Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2011, Síða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2011, Síða 36
Sólgleraugu Það segir sig nánast sjálft að sólgleraugu eru nauðsyn- leg á útihátíðum. Hvort sem það er til að hlífa fyrir sólinni eða bara til að vera töff, þá eru þau málið. Það er ýmislegt sem þarf að huga að þegar farið er á útihátíð. Þar á meðal er hverju sé best að klæðast á. Þó að flestir hugsi fyrst og fremst um þægindi í klæðavali þegar kemur að því að fara á útihátíð þá er viss tíska sem einkennir hátíð- ir af þessu tagi. Útihátíðartískan í ár einkennist af því að vera í senn þægileg, flott og nokkuð frjálsleg. DV tók saman hverju er heitast að klæðast á útihátíðunum í ár. Þegar heilsan er annars vegar þá skipta gæði tækisins mestu máli. Omron blóðþrýstingsmælar fá hæstu einkunn í klínískum rannsóknum og eru viðkenndir af ESH, BHS og WHO. Omron blóðþrýstingismælar fást í estum apótekum. Þjónustuaðili Omron á Íslandi s:512 2800 Blóðþrýstingsmælar Útihátíðartískan n Það skiptir máli hverju þú klæðist um verslunarmannahelgina Ullarpeysa Góð ullar- peysa er nauðsynleg á útihátíðina. Nú er íslenska lopapeysan hin mesta tískuflík og líka hlý. Hvort sem þa ð er hágæðatískupeysa eða prjónuð af ömmu eða mömmu þá er hú n málið. Ullarpeysan ve itir hlýju á köldum ágúst- kvöldum. Regnjakki G óður regnsta kkur eða reg nslá er eiginlega n auðsyn ef m aður ætlar á útihátíð á la ndi eins og Ís landi þar sem veðrið breyt ist hratt. Það er gott að ha fa góða regnslá með sér sem tekur ekki of mikið pláss e n kemur sam t að góðu ga gni. Slár Ullarslár eða ponsjó eru algjörleg a málið á útihátíðum sumarsins. Þær koma í alls kyns litu m og gerðum og eru einka r þægilegar þegar fer að kólna á kvöldin. Gallastuttb uxur Stuttbuxur a f öllum gerðum hafa verið mikið í tísku undan farið og eru það líka í úti hátíðartísk- unni. Gallast uttbuxur koma þar sé rstaklega sterkar inn. S niðugt er að klippa gamla r gallabuxur og bretta svo aðeins upp á. Flottast þ ykir núna að hafa sídd ina rétt fyrir ofan hné. Skyrtur Bæði galla- og köflóttar skyrtur eru vinsælar í útihátíðatískunni í ár. Þetta er þægilegur klæðnaður og flottur sem hentar báðum kynjum. Stígvél Góð stígvél geta verið gulli betri ef byrjar að rigna á útihátíð. Grasið getur oft orðið ansi blautt og moldugt og þá getur verið gott að vera á góðum stígvélum. Stjörnurnar eru sjúkar í Hunter-stígvélin og hefur fyrirsætan Kate Moss meðal annars sést klæðast þeim á ófáum útihátíðum erlendis. Stígvélin eru engin fyrirstaða þó heitt sé í veðri því þau geta verið flott við stuttbuxur líka. Góður bakpoki Góður bakpoki er alveg málið á útihátíðum. Yfirleitt er það þannig að maður þarf að fara dágóðan spöl frá tjaldinu sínu yfir á svæðið þar sem skemmtunin er. Þá getur komið sér vel að vera með bakpoka til að geyma nauðsynjavörur í. Góður hattur Stráhattar eru mjög heitir um þessar mundir og þá fyrir bæði kynin. Þeir eru góðir ef það er mikil sól og skemmtilegir í rigningu þó þeir verji kannski ekki mikið fyrir regndropunum. Það er flott að toppa heildarlúkkið með góðum stráhatti. 36 Verslunarmannahelgin 29. júlí – 2. ágúst 2011

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.