Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2011, Side 61
Fókus | 61Helgarblað 29. júlí – 2. ágúst 2011
Hvað er að gerast?
n Hvanndalsbræður á Spot
Hljómsveitin Hvanndælsbræður ætlar að
halda uppi fjörinu á skemmtistaðnum Spot
í Kópavogi og koma fólki í þjóðhátíðar-
stemningu.
n Thule Rock Festival
Dillon bar stendur fyrir rokkhátíð alla
helgina í portinu bak við staðinn. Á
föstudeginum byrjar dagskráin klukkan 16
og böndin sem spila eru: Dorian Gray, No To
Self, Trust the lies, Coral, BoB, Sagtmodigur,
Noise og Vicky. Plötusnúðurinn Andrea
Jónsdóttir spilar svo fyrir dansi inni á
staðnum til klukkan þrjú.
n Eyfi á Innipúkanum
Tónlistarhátíðin Innipúkinn fer fram í
tíunda sinn um verslunarmannahelgina.
Hann er haldinn að þessu sinni að mestu í
Iðnó. Tónlistarmaðurinn góðkunni Eyjólfur
Kristjánsson er heiðursgestur hátíðarinnar
í ár og kemur fram á föstudagskvöldinu
klukkan 23.
n Magnaður Innipúki
Snorri Helga, Prinspóló, Agent Fresco, Evil
Madness, Ari Eldjárn, Jónas Sigurðsson og
ritvélar framtíðarinnar ásamt fleirum sjá um
fjörið á Innipúkanum í Iðnó í kvöld.
Dagskráin hefst klukkan 16 og stendur fram
á nótt.
n Óperutöfrar í Skagafirði
Hluti af landsliði íslenskra einsöngvara
sameinar krafta sína um verslunarmanna-
helgina ásamt Karlakórnum Heimi og Berg-
málshópnum 2011 undir stjórn Guðmundar
Óla Gunnarssonar. Flutt verða valin atriði úr
óperunum La Bohéme, Tosca, Rakaranum
frá Sevilla, Tannhäuser og Carmen. Nokkuð
sem óperuunnendur ættu ekki að láta fram
hjá sér fara. Aðgangseyrir er 3.000 krónur
og tónleikarnir hefjast klukkan 20.30.
n Brekkusöngur Greifanna
Hinir einu sönnu Greifar slá upp sinni
eigin útihátíð á Spot bæði laugardags- og
sunnudagskvöld. Öllu verður tjaldað til
og gestum verðum boðið upp á grillaða
hamborgara fyrir ball og brekkusöngurinn
verður tekinn í brekkunni á sunnudags-
kvöldinu. Greifunum til halds og trausts er
engin annar en einn vinsælasti plötusnúður
landsins, Siggi Hlö. Það er lofað miklu stuði
en um síðustu verslunarmannahelgi var
slegið aðsóknarmet á staðnum.
29
JÚl
Föstudagur
30
JÚl
Laugardagur
31
JÚl
Sunnudagur
skipta hann öllu máli. Án áhorfenda
væri hann ekki að spila enn. Þess
vegna reynir hann að spila lög sem
fólk vill heyra þegar hann kemur
fram. „Það er baklandið sem skiptir
öllu máli. Ég er náttúrulega búinn að
semja svo mikið af lögum á ferlinum
sem hafa orðið vinsæl. Það er nátt-
úrulega það sem fólk vill heyra þeg-
ar maður heldur tónleika. Auðvitað
spila ég alveg ný lög líka en aðallega
lögin sem eru þekkt og fólk kemur
til að hlusta á. Fólki finnst gaman
að heyra mig syngja lögin sem það
þekkir.“
Eyfi segir frægð og frama erlend-
is ekki heilla sig. „Ég hef sko engan
áhuga á því að „meika það“ erlendis.
Ég vil bara syngja hér og syngja á ís-
lensku.“
Lifir í draumi
Af öllum lögunum sem hann hefur
samið stendur eitt upp úr sem uppá-
haldslag. „Ég verð nú eiginlega að
segja að það sé Ég lifi í draumi,“ seg-
ir hann og segist sjálfur lifa í draumi.
„Ég geri það nú yfirleitt og er svona
dagdraumamaður inni við beinið.
Mér finnst gaman að dreyma dag-
drauma og þá aðallega um eitthvað
fallegt og vona að þeir draumar ræt-
ist frekar en aðrir.“
Eyfi semur lögin út frá reynslu
sinni og segist fá innblástur úr raun-
veruleikanum. „Það er yfirleitt ein-
hver lífsreynsla á bak við textana sem
ég geri. Maður sækir yfirleitt efnið í
eitthvað sem maður hefur upplifað
sjálfur eða vill upplifa. Innblásturinn
er bara raunverulega lífið.“
viktoria@dv.is
„Maður var svona
pínu skelkaður þeg-
ar hrunið kom en ég held
ég hafi aldrei haft meira
að gera en eftir hrun.
Vill ekki „meika það“ erlendis
Eyfi segist vera stoltastur af því að lögin hans
séu enn vinsæl og fólk vilji heyra þau. Hann á að
baki 30 ára feril í tónlistinni og er hvergi nærri
hættur. Hann segist aldrei hafa viljað frægð og
frama í útlöndum.
Mynd GunnaR GunnaRSSon