Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2011, Side 24

Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2011, Side 24
24 | Fréttir 29. júlí – 2. ágúst 2011 Helgarblað Fjársvelt umboð íslenska lambsins Þ etta lækkaði árið 2009 í átján milljónir, í fyrra í tólf millj- ónir og þar með lauk ríkið þessum beinu afskiptum,“ segir Baldvin Jónsson, verk- efnastjóri og umsjónarmaður mark- aðsherferðar íslensks landbúnaður erlendis til fjölda ára. Frá árinu 1995 veitti ríkið 25 milljóna króna styrk til Áforms – átaksverkefnis sem átti að stuðla að markaðssetningu íslenskra landbúnaðarafurða í útlöndum. Samtals hafa því um 380 milljónir verið veittar frá ríkinu til markaðs- setningar í útlöndum undir merkjum Áforms. Sú markaðssetning hefur að mestu farið fram í Bandaríkjunum. Á undanförnum árum hafa vörur á borð við skyr, smjör, lambakjöt og annað verið seldar í fínni verslunum á borð við Whole Foods vestanhafs. Fjárvana átak Að sögn Baldvins, sem hefur ávallt verið eini starfsmaðurinn í verk- efninu, eru fjármunirnir af skorn- um skammti í þessu verkefni í dag. „Á þessu ári höfum við fengið um 85 þúsund dollara,“ segir Baldvin en hann staðfestir að það séu fyrirtæki sem fjármagni verkefnið að fullu í dag. Í fyrra þurfti hann sjálfur að grípa til þess ráðs að fjármagna reksturinn sjálfur vegna fjárskorts. Aðspurður hvort fjármunirnir sem séu til staðar í dag dugi til neitar hann því. Að hans sögn bitnar það á hans eigin afkomu að ekki séu nægjanlegir fjármunir til staðar. Baldvini er umhugað um að ís- lensk fyrirtæki nái saman og starfi saman að markaðssetningu íslenskra vara á erlendri grundu. Búið er að skrá vörumerkið Sustainable Ice- land í Bandaríkjunum sem Baldvin er skráður fyrir. Undir það geta allar íslenskar vörur fallið sem uppfylla strangar reglur um sjálfbæra fram- leiðslu og búskaparhætti að sögn Baldvins. Hann sér fyrir sér að íslensk fyrirtæki sameinist undir merkinu og eignist þannig hlut í því. Með slíku samstarfi sé hægt að nýta fjármuni betur og fá meira fyrir sama pening. Stór tækifæri Fyrir skömmu kom Baldvin að svo- kölluðum Norrænum dögum í Bandaríkjunum þar sem norrænu löndin komu saman undir einu merki. Þar var haldinn 1.800 manna hátíðarkvöldverður og móttökuat- höfn sem vakti mikla athygli að sögn Baldvins. „Þá hljótum við að geta náð íslensku fyrirtækjunum saman,“ segir Baldvin sem tekur fram að 300 manns hafi komið til að smakka ís- lenskan mat á norrænu dögunum. Þetta hefur hingað til verið megin- stoðin í markaðssetningunni erlend- is, að ná til fólks með því að kynna íslenskan mat fyrir því en ekki með því fara í stórar auglýsingarherferðir. Hann segir þá leið vera farsælli enda sé stöðugur vöxtur í sölunni. „Ég er ekki hræddur um að fólk vilji ekki halda áfram,“ segir Bald- vin aðspurður hvort hann óttist að verkefnið leggist af vegna skorts á fjármagni. Að hans mati er hægt að skapa markað fyrir 20–30 milljón- ir dollara á næstu þremur til fjór- um árum. Um sé að ræða nýja pen- inga vegna nýrra afurða. Á næstunni verður unnið að markaðssetningu tilbúinna rétta þar sem íslenskir rétt- ir á borð við plokkfisk og kjötsúpu fá að reyna fyrir sér á erlendri grundu. Guðni Rúnar Gíslason blaðamaður skrifar gudni@dv.is n Íslenska ríkið hætti að styrkja átakið Áform í fyrra n Markaðssetja tilbúna íslenska rétti í Bandaríkjunum Í verslunum erlendis Litlir fjármunir eru til staðar í dag til að markaðssetja íslenskar afurðir á borð við lambakjöt á erlendri grund. Umboðsmaður lambsins Baldvin Jónsson hefur verið eini fasti starfsmaðurinn við markaðsátakið í Bandaríkjunum á undanförnum árum. VAGNHÖFÐA 17 / SÍMI 587 2222 / WWW.STEINDIR.IS „Á þessu ári höf- um við fengið um 85 þúsund dollara.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.