Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2011, Side 30
30 | Erlent 29. júlí – 2. ágúst 2011 Helgarblað Erlent | 31
R
éttarhöld yfir Anders Behring
Breving munu hefjast stuttu
eftir áramót verði Tor-Aksel
Busch, ríkissaksóknara Nor-
egs, að ósk sinni. Hann segist
ekki enn hafa fulla yfirsýn yfir málið
en þegar umfang málsins verði ljóst
muni hann sjá hve mikinn tíma hann
þarf fyrirréttarhöldin og sótt málið á
fullu. „Í virðingaskyni við hina látnu
og ættingju þeirra skal ódæðismað-
urinn svara fyrir hvert einasta morð,“
sagði Busch sem íhugar að sækja Bre-
vik til saka fyrir glæpi gegn mann-
kyninu. Þannig er mögulegt að hann
verður dæmdur í 30 ára fangelsi í stað
21 árs fangelsi sem venjulega telst til
hámarsksrefsingar í Noregi.
„Enginn djöfull“
Yfirheyrslur yfir Anders Behring Bre-
vik halda áfram í dag, föstudag, og
verður hann meðal annars spurður
út í það hvort vitorðsmenn hafi átt
þátt í fjöldamorðum hans. Pål-Fre-
drik Hjort Kraby, lögreglusaksóknari,
svaraði spurningum á blaðamanna-
fundi. „Í stefnuyfirlýsingunni sagðist
hann hafa aðstoðarmenn og við reyn-
um stöðugt að fá úr því skorið hvort
það sé satt eða ekki,“ segði Kraby.
Hann var einnig spurður um hvern-
ig Brevik fór að því að sprengja bílsp-
rengjuna, en vildi ekki tjá sig um það.
Á blaðamannafundinum kom einnig
fram að leit hafi værið hætt á Útey en
þó er enn leitað í nágrenni eyjarinnar.
Þá hefur norska lögreglan átt í sam-
starfi við erlenda aðila, meðal annars
FBI, bandarísku alríkislögrelguna.
Brevik er nú haldið í einangr-
un í Ila-fangelsinu í Bærum sveitar-
félaginu, vestur af Osló, en hann var
dæmdur í átta vikna gæsluvarðhald.
Honum er einungis leyft að tala við
lögmann sinn, fangaverði og fang-
elsisprest sem sagði Brevik vera orðin
persónugerving illskunnar. „Hann er
enginn djöfull, en hann hefur framið
djöfullegan verknað,“ sagði fangelsi-
spresturinn um Brevik.
Rannsóknarnefnd skipuð
Norska lögreglan hefur verið gagn-
rýnd fyrir seinagang í aðgerðum sín-
um á föstudaginn en það tók lögregl-
unna klukkutíma að komast í eyjuna á
báti. Þegar á eyjunna sjálfa var komið
tók sérsveit lögreglunnar tvær mín-
útur að yfirbuga Brevik. Jens Stol-
tenberg, forsætisráðherra Noregs
og fulltrúar allra stjórnmálaflokka á
Stortinget hafa komið sér saman um
rannsóknarnefnd til að rannsaka at-
burðarásina þann 22. júlí síðastliðinn.
Jens Stoltenberg hefur aftur á móti
þótt standa sig vel í kjölfar fjölda-
morðanna og nýtur mikilla vinsæla.
Honum hefur tekist að fylkja norsku
þjóðinni á bak við sig í samstöðu gegn
ofbeldi af þessu tagi og að svara of-
beldi með kærleik. Til dæmis hafa
ýmsir borið saman viðbrögð hans
saman við viðbrögð George W. Bush í
kjölfar hryðjuverkaárásanna 11. sept-
ember 2001 en þá talaði Bush um
hefndir og að hinum seku yrði refsað.
Áhrif á norska sjálfsmynd
Norska þjóðin er ennþá að jafna sig
á fjöldamorðunum. Flaggað er í hálfa
stöng í Noregi í dag, föstudag, en á
þessum degi er Ólafsvaka.
Voðaverkin hafa haft veruleg áhrif
á sjálfsmynd Norðmanna þar sem
friður hefur löngum skipað stóran
sess en nú sé sakleysi Noregs farið.
Bibiana Piene skrifaði til dæmis pistil
undir fyrirsögninni „Farvel, mitt lille
land“ og rithöfundirnn Jo Nesbø líkti
Noregi við jómfrú sem fyrir 22. júlí
Skal Svara fyrir
hvert einaSta dráp
n Vonast til að hefja réttarhöld eftir áramót n Yfirheyrslur
halda áfram n Aukin framlög til styrktar íbúum í Afríku
Yfirheyrslur yfir Brevik halda áfram í dag. Vonast til að hægt sé að hefja réttarhöld eftir áramót. Flaggað er í hálfa stöng á Ólafs-
vöku í Noregi mYnd REUTERS
Ráðherra úr ríkisstjórn Berlusconi:
Ver voða-
verk Breivik
Fyrrverandi ráðherra úr ríkisstjórn
Silvios Berlusconi á Ítalíu, hefur
stigið fram og varið hugsunarhátt
norska hryðju-
verkamannsins
og fjöldamorð-
ingjans Anders
Behring Brei-
vik. Francesco
Speroni, sem
er meðlimur í
bandalagi íhalds-
manna í ríkis-
stjórn, sagði í viðtali í vinsælum út-
varpsþætti að hugmyndir Breiviks
væru settar fram til varnar vestrænni
siðmenningu. Þetta kemur fram á
vef Guardian.
Í frétt The Guardian segir að
Speroni hafi þrátt fyrir þetta talað í
sama dúr og margir hægrimenn um
alla Evrópu, þar á meðal leiðtogar í
hans eigin flokki, sem hafi reynt að
láta skoðanir sínar virðast fjarlæg-
ari hryðjuverkunum í Útey og hug-
myndafræðinni sem liggur þar að
baki. Ítalski stjórnmálamaðurinn
var að útskýra ummæli annars með-
lims í bandalagi íhaldsmanna sem
hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir
að segja að að hryðjuverkin hefðu
mögulega verið hluti af plotti til að
gera málflutning íhaldssamra harð-
línumanna tortryggilegan. Í frétt The
Guardian segir að Mario Borghezio,
sem situr á Evrópuþinginu, sé aðdá-
andi skrifa ítalska blaðamannsins og
rithöfundarins Oriönu Fallaci, sem
gerði hugmyndina um Evróarabíu
framtíðarinnar vinsæla, og átti þar við
íslamska Evrópu.
Borghezio, sem situr meðal ann-
ars í nefnd Evrópuþingsins um borg-
araleg réttindi, gaf í skyn að það væri
grunsamlegt hversu auðvelt hefði
verið fyrir Breivik að skipuleggja sig.
Þá sagðist hann vera ósammála því
hvernig „... fjöldamorðin eru notuð
til þess að fordæma afstöðu eins og
þá sem Oriana Fallaci hefur tekið.“
Borghezio sagði jafnframt að
vernda þyrfti kristið fólk, það væri
ekki dýr sem mætti fórna. Ummæli
hans hafa vakið mikla reiði meðal
stjórnarandstöðunnar sem hefur
krafist þess að hann segi af sér. Þá var
Roberto Calderoli, sem situr einnig
í ríkisstjórn Berlusconi, látinn biðja
Norðmenn sérstaklega afsökunar á
ummælum Borghezio. Afsökunar-
beiðni Calderoli hafði hinsvegar lítið
að segja þar sem Speroni gekk stuttu
seinna mun lengra en Borghezio.
„Ég er sammála Borghezio. Ég
er ekki á því að hann eigi að segja af
sér,“ sagði Speroni. „Ef hugmyndir
[Breiviks] eru þær að við stefnum
hraðbyri í Evróarabíu eða álíka, og
að verja þurfi vestræna siðmenn-
ingu, þá já, ég er því sammála,“ sagði
hann í samtali við Radio 24.
S
íðasti evrópski leiðtoginn til
að ráðast með þessum hætti
á páfann var hinn miskunn-
arlausi einræðisherra Adolf
Hitler.“ Þetta sagði Thomas
Daly, kaþólskur sóknarprestur í Lo-
uth-sýslu á Írlandi, en hann lét þessi
orð falla um Enda Kenny, forsætis-
ráðherra Írlands.
Eins og flestir vita eru Írar lang-
flestir kaþólskrar trúar. Kaþólska
kirkjan hefur þurft að þola mikla
gagnrýni á undanförnum árum –
ekki síst vegna fjölmargra barna-
misnotkunarmála þar sem prestar
eru oftar en ekki viðriðnir alvar-
lega glæpi gegn börnum. Mörg-
um hefur orðið nóg um, og þá ekki
síst vegna viðbragða frá Páfagarði.
Hafa þau verið á þann veg að skip-
uð hefur verið rannsóknarnefnd
innan kaþólsku kirkjunnar sjálfrar
í stað þess að fá óháða aðila til að
meta þann skaða sem kirkjan hef-
ur valdið. Fórnarlömb kynferðis-
ofbeldis af hálfu presta hafa til að
mynda mótmælt þessum aðgerð-
um Páfagarðs.
Einn þeirra sem gagnrýnt hefur
Páfagarð á Írlandi var forsætisráð-
herrann sjálfur, Enda Kenny. Aldrei
áður hefur komið fram jafn afdrátt-
arlaus gagnrýni á Páfagarð frá Ír-
landi og í síðustu viku, þegar Kenny
gagnrýndi páfann á írska þinginu.
Sagði Kenny að Benedikt sextándi
hefði persónulega reynt að spilla
fyrir rannsókn á kynferðisofbeldi
gegn börnum fyrir þremur árum.
Daly brást hinn versti við og
líkti Kenny við Hitler eins og áður
segir. Liðsmenn Fine Gael, stjórn-
málaflokks Kennys, brugðust
ókvæða við og kröfðust þess að
presturinn drægi orð sín til baka
og að hann myndi jafnframt biðj-
ast afsökunar. Daly varð við þeim
óskum í gær, fimmtudag, með
semingi þó.
bjorn@dv.is
Enda Kenny Var líkt
við Adolf Hitler.Líkt við Hitler
n Forsætisráðherra má ekki gagnrýna páfa
Björn Reynir Halldórsson
bjornreynir@dv.is