Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2011, Qupperneq 60
60 | Fókus 29. júlí – 2. ágúst 2011 Helgarblað
Hvað ertu að gera?
Tinna Bergsdóttir fyrirsæta
Hvað bók lastu síðast og hvernig
fannst þér hún?
„Ég ferðast rosa mikið þannig að ég er alltaf
að lesa eitthvað en mín uppáhaldsbók er
Just Kids eftir Patti Smih. Ótrúlega falleg
bók sem ég gat ekki lagt frá mér.“
Á hvaða tónlist ertu að hlusta
núna?
„Ég er að hlusta á Gina X performance og
70 ś disko electropopp.“
Hefurðu farið á tónleika eða aðra
menningarviðburði nýlega?
„Ég fór á hátíð um daginn sem heitir
Lovebox. Þangað fór ég með öllum mínum
nánustu vinum úti og hef sjaldan skemmt
mér jafn mikið. Blondie og Beth Ditto voru
meðal þeirra sem komu fram og það var
best þegar Beth Ditto fór úr öllum fötunum
og henti sér í fjöldann.“
Hvaða tímarit eru í uppáhaldi og
hvers vegna?
„Mér finnst gaman ad fletta í gegnum
flest tískutímarit en Love magazine er
uppáhalds.“
Hvað ætlar þú að gera um helgina?
„Ég verð í bænum á föstudeginum en svo fer
ég upp í sveit í bústað með nokkrum vinum
á laugardeginum.“
Ætlar upp í sveit
um helgina
mælir með...
KVIKMYND
Harry Potter and the
Deathly Hallows: Part II
„Það er í raun lygilegt hversu vel heppnaðar
myndirnar um Harry Pott er hafa verið […] eftir
stendur ein magnaðasta kvikmyndasería
sögunnar í Hollywood.“ - Jón Ingi Stefánsson
BÓK
Skurðlæknirinn
„Skurðlæknirinn er hröð
og spennandi lesning.“ -
Kristjana Guðbrandsdóttir
HLJÓMPLATA
Ég vil fara
upp í sveit
Helgi Björns og
reiðmenn vindanna
„Aðdáendur fyrri platna þeirra verða ekki
sviknir og fólk á örugglega eftir að skemmta
sér einstaklega vel áfram á knapaböllum með
Helga í broddi fylkingar.“ - Birgir Olgeirsson
mælir ekki með...
BÓK
Engan þarf
að öfunda
eftir Barböru Demick
„Fyrir áhugafólk um framandi menn-
ingarheima eða Norður-Kóreu ætti
bókin að vera skyldulesning þrátt fyrir
hversu illa þýdd hún er.“ - Aðalsteinn
Kjartansson
Þ
að er mjög mikill heiður
að vera heiðursgestur. Ég
hlakka svolítið til að prófa
það,“ segir söngvarinn Eyj-
ólfur Kristjánsson, Eyfi
eins og hann er jafnan kallaður, um
hvernig það sé að vera heiðursgest-
ur tónlistarhátíðarinnar Innipúk-
ans núna um helgina. „Þetta verður
ábyggilega alveg frábært. Mér finnst
æðislegt að hafa verið beðinn um
þetta og æðislega spennandi að fá að
spila með hljómsveitinni Valdimar.“
Eyfi kemur fram á föstudags-
kvöldinu ásamt hljómsveitinni
Valdimar. Þeir munu flytja lög Eyfa
með hann sjálfan í fararbroddi. „Þeir
eru ungir og ferskir og þetta er bara
mikil áskorun. Það verður gaman að
sjá hvernig þeir fara með lögin mín.
Þetta verður bara alveg meiriháttar.“
Byrjaði ferilinn á kántríbar
Eyfi er einn ástsælasti söngvari og
lagahöfundur landsins. Eftir hann
liggja fjölmörg þekkt dægurlög sem
flestir Íslendingar þekkja. Má þarf
nefna lögin Nína, Álfheiður Björk og
Ég lifi í draumi. Hann fagnar á þessu
ári 50 ára afmæli og 30 ára starfsaf-
mæli. Hann hefur verið iðinn við
kolann á ferli sínum og hefur náð að
lifa á tónlistinni.
Tónlistarferillinn byrjaði við
Austurvöll. „Fyrsta launaða giggið
mitt var á Óðali. Þá var Óðal svona
kántrístaður. Þetta var í kring-
um 1980 og það var einhver svona
kántríbylgja á landinu. Hallbjörn var
mjög vinsæll á þessum tíma.“ Eyfi
kom fram ásamt tveimur félögum
sínum. „Þetta var kallað stund í stig-
anum. Við komum fram í stiganum á
Óðali. Einn spilaði á kontrabassa og
við hinir vorum á kassagítar. Ég fékk
fyrsta giggið borgað í gömlu krón-
unum, þetta var fyrir gengisfellingu,“
segir hann hlæjandi.
Bítlavinafélagið í löngu fríi
„Svo kynntist ég fólki sem kallaði
sig Vísnavini og komu fram á Hót-
el Borg. Það var síðan lítill hópur af
fólki úr þeim hóp sem tók sig sam-
an og stofnaði hljómsveitina Hálft í
hvoru. Ég var með þeim í nokkur ár
síðan datt ég bara inn í popp og rokk
bransann árið 1986 þegar ég gekk í
Bítlavinafélagið.“
Bítlavinafélagið var lengi vel með
vinsælustu hljómsveitum landsins.
Þeir spiluðu víða. „Við spiluðum í
fimm ár alveg sleitulaust. Síðan tók-
um við okkur smá frí en byrjuðum
svo aftur 1996. Þá fórum við að spila
með Bylgjulestinni um landið. Það
vorum við, Emilíana Torrini, Steinn
Ármann og einhverjir fleiri.“
Hljómsveitin hefur ekki verið
áberandi undanfarið en Eyfi seg-
ir jafnvel geta orðið breytingu þar
á. „Við erum enn að. Höfum aldrei
hætt en erum bara í löngu fríi. Bítla-
vinafélagið er 25 ára á þessu ári og
það er aldrei að vita nema við teljum
í eitt eða tvö gigg seinna á árinu.“
Líklega vinsælasta íslenska
dægurlagið
Líklega er Eyfi þekktastur fyrir að
vera annar flytjandi lagsins Nínu.
Hann flutti það ásamt Stefáni Hilm-
arssyni fyrir Íslands hönd árið 1991
í Eurovision-keppninni sem hald-
in var á Ítalíu það árið. Lagið hefur
fylgt þjóðinni allar götur síðan og
heyrist mjög gjarnan sungið á góð-
um stundum. „Ég held ég spili voða
sjaldan án þess að taka Nínu. Lagið
er kannski ekki í mjög miklu upp-
áhaldi hjá mér en ég get eiginlega
ekki fengið leið á henni. Þetta er
náttúrulega eitt vinsælasta íslenska
dægurlag sem hefur verið samið.
Ég get ekki verið annað en stoltur af
því,“ segir hann.
Honum finnst gaman að taka
lagið, sérstaklega þegar áhorfend-
ur taka undir. „Mér finnst alltaf jafn
gaman að spila það því ég sé hvað
fólk hefur gaman af því að hlusta
á mig spila það og þá sérstaklega
þegar Stebbi er með mér.“
Þeir félagar spila mikið saman
og hafa gert lengi. „Við erum alltaf
að spila eitthvað saman og stefnum
á að gera nýja plötu núna í ágúst.“
Duglegur í Eurovision
Eyfi hefur oft tekið þátt í undan-
keppni Eurovision-keppninnar hér
heima þó hann hafi einungis unn-
ið hana einu sinni. „Ég var rosalega
duglegur að taka þátt í Eurovision
á níunda áratugnum,“ segir hann
hlæjandi. „Ég hef ábyggilega tekið
þátt svona 7–8 sinnum. Þá annað
hvort sem höfundur eða flytjandi
eða bæði.“
Hann var með í fyrstu undan-
keppninni árið 1986. „Ég átti eitt af
lögunum tíu sem voru í fyrstu und-
ankeppninni. Það var lagið Ég lifi
í draumi. Það hefur lifað góðu lífi
síðan,“ segir hann stoltur. „Gleði-
bankinn vann þá keppni eins og
allir vita en þátttaka mín kom mér á
kortið sem lagahöfundur. Þetta var
bara gott „múv.“
Hann er öflugur lagahöfundur
og hefur sent frá sér marga smelli.
Hann segist þó ekki hafa verið dug-
legur að semja fyrir aðra. „Ég hef
rosalega lítið gert af því. Ég hef oft
verið beðinn um það en ég er bara
eitthvað svo latur að semja fyrir
aðra. Það hefur alveg komið fyrir að
ég hafi samið fyrir aðra en ekki oft.
Ég ætla mér samt að fara að bæta úr
því núna á efri árum.“
Óttaðist kreppuna
Eyfi segir það vera skemmtilegast
að spila sín eigin lög. „Mér finnst
skemmtilegast að flytja mína eigin
tónlist. Ég er enn virkur og er enn að
senda frá mér ný lög og það er eig-
inlega það sem mér finnst skemmti-
legast við þetta allt saman. Það er al-
veg frábært að geta gert það.“
Hann segist hafa nóg að gera og
er iðinn við að búa sér til verkefni.
„Maður finnur sér alltaf einhver
verkefni. Ef maður er tónlistarmað-
ur þá verður maður alltaf að vera að
finna sér eitthvað að gera. Allavega
meðan maður er enn virkur, hefur
heilsuna og röddina í lagi þá verður
maður að vera á fullu í þessu.“
Hann hefur framfleytt sér á tón-
listinni í þrjátíu ár og segir það yfir-
leitt hafa gengið vel. Hann hafi þó
orðið hræddur um hag sinn þegar
kreppan skall á. „Það hafa komið ár
sem eru ekki jafn góð og önnur en
yfir það heila þá er þetta bara allt í
lagi. Maður var svona pínu skelkað-
ur þegar hrunið kom en ég held ég
hafi aldri haft meira að gera en eft-
ir hrun. Það er bara einhvern veg-
inn þannig að í svona kreppum þá
blómstra allar listir. Tónlist, myndlist
og allt þetta. Það er einhvern veginn
eins og það taki bara á flug.“
Spilar á 50 stöðum um landið
Eyfi spilar víða og er duglegur að fara
um landið og spila fyrir landsbyggð-
ina. Eins og áður sagði fagnar hann í
ár 50 ára afmæli sínu og 30 ára tónlist-
arferli. Hann heldur upp á það með
því að spila á 50 stöðum um landið.
„Svo er ég náttúrulega núna á þess-
um túr sem er mjög stór og úti um allt
land. Ég er að heimsækja 50 staði á Ís-
landi og það var dálítið mál að finna
50 staði,“ segir hann hlæjandi.
„Ég er búinn með 25 tónleika sem
ég kláraði í vor og svo tek ég seinni
hlutann af túrnum núna í septem-
ber. Ég reyndi að taka mér eins mik-
ið frí og ég gat í sumar. Það er búið
að vera alveg hrikalega mikið að gera
hjá mér undanfarið og verður áfram
í haust.“
Staðirnir sem hann spilar á í af-
mælistúrnum eru misjafnir og mis-
stórir. „Hrísey er hingað til minnsti
staðurinn sem ég hef farið á. Það var
fullt hús þar. Það er yfirleitt þannig
að á minnstu stöðunum mæta flest-
ir.“
Vill ekki „meika það“ erlendis
En hvað stendur upp úr á þessum
farsæla þrjátíu ára ferli? „Ég ætla nú
ekki að vera væminn en ég held að
það standi upp úr að maður skuli
enn vera að og eigi ennþá lög í efstu
sætum vinsældalistans. Eins og lagið
Allt búið sem ég sendi frá mér ásamt
Birni Jörundi núna um daginn og er
á vinsældalistunum núna. Bara það
að maður skuli ennþá hafa þetta.
Og líka það að hafa enn getuna til
að ferðast á milli staða og spila fyrir
fólk. Svo held ég að það standi upp
úr að fólk hlusti enn og vilji heyra
lögin mín.“
Hann segir fólkið sem hlustar
Fær aldrei
leið á Nínu
Tónlistarmaðurinn Eyfi fagnar hálfrar aldar afmæli með því að spila á 50 stöðum á landinu. Hann er
heiðursgestur á Innipúkanum í ár og segist aldrei hafa stefnt að því að „meika það“ erlendis. Honum hefur
tekist að framfleyta sér á tónlistinni í þrjátíu ár en viðurkennir að hafa orðið skelkaður þegar kreppan skall á.
Hann er stoltur af laginu Nína og lifir í draumi.
„Mér finnst alltaf
jafn gaman að
spila það því ég sé hvað
fólk hefur gaman af því
að hlusta á mig spila það
og þá sérstaklega þegar
Stebbi er með mér.
Fær ekki leið Hér eru þeir félagar, Stebbi og Eyfi, að flytja lagið Nína árið 1991. Hann segist
ekki geta verið annað en stoltur af laginu enda sé það eitt vinsælasta íslenska dægurlagið.
„Mér finnst gaman
að dreyma dag-
drauma og þá aðallega
um eitthvað fallegt og
vona að þeir draumar
rætist frekar en aðrir.