Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2011, Page 12
12 | Fréttir 29. júlí – 2. ágúst 2011 Helgarblað
GamaldaGs veitinGa-
staður oG Gistihús
við þjóðveG 1.
veitinGaskálinn víðiGerði er gam
aldags veitingastaður
við þjóðveginn í Húnaþingi vestra. Hér g
etur þú stoppað og teygt
úr þér, fengið gott sveitakaffi og alvöru k
affi latte, caphuchino og
expresso baunakaffi sem sumir segja þ
að besta á landinu…Við
seljum pylsur og samlokur gos, sælgæti
og fleira í þeim dúr. Alla
daga vikunnar frá kl. 11 til 22 getur þú fe
ngið Thailenskan mat og
heimilismat. Við leggjum líka áherslu á m
atarmiklar súpur, gúllas-
súpu, kjúklingasúpu, kjötsúpu, mexicosú
pu...Grillið er opið frá kl. 9
til 23 og þá er hægt að fá bestu hamborg
ara við þjóðveg 1. (án allra
aukaefna) steiktan fisk ásamt nauta -og f
olaldasteik.
VíðidAlur eHf. | 531 HVAmmsTAnGi | sími: 451 2592 | fAx: 451 2593 | neTfAnG: VidiGerdi@VidiGerdi.is | HeimAsíðA: www.VidiGerdi.is
Thai maTurSKYNDimaTurhEimiLiSmaTurSamLOKur
TruKKar
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ís
lands, fær tæplega 250 þúsund króna
bakreikning frá sveitarfélaginu Álfta
nesi vegna tekjuársins 2010. Það er
til viðbótar þeim opinberu gjöld
um sem hann og aðrir íbúar sveit
arfélagsins hafa þegar greitt í stað
greiðslu af launum sínum.
Lífróður vegna greiðsluþrots
Ástæðan er sú að íbúar Álftaness
greiða í ár tíu prósenta álag á út
svar sitt til sveitarfélagsins vegna
greiðsluþrotsins sem varð til þess
að leitað var til Eftirlitsnefndar
með fjármálum sveitarfélaga (EFS)
haustið 2009. Í kjölfar þess var tekin
ákvörðun um að setja tíu prósenta
álag á útsvar ársins 2010 og er það
að birtast íbúum á álagningarseðl
um, við litla hrifningu. Í febrúar 2010
var tilkynnt að fjárhaldsstjórn hefði
verið skipuð til að taka við fjármál
um sveitarfélagsins en í árslok 2009
mat EFS það sem svo að skuldir og
skuldbindingar Álftaness næmu 7,2
milljörðum króna, en til að það væri
rekstrarhæft taldi eftirlitsnefndin
að þolmörk þessara þátta væru um
2–2,5 milljarðar. Sveitarfélagið var
komið í greiðsluþrot.
Nú súpa íbúar seyðið af óreiðu
sveitarfélagsins í formi þessa álags
útsvars sem innheimt verður í fimm
jöfnum greiðslum mánuðina ágúst
til desember í ár. Vert er að taka fram
að eigi útsvarsgreiðandi inneign hjá
skattinum dregst álagið frá þeirri
endurgreiðslu.
Hér er því um að ræða nokk
urs konar bakreikning frá sveit
arfélaginu sem íbúar standa nú
frammi fyrir að þurfa að greiða.
Allt niður í lægstu tekjuhópana
nemur álagið tugum þúsunda.
Einstaklingur á Álftanesi með
1,8 milljónir króna í árslaun þarf
þannig að greiða 23.904 krónur í
þetta álag.
Ólafur rukkaður um álag
Einn af þekktari og tekjuhærri íbú
um Álftaness er forsetinn á Bessa
stöðum, Ólafur Ragnar Grímsson.
Samkvæmt álagningarskrá greiddi
forsetinn ríflega 2,7 milljónir í út
svar og var með 1.823.805 krónur
í mánaðarlaun í fyrra samkvæmt
tekjublaði DV. Út frá því má finna að
heildarárslaun forseta Íslands hafi
verið rúmlega 21,8 milljónir króna.
Út frá því má sjá að Ólafur Ragnar
þarf að greiða í heildina um 250 þús
und krónur í álag, frá og með næsta
mánuði til ársloka.
Meðaljóninn finnur fyrir því
En það verða líklega ekki þeir
hæstlaunuðu sem finna mest fyrir
þessum aðgerðum sveitarfélags
ins. Eins og sjá má á meðfylgjandi
töflu þá þarf einstaklingur með 300
þúsund krónur í mánaðarlaun, 3,6
milljónir í árstekjur, að greiða tæp
lega 48 þúsund krónur í álag. Mið
að við að greiðslur álagsins dreif
ist á 5 mánuði má auðveldlega sjá
að hjá þeim einstaklingi dragast
mánaðarlega tæpar tíu þúsund
krónur af honum, að því gefnu að
hann eigi ekki rétt á endurgreiðslu
frá skattinum. Hvernig sem á það
er litið er ljóst að menn munar um
þessa upphæð nú sem aldrei fyrr.
Fjárhagsáætlun Álftaness gerir
hins vegar ráð fyrir að þetta álag
lækki niður í fimm prósent vegna
tekjuársins 2011, það er á næsta
ári, og standa vonir til að það
verði ekki neitt álag á útsvar vegna
tekjuársins 2012.
Áhrif álags
Áhrif álags á mismunandi tekjuhópa:
Árstekjur Nýtt 10% álag á útsvar
1.800.000 23.904
2.400.000 31.872
3.000.000 39.840
3.600.000 47.808
4.800.000 63.744
6.000.000 79.680
7.200.000 95.616
8.400.000 111.522
(Innheimt í 5 jöfnum greiðslum mánuðina
ágúst–desember 2011 eða lækkun á endur-
greiðslu) Heimild: alftanes.is
Forsetinn rukkaður um
250 þúsund aukalega
n Íbúar í sveitarfélaginu Álftanesi greiða álag á útsvar sitt n Liður í endurreisn
eftir greiðsluþrot n Forsetinn og aðrir íbúar rukkaðir um tugi þúsunda aukalega
Sigurður Mikael Jónsson
blaðamaður skrifar mikael@dv.is
Táknmynd vandræðanna Glæsileg sundlaug Álftaness hefur orðið táknmynd fjár-
hagsvandræða þess. Landsins stærsta rennibraut og öldulaug eru þó aðeins brotabrot af
djúpstæðari vandræðum sveitarfélagsins. MyNd SigTryggur Ari JÓHANNSSoN