Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2011, Blaðsíða 18
18 | Fréttir 29. júlí – 2. ágúst 2011 Helgarblað
ÚTSALAN
er hafin í vefverslun
25-60% afsláttur
www.lindesign.is
útsalan hefst í verslun á þriðjudag
Lín Design Laugavegi 176 Sími 533 2220 www.lindesign.is
sendum frítt úr vefverslun
„Okkar krafa er skýr, að þarna verði
greidd sambærileg laun,“ seg-
ir Vilhjálmur Birgisson, formað-
ur Verkalýðsfélags Akraness. Vil-
hjálmur segir mikla óánægju vera
meðal starfsmanna Norðuráls. Ný-
lega samdi Alcoa Fjarðaál við starfs-
menn sína um bætt launakjör. Vil-
hjálmur segir launamun á milli
starfsmanna Norðuráls og Fjarða-
áls nema tugum þúsunda króna en
forsvarsmenn Norðuráls segja þessa
útreikninga Vilhjálms vera ranga.
Vilhjálmur segir þennan launa-
mun hafa skapast eftir að Fjarða-
ál samdi við sína starfsmenn. Hann
segir samning Fjarðaáls við starfs-
menn sína hafa verið gríðarlega
góðan. „Samkvæmt mínum upplýs-
ingum gerðist það að menn reyndu
að bregðast við mikilli starfsmanna-
veltu sem hefur verið fyrir austan. Á
þeirri forsendu hafa eigendur fyrir-
tækisins reynt að skila þessum mikla
ávinningi sem er í áliðnaðinum til
starfsmanna til þess að reyna að
hægja á starfsmannaveltunni.“
Mikill munur
Verkalýðsfélagið hélt fund með starfs-
mönnum Norðuráls í lok júní þar sem
farið var yfir launamuninn. Í kynn-
ingu á útreikningum félagsins kom
fram að launamunur verkamanna á
vöktum er frá 70 þúsund krónum og
upp í 80 þúsund krónur á mánuði.
Launamunur iðnaðarmanna á vökt-
um er frá 99 þúsund krónum upp í
108 þúsund krónur. Launamunur
verkamanna í dagvinnu nemur frá
tæpum 79 þúsund krónum og upp í
85 þúsund krónur á mánuði. Launa-
munur iðnaðarmanna í dagvinnu er
frá 99 þúsund krónum og upp í 106
þúsund krónur.
Fjarðaál samdi einnig um stór-
iðjuskóla sem hefst í haust en þar er
starfsmönnum gefinn kostur á að fara
í nám sem gefur kost á tíu prósenta
launahækkun að námi loknu.
Ágúst Hafberg, tengiliður Norður-
áls við fjölmiðla, vildi einungis segja
að verið væri að semja við starfsmenn
fyrirtækisins og að útreikningar Vil-
hjálms væru rangir. Þá sagði hann
ekki mögulegt að gefa uppi launatöl-
ur starfsmanna Norðuráls.
Mikil óánægja
„Ég er alvanur því að þeir segi út-
reikninga mína ranga. Ég stend og
fell með þessum samanburði. Ég er
búinn að kynna þetta fyrir forsvars-
mönnum fyrirtækisins og þeir gerðu
tvær athugasemdir, það var annars
vegar með lengd á vinnutímanum
hjá dagvinnumönnum. Forsvars-
menn Norðuráls gleymdu að taka til-
lit til þess að neyslufé starfsmanna í
Fjarðaáli teljist til vinnutíma en ekki
hjá Norðuráli. Þannig að það rúnnar
sig út. Svo gerðu þeir athugasemdir
varðandi vaktaálagsprósentuna, að
hún væri lægri en sú sem ég notaði.
Þessar upplýsingar sem ég er með
byggi ég á áreiðanlegum heimildum
og stend og fell með þeim. Þeir gátu
ekki gert neinar athugasemdir varð-
andi launasamanburð hjá vaktafólk-
inu. Það er nú sjötíu til áttatíu pró-
sent af því starfsfólki sem þarna er.
Ég vísa því á bug að þessi launasam-
anburður sé rangur.“
Vilhjálmur segir að sest verði að
samningaborði 22. ágúst næstkom-
andi en menn verði að hafa það í
huga að launaliðurinn rann út 1.
janúar síðastliðinn þannig að starfs-
menn hafa verið án launahækkana
síðan í janúar.
Hann segir að það segi sig sjálft
að það sé mikil óánægja á meðal
starfsmanna Norðuráls með þenn-
an launamun. „Þegar menn eru að
vinna nákvæmlega sömu vinnuna
þar sem getur munað allt að þrjátíu
prósentum í launum, þá er óánægja,“
segir Vilhjálmur sem segir Fjarða-
ál hafa verið starfrækt í fjögur ár en
Norðurál síðan 1998.
Segir miklu betri
laun fyrir austan
n Vilhjálmur Birgisson segir miklu muna á launum starfsmanna Norðuráls
og Fjarðaáls n Forsvarsmenn Norðuráls segja útreikninga Vilhjálms ranga „Ég stend og fell
með þessum sam-
anburði.
Segir starfsmenn óánægða Vil-
hjálmur Birgisson, formaður Verkalýðs-
félags Akraness, segir starfsmenn Norður-
áls vera óánægða vegna launamunar.
Norðurál Vilhjálmur segir mikinn
launamun vera á milli starfsmanna Norður-
áls og Fjarðaáls
Birgir Olgeirsson
blaðamaður skrifar birgir@dv.is