Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2011, Page 4
4 | Fréttir 29. júlí – 2. ágúst 2011 Helgarblað
2 dálkar = 9,9 *10
Opið: má-fö. 12:30-18, lokað um helgar.
Dalvegi 16a,
Rauðu múrsteinshúsunum
Kóp. 201 - S: 517 7727
www.nora.is facebook.com/noraisland
Fyrir bústaðinn og heimilið
Eikarstólar – 20%
Verð var kr. 29.000,-
nú kr. 23.200,-
„Aðkoman var í einu orði sagt hræði-
leg. Það er ekki hægt að lýsa sorginni
sem lá yfir,“ segir Þórunn Árnadótt-
ir, 45 ára íslensk kona sem búsett er í
Noregi. Þórunn, sem er í hjálparsveit-
inni í Geilo í Buskerud, tók þátt í björg-
unaraðgerðunum við Útey á laugar-
dag í síðustu viku. Daginn áður myrti
Anders Behring Breivik að minnsta
kosti 68 manns á eyjunni. Hlutverk
Þórunnar og samstarfsmanna henn-
ar í björgunarsveitinni í Geilo var að
leita að fólki meðfram ströndinni sem
reynt hafði að flýja fjöldamorðingjann
á sundi.
Eins og í bíómynd
Þegar ósköpin dundu yfir eftir hádegi
á föstudag í síðustu viku, fyrst í Ósló og
svo í Útey, var Þórunn með björgunar-
sveitinni við eftirlit á rafting-móti í Da-
gali, sem er skammt frá Geilo. „Það var
fullt af fólki á svæðinu og það var eng-
inn búinn að átta sig á því hvað var að
gerast. Fólk tók svo upp símana sína
og áttaði sig smám saman á þessu.
Þetta var bara eins og í bíómynd,“ seg-
ir Þórunn sem þá var viðbúin því að
þurfa að fara í Útey til að aðstoða. „Ég
hringdi í yfirmann hjálparsveitarinnar
og spurði hann hvort við þyrftum ekki
að gera okkur klár. Þá vissi hann ekki
hvort þeir þyrftu á hjálp að halda,“ seg-
ir hún. Útkallið kom hins vegar klukk-
an 07.15 á laugardagsmorgun.
Sorg og reiði
Áður en haldið var af stað var ljóst að
aðstæðurnar sem biðu væru erfiðar.
„Við flokkuðum fólk og það fékk ekki
hver sem er að fara. Ég á tvo stráka
í hjálparsveitinni og þeir fengu ekki
að fara með. Ég hef sjálf ekkert rosa-
lega reynslu en það er margt í lífinu
sem hefur hert mann. Ég mætti þarna
dreng sem hafði verið að hjálpa til á
hótelinu og hann á eftir að eiga um
sárt að binda í einhvern tíma.“
Hún segir að hjálparsveitir í ná-
grenni Úteyjar hafi fyrst verið kall-
aðar til en það tók Þórunni og sam-
starfsfélaga hennar um tvær og hálfa
klukkustund að aka á svæðið. „Þegar
þeir sáu umfangið þurftu þeir að fá
auka mannskap. Við þessar aðstæður
verða menn líka þreyttari fyrr,“ segir
Þórunn en hjálparsveitin í Geilo sér-
hæfir sig í björgun á fjöllum, enda er
Geilo mikil útivistarparadís og vinsæl
meðal vetraríþróttafólks.
Þórunn segir að þau hafi fyrst
komið við á hótelinu fyrir utan Útey
en þangað var fólkið sem lifði af flutt.
Aðstæður þar voru mjög erfiðar. „Það
er ekkert hægt að lýsa því hvernig að-
koman var. Þá er ég að tala um sorgina,
reiðina, og kaosið. Það er ekki hægt að
lýsa því.“
Fljótlega hófust þó aðgerðir við
strendurnar í kringum Útey. Í samtali
við DV segist Þórunn ekki getað lýst
því sem fyrir augu bar í smáatriðum
vegna þagnarskyldu. Hún féllst þó á
að segja frá sinni upplifun af atburð-
unum.
Bað til Guðs
„Hlutverk okkar þriggja sem fórum frá
Geilo var að leita meðfram ströndinni
sem var afskaplega hættulegt, þarna
voru mjög brattar hlíðar. Ég bað mörg-
um sinnum til Guðs að ég myndi ekki
hrapa niður. Aðstæðurnar voru mjög
erfiðar og þetta var mjög umfangsmik-
il leit,“ segir Þórunn en á sama tíma
voru bátar að leit á Tyrifjorden-vatni í
kringum Útey og lögregla að störfum
í sjálfri eyjunni. Leit var hætt þegar
kvölda tók og var Þórunn komin heim
seint á laugardagskvöld. Hún segir að
aðgerðirnar hafi verið vel skipulagðar
og vel hugsað um þá sem áttu um sárt
að binda. Þannig fékk hún ekki að yfir-
gefa svæðið fyrr en búið var að ganga
úr skugga um að hún væri heil heilsu
eftir erfiðan dag.
Þreytt andlega
„Ég finn það sjálf að ég er ofsalega
sorgmædd. Ég er rosalega þreyttt, ekki
líkamlega heldur andlega. Ég hef ekki
getað hlustað á fréttir og við kveikj-
um ekki einu sinni á sjónvarpi hérna
heima. Ég get kíkt örstutt á netið,“ seg-
ir Þórunn sem segir sorgina í Noregi
vera ólýsanlega. „Ég er nú 45 ára og hef
gengið í gegnum hæðir og lægðir. En
þetta var svo gríðarlegt. Þetta var svo
mikið,“ segir Þórunn sem búið hefur í
Noregi í tíu ár ásamt fjölskyldu sinni.
Þar starfar hún sem hársnyrtir en hef-
ur verið í hjálparsveitinni í Geilo í fjög-
ur ár.
n Íslensk kona tók þátt í björgunaraðgerðunum eftir hörmungarnar í Útey í Noregi
n Segir aðkomuna hafa verið hræðilega n Getur ekki enn horft á eða lesið fréttir
„Það er ekkert
hægt að lýsa því
hvernig aðkoman var. Þá
er ég að tala um sorgina,
reiðina, og kaosið. Það er
ekki hægt að lýsa því.
„Sorgin var
ólýSanle “
Erfitt Að sögn Þórunnar tóku aðgerðirnar
um síðustu helgi mikið á, ekki síst andlega,
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
Erfiðar aðstæður Aðstæðurn-
ar sem biðu hjálparsveitarmanna
voru erfiðar. Hér sjást kafarar
að störfum eftir hörmungarnar í
Útey í síðustu viku.
Leiðréttingar
DV birti á þriðjudaginn tekjur
næstum 3.000 Íslendinga. Við öfl-
un og útreikning tölulegra upp-
lýsinga voru í örfáum tilvikum
gerðar innsláttarvillur. Það þýðir
að tekjur nokkurra einstaklinga
voru rangar. Þannig var Runólfur
Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB,
sagður með 6 milljónir í mánað-
arlaun í fyrra en hið rétta er að
hann var með ríflega 600 þúsund
krónur. Valdimar Harðarson arki-
tekt var sagður með 5,7 milljónir
króna á mánuði en hann segist
aðeins hafa um einn tíunda hluta
þeirra launa. Það verður ekki
rengt. Sæmundur Runólfsson
var sagður hafa rúmar 8,3 millj-
ónir á mánuði en hið rétta er að
hann var með 1,2 milljónir króna
á mánuði í fyrra. Í tekjublaðinu
stóð að Ólafur Þór Hauksson, sér-
stakur saksóknari, hefði aðeins
talið fram sem samsvari 95 þús-
und krónum á mánuði í fyrra en
hann var með um 911 þúsund
krónur á mánuði.
Loks var því haldið fram að
Andrés Magnússon, læknir og
stjórnlagaráðsfulltrúi, hefði haft
rúmlega 1,5 milljónir króna í
mánaðarlaun í fyrra. Hið rétta er
að þau laun hafði alnafni hans,
starfsbróðir og jafnaldri, sem
starfar sem læknir á Siglufirði.
Andrés stjórnlagaráðsfulltrúi
var með 930 þúsund. DV biður
fimmmenningana og lesend-
ur DV velvirðingar á rangfærsl-
unum.
Vinnueftirlitið
býst við að kæra
Vinnueftirlitið rannsakar nú slys
sem varð á sunnudaginn þegar
fimmtán ára drengur slasaðist á
hægri hendi þegar höndin lenti í
marningsvél í fiskverkun Godthaab
í Nöf í Vestmannaeyjum. Pilturinn
hlaut alvarlega áverka og var fluttur
á sjúkrahús í Reykjavík þar sem
hann gekkst undir aðgerð. Þórunn
Sveinsdóttir, deildarstjóri þróunar-
og eftirlitsdeildar Vinnueftirlitsins,
segir í samtali við DV að allt bendi
til þess að fyrirtækið verði kært enda
pilturinn of ungur til að vinna við
vélar sem þessar.
316 kaupmálar hafa verið gerðir frá því í janúar 2010:
Eignirnar verndaðar
Frá því í janúar í fyrra hafa verið
gerðir 316 kaupmálar á milli hjóna
á Íslandi, en tilkynning birtist í Lög-
birtingarblaðinu um alla kaupmála
sem gerðir eru. Athyglisvert er að 19
kaupmálar, eða rúm sex prósent, eru
á milli ungra kvenna af erlendum
uppruna og töluvert eldri íslenskra
karlmanna. Dæmi eru um að aldurs-
munurinn sé allt upp í fimmtíu ár.
Ef eingöngu er litið á kaupmála sem
gerðir eru af hjónum þar sem aldurs-
munurinn er tíu ár eða meira og ekki
tekið mið af uppruna er um að ræða
tæp tuttugu prósent allra kaupmála.
Samkvæmt lögum geta einungis
hjón eða hjónaefni sem hafa ákveðið
vígsludag gert kaupmála sín á milli.
Þegar fólk gengur í hjónaband verða
allar eignir sameiginlegar eða hjú-
skapareignir, nema annað sé tekið
fram. Er það gert með kaupmálum. Í
þeim er kveðið á að um tiltekin verð-
mæti skuli verða séreign annars aðil-
ans, en séreign kemur ekki til skipta
við skilnað. Samkvæmt lögfræðing-
um er það ekki óalgengt að hjónaefni
geri kaupamála sín á milli ef mikill
munur er á eignastöðu aðila í hjú-
skap. Er það gert til að vernda eignir.
Kaupamálar eru þó breytilegir og þá
er hægt að fella niður. Þá eru stærri
gjafir á milli hjóna ekki gildar nema
gerður sé um þær kaupmáli. Þetta á
þó ekki við um lífeyri og framfærslu-
tryggingar.
Til eru þrjár gerðir af kaupmálum;
ítarlegur kaupmáli þar sem skilgreint
er húsnæði, bifreið, hlutafé og fleira,
einfaldur kaupmáli sem skilgreinir
séreign, húseignir og arf, og samning-
ur um fjárskipti við skilnað og skiln-
aðarkjör, umgengnisréttur barna,
meðlag, skipting eigna og fleira.
Kaupmálar Algengt er að hjón geri kaup-
mála ef mikill munur er á eignastöðu þeirra.