Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2011, Side 66

Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2011, Side 66
66 | Sakamál 29. júlí – 2. ágúst 2011 Helgarblað www.markisur.com Veðrið verður ekkert vandamál. Dalbraut 3, 105 Reykjavík. Nánari upplýsingar í síma 567-7773 og 893-6337 um kvöld og helgar Viltu skjól á veröndina? Eigum við ekki að hætta þessari þrjósku. Mæðginin sem myrtu A nna Månsdóttir fæddist 1841 og var síðasta konan sem tek- in var af lífi í Svíþjóð. Hún var dæmd til dauða fyrir morð sem hún framdi í mars 1889 í félagi við son sinn, Per Nilsson. Fórnarlambið var Hanna Jóhanns- dóttir, eiginkona Pers. Morðið var kennt við Yngsjö í Sví- þjóð, en margt er á huldu um kring- umstæður þess því mæðginin gáfu ólíkar og misvísandi upplýsingar. Við réttarhöldin kom í ljós að Anna átti í kynferðislegu sambandi við son sinn og talið er að það hafi á endanum leitt til morðsins. Leiddar hafa verið líkur að því í seinni tíð að Anna hafi jafnvel staðið ein að morðinu, knúin áfram af afbrýðisemi, og framið það með fullri vitund og samþykki sonar síns. Anna hafði eignast þrjú börn með eiginmanni sínum, Nils Nilsson, sem hún hafði gifst í von um þægilegt líf. Reyndin varð önnur því fátækt og skuldir settu mark sitt á hjónaband- ið. Af þremur börnum hjónanna komst aðeins Per á legg. Nils lést 1883 og Anna skipulagði hjónaband Hönnu og Pers, hugsanlega til að kveða niður orðróm um kynferðis- samband hennar við Per. Hjónaband Hönnu og Pers var ekki gæfuríkt og skellti Hanna skuld- inni á tengdamóður sína og ekki er talið loku fyrir það skotið að Hanna hafi jafnvel komist á snoðir um sifja- spell mæðginanna. Ein tilgátan um morðið hljóðar á þá leið að Anna og Per hafi geng- ið í skrokk á Hönnu með barefli og Anna hafi síðan fullkomnað verkið með því að kyrkja hana. Í kjölfarið hafi þau svo klætt Hönnu í föt og komu líkinu fyrir þannig að engu líkara var en hún hefði fallið niður stiga. Hvað sem því líður játuðu Anna og hinn félegi sonur hennar á sig morðið og voru bæði dæmd til dauða. Anna var tekin af lífi 7. ágúst 1890, en dómur yfir Per var mildað- ur og hann dæmdur til þrælkunar- vinnu til æviloka. Honum var reynd- ar sleppt úr fangelsi 1913 og dó hann úr berklum árið 1918. Yngsjö-morðið er eitt frægasta morðmál í sögu Svíþjóðar og Anna Månsdóttir er, ásamt Sofíu Maríu Ekwall, eitt alræmdasta morðkvendi 19. aldar í Svíþjóð. n Yngsjö-morðið: Síðasta konan sem tekin var af lífi í Svíþjóð M attias Flink fæddist 8. mars 1970 í Falun í Svíþjóð. Sjö ára að aldri gekk hann í skátahreyfinguna, tveimur árum síðar skildu foreldr- ar hans og varð það úr að Mattias fylgdi föður sínum sem var sjálfstæð- ur vopnasmiður, en móðir hans flutti í húsnæði ekki fjarri bernskuheimili Mattiasar. Brotthvarf móður Mattiasar úr daglegu lífi hans mun hafa skilið eftir ör í sálu hans og hann varð fráhverf- ur konum þegar frá leið. Að menntaskólanámi loknu fékk Mattias Flink boð um að sinna her- skyldu í Dalregimentet, herdeild sem rekur sögu sína aftur til 16. aldar og var í upphafi skipuð mönnum úr Dölunum. Hann tók þá ákvörðun að öðlast frama í sænska hernum og var árið 1993 fastráðinn í herdeildina. Vorið 1994 þjáðist Mattias af geð- rænum vandamálum; árásarhneigð, svefntruflunum og ofsóknaræði, sem á endanum leiddu til taugaáfalls. Mattias verður morðingi Þann 11. júní 1994 fór Mattias Flink, þá orðinn lautinant, á skallann, eins og stundum er sagt. Eftir að hafa kneifað duglega fór hann heim og klæddi sig í bardagafatnað sinn og gekk síðan til aðseturs herdeildar sinnar. Þangað kominn birgði hann sig upp af skotfærum, alls um 150 skot- um, og náði í AK5-herriffilinn sinn. Að því loknu fór hann sem leið lá í almenningsgarð í miðbæ Falun. Þar rakst hann á sex konur úr varaliði hersins. Mattias hafði engar vöfflur á og skaut konurnar. Skömmu síðar gekk hann fram á tvo karlmenn sem urðu; einn hjólreiðamann og annan öryggisfulltrúa. Sex fórnarlamba Mattiasar létust samstundis, ein kvennanna lést af sárum sínum á spítala síðar, ein eitt fórnarlambanna lifði morðtilraun- ina af. Í kjölfar morðanna faldi Matti- as sig í krana sem var skammt und- an og hélt sig þar í einhvern tíma áður en hann afréð að halda heim á leið. Hann ákvað að ganga meðfram lestarteinum sem ekki voru lengur í notkun en til allrar óhamingju fyr- ir hann rákust tveir lögreglumenn á hann. Mattias beið ekki boðanna og skaut að lögreglumönnunum. Þeir svöruðu skothríðinni og Mattias féll særður í götuna. Hann var færður á sjúkrahús og þar kom í ljós að áfeng- ismagn í blóði hans var ótæpilegt. Áherslur verjandans Við réttarhöldin bar verjandi Matti- asar ekki brigður á ábyrgð hans á glæpnum en velti upp spurningu um hvort Mattias hefði verið heill á geði þegar hann framdi morðin. Skoð- un sérfræðinga var að Mattias hefði verið illa haldinn andlega, en vegna áfengisneyslu, þegar hann framdi voðaverkin. Úrskurður dómsins var á þá leið að Mattias væri sakhæfur og var hann dæmdur til lífstíðarfangelsis- vistar. Dómurinn var fordæmisgef- andi og gerði sænskum dómstólum kleift, þaðan í frá, að dæma menn til refsingar fyrir glæpi sem rekja mætti til áhrifa mikillar áfengisneyslu og voru framdir í því ástandi. Matias Flink hóf afplánun sína í Norrköping-fangelsinu en var síðar sendur í Beateberg-fangelsið fyrir utan Stokkhólm. Hann var enginn aufúsugestur þar því samföngum hans hugnaðist ekki glæpur hans; að myrða saklausar konur, og skipu- lögðu fund til að lýsa ógeði sínu á verknaði hans. Helgarfrí og áfrýjanir Mattiasi Flink hefur verið lýst sem ró- lyndum fyrirmyndarfanga og hafði nokkrum sinnum fengið að yfirgefa fangelsið, stuttan tíma í senn, und- ir eftirliti. Árið 2007 fékk hann síðan heimild til að dvelja utan veggja fang- elsisins án eftirlits og byggir heimildin á fyrirmyndarhegðun hans í fangels- inu. Mattias hefur ítrekað sótt um að dómurinn verði mildaður og hafa ætt- ingjar fórnarlamba hans ávallt sett sig upp á móti öllum slíkum vangaveltum. Lyktir fjölda tilrauna Mattiasar Flink til að að fá dóm sinn mildaðan urðu á endanum þær að dómurinn var styttur í 36 ár og verður Mattiasi því mögulegt að sækja um reynslulausn árið 2018. Reyndar hafði Mattias það í gegn í júlí í fyrra að fangelsisvist hans mið- aðist við 32 ár, sem hefði gert honum kleift að sækja um reynslulausn árið 2015. Saksóknaraembættið áfrýjaði úrskurðinum og niðurstaðan var 36 ár. Morð Merkisberans n Svíinn Mattias Flink myrti sjö manns í júní 1994 n Þegar morðin áttu sér stað var hann merkisberi (s. fänrik) í sænska hernum og sá um þjálfun nýliða n Ungur að aldri gekk Mattias í skátahreyfinguna Merkisberinn Mattias Getur sótt um reynslulausn árið 2018. Af vettvangi Mattias Flink varð sjö manns að bana. Anna Månsdóttir Rétt fyrir aftökuna

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.