Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2011, Blaðsíða 47
Þ
að er ekki laust við að það
hlakki örlítið í manni við að
horfa upp á ófarir Ruperts
Murdoch þessa dagana.
Ekki aðeins hefur hann eyði-
lagt mannorð fleiri einstaklinga en
flestir, heldur hefur hann gert sitt til
að eyðileggja blaðamennskuna sem
slíka. Dagblaðið The Sun var eitt-
hvert það versta í hinum vestræna
heimi, undarlegur stríðsáróður í
bland við klám, og er enn að, þó syst-
urblaðið NOTW hafi verið lagt nið-
ur. Ekki var þó nóg fyrir Murdoch að
fara illa með blaðamennsku á Bret-
landseyjum, heldur eyðilagði hann
ekki síður vitsmunalega umræðu í
Bandaríkjunum þegar hann stofnaði
Fox-sjónvarpsstöðina fyrir 25 árum.
Á hún líklega sinn þátt í hversu illa er
komið fyrir Bandaríkjamönnum nú.
Það enskumælandi land sem hefur
sloppið hvað best undan Murdoch
er heimaland hans, Ástralía, en þar
gilda ströng lög um krosseignarhald
á fjölmiðlum. Hann á því engar sjón-
varpsstöðvar þar í landi, heldur læt-
ur sér nægja fimm stærstu dagblöð-
in.
Undarlegur spegill
Starfsaðferðir Murdochs gerðu þá
hugmynd hlægilega að fjölmiðlar
væru frjálsir hvað sem eignarhaldi
þeirra liði. Sem dæmi má nefna að
árið 2003 þegar menn greindi al-
mennt mjög á um réttmæti innrás-
arinnar í Írak lýsti Murdoch sig afar
hlynntan innrásinni. Á þeim tíma
átti hann 175 dagblöð víða um heim
og af þeim voru öll 175 hlynnt inn-
rásinni. Í heimalandinu Ástralíu
voru stóru Murdoch blöðin hlynnt
innrásinni, og það þrátt fyrir að 76
prósent almennings væru á móti
í skoðanakönnunum. Svo fór fyrir
spegli samtímans.
Þegar maður sér Rupert Murdoch
og son hans James sitja fyrir svör-
um hjá breska þinginu finnst manni
aldrei þessu vant eins og örlítið rétt-
læti sé til í heiminum, rétt eins og
manni fannst þegar skýrsla rann-
sóknarnefndar kom út á Íslandi um
árið. En hvort tekst að hanka skúrk-
ana er þó annað mál. Millimenn
mega fjúka, en svo virðist sem höf-
uðpaurarnir sleppi alltaf.
Sumir velta því nú fyrir sér hvort
þeir feðgar selji bresku blöðin, sem
jafngilda aðeins um þremur prósent-
um veldis þeirra, eða þá jafnvel að
fjölmiðlaveldið losi sig við þá sjálfa
og haldi áfram undir nýrri stjórn.
Það er einu sinni svo að auðveldara
er að losa sig við keisarana en heims-
veldin, en hvort eitthvað breytist í
raun við slíkt er annað mál. Hitt er
þó ljóst að Murdoch mun fela sig á
bak við hugmyndina um málfrelsi
eftir bestu getu, þó hann hafi sjálfur
gert sitt besta til að hefta það á ferli
sínum.
Raunverulegt málfrelsi
Ástæða þess að Murdoch beitir fyr-
ir sig málfrelsinu er einmitt sú að
það er ein af þeim grundvallarhug-
myndum sem allflestir eiga að geta
verið sammála um. Þó er hætta á
að einhverjir nýti sér ofstopa Mur-
dochs einmitt til að reyna að hefta
málfrelsið.
Á meðan stórfyrirtækin ráðast
gegn málfrelsinu úr einni átt virðist
sem íslenskir dómarar ráðist gegn
því úr annarri. Nú virðist svo kom-
ið að ef fólk kýs að koma einhverju
á framfæri við blaðamenn er hætta
á að blaðamennirnir verði lögsóttir
fyrir að skrifa niður það sem þeim
er sagt. Hefur þetta verið gert hvað
eftir annað hérlendis í einhverjum
undarlegustu dómum sem fallið
hafa í vestrænu lýðræðisríki. Mál-
frelsishugmyndin á ekki við um
ólöglegar hleranir, en það hlýtur að
ná til þess sem fólk kýs að láta hafa
eftir sér opinberlega, svo ekki sé
meira sagt. Ef ófarir Murdochs sýna
okkur hversu hættulegt það er þeg-
ar allt er talið leyfilegt í fjölmiðlum,
hljóta þessir dómar að sýna okkur
fram á hversu hættulegt það er þeg-
ar allt er bannað.
Umræða | 47Þriðjudagur 26. júlí 2011
Á að birta skattgreiðslur landsmanna opinberlega?
„Nei.“
Skarphéðinn Án Runólfsson,
24 ára þjónn.
„Mér persónulega finnst það ekki skipta
nokkru máli.“
Ármann Hauksson,
55 ára öryrki
„Já, mér finnst það.“
Þórunn Sigfúsdóttir,
45 ára tölvunarfræðingur
„Ég veit ekki hvað mér finnst, en mér finnst
það alla vega ekki hitamál eins og frjáls-
hyggjumönnum.“
Ásgeir Berg Matthíasson,
25 ára námsmaður
„Já, mér finnst það.“
Stefanía Guðmundsdóttir,
57 ára kennari
1 Birna gifti sig óvænt á Ítalíu Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslands-
banka, hélt upp á fimmtugsafmæli
sitt í Toscana á Ítalíu í liðinni viku og
gifti sig í leiðinni.
2 Dauðir ungar og eggjaskurn úti um allt Skemmdarverk unnin á varpi
heiðargæsa í Hrútey við Blönduós.
3 Winehouse sögð hafa látist vegna áfengisdrykkju Söngkonan
drakk sig til dauða eftir að hafa hitt
móður sína yfir hádegisverði þar sem
hún sagði: „Ég elska þig mamma.“
4 Þeir fimmtíu sem greiddu hæstu gjöldin Listi yfir þá 50 einstaklinga
sem greiddu hæstu gjöldin 2010. Þor-
steinn Hjaltested, Andri Már Ingólfsson
og Skúli Mogensen voru þar efstir.
5 Þorsteinn Hjaltested skatta-kóngur Íslands 2010 Þorsteinn
Hjaltested greiddi hæstu gjöldin fyrir
árið 2010, eða tæpar 162 milljónir
króna.
6 Útrásarvíkingar ennþá á meðal þeirra tekjuhæstu Jói í Bónus
greiddi meira en Jón Ásgeir.
7 Bændur keyptu umfjöllun Sturlu Bændasamtökin borguðu fyrir
umfjöllun í verki um atvinnulíf og
menningu samtímans.
Mest lesið á dv.is
Myndin Hamagangur á Tjörninni Þessir mávar voru í miklum ham á Tjörninni þegar ljósmyndara DV bar að garði á
mánudag. Mikið mávager var við Tjörnina og virðast þeir hafa nóg af æti þessa dagana. Mynd GUnnaR GUnnaRSSon
Maður dagsins
Þurrkar
ekki af
Guðmundur Reynir
Gunnarsson
Knattspyrnu- og tónlistarmaðurinn Guð-
mundur Reynir Gunnarsson var útnefndur
besti leikmaður Pepsi-deildar karla. Guð-
mundur, sem leikur í stöðu vinstri bakvarðar,
hefur verið magnaður í sumar í KR-liði sem
hefur enn ekki tapað leik á Íslandi.
Hver er maðurinn?
„Guðmundur Reynir Gunnarsson.“
Hvar ert þú uppalinn?
„Í vesturbæ Reykjavíkur, að sjálfsögðu.“
Hvað er það fyrsta sem þú gerir á
morgnana?
„Ég fer í tölvuna. Vafra þar um veraldarvef-
inn, skoða fréttir og Facebook.“
Hver er uppáhaldsmaturinn þinn?
„Heyrðu, það er mexíkóskur matur. Culiacan.
Rosalega góður staður.“
Með hverjum heldur þú í enska?
„Liverpool, auðvitað.“
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera?
„Mér finnst mjög leiðinlegt að taka til. Þá
helst að þurrka af. Það er alveg ömurlegt. Ég
get gripið í ryksuguna við og við en að þurrka
af er ekki séns. Svo eru langar flugferðir líka
leiðinlegar.“
Kom þér þessi viðurkenning á
óvart?
„Já, hún gerði það. Ef einhver hefði sagt við
mig fyrir tímabilið að ég yrði kosinn bestur
þegar það yrði hálfnað hefði ég aldrei trúað
því.“
Hvernig fer bakvörður að því að vera
besti leikmaðurinn?
„Með því að hlaupa fram endalaust. Ég
held ég hafi líka bara haft meira gaman af
fótboltanum og haft meiri áhuga. Svo er ég
að passa vel saman við liðsfélaga mína. Ég
er líka í mjög góðu formi.“
Hver hefur verið galdurinn á bak við
KR-liðið í sumar?
„Það er liðsheildin og Rúnar Kristinsson.
Hann er einn af bestu þjálfurum sem ég hef
haft.“
Hvenær ætlið þið að tapa leik í
deildinni?
„Aldrei.“
Er eitthvað að gerast í tónlistinni?
„Já, maður er aðeins að trúbadorast og svo
fer maður kannski að setja út einhver lög.“
Kjallari
Valur
Gunnarsson
Stríðið gegn sannleikanum
Dómstóll götunnar
„Á meðan stór
fyrirtækin ráðast
gegn málfrelsinu úr einni
átt virðist sem íslenskir
dómarar ráðist gegn því
úr annarri.