mjög miklar breytingar á lífsstíl okkar. Það gerist sjálfkrafa, vegna þess að við viljum það. Það er bæði gefandi að vera í náttúrunni og þá njótum við sam- verunnar við annað áhugasamt fólk. Liðsheildin, hreyfingin og útivistin í náttúrunni verður einkar hvetjandi og verður til þess að fólk nær skjót- um og góðum árangri,“ segir Þórður. Árangur strax Boðið er upp á heilsufarsmælingar og jóga og teygjur fléttaðar í fjall- gönguna. „Við byrjum á því að skoða súr- efnisupptökuna, blóðþrýstinginn, BMI og mjaðma- og mittismál,“ segir Fríða og segir mikilvægt að kanna heilsufarið áður en lagt er af stað. „Það er hreinlega gott að vita hvar maður stendur.“ Hvenær finnur fólk fyrir árangri? „Strax!,“ segir Fríða og hlær. „Þú finnur muninn mjög fljótt því fjall- göngur hafa bæði mikil áhrif á líkam- legt atgervi og vellíðan. Eigin lega laumast árangurinn upp að fólki. Það hefur svo gaman að þessu að það tekur ekki eftir því að smám saman borðar það hollara fæði, grennist og styrkist. Fjallgöngur eru frábær lík- amsrækt af fjölmörgum ástæðum. Við áreynslu eins og fjallgöngu leys- ast úr læðingi vellíðunarhormón lík- amans. Þol og styrkur eykst mjög fljótt, og liðir styrkjast. Áhrif þessarar tegundar líkamsræktar eru mjög al- hliða, svo ekki sé talað um félagslega þáttinn. Mér hefur fundist fólk finna á sér mjög stóran mun eftir aðeins nokkrar vikur, eftir sex vikur má tala um að fólk sé að komast í gott form. Fólki finnst gott að komast úr þessum amstri.,“ bætir Fríða við, „út í náttúruna. Það koma allir endur- nærðir til baka.“ „Ég hef komist að því að marga virkilega langar til að fara í fjall- göngur,“ segir Þórður. „En hafa ekki almennilega trú á sér til að taka af skarið. Þess vegna er gott að vera í hóp og takast á við verkefnið saman. Þol, styrkur og sjálfstraust eykst með hverju fjallinu.“ Horft út fyrir landsteinana Hópur á vegum Fjallavina og ÍT ferða er á leiðinni til Ekvador í ágúst 2013. Þórður fór í könnunarleiðang- ur í októbermánuði og kynnti sér fjöllin og frumskógana. „Suður-Ameríka er spennandi svæði, maður vill sjá meira af heim- inum eftir því sem maður fer að eld- ast,“ segir hann. „Við komum til með að heimsækja fjöll í 400–500 metra og hæð, og þarna er Cotopaxi, sem er 5.900 metrar á hæð. Ef vel viðrar þá leggjum við til atlögu við fjallið,“ segir hann. „Nú eru menn farnir að horfa út fyrir landsteinana með gönguferðir,“ segir Fríða og segir ferðina geta verið spennandi fyrir fleiri en þá allra hörðustu. „Við munum sigla niður Amazon og inn í frumskóg- ana, heimsækja miðbaugssetrið og prófa að standa sitt hvorum megin við miðbaug. Þá er menning þessa svæðis áhugaverð og við munum, eins og sannir landkönnuðir, kynna okkur hana vel.“ n kristjana@dv.is Fjallgöngur eru frábær líkamsrækt Fjallavinir Mikið er lagt upp úr góðum anda og liðsheild í ferðum Fríðu og Þórðar. Fríða og Þórður Þau hjónin njóta þess að stunda útivist og saman reka þau Fjallavini. is og vilja leiða fólk á fjöll í skemmtilegum og heilsubætandi fjallgöngum. Í gegnum tíðina hef ég ekki verið styrktaraðili líkamsræktarstöðva. Ég er ekki ein af þeim sem hef með reglulegu millibili séð að nú sé nóg komið og ákveðið að taka mig á. Það er ekki bara vegna þess hvað ég er skynsöm og raunsæ, , það er margt sem ég geri án þess að það sé sérstaklega skynsam- legt, og vissulega hefði átak oft verið afar skynsamleg ákvörðun, heldur vegna þess að ég þoldi ekki tilhugsunina um að hafa sett mér markmið og ná þeim ekki. Ég þorði ekki að gera mistök. Ekki misskilja mig, það er allt í lagi að vera raunsær en ef óttinn við mistök fær að ráða er hætt við að maður geri aldrei neitt sem ögrar. Það þýðir ekkert fyrir mig að ætla að gera hluti á hörkunni. Svipu- högg koma mér ekkert áfram og „bootcamp style“ leikfimiskennari myndi bara fá mig til að skæla. U m síðustu áramót steig ég inn í óttann og bjó til plaggat með markmiðum fyrir árið 2012. Á markmiðaplaggatið setti ég skýr markmið eins og að byrja á Sturl- ungu (búin með 5 bls.), fá mér kött (fékk mér tvo), horfa alla- vega á eina góða bíómynd fyrir hverja lélega (24/17) og borða fisk (mætti vera duglegri). En það er líka innifalin í því svikamilla. Eitt af markmiðunum er nefni- lega: „Klúðra og mistakast“. Það uppfylli ég til dæmis með því að uppfylla ekki markmiðið „klára meistaraverkefnið“. Þ essi sömu áramót fór ég líka í hóp í Ferðafélagi Íslands sem hefur það að markmiði að ganga á 52 fjöll á árinu. Ég setti mér markmiðið að ganga á 52 fjöll þó ég færi ekki endilega alltaf á sömu fjöll og Ferðafélag- ið (50 komin). Fram að því hafði ég ekki hreyft mig neitt ef frá er talið að ganga heiman að frá mér, ofar lega á Skólavörðuholtinu, niður undir sjávarmál í vinnuna og heim aftur (uppsöfnuð hækk- un 40 m). É g hafði reyndar sumar eftir sumar farið í nokkurra daga göngu með vinum mínum en það var ekki líkamlegt atgervi sem rak mig áfram þar heldur miklu frekar óttinn við að missa af ævintýralega skemmtilegum félagsskap. „Klúðra og mistakast“ er nefnilega lykillinn. Fyrstu 10–15 göngurnar hékk ég á því loforði til sjálfrar mín að ég mætti snúa við í miðri fjallshlíð ef ég væri búin að gera eins mikið og ég gæti. Ekki í útidyrunum og alls ekki í svefnherbergisdyrunum, en í brekkunni. Óttinn við að ná ekki að uppfylla markmiðið mátti ekki ráða. Blessunar- lega kom aldrei til þess að ég þyrfti að snúa við og fljótlega varð ég háð glaðloftinu á toppnum. M arkmiðið „klúðra og mis- takast“ er ekki afsökun til að gera ekki neitt, það er leyfi til að reyna eitt- hvað sem er óvíst hvort heppnist. Stundum reynir maður eitthvað sem mistekst hrapallega en mis- tök eru ekki dauðadómur heldur lærdómur. Og oftar en ekki kemst maður að raun um að maður get- ur miklu, miklu meira en maður heldur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.