Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2011, Síða 46
46 Verslunarmannahelgin 29. júlí – 2. ágúst 2011
Annálaðar
sukkhátíðir
„Það voru meiriháttar tónlistarat-
riði þarna og það gekk allt saman
mjög vel,“ segir Sigmar Guðmunds-
son, ritstjóri Kastljóss, um útihátíð-
ina Uxa sem var haldin árið 1995.
Sigmar starfaði á þeim tíma hjá út-
varpsstöðinni X-inu sem kom að
skipulagningu hátíðarinnar. Hann
játar því að um hafi verið að ræða
eina af metnaðarfyllri hátíðum sem
haldnar hafi verið hér á landi hvað
varðar tónlistaratriðin. Tónlistar-
fólk á borð við Björk, The Prodigy,
Bobby Gillespie og Andrew Innes
úr Primal Scream og fleiri komu þar
fram ásamt rjómanum úr íslensku
tónlistarlífi.
Gríðarlegur áhugi myndaðist
á útihátíðinni Uxa og boðuðu er-
lendir fjölmiðlar á borð við MTV
komu sína á hátíðina. Eftirvænting
var einnig mikil á með Íslendinga
en á þriðjudeginum fyrir verslunar-
mannahelgina bárust fregnir af því í
Tímanum að lögreglan hefði fundið
100 falsaða aðgöngumiða. Ekki var
þó aðsóknin jafn mikil og aðstand-
endur höfðu vonast til og voru sam-
kvæmt fréttum frá þessum tíma um
3.500 manns á svæðinu þegar mest
var.
Bjó ekki til fíkniefnavanda
„Unga fólkið fór á þessa hátíð og
þar af leiðandi fór fíkniefnaneyslan
með inn á þessa hátíð. Ef það hefði
ekki verið þessi hátíð þá hefði það
verið einhver önnur. Þessi hátíð bjó
ekki til einhvern fíkniefnavanda en
hann birtist þar,“ segir Sigmar um það
sukkhátíðarorðspor sem fór af útihá-
tíðinni Uxa sem var haldin árið 1995
við Kirkjubæjarklaustur. Að mati Sig-
mars var fíkniefnaneysla að aukast á
þeim tíma sem hátíðin fór fram auk
þess sem fíkniefni á borð við e-töfluna
hófu innreið sína hér á landi.
„20 til 30 fíkniefnamál komu upp
á hátíðinni um helgina. Öll málin
voru viðkomandi neyslu en ekki sölu
á fíkniefnum en hald var lagt á um 10
alsælutöflur, um 5 grömm af hassi og
álíka mikið af amfetamíni,“ segir um
hátíðina í DV þriðjudaginn 8. ágúst
1995, í vikunni eftir hátíðina. Fíkni-
efnaneysla var því kannski ekki jafn
áberandi á hátíðinni og menn vildu
vera láta næstu árin á eftir. Guðmund-
ur Baldursson, aðstoðarvarðstjóri lög-
reglunnar, hafði þetta um málið að
segja í frétt DV eftir hátíðina: „Þetta
varð ekki fíkniefnahátíð og við höfum
áreiðanlegar heimildir fyrir því að það
voru fíkniefnasalar sem flúðu af svæð-
inu – þeir gáfust hreinlega upp – af því
að það var svo mikil löggæsla hér.“
„Við urðum lítið vör við að allt væri
flæðandi í eiturlyfjum eins og fjöl-
miðlar orðuðu það. Við skemmtum
okkur alveg frábærlega og það helsta
sem hrjáði fólk á hátíðinni var sól-
bruni,“ segir Brimrún Hrönn Haf-
steinsdóttir sem fór á hátíðina ásamt
vinum sínum. Brimrún segir að há-
tíðin lifi lengi í hugum þeirra og komi
hún oft upp í tali þeirra í dag.
Borguðu undir Stígamót
Allt virtist vera gert til að gera há-
tíðina sem veigamesta og lögðu að-
standendur hennar mikla áherslu
á að Björk kæmi fram á hátíðinni. Á
baksíðu Morgunblaðsins á sunnu-
deginum fyrir hátíðina kom fram að
einkaþota hafi verið leigð til að fljúga
Björk ásamt undirleikurum til lands-
ins frá Detroit, en Björk var í miðju
tónleikaferðalagi í Bandaríkjunum.
Kostnaðurinn við þetta var um 1,7
milljónir á þessum tíma en til sam-
anburðar má nefna að aðgangsmið-
ar á hátíðina kostuðu 7.900 krónur.
Kostnaðurinn jafngilti því um 215
aðgangsmiðum á hátíðina. Með í
för samkvæmt Morgunblaðinu var
svo raftónlistarmaðurinn Richard
D. James, einnig þekktur sem Aphex
Twin. James átti að koma fram á há-
tíðinni en ekki fóru miklar sögur
af frammistöðu hans nema í einni
grein í Skinfaxa. „Tónleikauppákom-
urnar sjálfar tókust vel að því und-
anskildu að Aphex Twin nokkur og
einstaka plötusnúðar gátu ekki spil-
að vegna annarlegs ástands,“ seg-
ir í greininni sem Valgerður Maack
skrifaði í Skinfaxa.
Margt fleira var gert til að koma
hátíðinni á laggirnar og meðal ann-
ars þurfti að leggja háspennulínu
um kílómetra leið og var hún tekin
niður að hátíðinni lokinni. Kostn-
aðurinn var áætlaður á aðra milljón
króna sem hátíðarhaldarar þurftu að
greiða. Fyrir verslunarmannahelg-
ina 1995 var uppi hin árlega umræða
um nauðganir sem oft setja svartan
blett á útihátíðir hér á landi. Ljóst var
að skipuleggjendur Uxa tóku skila-
boð Stígamótakvenna alvarlega því
Uxi var eina hátíðin sem bauðst til
að kosta þá þjónustu sem Stígamót
buðu upp á það árið. grg@dv.is
„Urðum lítið vör við
að allt væri flæð-
andi í eiturlyfjum.
Eiturlyf, nauðganir og
skemmdarverk á Akureyri:
Sukkað á
Eldborg
og Akureyri
Tvær aðrar hátíðir hafa hlotið
athygli fyrir mikið sukk og vand-
ræði sem fylgdu hátíðunum.
Einar Bárðarson, útvarpsstjóri á
Kananum, tók upp á því árið 2001
að endurvekja hátíðina Eldborg
sem hafði verið haldin árið 1992.
Fyrri hátíðin þótti bera vott um
mikla ógæfu og eiturlyfjavanda-
mál. Sú seinni var lítið betri og
var hátíðin uppnefnd smjör-
sýruhátíðin vegna margra til-
kynninga um nauðganir.
Akureyringar héldu hátíðina
Halló Akureyri um verslunar-
mannahelgina árin 1994 til 1999
en ákváðu að breyta um stefnu í
kjölfarið. Hátíðin árið 1996 varð
þekkt fyrir mikinn fjölda nauðg-
ana, eiturlyf, skemmdarverk og
mikla drykkju. Heimamenn voru
í öngum sínum yfir umgengni
gestanna því bærinn leit út eins
og stríðssvæði eftir hátíðina. Há-
tíðin var haldin árlega til ársins
1999 en sú hátíð var sú síðasta
undir þessu nafni. Sú hátíð var
jafn alræmd og fyrri hátíðir og
um 15 þúsund manns sóttu hana.
Í kjölfarið var fjölskylduhátíð-
in Ein með öllu sett á laggirnar.
Hræðsla bæjarbúa við ærsla-
full ungmenni varð á endanum
til þess að bæjarstjórn Akureyrar
greip til þess ráðs árið 2007 að
banna ungmennum að tjalda í
bænum.
Rjómablíða Veðrið var gott á Uxa eins
og sést á þessari yfirlitsmynd yfir svæðið.
Mynd: BRiMRún HRönn HAfStEinSdóttiR
Brjálað stuð Keith Flint
og félagar hans í The
Prodigy voru aðalnúmerið
á hátíðinni ásamt Björk.
Mynd: BRiMRún HRönn HAfStEinSdóttiR
Gaman á Uxa Brimrún, í lopapeysunni
á myndinni, skemmti sér vel á hátíðinni og
er hér í faðmi vina sinna sem voru þar með
henni. Mynd: BRiMRún HRönn HAfStEinSdóttiR
Góð bönd Margar áhugaverðar hljóm-
sveitir á borð við The Prodigy og Atari Tee-
nage Riot komu fram á Uxa 1995.
Hátíðirnar Uxi, Halló Akureyri og Eldborg hafa
fengið á sig orð fyrir að hafa verið miklar sukkhátíðir.
Mörgum þykja þær hafa verið mun verri en sambæri-
legar hátíðir hvað varðar eiturlyfjaneyslu, ofbeldi og
skemmdarverk. DV fór á slóðir sukkhátíðanna og leit
sérstaklega á sögu Uxa sem löngum hefur þótt goð-
sagnakennd.