Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2012, Qupperneq 49

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2012, Qupperneq 49
Jólalög 49Helgarblað 7.–9. desember 2012 Einmana á jólanótt – Flytjandi Diddú „Hrikalega melankólískt lag en skefur ekkert utan af sannleikanum. Jólin eru hræðileg fyrir marga. „Verð alltaf pínu döpur þegar ég heyri þetta lag. Samt ofsalega fallegt lag. Skrýtin blanda.“ Það er eitthvað inní strompnum – Flytjandi Edda Heiðrún Back- man „Kemur mér alltaf í gott skap og límist sérstaklega fast. Alltaf spilað á aðfangadag.“ Heims um ból „Hátíðlegasta lagið. Alveg sama á hvaða tungumál það er sungið. Það þekkja það allir. Fjandans. Nú er það fast á heilanum á mér.“ Svona eru jólin - Flytjendur Björgvin Halldórsson og Eyjólfur Kristjánsson „Tengist æskunni.“ Komdu til mín fyrsta kvöldið jóla – Flytjandi Þrjú á palli „Kitlandi krúttlegt lag og ramm- íslenskt auk þess sem talkaflar Eddu Þórarinsdóttur eru uppspretta enda- lausrar gleði.“ Hátíð var í bæ – Flytjendur Haukur Morthens og aðrir „Kemur mér alltaf í gott skap, jóla- skap.“ Ljósin heima – Flytjendur Páll Óskar og Monika „Ótrúlega fallegt og angurvært lag sem vekur upp hugsanir um baðstof- ur og fátækt en líka jólafrið og feg- urð.“ Jól alla daga – Flytjandi Eiríkur Hauksson „Stuðlag flutt af frábærum söngv- ara. Kemur mér alltaf í gott jólaskap.“ Ein handa þér - Flytjandi Stefán Hilmarsson „Alveg yndislegt og textinn í laginu er svo fallegur. Algjör unaður jóladisk- urinn hans Stebba.“ Annar í jólum – Flytjandi Baggalútur „Stórkostleg úttekt á sígildu íslensku jólaboði „… organdi smá- krakkar ærðir af sykri, unglingar fýldir með gos …““ Sagan af Jesús - Flytjandi Baggalútur „Snillingarn- ir í Baggalúti koma manni klárlega í rétta fíl- inginn. Drengirnir birtast ljóslifandi vatnsgreiddir og íklæddir kirtlum! Ekki ósvipað gömlum Biblíumynd- um …“ Jólastund – Flytjandi Stuð- kompaníið „Tímalaus snilld með Kalla Ö. upp á sitt allra besta. Líka svo flottar tromm- ur í laginu.“ Þorláksmessukvöld – Flytjendur Ragnhildur Gísladóttir og aðrir „Ultimate jólalagið. Þessi gömlu góðu eru haldin svo miklum töfraljóma. Fal- lega útsett. Mann langar bara í heitt kakó og samverustundir með þeim sem maður elskar.“ Rokkað í kringum jólatréð – Flytjandi Laddi „Ákveðin nostalgía í þessu lagi. Dansaði af mér rassgatið í gamla daga.“ Jólafeitabolla – Flytjendur Morðingj- arnir „Jólin snúast um að vera feitur. Setning eins og „ég trúi ekki á jesú en ég trúi á laufabrauð“ er góð lýsing á Íslending- um. Textagerð Hauks Viðars er stund- um svo fáránlega vel heppnuð.“ Rokkum rykið af jólunum – Flytjandi Kósý „Þetta lag nær grínstressinu fullkom- lega. Skyndilega róast allt og jólaleg- asta setning fyrr og síðar hljómar: „Komið er að sturtutíma og allir bíða í röð því að stóra systir er að raka lapp- irnar.“ Mæli reyndar með allri jólaplötunni Kósý jól.“ Af álfum – Flytj- andi Frostrósir „Lag sem ég get hlustað á allan ársins hring. Það er svo mikil von í því, myndrænn texti, flott- ar hljómahreyfingar og skemmtileg uppbygging. Ef ég hlusta á það í iPod þegar ég er úti að labba er ég farin að dansa og hlaupa um göturnar áður en ég veit af.“ indiana@dv.is ÁLITSGJAFAR: Björk Eiðsdóttir ritstjóri Séð og heyrt Brynhildur Björnsdóttir fjölmiðlakona Daníel Óliver tónlistarmaður Garðar Gunnlaugsson knattspyrnumaður Hafdís Heiðarsdóttir hönnuður Harpa Dögg Hjarðar markaðsfulltrúi Íris Pétursdóttir blaðamaður Séð og heyrt Katrín Bessadóttir fjölmiðlakona Kidda Svarfdal fjölmiðlakona Lilja Katrín Gunnarsdóttir kynningarstjóri Lilja Ingibjargardóttir fyrirsæta Margrét Erla Maack fjölmiðlakona Máni Pétursson fjölmiðlamaður Móbus Guðrún Bernharðs Roller Derby díva, vélstjórnarnemi og drag-kóngur Pétur Örn Guðmundsson tónlistar- maður Svenni Þór söngvari Unnur Birna Björnsdóttir tónlistarmaður Valur Hvanndal tónlistarmaður Védís Vantída Guðmundsdóttir tónlistar kona Þóra Sigurðardóttir fjölmiðlakona Þórunn Högnadóttir ritstjóri Home Nude Örn Úlfar Sævarsson spurningahöfundur „UNDURFAGURT OG JÓLALEGT“ n DV leitaði til rúmlega 20 álitsgjafa í leitinni að besta íslenska jólalaginu n Ef ég nenni með Helga Björnssyni ótvíræður sigurvegari kosninganna 9–13 Jólasveinar ganga um gólf n Ýmsir flytjendur „Sennilega fyrsta jólalagið sem maður lærir, gleymist aldrei. Textinn er til í ýmsum útgáf- um þar sem ýmist er sungið um gilda stafi, gyllta stafi, könnur sem standa upp á stól eða að standa upp á hól og kanna. Flenging með vendi er þó það sem flestar útgáfurnar eiga sameiginlegt. Barn síns tíma og jólalegheitin leka af því. Einfalt og ánægjulega drungalegt frá þeim tíma er langir vetur og myrk veður höfðu áhrif á nær allt sem Íslendingar gerðu í skapandi verkum.“ „Á topplistanum vegna þess að ég lærði að syngja það í kór.“ 9–13 Hátíðarskap n Flytjandi Helga Möller „Þessi plata var alltaf spiluð undir jólamatnum þegar ég var krakki. Öll lögin á henni koma mér í frábært jólaskap.“ „Algjör klassík! Jólaröddin sjálf, Helga Möller, kemur manni klárlega í hátíðar- skap með þessu lagi sem í mínum huga er algjör nostalgía.“ 9–13 Er líða fer að jólum n Flytjandi Ragnar Bjarnason „Undurfagurt lag og textinn ekki síðri, um drungann í desember, myrkrið og einmana- leikann sem víkur fyrir kertaljósunum og jólaandanum. Kemur út á mér tárum og jóla- skapi í einu.“ „Stórkostlega vel samið og flutt jólalag, í raun ætti þetta lag skilið að vera alþjóðlegur hittari.“ 9–13 Handa þér n Flytjendur Gunni Óla og Einar ágúst „Æ svona smá rómó jólalag. Hann berst um í Kringlunni í leit að jólagjöf fyrir ástina sína, hugsandi um hve jólin verða unaðsleg hjá þeim. Ókei, pínu væmin og kommon, það eru jól! Það má.“ „Hrikalega týpískt og ástarvellulegt en nær alltaf að verða til þess að ég „brest í söng“ í bílnum og yfirleitt fylgir táraflóð fast á eftir!“ Þau voru líka nefnd: Á R N A S Y N IR util if. is BOLTAR FRÁ 1.990 kr. HANDBOLTAR, KÖRFUBOLTAR, FÓTBOLTAR.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.