Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2011, Side 34
34 Verslunarmannahelgin 29. júlí – 2. ágúst 2011
Margir eru fyrir löngu komnir með
leið á því að fara á útihátíðir um
verslunarmannahelgina. Sífellt fleiri
kjósa að vera heima yfir helgina og
kvarta oftar en ekki yfir því hversu
leiðinlegt fyrirbæri þessi verslunar-
mannahelgi sé. Við þetta fólk segir
DV: Ef þú nennir ekki að taka þátt í
þessu, farðu þá eitthvert annað!
Fyrir þá sem ekki hafa áhuga á að
eyða helginni á einhverri þeirra fjöl-
mörgu útihátíða sem haldnar eru
um allt land, er nefnilega endalaust
margt annað í boði. Hvort sem fólk
vill eyða helginni á gönguferð um
Hornstrandir, eins langt frá manna-
byggðum og hægt er, eða kýs að baða
sig í heitum jarðböðum á Mývatni,
ættu allir að geta fundið eitthvað við
sitt hæfi. DV fór á stúfana og ræddi
við nokkra ferðalanga sem mæltu
með eftirfarandi stöðum.
Dagsferð í Reykjadal
Það er alls ekki nauðsynlegt að fara
langt út fyrir höfuðborgina til þess að
upplifa íslenska náttúru í allri sinni
dýrð. Fyrir þá sem hafa hugsað sér að
vera innipúkar um helgina en vilja ef
til vill gera sér dagamun einn daginn
er tilvalið að keyra til Hveragerðis og
fara þaðan í gönguferð um Reykjadal
sem er innst í Hveragerðisbæ. Stuttur
göngutúr, eða um þriggja kílómetra
langur, en það er ýmislegt sem má
sjá og upplifa á þessari stuttu göngu.
Horft yfir Reykjadalinn er útsýnið
mjög fallegt en einna áhugaverðast
er þó að baða sig í hverum og laug-
um sem eru á leiðinni. Tekið skal
fram að velja þarf baðstað með til-
liti til hitastigs en hiti lækjanna getur
verið misjafn eftir aðstæðum og árs-
tíma. Eins og gefur að skilja er eng-
in sérútbúin aðstaða til fataskipta
úti í náttúrunni og því verða gestir
að leggja fötin á bakkana. Fólk er þó
hvatt til að fara að öllu með gát enda
eru varasöm hverasvæði á svæðinu.
Reykjavegsganga
Fyrir þá sem vilja ganga mun lengra
en vilja þó ekki keyra of langt til þess
að komast þangað, er Reykjavegur-
inn tilvalin gönguleið. Reykjaveg-
urinn liggur frá Reykjanesvita og að
Þingvöllum og er 145 kílómetra lang-
ur ef öll leiðin er farin. Kosturinn er
hins vegar sá að það er vel hægt að
ganga einungis hluta leiðarinnar.
Þeir sem hafa gengið þessa leið
segja landslagið mjög fjölbreytt og
skemmtilegt. Þá sé gaman að rekast
á gamlar gönguleiðir á svæðinu sem
allar eigi sína sögu. Þeir sem vilja
forðast skarkalann um verslunar-
mannahelgina ættu því að geta notið
sín vel á göngu um Reykjaveginn.
Á heimasíðunni utivist.is segir
að Reykjanesskaginn hafi upp á flest
að bjóða sem göngu- og útivistar-
fólk leiti að. „Á honum leynast einn-
ig víða fallegar gróðurvinjar. Mos-
inn í hraununum er sérkennilegur.
Einstök náttúrufyrirbrigði er þar
líka að finna eins og hraunsprung-
ur og misgengi, eldgíga, hrauntrað-
ir, jarðhitasvæði, hella, fuglabjörg og
fleira. Helsti gallinn við svæðið sem
útivistar svæði er sá, að vatn er víðast
hvar af skornum skammti. Þetta þarf
þó ekki að vera vandamál ef fyrir-
hyggja er höfð í þeim efnum.“ Áhuga-
samir geta nálgast frekari upplýsing-
ar á vefsíðu Útivistar.
Vatnshellir á Snæfellsnesi
Þeir sem nenna ekki að eyða frídög-
unum á langri göngu gætu gert sér
ferð á Snæfellsnesið. Snæfellsjök-
ull er vissulega tignarlegur og það
væri óvitlaust að tjalda undir jökli og
njóta útsýnisins. Þá er ýmislegt fag-
urt hægt að skoða á Snæfellsnesinu
en þar er meðal annars nýbúið að
bæta aðgengi að vatnshelli sem er í
suðurhlíðum Purkhólahrauns. Skýli
hefur verið byggt yfir opið niður í
hellinn og hringstigi lagður niður.
Á vefsíðunni vesturland.is seg-
ir að hellirinn sé um tvö hundruð
metrar að lengd. Þar er hátt til lofts
og vítt til veggja en hraunið og hellir-
inn eru talin vera um 5–8 þúsund ára
gömul, en þar hefur lítið breyst frá
mótun hans. Á vefsíðunni segir enn
fremur: „Hraunhellar myndast með-
an hraunið rennur og það er enn að
storkna og kólna. Þeir verða til þeg-
ar kvika tæmist úr lokaðri hraun-
rás, þegar hraunhella lyftist eða
þegar kvika sígur undan storknuðu
yfirborði.“ Á sumrin eru fastar ferðir
með leiðsögn landvarða.
Áhugasamir geta nálgast nánari
upplýsingar hjá þjóðgarðinum Snæ-
fellsjökli í síma 436 6860, eða á net-
fanginu snaefellsjokull@ust.is.
Fuglar og fjöll
Á Austurlandi er ýmislegt að upp-
lifa og sjá fyrir forvitna ferðalanga.
Að öllum öðrum stöðum ólöstuðum
nefndu álitsgjafar Borgarfjörð eystri
sem hinn fullkomna stað til þess
að heimsækja á meðan verslunar-
mannahelgargleðin stendur sem
hæst. Tilvalið er að tjalda á tjaldstæð-
inu í bænum og skoða sig svo um á
þessum fagra stað. Inn af firðinum
er vel gróinn dalur sem nær um tíu
kílómetra inn í Austfjarðafjallgarð-
inn en fjöllin í kringum Borgarfjörð
eru meðal þeirra elstu á Íslandi, 10–
15 milljón ára gömul.
Á vefsíðunni travelnet.is segir að
mikið af líparíti sé á svæðinu sem
telst vera annað stærsta líparítsvæði
landsins. Dyrfjöllin eru hluti svæðis-
ins en þau hafa myndast í öskju og
eru greinileg þykk móbergslög áber-
andi víða í þeim. Þá segir að svæðið
sé eitt skemmtilegasta göngusvæði
landsins. „Við Hafnarhólma er síð-
an glæsileg aðstaða til að skoða sjó-
fugla, lunda, ritu, fýl og æðarfugl en
göngustígur og tröppur eru upp á
hæsta kollinn á Hólmanum – senni-
lega besta aðgengi og aðstaða á
landinu til að skoða lunda og ritu,“
segir enn fremur.
Jarðböð á Mývatni
Mývatn er kjörinn áfangastaður
fyrir þá sem vilja njóta náttúrunn-
ar og slaka á. Sveitin er einn vinsæl-
asti ferðamannastaður landsins og
við því að búast að fjölmargir ferða-
menn verði á svæðinu þrátt fyrir
að engin skipulögð útihátíð sé þar.
Svæðið er einna þekktast fyrir fjöl-
skrúðugt fuglalíf, en þar eru til dæm-
is fleiri andategundir en á nokkrum
öðrum stað í heiminum. Þá er varla
hægt að koma á Mývatn án þess að
prófa jarðböðin margfrægu.
Mývetningar hafa notið þess að
stunda heit jarðböð sér til heilsubót-
ar allt frá landnámsöld. Á vefsíðunni
jardbodin.is segir að hvergi annars
staðar á Íslandi stígi hrein vatnsgufa,
laus við brennistein og aðra meng-
un, upp úr jörðinni. Fyrir þá sem
vilja taka sér frí frá slökuninni eru
merktar gönguleiðir og áhugaverðir
staðir merktir við þjóðveginn, enda
margt að skoða og auðvelt að gleyma
sér við plöntu- og fuglaskoðun. Í
boði er fjölbreytt þjónusta í gistingu,
mat og afþreyingu.
Sveitaball á Ströndum
Sé ekkert af þessu nógu spennandi
fyrir ævintýraþyrst fólk má alltaf gera
sér ferð norður á Strandir. Þar er al-
mennt fátt um fólk, mikið af tignar-
legum fjöllum og hæglega hægt að
njóta stórbrotinnar náttúru og fjöl-
skrúðugs dýralífs, en selir, fuglar,
rekaviður og klettar setja sterkan
svip á þennan afskekkta stað. Það
tekur ekki nema rúmar fjórar klukku-
stundir að keyra úr höfuðborginni og
til Djúpavíkur í Reykjafirði á Strönd-
um. Hægt er að fá gistingu á Hótel
Djúpavík og skoða sig um í gömlu
síldarverksmiðjunni í fylgd leiðsögu-
manns. Um helgina er einnig hægt
að skoða lista- og ljósmyndasýningu
í gömlu verksmiðjunni og hannyrða-
sýningu á hótelinu.
Eva Sigurbjörnsdóttir, hótelstýra
á Hótel Djúpavík, segir að þó nokkuð
af fjölskyldufólki kjósi að heimsækja
Djúpavík yfir verslunarmannahelgi:
„Fólki finnst gott að vera utan við
skarkalann á þessum tíma.“ Hún
segir ýmislegt við að vera á svæð-
inu. Hægt sé að fara í göngutúra í ná-
grenninu, fara í sund í Krossneslaug-
inni með útsýni yfir hafið, eða kíkja
á minja- og handverkshúsið Kört þar
sem skoða má muni frá miðöldum
og fallegt handverk og listmuni unna
af heimafólki. Aðspurð hvort eng-
in hátíð sé í nágrenninu segir Eva:
„Nei, en það er ball í félagsheimilinu
á Trékyllisvík á laugardaginn, það
er löng hefð fyrir því. Blek og byttur
spila fyrir dansi.“ Þið hin, sem hafið
ekki ennþá fundið neitt við hæfi, get-
ið hoppað um borð í bát á Norður-
firði. Norðar má finna ógleymanleg-
ar náttúruperlur eins og Dranga og
Hornbjarg. Svo er Grænland auðvi-
tað handan við hornið.
n Ertu kominn með leið á útihátíðum? n Veistu ekki hvert þú átt að fara um versl-
unarmannahelgina? n DV fjallar um áhugaverða staði til að heimsækja um helgina
Farðu eitthvert annað!
„Þar er almennt
lítið um fólk, mikið
af tignarlegum fjöllum og
hæglega hægt að njóta
stórbrotinnar náttúru og
fjölskrúðugs dýralífs, en
selir, fuglar, rekaviður og
klettar setja sterkan svip
á þennan afskekkta stað.
Jón Bjarki Magnússon
jonbjarki@dv.is
Reykjavegur Fyrir þá sem vilja ganga
mun lengra, en vilja þó ekki keyra of langt
til þess að komast þangað, er Reykjaveg-
urinn tilvalin gönguleið. MynD M. Hannibal
Djúpavík á Ströndum Eva Sigur-
björnsdóttir, hótelstýra á Hótel Djúpavík,
segir að þó nokkuð af fjölskyldufólki kjósi
að heimsækja Djúpavík yfir verslunar-
mannahelgi.
Jarðböðin við Mývatn Mývetningar
hafa notið þess að stunda heit jarðböð sér
til heilsubótar allt frá landnámsöld.