Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2012, Síða 48
48 Jólalög 7.–9. desember 2012 Helgarblað
„UNDURFAGURT OG JÓLALEGT“
n DV leitaði til rúmlega 20 álitsgjafa í leitinni að besta íslenska jólalaginu n Ef ég nenni með Helga Björnssyni ótvíræður sigurvegari kosninganna
1 Ef ég nenni
n Flytjandi Helgi Björnsson
„Náttúrulega bara snilld. Sérstaklega gaman að horfa á Helga flytja þetta live.“
„Alveg möst á jólum.“
„Svo skemmtilegt lag. Og hann er svo æðislegur.“
„Ég myndi helst vilja setja Helga í fyrstu hundrað sætin! Textinn er svo unaðslegur, held að flest-
ir geti tengt við það að vilja gefa ástinni sinni allan heiminn ef maður ætti aur fyrir honum. Verð
alltaf klökk þegar ég heyri þetta lag. Það er undurfagurt og Helgi er ómótstæðilegur. Hann þyrfti
sko ekki að gefa mér neina helvítis jólagjöf! Eitt lúkk er nóg fyrir mig.“
„Alltaf skemmtilegt.“
„Hann er bara svo mikið með‘etta. Alltaf sexí!“
„Jafn nauðsynlegt og jólatréð. Textinn er smá spes en það er fallegt og jólalegt. Helgi er bara
með‘etta.“
2–5 Jólahjól
n Flytjandi Sniglabandið
„Alltaf klassískt. Búið að vera stór partur af
jólunum síðan það var gefið út.“
„Fjárans Jólahjólið er frekar leiðinlegt lag
ef út í það er farið en svo ofspilað og óþol-
andi að það er orðið órjúfanlegur hluti af
jólunum.“
„Minnir á æskuna.“
„Klassík. Eldist vel. Kemur manni alltaf í
jólaskap.“
2–5 Gleði- og friðarjól
n Flytjandi Pálmi Gunnarsson
„Fallegt lag sem hefur fylgt manni í gegnum
tíðina, hátíðlegt og fallegt.“
„Kemur manni í jólaskap og bökunargírinn.“
„Fallegt lag með djúpum boðskap um nauðsyn
þess að sýna náunganum kærleik og gleyma
því ekki að ekki hafa allir það eins gott og þú.“
„Eitthvað svo róandi í jólastressinu, fallegur
boðskapur.“
2–5 Ég hlakka svo til
n Flytjandi Svala Björgvins
„Tengist æskunni. Minnir á góða tíma.“
„Frábært lag. Tengt æskuminningum, manni leið eins og Svala væri að túlka hugsanir
manns.“
„Jólin byrja eiginlega ekki fyrr en kona hefur heyrt Ég hlakka svo til.“
„Á aðfangadag, þegar allt er komið í ró og maður bíður eftir að klukkan slái sex, á þessi fal-
legi jólasálmur Einars Sigurðssonar og Sigvalda Kaldalóns vel við. Þennan sálm söng maður
í kórum sem krakki og hann kemur mér enn þann dag í dag í hátíðlegt jólaskap.“
6–8 Þú komst með jólin
til mín
n Flytjendur Bó og Regína
„Ég elska smeðjuleg og klisjukennd jólalög.“
„Fallegt lag og boðskapurinn hallærislega góður –
svona þannig séð.“
„Í uppáhaldi síðan ég var pínulítil stelpa.“
6–8 Nóttin var sú ágæt ein
n Flytjendur Dikta og aðrir
„Fallegt og hátíðlegt lag sem hreyfir við manni í hvert
skipti sem hlustað er á það. Minnir gríðarlega á jólin og
þann boðskap sem þau færa um kærleik og frið.“
„Með Diktu er lagið vel útsett. Haukur er náttúrulega
með yndisfríða rödd. Lagið var gert áður en Dikta varð
þessi stofnun.“
6 - 8 Snjókorn falla
n Flytjandi Laddi
„Einfalt, maðurinn er meistari og á allt það
besta skilið.“
„Alltaf spilað í jólakortagerð í grunnskóla og
það var alltaf svo gaman. Skemmtilegt jóla-
lag sem ég get núna dillað mér við með dóttur
minni.“
„Fílaði þetta lag ekki þar til fyrir fimm árum.
Þá var ég að spila í góðu Þorláksmessugríni
þegar út brutust slagsmál. Allur staðurinn
fraus – ljósin voru kveikt, og slagsmálamönn-
um hent út. Ljósin voru svo aftur slökkt og ég
spilaði Snjókorn falla. Allir inni á staðnum
féllust í faðma og hváðu yfir ójólalegheitum
þessara manna.“
2–5 Ó helga nótt
n Flytjendur Egill Ólafsson og aðrir
„Eitt fallegasta jólalag sem ég hef heyrt. Fæ
gæsahúð þegar ég heyri það.“
„Hátíðleikinn uppmálaður og kemur
manni í sannkallað hátíðarskap.“
„Ég hef bæði tekið þátt í mörgum jólatón-
leikum og setið marga og finnst mér þetta
lag ávallt vera hápunkturinn. Og ef vel
heppnast þá fylgir mikil gæsahúð þegar
líða fer á lagið.“
„Stór en jafnframt einlægur flutningur-
inn kemur öllu heimilisfólki til að gráta –
það jólalegasta er þegar mamma og amma
sitja og horfa á sjónvarpið þar sem Egill
syngur í beinni – og gráta. Og svo setjumst
við systir mín hjá þeim og skælum af okkur
jólamálninguna svona rétt fyrir mat.“