Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2011, Side 48
48 | Fókus 26. júlí 2011 Þriðjudagur
Pönk á Patró
Tónlistarhátíðin Pönk á Patró
verður haldin laugardag-
inn 13. ágúst. Þetta verður í
annað skipti sem hátíðin fer
fram en hún þótti takast vel
til á síðasta ári. Hljómsveitin
Dikta mun stjórna tónlistar-
smiðju á hátíðinni auk þess
að halda tvenna tónleika í eld-
smiðju Sjóræningjahússins á
staðnum. Dikta fetar þar með í
fótspor Pollapönks og Amiinu
sem komu fram á hátíðinni á
síðasta ári. Fyrri tónleikarnir
eru ætlaðir börnum og ung-
lingum en seinni tónleikarnir
eru ætlaðir fyrir fullorðna.
Glen Hansard
á Rósenberg
Írski Óskarsverðlaunahafinn
Glen Hansard heldur tónleika
á Café Rósenberg þriðjudags-
kvöldið 26. júlí. Hann er for-
sprakki hljómsveitarinnar The
Swell Season og The Frames.
Hansard spilaði á Bræðslunni
á Borgarfirði eystri um helgina
og þóttu tónleikar hans
heppnast með eindæmum vel.
Það verður því vafalaust góð
skemmtun á seinni tónleik-
um hans hér á landi. Hansard
hlaut Óskarsverðlaunin árið
2008 fyrir besta frumsamda
lagið ásamt samverkakonu
sinni í The Swell Season, Mar-
ketu Irglova. Tónleikarnir hefj-
ast klukkan 21.00 en það er því
miður uppselt á tónleikana.
Gengið um Viðey
Þriðjudagar eru göngudag-
ar í Viðey. Á þriðjudagskvöld
verður Viðeyjarganga þar sem
kynntir verða leyndardómar
eyjarinnar fyrir göngumönn-
um. Leiðsögumaður er Jónas
Hlíðar Vilhelmsson. Gangan
hefst um 19.30 við Viðeyjar-
stofu og tekur eina og hálfa til
tvær klukkustundir. Auka-
ferðir eru í eyna klukkan 18.15
og 19.15 og siglt er frá Skarfa-
bakka. Kaffihúsið í Viðeyjar-
stofu er opið lengur á þriðju-
dagskvöldum og þar er hægt
að fá hinar ýmsu kræsingar.
Leiðsögnin er ókeypis en gjald
í ferjuna er 1.000 krónur fyrir
fullorðna og 500 krónur fyrir
börn.
Kynlíf, fallegt fólk og meira kynlíf
Þ
að hefur alltaf verið sagt
að nekt og kynlíf selji.
Það virðist hafa verið
haft að leiðarljósi við
gerð myndarinnar Friends with
Benefits en eins og titill mynd-
arinnar gefur til kynna gengur
myndin út á vini sem stunda
kynlíf eins og íþróttir – án til-
finninga eða skuldbindinga.
Það er samt sláandi hvað er
hægt að koma mörgum kyn-
lífssenum í venjulega kvikmynd
sem sýnd er fyrir nær alla ald-
urshópa. Myndin er ágætlega
útfærð Hollywood-sumarmynd
og býður upp á ágætis skemmt-
un, mikið af nekt og skemmti-
lega leikara. Söguþráðurinn er
þó ekki sá frumlegasti en Mila
Kunis og Justin Timberlake ná
að glæða myndina lífi.
Justin Timberlake er klár-
lega margt til lista lagt og hef-
ur hann slegið í gegn í kvik-
myndunum sem hann hefur
leikið í. Í myndinni – sem ég
hafði ekki miklar væntingar
til þegar ég fór á hana um síð-
ustu helgi – veldur Timberlake
heldur engum vonbrigðum.
Woody Harrelson myndar líka
með skemmtilegt mótvægi við
persónur Kunis og Timberlake
en hann leikur hressan sam-
kynhneigðan íþróttaritstjóra
bandaríska blaðsins GQ.
Þessi rómantíska gamanmynd
er engin undantekning frá öðr-
um álíka myndum sem gert
hefur verið góðlátlegt grín að.
Myndin bætir það þó upp með
húmor og skemmtilegum atrið-
um sem koma stundum á óvart.
New York-borg leikur líka stórt
hlutverk í myndinni og hefur
leikstjórinn náð að fanga borg-
ina í sinni bestu mynd.
Það er ekki hægt annað en að
mæla með myndinni en það er
ekkert skilyrði að sjá hana í bíó.
Hún ætti að geta verið ágæt-
is DVD-mynd til að horfa á í
haust. adalsteinn@dv.is
Vissi að lagið
myndi slá í gegn
Bubbi gulls ígildi Hann
segist hafa vitað að lagið myndi
slá í gegn því að þar sem Bubbi
er annars vegar þá sé gull á
ferðinni.
É
g er svo stoltur af þessu
lagi að ætli maður setji
það ekki bara á legstein-
inn hjá sér. Læt skrifa á
hann: „P.s. manstu eft-
ir laginu sem ég gerði með
Bubba?“ segir tónlistarmað-
urinn Berndsen um nýja lag-
ið sitt, Úlfur úlfur. Hann fékk
Bubba Morthens til að syngja
með sér í laginu. Það hefur
slegið í gegn og er núna í fyrsta
sæti vinsældarlista Rásar 2 en
það kom í spilun í byrjun júlí.
Hann segir það hafa legið í
augum uppi að lagið myndi slá
í gegn. „Þegar Bubbi er annars
vegar þá veit maður að maður
er með eitthvert gull í hönd-
unum,“ segir hann og hlær.
Þeir félagar kynntust á Rás 2
þegar Bubbi var þar með þátt-
inn Færibandið. „Ég vann sem
hljóðmaður við þáttinn og Óli
Palli grínaðist mikið með að
við ættum að gera lag sam-
an. Ég tók því nú aldrei alvar-
lega en svo byrjaði Bubbi að
tala meira um þetta og þá tók
ég hann bara á orðinu og gerði
lag.“
Urðu að gera besta lag
„ever“
Berndsen er þekktur fyrir
dansvæna takta en tónlist
Bubba hefur hins vegar ekki
verið talin sérstaklega dans-
væn hingað til. Hann segir þó
að það hafi verið lítið mál fyrir
Bubba að syngja inn á danslag.
„Þetta var eitthvað sem hann
átti eftir að gera, Svona 80´s
„power“ lag. Hann gerði það
bara mjög vel. Þetta var frá-
bært og alveg einstakt tækifæri
að fá að vinna með honum.“
Hann segist hafa lagt mikið í
lagið enda yrði það að vera gott
ef Bubbi væri að fara syngja
með í því. „Hljómsveitin vand-
aði sig ótrúlega við þetta. Við
sáum bara að ef við ætluðum
að gera lag með honum þá yrði
það að vera besta lag „ever“
því væntingarnar til þess voru
orðnar rosalegar.“ Hann seg-
ir þá hafa verið stressaða með
lagið en svo hafi þetta allt
gengið upp. „Þetta kom svona
upp og niður hjá okkur. Inn á
milli fannst okkur þetta besta
lag í heimi en svo bara allt í
einu bara nei, það er ekki nógu
gott. Síðan kom hann í stúd-
íóið og þá bara smellpassaði
þetta allt.“
Mikill Bubba-aðdáandi
Berndsen er ánægur með sam-
starfið og ber Bubba sem og
hinum tónlistarmönnunum
sem komu að gerð lagsins vel
söguna. „Hann var algjör fag-
maður. Kom bara og söng þetta
í nokkrum tökum. Það var svo-
lítið skemmtilegt að þegar
hann kom í stúdíóið þá hafði
hann verið þarna með Egó að
ég held áður. Maður fékk fullt
af sögum frá honum og það
var mjög gaman að vinna með
honum.“
Hann segist sjálfur vera
mikill aðdáandi Bubba og
fannst því einkar skemmtilegt
að fá að vinna með honum.
„Þegar hann kom í stúdíóið
þá var ég búinn að gleyma því
að allar Bubba-plöturnar mín-
ar voru á borðinu,“ segir hann
hlæjandi og bætir við: „Ég er
mikill aðdáandi. Aðallega að
80´s tímabili Bubba. Plöturnar
Kona og Frelsi til sölu eru í
miklu uppáhaldi.“
Fólk þakklátt fyrir lagið
Hann ætlaði upprunalega að
gefa lagið út á vínyl en sá svo
að það yrði væntanlega ekki
söluvænt. „Það var planið að
þetta yrði „singúll“ og mig
langaði að gefa þetta bara út
á vínyl. Svo var bara svo mikil
eftirspurn eftir laginu að ég gat
ekki hald-
ið þessu
bara
fyrir mig einan þannig að þetta
var sett í sölu á tonlist.is.“
Viðbrögð fólks við laginu
láta ekki á sér standa og vin-
sældirnar eru miklar. „Við-
brögð fólks eru búin að vera
frábær. Það eru allir að elska
þetta lag. Við erum búin að fá
rosalega sterk viðbrögð frá fólki
út af laginu. Fólk er að koma að
manni og þakka manni. Einn
maður kom og sagði mér að
dóttir hans dansaði alltaf þegar
hún heyrði lagið. Þá veit mað-
ur að þetta er „hittari“ ef börn-
in dansa við það.“
Berndsen hefur ekki útilok-
að frekara samstarf við Bubba
þó það sé ekki á döfinni. Þeir
komi hins vegar kannski til
með að spila eitthvað sam-
an. „Það er einhver pæling að
reyna að fá Bubba á Airwaves
en ég á eftir að heyra í hon-
um með það. Það væri nú
skemmtilegt ef kallinn
myndi spila á Airwaves.
Ég held hann hafi
aldrei gert það áður
svo það gæti verið
gaman.“
viktoria@dv.is
n Bubbi og Berndsen syngja saman danslagið Úlfur úlfur n Berndsen hyggst
minnast þess á legsteini sínum n Lá í augum uppi að það myndi slá í gegn
Ánægður með viðtökurnar Berndsen segir fólk elska lagið. „Viðbrögð fólks
eru búin að vera frábær. Það elska allir þetta lag. Við höfum fengið rosalega sterk
viðbrögð frá fólki út af laginu. Fólk kemur að manni og þakkar manni.“
Friends With Benefits
Leikstjóri: Will Gluck
Handrit: Keith Merryman, David A.
Newman, Will Gluck, Harley Peyton,
Keith Merryman, David A. Newman.
Leikarar: Mila Kunis, Justin
Timberlake, Patricia Clarkson.
Bíómynd
Aðalsteinn
Kjartansson
Nekt og kynlíf Mila Kunis og Justin
Timberlake sjást ósjaldan nakin í
myndinni.