Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2011, Side 11
hrunið. Birna Einarsdóttir var tekin
við sem bankastjóri af Lárusi Weld-
ing og stjórnmálaflokkarnir á Alþingi
skipuðu nýja stjórn yfir bankann.
Inntakið í samningnum var það
að ekki yrði greitt frekar út af láninu
til Norðurturnsins, fyrir utan þær 800
milljónir króna sem Glitnir var þeg-
ar búinn að greiða út. Í annarri grein
þessa viðauka við lánasamninginn
skuldbatt Norðurturninn sig til að
endurgreiða þessar 800 milljónir
króna fyrir þann 1. mars 2010. Þetta
ákvæði var í samningnum jafnvel þó
báðum aðilum hefði verið fullkunn-
ugt um að Norðurturninn gæti ekki
endurgreitt Nýja Glitni þessar 800
milljónir. Á fyrsta veðrétti í bygging-
unni hvíldi nefnilega 1.600 milljóna
króna skuldabréfalán sem var í eigu
sjóða Glitnis, Lífeyrissjóðs verkfræð-
inga og Tryggingamiðstöðvarinnar
meðal annarra. Þetta 800 milljóna
króna lán Glitnis var því á öðrum
veðrétti í hálfkláraðri eign sem enn
liggur ekki ljóst fyrir hvort lokið verð-
ur við.
Lánið rann til BYGG
Á sama tíma og þessi viðauki var
gerður við lánasamninginn var gerð-
ur annar samningur vegna 200 millj-
óna króna lánsins sem fjallað er um
hér. Um var að ræða nýtt lán, kú-
lulán, sem var á gjalddaga 1. mars
2010. Í lánasamningnum, sem DV
hefur undir höndum, kemur fram
að greiðslan á láninu var tvíþætt.
140 milljónir voru greiddar út til að
BYGG gæti greitt laun, launatengd
gjöld, vörsluskatta og þóknun, líkt og
segir í lánasamningnum. 60 milljón-
ir króna átti svo að nota til að „fjár-
magna frágang lántaka eða bygging-
araðila á hans vegum við að ganga
frá tengibyggingu Norðurturnsins
við Smáralindina og bílastæðum þar
í kring“.
Líkt og gilti um 800 milljóna króna
lánið var ekki nokkur möguleiki á
því, þegar lánið var veitt, að Norður-
turninn gæti greitt þetta 200 milljóna
króna lán til baka þar sem félagið var
tæknilega gjaldþrota. Bæði lántak-
inn og lánveitandinn hefðu mátt vita
þetta þegar gengið var frá lánveiting-
unni.
Samtals milljarður króna rann því
út úr Glitni og Nýja Glitni til Norður-
turnsins ehf., rétt fyrir og eftir banka-
hrunið 2008, og til óbeinna hluthafa
í Glitni: BYGG.
Beitti Lárus þrýstingi
Þetta var í að minnsta kosti annað
skiptið sem Björn Ingi beitti stjórn-
endur bankans þrýstingi á tveggja
mánaða tímabili. Áður hafði Björn
Ingi beitt Lárus Welding þrýstingi
þann 1. september til að fá umrætt
fjögurra milljarða króna lán, líkt og
fréttastofa Stöðvar 2 greindi frá í mars
í fyrra. Lánsbeiðni Norðurturnsins
hafði þá verið hafnað og stóð félagið í
stappi við bankann vegna þessa.
Orðrétt sagði Björn Ingi í tölvu-
póstinum til Lárusar Welding sem
Stöð 2 vísaði til. „Þetta er auðvitað
langt frá því að vera í samræmi við
það sem við tveir sömdum um og bið
ég þig því að koma samkomulagi okk-
ar kyrfilega til skila aftur. Ég skil ekki
hvernig hlutirnir virðast breytast á
leiðinni niður fæðukeðjuna í bank-
anum og verður að segjast sem er að
það er þreytandi fyrir okkur báða að
þurfa alltaf að vera að hjakka í sama
farinu. Við höfum væntanlega báð-
ir nóg annað að hugsa um. [...] Ég vil
helst ekki lenda í því að framkvæmd-
ir við NT stöðvist vegna þess að ekki
er hægt að klára lánssamninginn við
bankann sem á tæpan helming í fyr-
irtækinu. Það mun gleðja hvorugan
okkar. Ég heyri frá þér þegar þú hefur
lesið þetta..“
Þessar viðræður Norðurturns-
ins og Glitnis enduðu með því að fé-
lagið fékk umrætt lán fjögurra millj-
arða króna lán um miðjan september
2008. Veðið fyrir láninu frá Glitni var
í fasteigninni sjálfri, bankareikningi
Norðurturnsins auk þess sem eignar-
haldsfélagið Saxbygg var í sjálfskuld-
arábyrgð fyrir meirihluta lánsins.
Greiða átti lánið aftur í mars 2010.
Lán þetta verður að teljast nokk-
uð sérstakt þegar litið er til þess að
Lehman-bankinn féll einungis tveim-
ur dögum áður og fyrir lá að Glitnir
væri sjálfur kominn í talsverða fjár-
mögnunarerfiðleika, líkt og kom ber-
lega í ljós skömmu síðar.
„Eitt af erfiðu málunum“
DV leitaði eftir upplýsingum frá Ís-
landsbanka, sem áður hét Nýi Glitn-
ir, um það af hverju bankinn ákvað
að lána 200 milljónir króna til eign-
arhaldsfélags sem nokkuð ljóst var
að gæti ekki staðið í skilum með af-
borganir af láninu. Svar bankans er á
þá leið að mál Norðurturnsins hefði
verið „eitt af erfiðu málunum“ sem
bankinn erfði eftir bankahrunið. Nýi
Glitnir hafi staðið frammi fyrir því að
þurfa að veita lán til Norðurturnsins
til að vernda hagsmuni sína í verk-
efninu. Samkvæmt svari Íslands-
banka var lánveitingin að hluta til
notuð til að að verja Norðurturn-
inn fyrir skemmdum þar sem fyr-
ir hefði legið að ekki yrði unnið við
bygginguna um nokkurt skeið hið
minnsta. Í þessum framkvæmdum
fólst meðal annars að hluti af eign-
inni var glerjaður til að verja hana
fyrir veðri og vindum.
Samkvæmt þessu svari viku
minni hagsmunir því fyrir meiri:
200 milljóna króna lán var veitt til að
verja þá milljarða króna fjárfestingu
sem bankinn hafði lagt út í þegar
lánað var til Norðurturnsins ehf.
5,4 milljarða kröfur
Skiptastjóri Norðurturnsins, Helgi
Birgisson, segir að lýstar kröfur í bú
Norðurturnsins ehf. nemi 5,4 millj-
örðum króna. Hann segir að Íslands-
banki sé langstærsti veðhafinn, með
meira en þriggja milljarða króna
kröfur í fasteignina. Auk þess eiga
Tryggingamiðstöðin, Lífeyrissjóð-
ur verkfræðinga og GLB Holding,
sjóður í eigu gamla Glitnis, nokk-
ur hundruð milljóna króna kröfur
á hendur Norðurturninum vegna
skuldabréfaútboðs sem farið var í
um sumarið 2008 til að fjármagna
verkefnið. 1.600 milljónir króna
söfnuðust í skuldabréfaútboðinu og
voru þessir fjármunir notaðir í bygg-
ingu turnsins.
Athygli vekur, í tilfelli skulda-
bréfaútboðsins, að tveir af stærstu
kaupendunum í því voru beintengd-
ir Glitni: Tryggingamiðstöðin var
í eigu FL Group, stærsta hluthafa
Glitnis, og GLB Holding var stýrt
af starfsmönnum Glitnis. Heim-
ildir DV herma að farið hafi verið í
skuldabréfaútboð til að fjármagna
verkefnið þrátt fyrir að Glitnir hafi
upphaflega ætlað að sjá um fjár-
mögnun þess.
Aðspurður hvort Norðurturn-
inn verði kláraður segir Helgi að
það liggi ekki fyrir á þessari stundu.
„Það liggja engar ákvarðanir fyr-
ir um slíkt... Menn eru tvístígandi
hvað þeir eiga að gera.“ Veðhafar
Norðurturnsins þurfa því að ákveða
hvað þeir gera við turninn; hvort
þeir selja fasteignina eins og hún
er í dag eða klári fasteignina og selji
hana eftir það. Hvaða ákvörðun
sem tekin verður er hins vegar ljóst
að Íslandsbanki, og aðrir veðhaf-
ar eignarinnar, hafa tapað stórum
hluta af fjárfestingu sinni í verk-
efninu.
Fréttir | 11Þriðjudagur 26. júlí 2011
Lánaði tæknilega gjaldþrota
félagi 200 milljónir eftir hrun„Þetta er auðvitað
langt frá því að vera
í samræmi við það sem við
tveir sömdum um.
Norðurturninn hálfkláraður Norðurturninn við Smáralindina stendur hálfkláraður.
Búið er að reisa fjórar hæðir af fimmtán. Félagið sem hélt utan um bygginguna er gjaldþrota
og nema kröfurnar í það 5,4 milljörðum króna.
Í stjórn Glitnis Björn Ingi Sveinsson, sem
sést hér í Héraðsdómi Reykjavíkur beitti
sér fyrir því að 4 milljarða lánið yrði veitt
til Norðurturnsins ehf., sem og að viðaukar
yrðu gerðir við þennan lánasamning eftir
hrun.
Bréfið frá Birni Inga til Glitnismanna
„Sent: 29. október 2008 12:37
To: Birna Einarsdóttir; Vilhelm Már Þorsteinsson; Magnús Arnar Arngrímsson; Gunnar
Ingi Birgisson
Cc: arnitom@simnet.is; bjorgvin.g.sigurdsson@vrn.stjr.is; kristrun.heimisdottir@utn.
stjs.is; greta.ingthorsdottir@for.stjr.is;bjarniben@althingi.is; illugig@althingi.is
Subject: Norðurturninn í Kópavogi
Ágætu starfsmenn hins Nýja Glitnis
Samkvæmt samtali undirritaðs, formanns stjórnar Eikar Properties ehf og formanns
stjórna dótturfélaganna Fasteignafélags Íslands, Norðurturnsins ehf og Eignarhalds-
félags Smáralindar, við Magnús Arngrímsson hjá Nýja Glitni þá virðist nú liggja fyrir sú
ákvörðun hins Nýja Glitnis um að bankinn muni vanefna lánssamning, sem gerður var
við Norðurturninn ehf þann 17. september sl. Lánssamningurinn var gerður til handa
félaginu vegna þeirra framkvæmda sem nú standa yfir við byggingu verslunar- og skrif-
stofuturns við Smáralind í Kópavogi, en framkvæmdir eru nú vel á veg komnar.
Bent skal á að Eik Properties ehf, og þar með ofangreind dótturfélög þess, eru að
43,34% í eigu Nýja Glitnis. Aðrir hluthafar eru m.a. Saxbygg ehf með 54,66%. Jafnframt
skal bent á að lánssamningur þessi var færður undir hinn nýja banka, þ.e. Nýja Glitni.
Undirritaður vill lýsa yfir verulegum vonbrigðum með þessa niðurstöðu hins nýja banka,
sem á sér enga stoð í undirliggjandi gögnum málsins, og er þeim mun dapurlegri vegna
eignatengsla bankans við félagið. Lánssamningur þessi er undirstaða verksamnings
sem gerður var við BYGG hf þann 20. apríl 2008, en á sama tíma var undirritað lánsloforð
af hálfu bankans. Hefur verktakinn unnið við verkið allar götur síðan í góðri trú um að
staðið yrði við samninginn og vegna þessa stofnað sér í miklar skuldbindingar.
Það veldur undirrituðum jafnframt enn meiri vonbrigðum að þrátt fyrir að verktakinn
hafi efnt fullgildan samning við Norðurturninn ehf og að Norðurturninn ehf hafi á hendi
fullgildan lánssamning við Nýja Glitni þá hafi bankinn hafnað með öllu að bakka félagið
upp í því að gengið sé til samninga við verktakann um að hann stöðvi nú þegar fram-
kvæmdir en fái hins vegar greidda að fullu þá framvindu verksins sem átt hefur sér stað
til dagsins í dag í samræmi við verksamninginn, enda er verktakinn sannanlega búinn
að skila þeirri vinnu fyllilega. Verktakinn hefur lýst sig reiðubúinn til slíkra samninga
og jafnframt að hann sé tilbúinn til þess að fara í viðundandi frágang svæðisins og
gönguleiða frá nýjum bílastæðum að verslunarmiðstöðinni.
Þeir fjármunir sem hér um ræðir eru samtals um 438 mkr, sem samanstanda af
ógreiddum reikningi upp á rúmar 138 mkr, framvindu í október 2008 upp á um 240 mkr
og loks um 60 mkr. sem færu einvörðungu í frágang svæðisins. Verktakinn hefur lýst
sig reiðubúinn til að halda eftir frekari reikningsfærslu vegna efniskaupa, alls 651 mkr,
sem verktakinn tæki þá á sig, og að hann muni leitast við að ná samningum við undir-
verktaka sína um að hætta frekari vinnu við smíði tækja og tóla fyrir húsið, s.s. rúllustiga
o.þ.h., alls 155 mkr.
Undirritaður vill benda hinum Nýja Glitni á skýlausa ábyrgð sína vegna þessarar ákvörð-
unar og þær afleiðingar sem ákvörðunin mun hafa.
1. Vegna ákvörðunarinnar er Norðurturninn, félag sem að 43,34% er í eigu Nýja Glitnis,
komið í vanskil við verktaka sinn. Nema vanskilin nú rúmum 138 mkr.
2. Verktakinn á nú inni hjá Norðurturninum ehf ógreiddar eftirstöðvar reiknings, 138
mkr, óreikningsfærða framvindu, 240 mkr og þegar greidd efniskaup, 651 mkr. Jafn-
framt þessu hefur verktakinn gert skuldbindandi samninga við ýmsa undirverktaka sína
um framleiðslu, s.s. á rúllustigum, upp á um 155 mkr. Upphæðin sem hér um ræðir er því
alls um 1.184 mkr.
3. Verktakinn, BYGG hf, stendur nú frammi fyrir því að segja upp nær öllum sínum
starfsmönnum. Mun það verða gert síðar í dag.
4. Verktakinn mun ekki geta staðið í skilum við birgja sína og undirverktaka, sem
hvorir tveggja munu verða fyrir þungu áfalli og þurfa fyrirsjáanlega að segja upp tugum
starfsmanna.
5. Verslunarmiðstöðin Smáralind mun verða fyrir verulegum búsifjum vegna áhrifa
ólokinna framkvæmda og ófrágenginna bílastæða, sem trufla munu allt flæði hússins
um ófyrirsjáanlega framtíð. Þessu er ekki viðbætandi við erfiðleika í rekstri þeirra
fyrirtækja sem hafa starfsemi innan hússins. Hætta er því á að húsið gæti lokað með
fyrirsjáanlegum afleiðingum fyrir fjölmörg fyrirtæki og fleiri hundruð starfsmenn þeirra
sem starfa innan verslunarmiðstöðvarinnar.
Undirritaður vill nú skora á hinn Nýja Glitni að taka ákvörðun sína til endurskoðunar og
greiða Norðurturninum ehf nægjanlegt fé í samræmi við fullgildan lánssamning svo
Norðurturninn ehf geti gert upp við verktakann þær 380 mkr sem hann á sannanlega
inni m.v. framvindu og þær 60 mkr til viðbótar sem þarf svo færa megi rekstrarumhverfi
Smáralindar í sem næst eðlilegt horf.
Norðurturninn ehf áskilur sér auðvitað allan rétt gagnvart hinum Nýja Glitni og mun láta
skoða alla möguleika í því efni.
Standi ákvörðunin hins vegar þá óskar undirritaður eftir því að skriflegur rökstuðningur
fyrir ákvörðuninni verði sendur undirrituðum fyrir kl 16:00 í dag.
Með góðri kveðju / Best regards
Björn Ingi Sveinsson
Formaður stjórnar Norðurturnsins“